Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Page 54
Þ
jálfaramálin hjá ítalska stór-
liðinu Inter hafa heldur betur
verið í óreiðu eftir að Jose Mo-
urinho hætti með liðið í fyrra-
sumar. Nú síðast var Gian
Piero Gasperini rekinn frá liðinu eftir
fimm leiki. Kornið sem fyllti mælinn
var skammarlegt 3–1 tap gegn nýlið-
um Novara á þriðjudagskvöldið en
það verður nú að teljast æði sérstakt
að þjálfari sé látinn fara eftir aðeins
fimm leiki. Við starfi hans tók Clau-
dio Ranieri, fyrrverandi þjálfari Roma
og Chelsea, svo dæmi séu tekin, en
hann skrifaði undir samning við liðið
á fimmtudaginn. Eftir að Mourinho,
„sá sérstaki“, gerði Inter að Evrópu-
meisturum í maí 2010 yfirgaf hann lið-
ið í einum augljósustu félagaskiptum
seinna tíma er hann tók við Real Ma-
drid. Mourinho vann ítölsku deildina,
bikarinn og Meistaradeildina á sínu
fyrsta tímabili með liðið en eftir brott-
hvarf hans hefur lítið gengið hjá Inter.
Þá helst að halda í þjálfarana en eft-
ir að hann fór hafa nú fjórir þjálfarar
stýrt liðinu á einu ári, þó Ranieri hafi
auðvitað aðeins fyrst hitt leikmennina
á fimmtudaginn. Allt í allt hafa fimm
menn haldið um stjórnartaumana hjá
Chelsea á 16 mánuðum.
Fyrstur til að fara án sigurs
Massimo Moratti, eigandi og forseti
Inter, er afar óþolinmóður maður og
ætlast alltaf til þess besta af liði sínu.
Þess vegna borgaði hann Mourinho
himinháar fjárhæðir fyrir að taka við
liðinu og keypti allt sem Mourinho
girntist. Það borgaði sig líka því liðið
vann þrennuna á fyrsta ári. Þokkaleg-
asta ró hefur þó verið á þjálfaramál-
um Inter síðastliðna áratugi, allavega
miðað við það sem gerist og gengur á
Ítalíu. Fyrir tíð Mourinhos hafði Ro-
berto Mancini stýrt liðinu til nokk-
urra Ítalíumeistaratitla á sínum fjór-
um árum við stjórn, á undan því var
Luigi Simone með liðið í eitt ár, þar á
undan Giampiero Marini í þrjú og á
undan því sjálfur Giovanni Trappa-
toni í fimm ár. Í heildina aðeins fjór-
ir þjálfarar á tólf árum, sem þykir ekki
slæmt á Ítalíu.
Þolinmæðin var þó ekki mikil með
Gasperini greyið sem fékk ekki nema
fimm leiki með liðið. Hann byrjaði
á því að tapa í leiknum um meistara
meistaranna gegn AC Milan, tapaði
svo deildarleik gegn Palermo, 4–3,
þar á eftir kom óvænt tap gegn Trab-
zonspor í Meistaradeildinni, 1–0, og
því fylgdi steindautt og hrútleiðin-
legt markalaust jafntefli gegn Roma
í deildinni. Það var svo á þriðjudags-
kvöldið að Moratti gafst upp þegar
Inter tapaði fyrir nýliðum Novara á
gervigrasvelli þeirra, 3–1. Novara er
að spila í fyrsta skipti í efstu deild í 55
ár og er að sjálfsögðu lið sem Inter á
ekki að keppa við. Það voru ekki bara
úrslitin sem trufluðu Moratti. Inter
var algjörlega bitlaust fram á við und-
ir stjórn Gasperinis þrátt fyrir að hann
væri búinn að bólstra sóknarlínuna
með frábærum framherjum á borð
við Mauro Zarate og Diego Forlan.
Gasperini á nú met sem enginn
vill eiga. Hann er fyrsti þjálfarinn í
sögu Inter sem er rekinn án þess að
ná að vinna einn einasta leik.
Ranieri réttur maður
Rafael Benitez, eins og Gasperini,
virtist aldrei vera með þetta hjá Inter
þrátt fyrir að hafa landað heimsmeist-
aratitli félagsliða. Liðið spilaði leiðin-
legan bolta og náði engum úrslitum.
Þegar Benitez fór var Inter í harðri
samkeppni um sæti í Meistaradeild-
inni. Moratti, sem sér alfarið um að
ráða og reka þjálfara, réð þá til starfa
Brasilíumanninn Leonardo sem er
goðsögn í lifanda lífi hjá stuðnings-
mönnum AC Milan, erkifjenda Int-
er. Hann lét það ekkert á sig fá enda
kúltúrinn allt öðruvísi á Ítalíu. Þar er
frekar litið á þjálfara sem farandverka-
menn og skiptir minna máli hvaðan
þeir koma. Undir stjórn Leonardos fór
Inter-liðið á flug og þó svo það fengi
nokkuð óvænt skell gegn Schalke í
Meistaradeildinni munaði litlu að
Leonardo stæli Ítalíu meistaratitlinum
af AC Milan. Allt kom þó fyrir ekki og
hélt Leonardo til starfa sem yfirmað-
ur knattspyrnumála hjá hinu nýríka
franska liði Paris Saint-Germain sem
ætlar sér stóra hluti með peninga
krónprinsins af Dúbaí.
Það sem Moratti vildi núna, eft-
ir brotthvarf Gasperinis, var reynsla.
Hana sá hann í Claudio Ranieri en það
var farið að orða hann við starfið kvöld-
ið áður en Gasperini var rekinn. „Ég er
ánægður með ráðninguna á Ranieri.
Á þessari stundu þurfum við reynslu.
Ég held að Ranieri muni kveikja í lið-
inu, bæði innan sem utan vallar. Hann
hefur mikil gæði sem þjálfari og mikla
reynslu í alls kyns aðstæðum. Hann er
án nokkurs vafa besti kosturinn sem
hægt var að finna úr þessu. Mér þykir
miður hvernig þetta fór hjá Gasperini.
Það var leiðinlegt. Hann skildi þó að
sjálfsögðu hvernig staðan væri. Hvort
Ranieri lagi leik liðsins strax fyrir fyrsta
leik veit ég ekki. Mér er eiginlega al-
veg sama. Aðalatriðið er bara að vinna
næsta leik gegn Bologna á laugardag-
inn, hvað sem raular og tautar“ segir
Massimo Moratti.
54 | Sport 23.–25. september 2011 Helgarblað
Aseta styður
við íshokkí
íþróttina
Gylfaflöt 5 I 112 Reykjavík I Sími 533 1600 I aseta@aseta.is
Leikir í Egilshöll
um helgina
24.09.11 kl. 16.30
Björninn - Jötnar
mfl. kk.
24.09.11 eftir leik í mfl kk.
Björninn - SA Ynjur
mfl. kvk.
Komið og
fylgist með
spennandi íþrótt
Við elskum
íshokkí!
Aseta styður við
Íshokkí-íþróttina
Fimm þjálfarar
á 16 mánuðum
n Gasperini rekinn eftir fimm
leiki n Ranieri ráðinn vegna
reynslunnar n Ekkert gengur að
halda í þjálfara eftir Mourinho
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Fótbolti
Entist í fimm leiki Gasperini náði fimm
leikjum áður en hann var rekinn frá Inter.
Sá nýjasti
Claudio Ranieri
heldur nú um
stjórnartaum-
ana hjá Inter.
2008–2010
Jose Mourinho
stýrði Inter til
sigurs á Ítalíu og í
Meistaradeildinni
á tveimur
tímabilum.
Entist fyrri hlutann 2010–2011 Rafael
Benitez tók við af Mourinho og lifði af fram
yfir áramót en var svo rekinn.
Tók seinni hlutann í ár Leonardo var ráð-
inn þjálfari Inter eftir að Benitez var rekinn og
var ekki langt frá því að vinna deildina.