Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2012, Side 2
Öruggast
á álftanesi
2 Fréttir 30. júlí 2012 Mánudagur
T
ólf hundruð innbrot voru
framin á höfuðborgarsvæð-
inu á síðustu tólf mánuð-
um. Innbrotum hefur fækkað
talsvert á tímabilinu og voru
þau áttatíu og fimm í júní á þessu ári.
Til samanburðar voru þau hundrað
og sautján í júlí á síðasta ári. Þetta
kemur fram í tölum um afbrota- og
innbrotatíðni frá lögreglunni á höf-
uðborgarsvæðinu. Þar kemur fram að
flest innbrotanna eigi sér stað í mið-
borg Reykjavíkur. Þar hafa hundr að
og fimmtán innbrot verið framin á
hverja tíu þúsund íbúa á svæðinu.
Laugardalurinn hættulegri
en Kópavogur
Talsverður munur er á afbrota- og
innbrotatölum í Laugardal og Kópa-
vogi. Íbúafjöldinn á þessum svæð-
um er mismunandi en séu afbrotin
skoðuð sem hlutfall af hverjum tíu
þúsund íbúum kemur í ljós að tals-
vert hættulegra virðist vera að búa í
Laugardalnum en í Kópavogi. Níutíu
og tvö innbrot voru framin í Laugar-
dalnum á síðustu tólf mánuðum á
hverja tíu þúsund íbúa samanbor-
ið við sjötíu og sjö á hverja tíu þús-
und íbúa í Kópavogi. Sömu sögu er
að segja séu tölur um öll skráð hegn-
ingarlagabrot skoðaðar. Sexhundruð
tuttugu og átta hegningarlagabrot
eru skráð á hverja tíu þúsund íbúa í
Laugardalnum en aðeins þrjú hund-
ruð fjörutíu og átta í Kópavogi.
Í miðborg Reykjavíkur voru hegn-
ingarlagabrotin rúmlega eittþúsund
og áttahundruð á hverja tíu þúsund
íbúa sem er um það bil tólf hundruð
fleiri en í Laugardalnum, þar sem
næstflest brot áttu sér stað á hverja
tíu þúsund íbúa. Líklegasta skýringin
á því er sú staðreynd að fjöldi fólks
kemur í miðborgina um helgar til að
skemmta sér. Eftir hverja helgi eru
nokkur fjöldi brota, eins og líkams-
árásir, skráðar í miðborginni þó að
þeir aðilar sem í hlut áttu hafi komið
annars staðar frá.
Álftanesið öruggasti staðurinn
Sama hvort litið er til tíðni innbrota
eða allra skráðra hegningarlagabrota
virðist öruggast að búa á Álftanesi,
samkvæmt tölum lögreglunnar. Þar
voru sextíu og sex hegningarlaga-
brot skráð á síðustu tólf mánuðum á
hverja tíu þúsund íbúa og aðeins tutt-
ugu og eitt innbrot. Álftanes er jafn-
framt fámennasta svæðið sem töl-
ur lögreglunnar ná yfir en lögreglan
skiptir höfuðborgarsvæðinu niður í
fimmtán mismunandi svæði. Þar eru
sveitarfélögin umhverfis Reykjavík
talin hvert og eitt en borginni sjálfri
skipt niður í borgarhluta.
Af þeim svæðum þar sem íbúar
eru fleiri en tíu þúsund eru Garða-
bær og Hafnarfjörður öruggustu
staðirnir á höfuðborgarsvæðinu.
Samkvæmt lögreglunni voru rúm-
lega tvö hundruð hegningarlaga-
brot framin á hverja tíu þúsund íbúa
í Garðabæ og tæplega tvöhundr-
uð og sjötíu í Hafnarfirði. Innbrot-
in voru hinsvegar hlutfallslega færri
í Hafnarfirði en Garðabæ. Þrjátíu og
fimm innbrot voru á hverja tíu þús-
und íbúa í Hafnarfirði en fjörutíu og
sex í Garðabæ.
Brotist inn á 166 ára fresti
Innbrot á öllu höfuðborgarsvæðinu
voru eins og áður segir tólf hund-
ruð talsins. Miðað við íbúafjölda á
öllu svæðinu þýðir það að brotist er
inn hjá hverjum og einum á um það
bil hundrað og sjötíu ára fresti. Þetta
ætti að vera einhverjum huggun því
n Innbrotum fækkar talsvert á höfuðborgarsvæðinu n Hlutfallslega fleiri innbrot í Laugardal en í Kópavogi
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Miðborg Reykjavíkur
115 innbrot
1.822 hegningarlagabrot
Vesturbær
41 innbrot
285 hegningarlagabrot
Hlíðar
59 innbrot
406 hegningarlagabrot
Háaleiti
49 innbrot
418 hegningarlagabrot
Laugardalur
92 innbrot
628 hegningarlagabrot
Seltjarnarnes
49 innbrot
225 hegningarlagabrot
Kópavogur
77 innbrot
348 hegningarlagabrot
Garðabær
46 innbrot
201 hegningarlagabrot
Álftanes
21 innbrot
66 hegningarlagabrot
Hafnarfjörður
35 innbrot
267 hegningarlagabrot
Afbrotatíðni á höfuðborgarsvæðinu
Brot á hverja tíu þúsund íbúa eftir svæðum
Lo
ft
M
y
n
d
a
f
M
a
p
S
.G
o
o
G
Le
.c
o
M
Enginn skóli
hjá Óla
Stjórn Menntaskólans ehf., hefur
óskað eftir að félaginu verði slitið
og afskráð úr fyrirtækjaskrá. Við-
skiptablaðið greinir frá þessu, en
Menntaskólinn ehf. ætlaði á sín-
um tíma að stofna nýjan einkarek-
inn sjálfstætt starfandi grunnskóla
í Reykjavík. Skólinn átti að starfa
í hluta húsnæðis gömlu heilsu-
verndarstöðvarinnar við Baróns-
stíg.
Aðstandendur Menntaskólans
ehf. voru þau Ólafur Stefánsson
handboltamaður, Edda Huld Sig-
urðardóttir, fyrrverandi skólastjóri
Ísaksskóla, Þorvaldur Þorsteins-
son rithöfundur og Jenný Guðrún
Jónsdóttir kennari.
Í Menntaskólanum átti að
leggja áherslu á skapandi skóla-
starf og sögðu aðstandendur hans
að skólinn yrði talsvert frábrugð-
inn hefðbundnu skólastarfi.
Skemmdu
bíla á Snorra-
braut
Laugardagsnóttin hjá lög-
reglunni einkenndist af útköll-
um vegna ölvaðra og hávaða-
samra einstaklinga.
Lögreglumenn stöðvuðu bif-
reið á Njarðargötunni um hálf
tvö aðfaranótt sunnudags. Öku-
maður hennar var grunaður um
akstur undir áhrifum fíkniefna
en hann var látinn laus að lok-
inni sýna- og upplýsingatöku.
Þá voru tveir aðrir einstaklingar
grunaðir um ölvun, einnig látnir
lausir að lokinni sýnatöku.
Lögreglan handtók einstakl-
ing sem var í mjög annarlegu
ástandi og truflaði lögreglu-
menn að störfum í miðborginni.
Í fórum hans fundust fíkni-
efni. Hann var vistaður í fanga-
geymslu þangað til hann jafn-
aði sig.
Á Snorrabraut voru tveir
drukknir menn að skemma bif-
reiðar um klukkan tvö aðfara-
nótt sunnudags. Lögreglan hafði
hendur í hári þeirra og voru þeir
vistaðir í fangageymslum.
Stuttu síðar var annar hand-
tekinn, en hann var að reyna að
brjótast inn í íbúðir í Skúlagötu.
Hann var ölvaður og gat ekki
gert grein fyrir athæfi sínu og
var því vistaður í fangageymslu
meðan hann braggaðist og hægt
var að ræða við hann.
Leiðrétting
Á afmælissíðu helgarblaðs
DV urðu þau leiðu mistök að
rangar fjölskylduupplýsingar
birtust með afmælisgrein um
Hauk Heiðar Hauksson, söngv-
ara hljómsveitarinnar Diktu.
Hið rétta er að foreldrar Hauks
heita Haukur Heiðar Ingólfsson
og Sveinrós Sveinbjarnardóttir.
Þá heita systkini hans Halldór
Hauksson, Margrét Hauksdótt-
ir og Inga Dóra Hauksdóttir.
Beðist er velvirðingar á mistök-
unum.