Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2011, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2011, Blaðsíða 18
Erfið fíkn Valerie stóð uppi með tvær hendur tómar þegar hún var þrítug. Hún seldi meðal annars blíðu sína vegna þess að það var svo spennandi, ekki peninganna vegna. (SviðSEtt mynd) 18 Erlent 30. nóvember 2011 miðvikudagur Á bilinu þrjú til fimm prósent Bandaríkjamanna, eða ríf- lega níu milljónir manna, þjást af kynlífsfíkn. Stöðugt fleiri greinast með kynlífsfíkn og endurspeglast það meðal annars í fjölda þeirra meðferðarsérfræð- inga sem í dag veita þessu fólki að- stoð. Fyrir rúmum tíu árum voru þeir innan við hundrað en í dag eru þeir að minnsta kosti fimmtán hundruð. Vefritið Daily Beast fjallaði ítarlega um kynlífsfíkn á dögunum og birti reynslusögur fólks sem gengið hafði í gegnum erfiðleika en er nú á bata- vegi. Hjónabönd í vaskinn „Tvö hjónabönd fóru í vaskinn. Ég stóð að lokum uppi með tvær hend- ur tómar; heimilislaus og þurfti að reiða mig á matarmiða,“ segir við- mælandi Daily Beast, Val erie, um fíkn sína. Valerie, sem í dag er á fer- tugsaldri, starfaði sem mannauðs- stjóri í Phoenix í Arizona. Þegar hún var þrítug, tvífráskilin, áttaði hún sig á því að kynferðisleg hegð- un hennar var við að ríða henni að fullu. Hún hafði haldið fram hjá báðum eiginmönnum sínum, í sumum tilfellum með samstarfs- mönnum þeirra. Það sem byrjaði sem framhjá- hald vatt upp á sig svo um mun- aði í tilfelli Valerie. Hún skráði sig á stefnumótasíður og mælti sér jafn- vel mót við karlmenn inni á klósett- um skyndibitastaða til að stunda kynlíf. Þó að ein sárreið eiginkona hafi miðað byssu að höfði hennar þegar hún kom að henni í rúminu með eiginmanni sínum hélt Valerie uppteknum hætti. Hún hélt áfram að stunda skyndikynni, mætti ekki í vinnu og hékk á klámsíðum þess í stað og stundaði sjálfsfróun daginn út og daginn inn. Þá seldi hún blíðu sína, ekki vegna þess að hana vant- aði peninga heldur vegna spenn- unnar sem því fylgdi. Valerie áttaði sig loks á alvarleika málsins þegar hún stóð frammi fyr- ir sínum öðrum skilnaði á nokkrum árum. Hún reyndi að svipta sig lífi með því að taka inn lyfseðilsskyld lyf. Á sjúkrabeðinum ákvað hún að leita sér meðferðar við kynlífsfíkn en hún segir sjálf að hún hafi verið mjög ein- mana á sínum yngri árum og liðið illa. Hegðun hennar hafi verið ein- hvers konar vörn og hún hafi verið í leit að viðurkenningu frá öðrum karl- mönnum. Afar og ömmur leita sér aðstoðar Á vefsíðunni psychcentral.com seg- ir læknirinn Michael Herkov að kyn- lífsfíkn sé best lýst sem vaxandi nándarröskun sem birtist í kynferðis- legum þankagangi og athöfnum. Það er skoðun Herkovs að sá sem hald- inn er kynlífsfíkn verði, til að ná sömu áhrifum, að ganga sífellt lengra í kyn- ferðislegri áráttu sinni. Það álit kemur heim og saman við reynslu Valerie. „Það má í raun segja að þetta sé faraldur,“ segir Steven Luff, meðferð- arsérfræðingur í Hollywood. Hann er einn þeirra sem orðið hefur var við mikla fjölgun tilfella kynlífsfíkn- ar. Sérfræðingar geta ekki bent á eitt- hvað eitt atriði sem valdið hefur þess- ari fjölgun. Augljóst er þó að á tímum netsins er aðgengi að klámefni miklu betra og auðveldara en það var á árum áður. Áður en veraldarvefur- inn kom til sögunnar þurftu Banda- ríkjamenn – og aðrir Vesturlandabú- ar – að verða sér úti um klámefni í bókabúðum eða í klámbíóhúsum þar sem hver sem er gat séð þá. Í dag er hins vegar hægt að nálgast svæsið klámefni á netinu ókeypis og í skjóli nafnleyndar. Samkvæmt umfjöllun Daily Beast nýta margir sér þetta. Áætlað er að 40 milljónir netnotenda í Bandaríkjunum skoði samtals 4,2 milljónir klámsíða á hverjum einasta degi að jafnaði samkvæmt tölum Int- ernet Filter Software Review. Meðferðarsérfræðingar hafa einnig orðið varir við mikla breyt- ingu á samsetningu þess hóps sem leitar sér aðstoðar vegna kynlífs- eða klámfíknar. Áður fyrr var stærsti hóp- urinn karlar á aldrinum 40 til 50 ára. Í dag er hópurinn ekki eins einsleit- ur og leita konur, eftirlaunaþegar og ungir karlmenn sér aðstoðar í meira mæli en áður. Auðveld skyndikynni „Það er ekki þar með sagt að þeir sem skoða nektarmyndir á netinu verði kynlífsfíklar. En stöðugt meira og betra aðgengi mun hafa slæm áhrif á þá sem eru viðkvæmir,“ segir dr. Da- vid Sack, forstjóri Promises Treat- ment-meðferðarstofnunarinnar í Los Angeles. Sack vísar í skyndikynna- vefsíður sem geta gert einstaklingum mjög auðvelt um vik að hitta annan einstakling í sömu hugleiðingum. Í því tilliti er hægt að nefna forrit eins og Grindr sem allir eigendur snjall- síma geta nálgast. Forritið er ætlað samkynhneigðum karlmönnum og notast við GPS-staðsetningarbúnað. Þannig er hægt að finna einstakling í sömu hugleiðingum sem gæti ver- ið í næsta nágrenni. Vefsíðan ashley- madison.com er ætluð giftum ein- staklingum sem vilja halda framhjá maka sínum. Samkvæmt upplýsing- um af vef Ashley Madison eru 12,2 milljónir einstaklinga skráðir þar. margir þurfa aðstoð „Sjálfstraustið var gjörsamlega í mol- um,“ segir hinn 36 ára Tony í samtali við Daily Beast. Hann fór í gegnum tólf spora kerfi SLAA (e. Sex and Love Addicts Anonymous) og er í góðum bata. Hann var mjög langt leiddur og leitaði að kvenfólki nánast hvar sem er. „Ég reyndi að hitta stelpur á körfuboltavellinum, á skemmtistöð- um. Ef ég sá stelpu sem mér leist vel á úti á götu stöðvaði ég bílinn og byrj- aði að spjalla. Ég fór út á næturnar og hugsaði með mér að kannski myndi ég finna einhvern,“ segir Tony sem segist innst inni hafa skammast sín mikið. Líkt og Valerie hafi hann verið einmana og leitað í kynlíf til að fylla upp tómarúm í lífi sínu eins og svo margir. Robert Weiss, stofnandi meðferð- arstofnunarinnar Sexual Recovery í Los Angeles, segir að mikilvægt sé að fjalla um þessi mál á opinskáan hátt, því mikill fjöldi fólks þurfi á meðferð að halda. n talið er að 9 milljónir Bandaríkjamanna þjáist af kynlífsfíkn n valerie mælti sér mót við karlmenn inni á klósettum n tvífráskilin og reyndi að svipta sig lífi n talað um faraldur Kynlífsfíkn lagði líf hennar í rúst „Tvö hjónabönd fóru í vaskinn. Ég stóð að lokum uppi með tvær hendur tómar; heimilislaus og þurfti að reiða mig á matarmiða. Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Klámefni Áætlað er að 40 milljónir netnotenda í Bandaríkjunum skoði samtals 4,2 millj- ónir klámsíða á hverjum einasta degi. Svört skýrsla SÞ: Börn í Sýr- landi pyntuð og myrt Að minnsta kosti 256 börn hafa verið myrt í Sýrlandi á tímabilinu frá miðjum mars síðastliðnum og fram í byrjun nóvember. Þetta kemur fram í skýrslu Sameinuðu þjóðanna um stríðsglæpi í land- inu, en hún var opinberuð í Genf á mánudag. Efni hennar setur auk- inn þrýsting á Bashar Assad, for- seta Sýrlands, og ríkisstjórn hans. Samkvæmt skýrslunni, sem unnin var af mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna, voru sum barnanna pyntuð. „Börn jafnt sem fullorðnir hafa mátt þola pynt- ingar,“ segir í skýrslunni en við vinnslu hennar voru 223 fórn- arlömb og vitni yfirheyrð, þar á meðal liðhlaupar úr sýrlenskra hernum. Í skýrslunni kemur fram að sýrlenskir hermenn hafi feng- ið nánast ótakmarkað leyfi til að skjóta til bana hvern þann sem mótmælti yfirvöldum. Einn her- maður gerðist liðhlaupi eftir að hafa orðið vitni að því er tveggja ára stúlka var skotin til bana í Latakia að ástæðulausu. Talið er að að minnsta kosti 3.500 manns hafi látist á umræddu tímabili og sem fyrr segir 256 börn. Í þeirri byltingaröldu sem riðið hefur yfir Mið-Austurlönd, meðal annars Egyptaland, Túnis og Jemen, hafa mun færri látist. Íranir bjarga Bretum Lögreglan í Íran hefur bjargað sex starfsmönnum breska sendiráðs- ins sem höfðu verið teknir sem gíslar og haldið í norðurhluta Tehran, höfuðborgar Íran. Þetta kemur fram í frétt The Guardian sem byggir á frétt írönsku frétta- stofunnar Fars. „Lögreglan frelsaði sex starfsmenn breska sendiráðs- ins,“ sagði í frétt Fars. Frekari upp- lýsingar um gíslatökuna hafa ekki komið fram. Nokkru áður höfðu íranskir mótmælendur tekið sig til, ráðist inn í breska sendiráð- ið og meðal annars tekið niður breska fánann. Jóga er djöfullegt Einn helsti særingamaður Páfa- garðs er á því að jóga sé komið frá djöflinum. Gabriele Amorth, sem segist hafa sært púka úr 70 þús- und manneskjum, er þeirrar skoð- unar að þar sem jóga sé sprottið úr hindúisma, sé það í raun frá djöflinum komið. „Öll austræn trúarbrögð eru byggð á falskri trú á endurholdgun,“ hefur Telegr- aph eftir honum. Hann segir að jógaæfingar leiði einungis til ills rétt eins og lestur bóka um Harry Potter.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.