Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2011, Qupperneq 21
Dómstóll götunnar
Staða mín
er sterk
Hagar sér eins og hann
sé einn í heiminum
Ólína Þorvarðardóttir þingmaður um sjávarútvegsráðherra. – Smugan
Foringjaræði, lýðræði og samræða
„Ég vil ekki svara að svo stöddu.“
Hlynur Hafliða
26 ára starfsmaður hjá Reykjavíkurborg
„Já, væri það ekki eðlilegt?“
Gunnar Þór Gunnarsson
26 ára nemi
„Það hefur verið svo mikið að
gera hjá mér að ég hef ekki getað
kynnt mér málið að svo stöddu.“
Valný Aðalsteinsdóttir
26 ára verkefnastjóri hjá Reykjavíkur-
borg
„Ég held að ríkisstjórnin ætti að
víkja.“
Pétur Þormar
51 árs næturvörður hjá Reykjavíkurborg
„Fyrir löngu síðan. Hann er algjör
Þrándur í götu fyrir öllu.“
Ævar Ármannsson
61 árs atvinnulaus.
Á Jón Bjarnason
að víkja sem
ráðherra?
Innrásarvíkingurinn frá Oz
V
á, hann á milljarða króna! Vá
hann stofnaði flugfélag! Vá, hann
tekur þátt í Járnmanninum. Vá,
hann stofnaði Oz!
Innrásarvíkingurinn Skúli Mogen-
sen mun heilla þjóðina upp úr skónum,
ef hann hefur ekki þegar gert það. Hann
lítur út eins og aðalleikarinn í kvikmynd-
inni Hangover, Bradley Cooper, á millj-
arða króna og tekur þátt í keppninni um
Járnmanninn. Það er þríþrautarkeppni,
eins og á Ólympíuleikunum. Í Járnmann-
inum eru hjólaðir í 40 kílómetrar, syntir
1,5 kílómetrar í sjónum og hlaupnir 10
kílómetrar eftir það.
Þegar Skúli var spurður út í þetta þrek-
virki í DV svaraði hann eins og ekkert
væri: „Já, ég er að fara að keppa á sunnu-
daginn“. Eins og hann væri að fara upp í
sumarbústað. Gunnar á Hlíðarenda hef-
ur örugglega svarað svona þegar hann
var spurður hvað hann gerði um helgina:
„Já ... ég hoppaði hæð mína í fullum her-
klæðum.“
Maðurinn er súperman. Um alda-
mótin skuldaði hann milljarð í Lands-
bankanum, eftir að hafa stofnað hug-
búnaðarfyrirtækið Oz, en reis upp eins
og Ofurmennið úr krypton-eitrun og
fékk 400 milljónir afskrifaðar! Svo keypti
hann Oz aftur og fór með það til Kanada.
Þaðan kom hann aftur eftir hrunið með
3,5 milljarða króna.
Nú ætlar hann að fljúga með okkur til
útlanda. Eins og súperman gerði við út-
valda. Og tíminn fer líka aftur á bak. Man
einhver eftir öðru ofurmenni, sem kom
frá útlöndum með fullar hendur fjár og
keypti banka og alls kyns dót? Einhver
sem tók 150 kíló í bekkpressu?
Hann keypti í MP Banka, í gagna-
verinu Thor, í Securitas, stofnaði flug-
félagið WOW, keypti Hvamm og
Hvammsvík. Hver veit hvað hann kaupir
næst? Vá! Hann er snúinn aftur, galdra-
maðurinn frá Oz, og ætlar að leiða okk-
ur út úr eyðimörkinni. Við munum elska
hann.
Svarthöfði
Á
rin fyrir hrun einkenndust
stjórnmálin af foringjaræði þar
sem leiðtogar stjórnarflokkanna
réðu því sem þeir vildu. Þeirra
var valdið, flokkurinn og dýrðin. Þeir
tóku sér til að mynda vald til að lýsa
yfir stuðningi Íslands við stríð í fjar-
lægu landi án þess að spyrja þing eða
þjóð. Hugmyndir um beint lýðræði,
þjóðaratkvæðagreiðslur og virkari
þátttöku almennings í ákvarðanatöku
og stefnumótun áttu ekki upp á pall-
borðið þá.
Margir bundu vonir við að nú-
verandi valdhafar, formenn stjórnar-
flokkanna yrðu ekki aðeins talsmenn
annarra vinnubragða, annars konar
stjórnmála, heldur myndu iðka þau
sjálf. Kannski héldum við að það yrði
rökrétt niðurstaða þeirra eftir tæp-
lega 60 ára sameiginlega þingsetu og
náin kynni við þau vinnubrögð sem
hér hafa viðgengist og áttu svo stóran
þátt í því hvernig fór. Og vissulega virð-
ist yfirbragð stjórnmálanna stundum
vera annað. Því halda ýmsir stjórnar-
þingmenn alla vega fram þegar spurt
er hvers vegna alltaf sé allt upp í loft á
stjórnarheimilinu. Skýringin á því er
oft sögð sú að nú sé foringjaræðið fyrir
bí og því megi stjórnarþingmenn gagn-
rýna forustuna og ákvarðanir hennar
opinberlega, jafnvel með sérhagsmuni
síns kjördæmis að leiðarljósi. Gall-
inn er bara sá að hin „nýju stjórnmál“
byggjast í raun ekki á minna foringja-
ræði, virkara lýðræði eða opnara sam-
ráði heldur einhvers konar hópslags-
málum þar sem sá sterkasti, klókasti
eða frekasti vinnur eftir að hafa safnað
liði með sérhagsmunaöflunum og nið-
urlægt félaga sína.
Nýlega las ég bókina Hollráð Hugos
eftir Hugo Þórisson sálfræðing sem
hefur aðstoðað og leiðbeint foreldr-
um, kennurum og öðrum um sam-
skipti við börn og unglinga árum
saman. Leiðarþráður í hans leiðbein-
ingum er virk hlustun, virðing fyrir
öðrum, umburðarlyndi og kærleikur.
Hann ráðleggur okkur foreldrum að
hlusta á börnin okkar, í stað þess að
rífast og skammast, ekki bara vegna
þess að þá líður öllum svo miklu bet-
ur í sálinni, heldur vegna þess að það
virkar svo miklu betur. Steingrímur og
Jóhanna létu þau orð falla í einhverju
viðtalinu að þau væru eins og „pabbi
og mamma“ á stjórnarheimilinu. Mik-
ið væri nú gott ef þau sem og aðrir
þingmenn, hvar í flokki sem þeir eru
staddir, tileinkuðu sér þau góðu ráð
að leggja sig fram við að hlusta á aðra
og skoðanir þeirra af virðingu og um-
burðarlyndi og taka tillit til annarra
sjónarmiða en sinna eigin.
Einmitt núna stendur baráttan um
Ísland sem hæst. Tekist er á um auð-
lindir landsins, hver eigi fiskinn í sjón-
um, orkuna í iðrum jarðar og jörðina
undir fótum okkar. Auk þess er nán-
ast verið að gera upp þrotabú í hverju
horni og skuldamál almennings og
fyrirtækja eru enn, þremur árum eftir
hrun, í óskiljanlegri flækju og lítið hef-
ur verið gert nema stækka biðsalinn
eftir réttlæti.
Á meðan rífast þingmenn og ráð-
herrar, reyna að níða skóinn hver af
öðrum, krækja í freistandi ráðherra-
stóla eða draga aðra niður í foraðið.
Það hlýtur að vera hægt að gera hlut-
ina öðruvísi, standa saman og taka
almannahag fram yfir sérhagsmuni.
Mikið held ég að okkur liði öllum bet-
ur ef við hefðum það á tilfinningunni
að þeir sem stjórna landinu hefðu ekki
bara munn heldur líka eyru; gætu tal-
að saman og hlustað í alvöru hvert á
annað og okkur öll hin líka.
Sönn gleði Palestínumenn á Íslandi gátu ekki leynt gleði sinni þegar Alþingi Íslendinga viðurkenndi sjálfstæði Palestínu. Amal Tamimi, varaþingmaður Samfylkingarinnar, sést í
bakgrunni, en hún er fædd í Palestínu. Mynd Eyþór ÁrnaSon Myndin
Mest lesið á DV.is
1 Manuela hyggst kæra Grétar Rafn fyrir persónunjósnir
Einkaspæjarar á vegum lögfræðinga
Grétars njósnuðu um Manuelu og sam-
býlismann hennar
2 Sannleikurinn um Lindex-æðið Markaðsmenn greindu aðferðirnar á bak
við markaðssetningu Lindex hérlendis
3 Hatursfulla breska mamman í lestinni handtekin Konan sem gerði
allt vitlaust í Bretlandi í gær eftir að mynd-
band af kynþáttaníði hennar um borð í
lest birtist á netinu hefur verið handtekin.
4 „Ögmundur minn, ég býð þér í bíltúr“ Ögmundur Jónasson svaraði
spurningum Íslendinga í beinni línu á
DV.is.
5 Breytingar fyrirhugaðar á ráðherraliði Hrókeringa er að vænta
innan ráðherraliðs ríkisstjórnar Jóhönnu
Sigurðardóttur.
6 Gamlar ruðningshetjur slógust í kvöldverðarboði Erkifjendur slógust
þegar það átti að heiðra þá við hátíðlegt
tilefni.
7 Bakhjarlar ráðherrans í auglýsingaherferð Bakhjarlar Jóns
Bjarnasonar ætla að setja auglýsingu í
miðvikudagsmoggann Jóni til stuðnings.
Umræða 21Miðvikudagur 30. nóvember 2011
Jón Bjarnason um ummæli flokksfélagans Björns Vals. – Rás 2
Kjallari
Margrét
Tryggvadóttir
Gunnar Ólason úr Skítamóral sem lætur rífa hús sitt, eftir jarðskjálfta. – DV
Þá mun ég allavega ekki
skulda húsið lengur