Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2011, Side 6
6 | Fréttir 31. október 2011 Mánudagur
Ekki í fyrsta sinn Maðurinn hefur áður
gerst sekur um að hafa barnaklám undir
höndum.
Tölvan full af barnaklámi
Þ
rjátíu og þriggja ára karlmað-
ur var dæmdur í fimm mán-
aða skilorðsbundið fangelsi
í Héraðsdómi Reykjaness á
föstudag fyrir að hafa barnaníðsefni
undir höndum.
Upp um hann komst þegar hann
fór með tölvuna sína í viðgerð. Þeir
sem fengu tölvuna til viðgerðar
urðu varir við efnið. Lögreglan gerði
í kjölfarið húsleit heima hjá honum
en alls fundust 174 ljósmyndir og
166 hreyfimyndir sem sýna börn á
kynferðislegan og klámfenginn hátt,
eins og það er orðað í dómnum.
Húsleitin var gerð 20. júní í fyrra.
Maðurinn játaði brot sitt skýlaust
fyrir dómi en með því telst sannað
að hann hafi gerst sekur um brotið.
Við ákvörðun refsingarinnar var lit-
ið til þess að hann hefur áður gerst
sekur um sams konar brot. „Með
hliðsjón af framangreindu, alvar-
leika brotsins, sem og magni og
grófleika myndefnisins þykir refsing
ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í
fimm mánuði,“ stendur í niðurstöðu
dómsins.
Í læknisvottorðum sem lögð voru
fyrri dóminn kemur fram að mað-
urinn hefur verið haldinn geðrösk-
unum af ýmsu tagi frá unga aldri,
auk þess sem hann sé talinn mis-
þroska. Hann hefur leitað sér að-
stoðar vegna geðrænna vandamála
og verið í reglulegum viðtölum hjá
sálfræðingi og geðlækni undanfar-
ið. Þess vegna var refsingin bund-
in skilorði; hann þarf með öðrum
orðum ekki að fara í fangelsi nema
hann brjóti aftur af sér. Hann var
auk þess dæmdur til að greiða skip-
uðum verjanda sínum 244 þúsund
krónur vegna málsins. Þess má geta
að maðurinn var sviptur fartölvu
sinni, borðtölvu og flakkara.
n Ríflega þrítugur karlmaður fór með tölvu í viðgerð
Lögregla
lokaði Players
Aðfaranótt laugardags var erilsöm
hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu. Meðal verkefna hennar var
að loka skemmtistaðnum Players
í Kópavogi, þar sem margt fólk var
saman komið, mun fleira en leyfi-
legt er. Hópurinn lét ófriðlega bæði
innan- og utandyra. Þá kom í ljóst
að mikill fjöldi ungmenna, undir til-
skildum aldri var þar einnig saman-
kominn. Eftir að staðnum hafði verið
lokað kom margsinnis til slagsmála
og þurfti lögregla að hafa afskipti af
þeim, meðal annars hópslagsmál-
um. Fáir voru þó handteknir og voru
flest slagsmálin minniháttar.
Fundu slæptar
rjúpnaskyttur
Björgunarmenn úr björgunarsveit-
unum Brák og Heiðari fundu á tólfta
tímanum á föstudagskvöld tvær
rjúpnaskyttur sem leitað hafði verið
að allt kvöldið. Skytturnar höfðu
óskað eftir aðstoð og voru ekki
vissar um staðsetningu sína. Þegar
björgunarmenn náðu sambandi við
skytturnar kom í ljós að GPS-tæki
var í fórum þeirra svo hægt var að
fá nokkuð nákvæma staðsetningu
en treystu rjúpnaskytturnar sér ekki
til að fara eftir tækinu til byggða
auk þess sem þreyta kom í veg fyrir
frekari göngu. Skytturnar fundust
skammt frá Hreðavatni og voru þær
slæptar og þreyttar. Eftir smá hress-
ingu treystu veiðimennirnir sér til
að ganga með björgunarmönnun-
um að bílum sem biðu þeirra ofan
við Hreðavatn. Sú gönguferð tók um
eina og hálfa klukkustund og voru
björgunarmenn og veiðimennirnir
komnir heim til sín um þrjú leytið
aðfaranótt laugardags, samkvæmt
upplýsingum frá Landsbjörg.
S
taða Steingríms J. Sigfússon-
ar, formanns Vinstri grænna,
er sterk að loknum landsfundi
þar sem hann var endurkjör-
inn formaður með um 76 pró-
sentum atkvæða. Þetta er mat Birgis
Guðmundssonar prófessors í stjórn-
málafræði. Steingrímur og forysta
flokksins hafi breyst úr hreinni hug-
sjónamennsku í að verða stjórntækur
flokkur sem vill vera í ríkisstjórn.
„Auðvitað vekur það hins vegar athygli
að það sé ekki rússnesk kosning á for-
manni hjá VG,“ segir Birgir.
Mildaðar tillögur
Hart var tekist á á landsfundi VG sem
fram fór í Hofi á Akureyri um helgina.
Þannig var lögð fram tillaga um að
flokkurinn ályktaði um að falla frá 1,5
prósenta niðurskurði í heilbrigðiskerf-
inu. Sú tillaga fór þvert gegn fjárlaga-
frumvarpinu sem Steingrímur J. hefur
þegar lagt fram á Alþingi. Steingrímur
sagði að það yrði aulalegt að mæta á
þing með ályktun gegn eigin fjárlaga-
frumvarpi í farteskinu.
Róttækar tillögur í utanríkismál-
um sem fólu í sér að flokkurinn álykt-
aði um að Ísland hætti aðildarviðræð-
um við ESB og að Ísland gengi úr Nató,
voru síðan mildaðar umtalsvert áður
en kosið var um þær. Þannig ályktaði
landsfundurinn að lokum að flokkur-
inn fagnaði því að kosið yrði um fram-
tíð Íslands í Nató. Þá varð engin meiri-
háttar stefnubreyting í Evrópumálum
hjá VG. Ítrekað var að flokkurinn teldi
hagsmunum Íslands best borgið utan
sambandsins. Þá var ályktað um að í
aðildarviðræðunum beri að hafna því
að Ísland afsali sér forræði og yfirstjórn
sjávarauðlinda innan íslenskrar efna-
hagslögsögu.
Mildari armurinn vann
„Almennt gildir það sama um bæði
Nató og ESB-ályktanirnar að lands-
fundurinn er að árétta stefnu flokksins.
Í þessu felast ekki stórkostleg tíðindi
fyrir stjórnarsamstarfið,“ segir Birgir
Guðmundsson.
„ESB-ályktunin er ekki þess eðlis
að það sé beinlínis ályktað um að við
drögum umsóknina til baka, sem
myndi þá fela í sér bein skilaboð um
aðgerðir ráðherra flokksins. Menn eru
frekar að berja sér á brjóst og árétta
fyrir hvað þeir standa.“ Birgir segir
einnig að það séu gömul tíðindi að VG-
liðar séu á móti Nató. „Það er bara eins
og að fara með trúarjátninguna þegar
maður fer í kirkju.“
Um átökin á landsfundinum í
flokknum segir Birgir: „VG er að breyt-
ast úr mótmælendaflokki sem hefur
haft það hlutverk að standa á hliðarlín-
unni og verið hjartahreinn hugsjóna-
flokkur yfir í það að sækja í stjórnarset-
ur. Í því felst áherslumunur hvernig þú
setur hlutina fram. Þessi mildari arm-
ur gerir sér grein fyrir því að það borg-
ar sig ekki að mála sig út í horn. Þarna
takast á nytsemissjónarmið og hug-
sjónamennska.“
Þar sem róttækustu öflin í VG hafi
orðið undir á landsfundinum sé ljóst
að ásýnd flokksins sé mildari en hún
hefði verið ef þau öfl hefðu náð sínu
fram.
Flokkur í umbreytingaferli
Óumdeilt er að deilur geisa innan raða
flokksins. Þannig hafa þrír þingmenn
flokksins horfið á braut það sem af er
kjörtímabili. Lilja Mósesdóttir og Atli
Gíslason sögðu sig formlega úr flokkn-
um á landsfundinum og gagnrýndu
forystuna við það tilefni. Þá vekur at-
hygli að fjórðungur flokksmanna kaus
aðra formannsframbjóðendur en
Steingrím J.
Þá benda tillögur sem eru þvert á
fjárlagafrumvarp Steingríms til þess
að innan flokksins eigi hann sér harða
andstæðinga. „Það eru alveg hiklaust
deilur,“ segir Birgir en tekur fram að
hann hefði búist við því að Steingrím-
ur fengi veikari kosningu en raun bar
vitni. „Þetta er bara góð útkoma fyrir
Steingrím því þetta er flokkur sem er í
umbreytingaferli að koma inn og verða
starfhæfur ríkisstjórnarflokkur til lengri
tíma – það kallar á öðruvísi stjórnmál. Í
flokknum eru stórir hópar af hugsjóna-
mönnum sem eru ekki tilbúnir að gefa
eftir af sínum málum. Þetta fólk hefur
verið kallað villta vinstrið. Steingrímur
er alveg á hinum kantinum, hann hef-
ur verið mjög praktískur og þá hlýtur
einhver að verða óánægður.“
Hugsjónir
urðu undir
n Steingrímur í sterkri stöðu eftir landsfund n Ísland úr Nató varð að ályktun um
Nató n Steingrímur hrekur villta vinstrið burt n Mildari armurinn hafði betur
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
Landsfundur Steingrímur J. Sigfús-
son var endurkjörinn formaður á
átakafundi í Hofi á Akureyri. MyNd hEida.iS
Birgir Guðmundsson „Almennt gildir það
sama um bæði Nató og ESB-ályktanirnar að
landsfundurinn er að árétta stefnu flokksins.
Í þessu felast ekki stórkostleg tíðindi fyrir
stjórnarsamstarfið.“
Occupy-hreyfingin til Íslands:
Tjölduðu á
Austurvelli
Hópur fólks kom saman á Austur-
velli á sunnudag þar sem efnt var til
friðsamra mótmæla. Slegið var upp
tjaldi og kom lögregla á sjötta tím-
anum og lét mótmælendur vita að
ekkert leyfi hefði fengist fyrir tjald-
búðum á Austurvelli og því yrði hún
að fjarlæga tjaldið. Til þess hafði þó
ekki komið þegar DV fór í prentun á
sunnudagskvöld.
Mótmælendurnir sem eru á Aust-
urvelli tilheyra Occupy-hreyfing-
unni svokölluðu sem er úti um allan
heim en á rætur sínar að rekja til
Bandaríkjanna þar sem mótmælin
hófust í New York og beindust gegn
Wall Street.