Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2011, Page 12
12 Umræða 30. nóvember 2011 Miðvikudagur
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra var spurður spjörunum úr á Beinni línu á DV.is á þriðjudaginn. Hann svaraði yfir 100 spurningum á
um tveimur klukkutímum. Margir spurðu um þá ákvörðun hans að heimila ekki sölu á Grímsstöðum á Fjöllum sem og um ríkisstjórnina. Af
svörum hans má skilja að stuðningur hans við Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra sé ekki stuðningi hans við ríkisstjórnina yfirsterkari.
„Ég styð ríkisstjórnina“
Huang Nubo
Aðalsteinn Kjartansson: Hafa
einhverjar undanþágur verið
veittar til aðila utan EES til fjár-
festinga á Íslandi í þinni ráðherratíð?
Ögmundur Ekki svo mér sé kunnugt
um, hvað landakaup snertir.
Björn Karlsson: Fram hefur
komið að þú hafir byggt að
hluta til og gist í húsi á Gríms-
stöðum. Þú hefur ekki hugsað um að
segja þig frá málinu til að ekki yrði efast
um þessa stóru ákvörðun í máli Nubo?
Ögmundur Hvað er rangt við að
gista á Grímsstöðum og hver eru
meint hagsmunatengsl? Þetta fæ ég
engan botn í!
Einar Ólafsson: Það vantar
sárlega erlenda fjárfestingu
inn í landið. Hafið þið skoðað
að ríkið kaupi Grímsstaði á Fjöllum og
leigi nýtingarréttinn til Huang Nubo
með ásættanlegum skilyrðum fyrir báða
aðila?
Ögmundur Nei, það hefur ekki verið
skoðað enda pyngjur tómar. Jarðir
á borð við Grímsstaði sem taka til
víðerna landsins ættu að vera í
almannaeign að mínu mati.
Haukur Jóhannsson:
Tekur þrjá mánuði að fletta upp
lagabókstaf eins og þeim sem
þú beitir fyrir þér í málefni Nubo? Hefði
virkilega þurft að taka allan þennan tíma
meðan miklar væntingar á Norðurlandi
byggðust upp?
Ögmundur Ráðuneytið óskaði eftir
viðbótarupplýsingum sem skýrir
einhverja töf. En þarna voru miklir
hagsmunir og ekki rétt að flana að
neinu.
Páll Halldór Halldórsson:
Gott hjá þér að hafna sölunni
á Grímsstöðum. Kom aldrei til
tals að leigja kappanum blett undir hótel
og tilheyrandi? Og ef svarið er nei, af
hverju ekki?
Ögmundur Vegna þess að umsókn
um kaup var aðeins til umfjöllunar.
Sumir vildu að ég gerðist ráðgjafi og
leiðbeindi manninum – helst ofan í
sænska kommóðuskúffu. Það vildi
ég ekki.
Róbert Reynisson: Reyndu
hagsmunaaðilar í sölu Gríms-
staða að hafa áhrif á þig með
beinum hætti?
Ögmundur Já, en ekkert óeðlilegum.
Auðlindamál
Pétur Jónsson: Þú ætlar að
verja náttúruauðlindir, þ.e.
landsvæði. Ertu til í að leggja
fram í eigin nafni stutt frumvarp. Sjávar-
auðlind er sameign þjóðarinnar og má
ekki framselja né veðsetja?
Ögmundur Staðreyndin er sú að
kveðið er á um sameignina í lögum
sem síðan hefur verið farið á bak
við. Verkefnið er að breyta allri
framkvæmd og virða þannig anda
laganna.
Alma Guðmundsdóttir: Finnst
þér að efla eigi sveitarstjórnar-
stigið varðandi nýtingu náttúru-
auðlinda?
Ögmundur Nei, ég tel að skipulags-
vald hvað auðlindir varðar eigi að
hvíla hjá heildinni, ríkinu, í ríkari mæli
en nú er.
Örn Karlsson: Ertu hlynntur
því að þjóðin (ríkið) leigi á
markaðsverði aðgang að sjávar-
auðlindinni?
Ögmundur Tel að lausnin verði
blanda af uppboðum og byggða-
tengdum úthlutunum.
Serge Lamount: Ég hefði
áhuga á að vita hvort ekki sé
áhugi fyrir því að gera allt landið
að þjóðareign (mikilvægasta auðlindin)
og banna sölu á landi almennt (sama
hvaðan kaupendur eru) og taka í stað
upp leigu?
Ögmundur Ég geri mikinn
greinarmun á bújörðum eða hefð-
bundnu nytjalandi annars vegar og
víðernum hins vegar. Þá er óeðlileg
mikil samþjöppun á eignarhaldi – og
út úr landinu á eignarhaldið ekki að
fara.
Jón Arason: Er ekki óeðlilegt
að félög frá Sviss eigi nú þegar
mikið land og margar ár við
Höfn í Hornafirði? Munt þú beita þér fyrir
því að fá þessar eignir aftur?
Ögmundur Mjög óeðlilegt! Já, það
mun ég gera eins og ég frekast má.
Trúmál
Ingólfur Hermannsson:
Styður þú aðskilnað ríkis og
kirkju?
Ögmundur Ég lít svo á að ríki og
kirkja hafi í reynd verið aðskilin. Lögin
frá 1997 gerbreyttu sambandi ríkis
og kirkju.
Sindri Óskarsson: Er ekki
kominn tími á að stoppa
einokun þjóðkirkjunnar og
gefa trúfélögum sem burði hafa til þess
tækifæri á því ganga að samningum
um t.d. sáluhjálp og fá þá viðeigandi
ríkisstyrki?
Ögmundur Frumvarp er á leiðinni
um aukin réttindi lífsskoðunar-
félaga á borð við Siðmennt. Það er til
skoðunar á vef ráðuneytisins.
Ingólfur Hermannsson:
Telurðu rétt að börn séu
sjálfkrafa skráð í trúfélag við
fæðingu? Ætti að nota sömu aðferð við
skráningu í stjórnmálaflokka?
Ögmundur Með nýju frumvarpi er
þessu breytt en þó þannig að ef báðir
foreldrar eru í trúfélagi þá fylgist
fjölskyldan að. Við verðum með
svipað fyrirkomulag og Norðmenn ef
frumvarp verður samþykkt.
Ríkisstjórnin
Fundarstjóri: Gerir þú það að
úrslitaatriði að Jón Bjarnason
sitji áfram sem ráðherra?
Ögmundur Ég hef alltaf stutt Jón
Bjarnason, bæði sem alþingismann
og ráðherra og styð hann enn.
Eðvarð Jónsson: Ég spurði
ekki hvort þú værir í þann
veginn að hætta stuðningi
heldur hvort þú munt láta stjórnar-
samstarfið brotna á Jóni Bjarnasyni. Er
þetta nógu skýrt?
Ögmundur Ég styð ríkisstjórnina.
Ég styð Jón Bjarnason. Er þetta
nógu skýrt? Þetta er alla vega það
sem ég vil segja og læt ekki þvinga
mig til annars.
Orka og iðnaður
Ragnar Jónsson: Styður þú
orkuuppbyggingu jarðhita-
svæða á Norðurlandi?
Ögmundur Ég styð þau áform sem
nú eru í burðarliðnum en vil að
sjálfsögðu taka þátt í umræðu um
hvernig við nýtum orkuna þar sem
annars staðar.
Almar Kristjánsson: Af
hverju er sá jarðvarmi sem við
búum svo vel að hér á Íslandi
ekki nýttur í stórfellda grænmetis-
ræktun? Fyrsta skrefið gæti verið að
selja grænmetisbændum rafmagn á
stóriðjuverði.
Ögmundur Þessu hef ég alla tíð
verið hlynntur.
Agnar Þorsteinsson: Mun
verða sett af stað alvöru rann-
sókn á Magma og einkavæðingu
HS þar sem nefndinni í fyrra skorti heim-
ildir? Er ekki þörf á rannsókn á störfum
einkavæðingarnefndar í heild sinni?
Ögmundur Afleiðingar af störfum
einkavæðingarnefndarinnar sællar
minningar birtust okkur í hruninu.
En fyrir alla muni, allt á að vera
opið og gagnsætt, þar sem svo er
ekki er ég fylgismaður rannsóknar.
ESB og krónan
Örn Halldórsson: Nú hafið þið
sótt um aðild að ESB sem aðili
að þessari ríkisstjórn. Hvers
konar samningur, í stórum dráttum,
myndi fá þig til að samþykkja aðild?
Ögmundur Enginn! Ég er á móti
inngöngu, sama hvað kemur út –
enda allt til bráðbirgða. Horfa þarf
á grunnsamninginn. Hann dregur
úr sjálfsákvörðunarrétti okkar.
Það sætti ég mig ekki við en studdi
ferlið af virðingu við þá sem vildu
sjá ofan í pokann. Sjálfur þykist ég
vita að þar er ekkert að finna!
Björgvin Gunnarsson: Finnst
þér að við eigum að halda í
krónuna, eða skoða aðra kosti
en ESB í þeim efnum?
Ögmundur Evran er ekki valkostur
fyrir okkur jafnvel þótt við vildum.
Krónan hefur verið okkur erfið en
um leið bjargvættur. Við skulum
einfaldlega ræða alla kosti sem við
raunverulega höfum.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir:
Hvaða kostir eru „raunveru-
legir kostir“ í sambandi við
krónuna eða upptöku annarra gjald-
miðla?
Ögmundur Raunverulegur kostur
nú er einfaldlega krónan. Hitt er
framtíðarmúsík þar sem ég þekki
ekki lokastefið.
Kristján Sigurður Kristjáns-
son: Hvar er tækifæri sósíal-
ista meiri en innan ESB?
Ögmundur Tækifæri lýðræðis-
legrar félagshyggju er alls staðar
að finna. Líka í ESB. Það þekki ég
vel eftir áratugalangt starf á þeim
vettvangi. En inn vil ég þó ekki!
Örn Karlsson: Nú er ljóst að
stjórn peningamála hefur
litlar vísindalegar forsendur.
Hvernig stendur þá á því að sömu
hagfræðingarnir hafa ráðið för í Seðla-
bankanum undangengin 15 ár þrátt
fyrir endalausa röð mistaka?
Ögmundur Ég skal játa að oftar en
ekki hef ég verið ósáttur við margt í
stefnu Seðlabankans, sérstaklega
hvað varðar vaxtastefnuna.
Mannréttindamál
Guðmundur Gunnþórsson: Nú
ert þú mannréttindaráðherra,
af hverju sérð þú ekki til þess
að álit mannréttindanefndar Sam-
einuðu þjóðanna um brot á fiskveiði-
stjórnunarkerfinu sé virt?
Ögmundur Ég hef ritað ríkislög-
manni og leitað álits hans á því
hvort mér sé stætt á því að koma
til móts við sjómenn sem dæmdir
hafa verið vegna kvótalaga. Á hinu
hef ég margoft vakið máls í ríkis-
stjórn.
Níels Ársælsson: Af hverju
hefur þú sem mannrétt-
indaráðherra ekki borgað Erni
Sveinssyni og Erlingi Haraldssyni bætur
eins og álit mannréttindanefndar SÞ
kvað á um?
Ögmundur Vegna þess að ég ráð-
stafa ekki fjármunum ríkisins að
eigin geðþótta. Þess vegna hef ég
ritað ríkislögmanni og óskað eftir
greinargerð eins og ég gat um áðan.
Guðmundur Gunnþórsson:
Ögmundur, er það ekki skylda
þín sem mannréttindaráð-
herra að sjá til þess að álit alþjóðlegra
mannréttindasamtaka sé virt?
Ögmundur Jú, það reyni ég líka að
gera eftir fremsta megni.
Jón Magnússon: Borgarstjóri
hefur lýst yfir vilja borgarinnar
til þess að taka á móti flótta-
fólki. Hvers vegna vill ráðuneytið ekki
fara í samstarf með borgaryfirvöldum
í þessu máli?
Ögmundur Hér er væntanlega
átt við móttökuna í Reykjanesbæ
fyrir hælisleitendur. Um hana gildir
samningur sem ekki hefur verið
sagt upp.
Jón Magnússon: Það er
almenn regla hér á landi að
flóttafólk sé dæmt í fangelsi
fyrir að framvísa fölsuðum skilríkjum,
þrátt fyrir að mannréttindaákvæði
kveði á um annað, hví viðgengst þetta í
ráðherratíð þinni?
Ögmundur Iðulega koma
hælisleitendur án skilríkja eða
með umdeilanlega pappíra upp á
vasann án þess að þeir séu dæmdir
í fangelsi að því er ég best veit.
Stefán Skarphéðinsson: Hver
er skoðun þín á skráningu á
nafni og kyni transgender-
fólks í þjóðskrá? Ættu t.d. ekki allir að
fá að heita það sem þeir vilja?
Ögmundur Ég vil styðja mannrétt-
indabaráttu transgender-fólks.
Barnalög
Jóhann Jóhannsson: Hver
er afstaða þín varðandi
sameiginlega forsjá foreldra –
sérstaklega í ljósi þess að dómari hefur
dæmt báða foreldra jafnhæfa til að
fara með forsjá barns!
Ögmundur Ég er því fylgjandi
að forsjá sé sameiginleg eins
og meginreglan er. Barn á rétt
til foreldra sinna beggja. Þegar
harðvítugar deilur rísa í undan-
tekningartilvikum á að láta reyna á
sáttameðferð.
Kristjana Guðbrandsdóttir:
Frumvarp þitt til breytinga
á barnalögum. – Í tíð Rögnu
innihélt frumvarpið heimild til handa
dómurum til að dæma foreldrum sam-
eiginlega forsjá. Nú er búið að taka út
dómaraheimildina. Hvers vegna?
Ögmundur Vegna þess að málin á
ekki að leysa í dómssal heldur með
aukinni áherslu á sáttameðferð.
Birgir Grímsson: Hvernig getur
sáttameðferð, þar sem engar
afleiðingar eru við því að vilja
ekki sátt, virkað ef ekki með dómara-
heimild?
Ögmundur Sáttameðferðin þarf
að ganga út á að tryggja bestu
mögulega lausn fyrir barnið. Þetta
kostar breytta og bætta nálgun.
Heimir Hilmarsson: Reynsla
annarra ríkja segir að dómara-
heimild og sáttameðferð vinni
saman og fækki dómsmálum. Hvaða rök
hefur þú fyrir því að önnur lögmál gildi á
Íslandi?
Ögmundur Þessi reynsla er ekki
einhlít eins og þú heldur fram. Ég tel
að ekki hafi verið nægilega látið reyna
á raunverulega sáttameðferð – ekki
heldur á Norðurlöndum.
Jóhann Jóhannsson: Af hverju
er dómara þá ekki heimilt að
dæma fólk til sáttameðferðar!
Ögmundur Lausn sem þvinguð er
fram með dómi reynist oftar en ekki
vera nein lausn.
Eineltismál
Valgeir Örn Ragnarsson: Kann-
ast þú við að einelti hafi þrifist
innan þingflokks VG? Einkum
gegn Lilju Mósesdóttur?
Ögmundur Ekki af minni hálfu. Held
hún myndi bera því vitni.
Stefán Karl Stefánsson:
Eineltismál á Íslandi hafa verið
mikið í umræðunni. Hefur ein-
hver umræða skapast innan ráðuneytisins
um að setja lög sem taka á því?
Ögmundur Þetta hefur mikið verið
rætt og er nú samstarfsverkefni
nokkurra ráðuneyta um leiðir gegn
einelti. Styð það. Mjög brýnt mál að
mínu mati!
Samgöngur
Sindri Óskarsson: Nú hefur
Víkurskarðið verið ófært frá því í
gærkvöldi, eru göng á leiðinni?
Ögmundur Það eru margir vegir
ófærir í mikilli ofankomu á Íslandi án
þess að boruð séu göng. Vegirnir eru
ruddir. Það kostar minna.
Sindri Óskarsson: Ögmundur
minn, ég býð þér í bíltúr yfir
Víkurskarðið, finndu mig á
Facebook! Formaður UVG-A.
Ögmundur Hlakka til, Sindri.
Brynjar Guðmundsson:
Hvenær reiknar þú með að
eðlilegar samgöngur til Land-
eyjahafnar frá Eyjum verði tryggðar?
Ögmundur Þegar ný ferja verður
komin í gagnið – í síðasta lagi 2015.
Fyrr óttast ég að ekki sé hægt að
hafa samgöngur eins tryggar og við
helst viljum en gerum okkar besta.
Laun og lífeyrisréttindi
Steinar Hafþórsson: Getur það
virkilega passað að grunnlaun
presta séu hærri en grunnlaun
lækna? Þarf ekki að kippa því í lag? Gæti
verið ein ástæða þess að fáir læknar vilja
vinna hér á landi.
Ögmundur Allur launamunur orkar
tvímælis. Ég held mig við það að
launamunur í grunntaxta á helst ekki
að vera meiri en þrefaldur.
Bjarnþór Harðarson: Finnst
þér lífeyrisréttindi ráðamanna
þjóðarinnar vera réttlát?
Ögmundur Lífeyrisréttindi „ráða-
manna“ hafa með lögum verið færð
til samræmis við lífeyrisréttindi hjá
því opinbera almennt. Gömlu sérrétt-
indin eru liðin tíð.
Einar Gunnarsson: Af hverju
er ekkert hámark á þessum
lífeyrisréttindum? Forsetinn
er búinn að ávinna sér svo mikil lífeyris-
réttindi að eftirlaun hans verða hærri en
laun nokkurs ríkisstarfsmanns. Er það
eðlilegt?
Ögmundur Ég er sammála þér að
lífeyrisréttindin þyrftu að vera jafnari
en þá líka launin. Efstu laun ættu ekki
að vera hærri en þreföld lægstu laun
– þegar horft er til grunntaxta.
Annað
Róbert Reynisson: Finnst þér
eðlilegt að ráðherra hafi heimild
til að veita undanþágu frá
lögum? Væri þetta vald ekki betur komið
í höndum óháðs aðila, t.d. einhvers konar
gerðardóms?
Ögmundur Nei, á bak við umdeilan-
legar ákvarðanir á að vera ábyrgð;
hægt að sparka þeim sem ákvörð-
unina tekur eða gera hann ábyrgan
með einhverjum hætti.
Agnar Þorsteinsson: Sem
innanríkisráðherra, muntu beita
þér fyrir sameiningu sveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu?
Ögmundur Ég mun ekki beita mér
fyrir lögþvingunum en finnst að þétt-
býlissvæðið á suðvesturhorninu eigi
að endurskipuleggja sig frá grunni.
Sameinast og valddreifa síðan á
nýjum forsendum.
Valur Bjarnason: Ert þú
hlynntur því að verðtrygg-
ingin verði afnumin og ef svo er
hvernig vilt þú að það verði gert?
Ögmundur Ég vil burt með verð-
trygginguna. Að sjálfsögðu er hægt
að afnema verðtryggingu á krónunni!
Hún var áður fyrr óverðtryggð.
Illugi Jökulsson: Starfshópur
um Guðmundar- og Geirfinnsmál
var góðra gjalda verður. En rann-
sóknarheimildir hans virðast takmarkaðar.
Hann getur t.d. ekki skikkað fólk til sín í
yfirheyrslur. Er nóg að gert?
Ögmundur Ef ekki eru nægilegar
heimildir þá verður það skoðað. Mikil
alvara er að baki þessari rannsókn af
minni hálfu.
Kristinn Unnarsson: Hver er
skoðun þín á deilum ríkisendur-
skoðanda og ríkislögreglu-
stjóra? Ber ríkislögreglustjóra ekki að
fara að lögum?
Ögmundur Að sjálfsögðu fer hann
að lögum.
Fundarstjóri: Hefurðu ekki
fylgst með deilunum?
Ögmundur Jú, að sjálfsögðu hef
ég gert það. En hvað þessi síðustu
samskipti snertir þá á ég eftir að fá
upplýsingar og get því ekki tjáð mig
af þekkingu.
Nafn: Ögmundur Jónasson.
Aldur: 63 ára.
Starf: Innanríkisráðherra
síðan 2011, heilbrigðisráðherra
2009, þingmaður Alþýðu-
bandalags frá 1995 og síðar
Vinstri grænna.
Menntun: Stúdentspróf MR
1969. MA-próf í sagnfræði
og stjórnmálafræði við Edin-
borgarháskóla 1974.
Fyrri störf: Kennari við
grunnskóla 1971–1972. Rann-
sóknir við Edinborgarháskóla
og ýmis hlutastörf 1974–1978.
Formaður BSRB 1988–2009.
Þingmaður frá 1995.