Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2011, Side 13
Erlent | 13Mánudagur 31. október 2011
Bílaverkstæði
Varahlutaverslun
Smurstöð
Dekkjaverkstæði
Bremsur,
spindilkúlur,
stýrisendar,
o.fl., o.fl.
Allar gerðir
bætiefna fyrir
vél, drif
og gírkassa
www.bilaattan.is
Allt á einum staðBeint í fangelsi eftir Mónópólí
Í
búar Sheboygan-borgar í Banda-
ríkjunum skiptast í tvær fylk-
ingar vegna borgarstjóra síns.
Eftir tveggja ára setu í borgar-
stjórastólnum hefur Bob Ryan
fallið fjórum sinnum. Þessi tilvik
hafa verið skjalfest af lögreglu og
fest á filmu af borgurum sem skelltu
myndbandi inn á YouTube-vefsíð-
una.
„Hann er okkur til skammar,“
segir Judy David, einn af íbúum
borgarinnar, í samtali við banda-
ríska dagblaðið Wall Street Journal.
Mörgum íbúa Sheboygan finnst að
Ryan eigi að segja af sér. Þar á með-
al er borgarráðið með háværa kröfu
um að hann láti af embætti. Borg-
arráðið telur hegðun hans gera að
verkum að borgin nái sér ekki úr
þeirri efnahagslægð sem hún er í.
Þó eru allmargir sem styðja Ryan
og finna til samúðar með honum en
Sheboygan er í Wisconsin, því ríki
Bandaríkjanna þar sem drykkja er
mest stunduð.
Þegar Þjóðverjar fluttust til Wis-
consin fyrir einni öld, fylgdi þeim
bjórhefð sem eina hafnaboltalið
Wisconsin dregur nafn sitt af, The
Milwaukee Brewers, eða Bruggar-
arnir frá Milwaukee.
„Fær sér nokkra kalda“
Í Wisconsin-ríki er hæsta hlutfall
þeirra sem eru ekki hræddir við að
skvetta aðeins í sig. Í Sheboygan-
sýslu, sem er mitt á milli Green Bay
og Milwaukee og við Michigan-vatn,
er þó hæsta hlutfall drykkfelldra ein-
staklinga í Wisconsin.
Í þessari fimmtíu þúsund manna
borg eru 112 staðir með leyfi til þess
að selja áfengi og það er nánast bar
á hverju horni, að því er fram kemur
í Wall Street Journal. Ryan hélt til að
mynda kosningafundi á mörgum af
þessum börum. Þrátt fyrir drykkju-
vandamál hans eru kjósendur hans
tregir til að kalla eftir því að hann láti
af embætti.
„Látið borgarstjórann í friði, hann
er bara venjulegur gaur,“ sagði Dan
Kissel, 54 ára skurðgröfumaður á
meðan hann hellti í sig einum ís-
köldum á írskum pöbb í Sheboygan.
„Hann fær sér nokkra kalda, það er
það sem strákarnir gera.“
Eftir að Ryan féll í júlí síðastliðn-
um hefur borgarráðið kallað eftir
rannsókn á hegðun hans. Í þessari
viku mun utanaðkomandi saksókn-
ari skila af sér skýrslu til borgarráðs-
ins sem gæti leitt til yfirheyrslna og
að Ryan verði vikið úr embætti. Á
móti eru stuðningsmenn Ryans að
safna undirskriftum til þess að að
sýna honum stuðning.
„Alls ekki nógu gott“
Ryan sjálfur neitar þó að láta af
embætti. Þessi 48 ára borgarstjóri
segist hafa drukkið áfengi í miklu
magni síðan hann var tólf ára. Fyr-
ir sex árum fór hann í meðferð.
Hann seldi olíudreifingarfyrir-
tækið sitt fyrir fimm árum eftir að
hafa náð kosningu í borgarráð.
Þrátt fyrir að hafa sótt marga bari
meðan á kosningabaráttunni stóð,
sagði hann spennuna í kringum
kosningabaráttuna hafa haldið sér
frá áfenginu. Eftir að henni lauk
átti hann þó erfitt með sig.
Kvöld eitt eftir að hann varð
borgarstjóri í apríl árið 2009, fékk
hann sér í glas með mannauðs-
stjóra borgarinnar. Hún segir
borgarstjórann hafa reynt við sig
á meðan þau fengu sér í aðra tána
en hann rak hana nokkrum mán-
uðum síðar. Hún stefndi honum og
fékk skaðabætur frá borginni upp
á 310 þúsund dollara. Borgarstjór-
inn viðurkenndi mistök sín.
Þessu fylgdu síðan háðsleg-
ar yfirlýsingar hans um mágkonu
sína í júlí árið 2009. Þessi ummæli
hans náðust á myndband sem
var birt á YouTube. Spjallþátta-
stjórnandinn Jay Leno gerði til að
mynda mikið grín að þessu. Ryan
baðst afsökunar og sagðist eiga við
drykkjuvandamál að stríða. Í júlí
í fyrra sást hann drekka áfengi á
bar og í júlí síðastliðnum fór hann
á þriggja daga fyllerí sem endaði
með slagsmálum á bar. „Þetta var
alls ekki nógu gott,“ sagði hann um
málið. Borgarráð ávítti hann fyrir
ummæli hans um mágkonu hans.
Eftir slagsmálin vill borgarráðið
víkja honum úr embætti. „Ef þetta
gerist einu sinni, ókei, þú heldur
áfram. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn
sem þetta gerist,“ sagði varaforseti
borgarráðs Sheboygan.
Ryan segist þó hafa verið edrú í
þrjá mánuði. „Ef þetta gerist aftur,
þá læt ég af embætti.“
Birgir Olgeirsson
blaðamaður skrifar birgir@dv.is
n Deildar meiningar um borgarstjóra Sheboygan n Á við drykkjuvanda að stríða
n Drykkjulætin hafa vakið mikla athygli n Slagsmál og vandræðaleg myndbönd
DrykkfellDur
borgarstjóri
Umdeildur Bob Ryan er umdeildur í starfi vegna drykkju. MynD SkjÁSkot AF veF WAll Street joUrnAl „Hann fær sér
nokkra kalda, það
er það sem strákarnir
gera.