Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Síða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Síða 62
62 | Fólk 23.–25. september 2011 Helgarblað „Ég má lifa“ Tobba Marinósdóttir frum- sýndi þáttinn sinn Tobbu á miðvikudagskvöldið á Skjá Einum. Mikil umræða hófst um umfjöllunarefni þáttarins í aðdraganda sýningar hans en upprunalega ætlaði Ellý Ár- manns að stýra þættinum með Tobbu en dró sig í hlé vegna umræðunnar sem skapast hafði. Tobba var óhrædd við að ganga ein til verks og var greinilega ánægð með þátt- inn að sýningu lokinni. Þá setti hún færslu á Fésbókar- síðu sína þar sem hún þakk- aði fyrir allar kveðjurnar sem henni höfðu borist og endaði færsluna með orðunum: „Ég má lifa.“ n Einn mesti aðdáandi R.E.M. vissi ekki að hljómsveitin væri hætt n Á safn gripa tengda sveitinni n Hefur hitt goðin n Ætlaði að fá þá til landsins n Fyrst og fremst þakklátur N ei, í alvöru. Þetta kemur mér alveg í opna skjöldu,“ seg- ir Eysteinn Húni Hauksson einn harð- asti aðdáandi hljómsveitar- innar R.E.M. á Íslandi og þótt víðar væri leitað, um þau tíð- indi að hljómsveitin hafi lagt upp laupana. Hljómsveitin til- kynnti aðdáendum sínum í fyrradag að hún væri hætt. Ey- steinn kom algjörlega af fjöll- um þegar blaðamaður sagði honum fréttirnar. „Ég heyrði tvö R.E.M. lög í útvarpinu í morgun og var að spá hvort eitthvert þema væri í gangi eða eitthvað.“ Hann er þó ekki sorgmædd- ur yfir þessum óvæntu tíð- indum heldur fyrst og fremst þakklátur. „Það fyrsta sem mér dettur í hug er að í staðinn fyr- ir að vera svekktur yfir þessu er ég þakklátur fyrir það sem þeir hafa fært heiminum í formi listar sinnar,“ segir hann auð- mjúkur og nokkuð brattur yfir tíðindunum. „Ef þeir hafa ekki ánægju af þessu lengur þá er ég ekki svekktur yfir því að þeir séu að hætta. Þeir eru náttúru- lega bara búnir að gera miklu meira heldur en ég hefði verið fyllilega sáttur við. Mér finnst með ólíkindum hvað þeir hafa getað skapað á þessum seinni árum sínum. Þeir geta alltaf verið að gefa út og skapa nýtt þrátt fyrir að hafa verið svona lengi saman og gert svo margt.“ Eysteinn hefur verið einn harðasti aðdáandi hljómsveit- arinnar í sautján ár. „Góður fé- lagi minn, Sigurður Ágústsson frá Geitaskarði, sýndi mér árið 1994 upptöku frá „unplugged“ tónleikunum þeirra 1991 og hann á því mesta sök á þessu. Síðan geri ég fyrirlestur í tíma hjá Baldri Guðmundssyni í Fjölbrautaskóla Suðurnesja um hljómsveitina. Hann átti að vera fimmtán mínútur að lengd en varð svona 48 mín- útur,“ segir hann og heldur svo áfram. „Þegar ég fór að graf- ast fyrir um hljómsveitina fyrir verkefnið þá heillaðist ég gjör- samlega.“ Eysteinn viðurkennir góð- fúslega að væntanlega sé hann mesti aðdáandi hljóm- sveitarinnar á Íslandi. „Ég hef svo sem engan samanburð en það getur alveg passað,“ segir hann. Svo mikill aðdáandi er Ey- steinn að hann á stórt safn af gripum tileinkuðum bandinu. „Ég á stórt safn af möppum með viðtölum, blaðagreinum og ýmsu öðru. Allt frá úrum og upp í kaffikönnur. Ég á mikið af „boot-leg“-upptökum bæði á dvd og diskum og bækur og svo auðvitað það sem aðdá- endaklúbburinn hefur sent, hann sendir alltaf jólagjöf,“ segir Eysteinn sem hefur verið í klúbbnum í mörg ár. „Þetta er ákveðin klikkun en ég veit að það eru mörg óheilbrigðari áhugmál en þetta og ég hugga mig við það.“ Safnið er orðið það stórt að hann var beðinn um að halda sýningu á því fyrir skemmstu. „Til að toppa þetta þá er systir mín með kaffihús á Egilsstöð- um og síðasta haust bað hún mig að halda sýningu á þess- um munum sem ég hef sankað að mér. Ég sló til og hún vakti mikla lukku og setti svo sann- arlega sinn svip á kaffihús- ið. Það vildi svo skemmtilega til að það villtist inn par frá Athens inn á kaffihúsið og eftir að hafa litið þar í kringum sig spurðu þau hvort að Michael Stipe (söngvari hljómsveitar- innar innsk. blm.) ætti þenn- an bar.“ Eysteinn hefur séð hljóm- sveitina á tónleikum nokkrum sinnum. Í Boston 2004, í Hyde Park 2005 og Kaupmannahöfn 2008. „Ég er búinn að sjá þá þrisvar á tónleikum og það er kannski mesta eftirsjáin í því að fá ekki að upplifa þá ein- stöku snilld aftur. Þá tilfinn- ingu og upplifun sem það var að fá að sjá tónleika með þeim. Ég fagna því alveg sérstaklega að hafa drifið mig fyrst þeir eru hættir núna.“ Hann átti sér þann draum að fá bandið til Íslands. „Þetta kannski gerir út um minn helsta draum varðandi þetta band, að það kæmi til Íslands en það varð sífellt fjarlæg- ari draumur eftir hrun. Ég hef hamrað á því við hvert tækifæri ef svo má segja. Þegar ég hitti þá alla og eins hafði ég sam- band við menn sem ég vissi að væru að halda tónleika og skaut þessu að þeim. Það var alltaf hugmyndin líka að fá með einhverjum hætti að fá einhvern þeirra til að koma á Bræðsluna í Borgarfirði. Það verður kannski af því núna, þeir vilja kannski gera eitthvað nýtt,“ segir hann vongóður. En hvað er það sem heillaði hann svo við bandið? „Fyrst og fremst hitti þessi tónlist í mark. Svo hefur mér alltaf fund- ist þeir vilja standa fyrir góða hluti í sínum málflutningi og sínum textum. Það er ýmist mikil samúð eða mikil gleði og þeir eru að standa upp og vekja athygli á ýmsu sem þeim finnst óréttlátt til dæmis. Þeir sjálfir eru svo ótrúlega jarðbundnir og skemmtilegir persónuleikar og ekki beint þessar venjulegu poppstjörnur.“ Eysteinn er bjartsýnn þrátt fyrir að bandið sé hætt störf- um. „Ég hef átt margar góðar stundir tengdar þessari hljóm- sveit og þær deyja ekkert út þó að þeir hætti.“ Vissi ekki að R.E.M. væri hætt Viktoría Hermannsdóttir viktoria@dv.is Viðtal Með Michael Stipe Eysteinn er tvímælalaust einn mesti aðdáandi R.E.M. á Íslandi. Hann hefur hitt alla hljóm- sveitarmeðlimina og hérna er hann með Michael Stipe, söngvara hljómsveitarinnar. Safnið Eysteinn á gífurlegt safn gripa sem eru tengdir hljómsveitinni. Úr, boli, bækur, diska, plötur og allt upp í kaffikönnur. Sýning Haldin var sýning á safni Eysteins á kaffihúsi systur hans á Egilsstöðum. Hér má sjá hluta herlegheitanna. Icequeen-búð á Íslandi? Glamúrfyrirsætan og sjálf- krýnda ísdrottningin Ásdís Rán sagði frá því í viðtali við Fréttablaðið að hún ætlaði jafnvel að opna Icequeen-búð á Íslandi. Hún hefur verið að hanna föt, undirföt og auka- hluti undir þessu nafni og er að opnar búðir í Búlgaríu sem koma til með að selja vörur úr Icequeen-vörumerkinu. Ásdís segir í viðtalinu að það gæti jafnvel gerst að hún opni slíka búð hér á landi en vörur hennar hafa hingað til verið seldar í Hagkaupum. Á lausu Skemmtanastjórinn og frasa- meistarinn Jón Gunnar Geir- dal er á lausu samkvæmt Facebook-síðu sinni. Hann var skráður í samband á síð- unni þar til fyrir helgi en nú virðist hann vera maður ein- samall. Hann er eflaust mikill fengur fyrir dömur bæjarins enda einstaklega orðheppinn og maðurinn á bak við marga frasa Ólafs Ragnars í vakta- seríunum sem flestir ættu að kannast við. Forréttindi að vinna með syninum n Herbert Guðmundsson og Svanur sonur hans senda frá sér nýtt lag Þ etta er fjórði „sing- úllinn“ af nýju plöt- unni okkar sem er að koma út og lagið heit- ir I wanna know why,“ segir hinn eini sanni Herbert Guð- mundsson um nýja lagið sem hann og sonur hans, Svanur, voru að senda frá sér. „Þetta eru tólf ný lög með mér og stráknum. Platan inniheld- ur meðal annars lögin Time og Vestfjarðaóðinn sem hafa verið að fá góðar viðtökur og verið mikið spiluð,“ segir Her- bert. Hann er mjög ánægður með samstarfið við son sinn, sem er 21 árs, og hrósar hon- um í hástert. „Þetta eru bara forréttindi að fá að vinna með barninu sínu og alveg æðislega gaman að við skul- um ná svona vel saman. Hann er alveg frábær tónlistarmað- ur,“ segir söngvarinn glaður í bragði um son sinn sem leikur á hljómborð. Platan kemur út um mán- aðamótin að sögn Herberts og skartar einvalaliði íslenskra tónlistarmanna. „Gulli Briem er að tromma með okkur og svo sjá Magnús og Jóhann um bakraddir og Stefán Magn- ússon, sonur Magnúsar Ei- ríkssonar, spilar á gítar,“ seg- ir hann og á við söngvarana Jóhann Helgason og Magn- ús Þór Sigmundsson, en þeir hafa unnið mikið með Her- berti. „Þeir hafa sungið bak- raddir inn á fjölda laga hjá mér. Meðal annars í Can’t walk away.“ Platan væntanlega, sem ber nafnið Tree of Life, er þrettánda plata Herberts. „Ég á svo ótrúlega mikið af lögum. Það eru ekki bara Can´t walk away og Hollywood,“ segir söngvarinn og hlær en hann er þekktastur fyrir þá smelli. DV sagði frá því á dögunum að unnið væri að kvikmynd um líf Herberts og hann seg- ist vera afar spenntur að sjá útkomuna. „Þeir eru búnir að fylgja mér um allt og spjalla við fólk sem hefur unnið með mér. Ég hef unnið með gíf- urlegum fjölda fólks og það verður gaman að sjá útkom- una.“ viktoria@dv.is Feðgar Feðgarnir Herbert og Svanur kalla sig Herbertsson og senda nú frá sér lagið I wanna know why. „Ég er búinn að sjá þá þrisvar á tónleikum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.