Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2011, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2011, Blaðsíða 15
Neytendur | 11Mánudagur 31. október 2011 F yrr á þessu ári birti DV um- fjöllun um danskan mat- arpíramída en árlega gefa dönsku neytendasamtök- in FDB út píramídann sem segir til um hversu mikið af hvaða fæðutegundum æskilegt er að borða. Nú hefur sama stofnun gefið út leiðbeiningar um hvernig hægt sé að fara eftir ráðleggingunum sem fram koma í píramídanum en með þeim fylgir tveggja vikna matseðill. Hér eru birtar leiðbeiningar til að fylgja píramídanum en með því munt þú borða hollari og fjölbreytt- ari matvæli. Mikilvægt er að borða mismunandi matvæli og með því að skoða matseðlana geta lesendur fengið tilfinningu fyrir hversu mikið af grænmeti, til dæmis, við ættum að borða yfir daginn. Á madpyrami- den.dk er einnig hægt að sjá orku-, prótein- og fituinnihald í hverjum rétti. n Dönsku neytendasamtökin gefa árlega út matarpíramída n Mataræðið verður hollt og næringarríkt ef farið er eftir píramídanum n Mikilvægt að mataræðið sé fjölbreytt og hollt Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Borðaðu rétt n Píramídinn virkar á þann hátt að við eigum að borða sem mest af því sem er á botninum en minnst af toppnum. Í fréttatil- kynningu frá samtökunum segir Joan Preisler, heilsuráðgjafi hjá FDB, að með því að styðjast við píramídann getum við á einfaldan hátt áttað okkur á því hvað við eigum að leggja áherslu á til að fá sem hollast og fjölbreyttast mataræði. Eins er hægt að nota hann þegar við kaupum í matinn en samkvæmt honum ættum við að kaupa sem mest af grænmeti og minna af kjöti. Því það sé í búðinni sem við tökum fyrsta skrefið í átt að hollara mataræði. Matarpíramídinn Dagur 1 Morgunmatur Súrmjólk með múslí og ferskum ávöxtum n AB-mjólk eða hrein jógúrt er tilva-lið í morgunmat til að fá aukakalk en það er nauðsynlegt fyrir bein og tennur. Stráið múslí yfir og ferskum ávöxtum til að fá góða og holla byrjun á deginum. Milli mála Grænmeti með hnetusmjörsídýfu n Hnetusmjör er ljúffeng ídýfa með grænmeti. Hnetur innihalda góðu og hollu fituna. Rótargræn- meti eins og gulrætur eða steinselja er hollur kostur. Hádegismatur Pastasalat með blaðlauk n Borðaðu eftir árstíðum og það sem fæst hverju sinni. Blaðlaukur og grænkál eru dæmi um græn- meti sem fæst á veturna. Mundu að velja alltaf heilhveitivörur þegar þú kaupir pasta. Milli mála Gróft rúgbrauð með avókadó og skinku n Fáðu þér samloku úr grófu rúg- brauði með örlitlu af mögru kjöti. Lárpera eða avokadó mýkir þetta upp og inniheldur góða fitu. Kvöldmatur Blómkálssalat með bulgur og steiktum laxi n Veldu gróft grænmeti svo sem blómkál og kryddaðu með ferskum kryddjurtum. Lax er feitur fiskur sem gefur okkur góða fitu og D-vítamín. Kvöldsnarl Þurrkaðir ávextir og hesli- hnetur n Fáðu þér þurrkaða ávexti og hnetur þegar nartþörfin lætur á sér kræla á kvöldin. Þetta er kostur á móti nammi eða snakki. Dagur 2 Morgunmatur Grófkornabrauð með osti og marmelaði n Veldu grófkornabrauð því það er fullt af vítamínum, steinefnum og trefjum. Trefjarnar gera það að verkum að við erum södd lengur. Milli mála Grænmeti með kryddjurtaídýfu n Gróft grænmeti með krydd- jurtaídýfu smakkast vel og er góð leið til að slá á hungur- tilfinninguna fram að hádegismatnum. Veljið gróft grænmeti og á veturna er tilvalið að nota steinselju og gulrætur. Hádegismatur Túnfiskur með jógúrtdressingu n Það er mikilvægt að borða fisk nokkrum sinnum í viku og fínt að hafa einnig fisk í hádeginu. Blandið bulgur saman við heimalagað túnfisksalatið og borðið gróft rúgbrauð með. Hér er um að ræða holla og mettandi máltíð. Milli mála Haframjöl með mjólk og ávöxtum n Haframjöl með mjólk er auðveld, holl og mettandi máltíð. Kvöldmatur Hvítkálssalat með heilhveitinúðlum og kótelettum n Eldaðu kótelettur á nýstár- legan hátt með hvítkálssalati og núðlum. Mundu eftir að kaupa heilhveitinúðlur. Kvöldsnarl Ávextir með vanilluídýfu n Sætir og vel þroskaðir ávextir með vanilluídýfu er prýðissvar við sælgæti og kökum. Dreifið ristuðum heslihnetum yfir. Dagur 3 Morgunmatur Hafragrautur með þurrk- uðum og ferskum ávöxtum n Það er gott að byrja daginn á mettandi hafragraut með ávöxtum og fitusnauðri mjólk. Milli mála Gulrætur, epli og agúrka n Dálítið af grænmeti og ávöxtum á morgnana slær á hungurtilfinn- inguna. Að auki eru matvælin holl og stútfull af vítamínum og stein- efnum. Veldu grænmeti og ávexti eftir árstíðum. Hádegismatur Hrásalat með eplum og gulrótum n Gróft hrásalat er frískandi og mettandi hádegismatur. Notaðu til dæmis epli, gulrætur, vínber, rúsínur, kókos, rúsínur og lime. Blandaðu kotasælu og ristuðum heslihnetum við salatið og borðaðu gróft rúgbrauð með. Milli mála Rúgbrauðssamloka með túnfisksalati n Notaðu gróft rúgbrauð í sam- lokuna en það er gott fyrir tennur og maga að fá smá aukavinnu. Það gefur einnig mettandi tilfinningu. Muna skal eftir því að borða fisk nokkrum sinnum í viku. Kvöldmatur Áleggskvöld n Settu rúgbrauð, álegg og afganga á borðið og láttu fjölskyldumeðlimi smyrja sitt eigið brauð. Gott er að hafa einnig álegg eins og avókadó og kartöflur. Kvöldsnarl Ávaxtasalat með ristuðum möndlum n Ferskt ávaxtasalat með rist- uðum möndlum á kvöldin. Veljið ávexti eftir árstíðum. Dagur 4 Morgunmatur Hrein jógúrt eða AB-mjólk n Gott fyrir tennur og bein og ristaðir rúgbrauðsmolar eru góður trefjagjafi. Blandaðu mangó út í til að fá náttúrulegan sykur með. Milli mála Hrásalat n Dreifðu heslihnetum yfir salatið. Hnetur eru hollar þar sem þær innihalda holla fitu, vítamín og steinefni. Hádegismatur Rúgbrauð með reyktum laxi n Laxinn er feitur og inniheldur hollu og góðu fituna. Hann er einnig góð uppspretta D-vítamíns sem er nauðsynlegt fyrir bein og vöðva. Rúsínur og heslihnetur eru hollt og gott með- læti. Milli mála Múslíbollur með grænmeti n Notaðu það grænmeti sem þig langar í eða er til í ísskápnum. Slökktu svo þorstann með fitu- skertri mjólk. Kvöldmatur Hvítkálssalat og wok-kjúklingur n Búðu til hvítlaukssalat og borð- aðu wok-eldaðan kjúkling með. Ef þú borðar mest af botninum og minnst af toppnum á píramídanum ertu að fá hollan og góðan kvöldmat. Kvöldsnarl Gróf bolla með epli og kanil n Settu epli og kanil á grófu bolluna en þá verður hún sæt og góð á bragðið. Prófaðu þig áfram með aðra ávexti, grænmeti, hnetur, krydd og jafnvel örlítið súkkulaði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.