Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2012, Side 12
Hafa ekki efni á að
Heimsækja soninn
E
ftir föst útgjöld eigum við afar
lítinn pening til að lifa af út
mánuðinn,“ segir Hilmar Guð-
mundsson sem fór í aðgerð
vegna brjóskloss þegar hann
var tvítugur. Aðgerðin misheppnað-
ist og olli því að hann hefur verið ör-
yrki allar götur síðan og er bundinn við
hjólastól.
Geta ekki leyft sér
neina skemmtun
Anna Sigríður Antonsdóttir, eiginkona
Hilmars til fjörutíu ára, er líka öryrki
vegna hjartasjúkdóms sem hún fékk
árið 2003. Fyrir þann tíma vann hún
mikið og þá voru kjör þeirra hjóna
mun betri en þau eru í dag. Örorku-
bætur þeirra beggja nema nú samtals
307.000 krónum eftir skatt. Eftir að þau
hafa greitt öll föst gjöld, svo sem leigu,
bensín- og lyfjakostnað, eiga þau 18
til 28 þúsund krónur afgangs hvern
mánuð. Hilmar segir þeim ganga illa
að lifa á því. „Við reynum náttúrlega að
lifa spart og getum aldrei leyft okkur
neitt eftir að við erum búin að kaupa
nauðsynjavörur. Við megum þakka
fyrir að við getum rekið bílinn okkar.“
Lífið breyst eftir bankahrunið
Hilmar segir þau jafnframt lifa við
miklu þrengri kost og hafa úr minni
fjármunum að spila eftir bankahrunið
árið 2008. „Örorkubæturnar hafa ekki
fylgt verðlagsþróun eins og þær hefðu
átt að gera. Fyrir bankahrunið gátum
við Anna Sigríður leyft okkur ýmislegt
eins og til dæmis að heimsækja son
okkar sem býr á Akranesi. Við get-
um það ekki í dag þar sem bensín-
ið er búið að hækka upp úr öllu valdi
og bensínstyrkur til öryrkja stendur
alltaf í stað. Þar af leiðandi verðum
við eingöngu að nota bílinn okkar í
algjörar nauðsynjar, eins og til dæm-
is að aka til læknis. Við fáum bensín-
styrk sem nemur einum bensíntanki
á mánuði frá Tryggingastofnun ríkis-
ins. Sá bensíntankur verður að duga
út mánuðinn. Núna leyfum við okkur
ekki hvorki eitt né neitt nema að lesa
bækur og horfa á sjónvarpið.“
Allt hækkar nema bæturnar
Hilmar er ekki sáttur við íslensk stjórn-
völd og segir þau einungis greina frá
tölum sem henti þeim en ekki öryrkj-
um. Þótt stjórnvöld segi ítrekað að ör-
orkubæturnar hafi hækkað um sem
nemur 58 prósentum á síðustu fimm
árum nefni þau einungis tölur sem
henti þeim. „Þau nefna aldrei tvennt
sem skiptir sköpum þegar þau tala um
að örorkubætur hafi hækkað; annars
vegar að allar vörur og þjónusta hafa
hækkað mun meira en nokkurn tím-
ann örorkubæturnar og hins vegar
að þau miða alltaf við þá öryrkja sem
fá hámarksörorkubæturnar. Raunin
er aftur á móti sú að aðeins lítill hluti
öryrkja fær hámarksörorkubætur,“
segir Hilmar. Hann nefnir dæmi um
að Anna Sigríður, konan hans, kaupi
hjartalyf þriðja hvern mánuð sem dugi
henni í þrjá mánuði. Hjartalyfin hafa
kostað um 1.300 krónur í nokkur ár
en í fyrradag þegar hún fór að kaupa
þau kostuðu 4.000 krónur eða því sem
nemur um það bil þrefaldri hækkun.
„Þetta er dæmi um að stjórnvöld gefa
aðeins út tölur sem hentar þeim. Þau
hafa meðal annars ekki hátt um að ör-
yrkjar þurfi nú sjálfir að leggja út fyrir
lyfja- og lækniskostnaði eftir banka-
hrunið. Allt hækkar nema örorkubæt-
urnar,“ segir Hilmar.
Múhameð og fjallið
Þrátt fyrir lágar örorkubætur sem
ekki hækka með hækkandi verðlagi
virðist Hilmar Guðmundsson afar
jákvæður í bragði. Spurður hvern-
ig honum líði með það að örorku-
bæturnar þeirra hjóna dugi ekki fyr-
ir bensíni til að heimsækja son þeirra
á Akranesi, svarar hann: „Þetta er al-
veg eins og með Múhameð og fjallið;
fyrst Múhameð komst ekki til fjalls-
ins kom fjallið til hans. Strákurinn
okkar kemur bara í heimsókn til okk-
ar í Reykjavík í staðinn. Ég get ekki
ímyndað mér að gera lífið verra með
því að sökkva mér í þunglyndi og ves-
en. Ég vil og ætla að berjast fyrir rétt-
lætinu,“ segir Hilmar með jákvæðn-
ina að leiðarljósi.
12 Fréttir 30. júlí 2012 Mánudagur
Verri kjör eftir kreppu Hilmar segir allt hækka nema örorkubæturnar.
n Hilmar og Anna eiga 18 til 28 þúsund krónur aflögu um hver mánaðarmót
„Við reynum að lifa
spart og getum
aldrei leyft okkur neitt
eftir að við erum búin að
kaupa nauðsynjavörur.
Öryrkjar á barmi fátæktar
L
ilja Þorgeirsdóttir, fram-
kvæmda stjóri Öryrkjabanda-
lags Íslands gagn rýndi
stjórnvöld harð lega
í tölublaði Öryrkjabanda-
lagsins sem kom út á síð-
asta ári. Þá segir hún af-
stöðu stjórnvalda til fólks
sem þurfi að treysta á vel-
ferðarkerfið algjörlega
óviðunandi. Hún sagði
einnig greinilegt að skiln-
ing og heildarsýn skorti á
aðstæðum öryrkja.
Rannsóknir sem gerðar hafa
verið á öryrkjum á Íslandi gefa
meðal annars til kynna að helming-
ur þeirra er ósáttur við fjárhag sinn.
Samkvæmt rannsókn á öryrkjum
á Íslandi frá árinu 2009, sem með-
al annars Rannveig Traustadóttir
félagsfræðingur gerði, er stór hluti
öryrkja annað hvort fátækur eða
lifir skammt frá fátæktarmörkum.
Verri heilsa og versnandi skulda-
staða myndi gera það að
verkum að þeir byggju við
alvarlega fátækt. Að mati
flestra öryrkjanna sem
tóku þátt í rannsókninni
var eina úrræðið að hag-
ræða í heimilisrekstri og
herða sultarólina. Flest-
ir þeirra bjuggu í aukn-
um mæli við fjárhags-
þrengingar vegna hækkandi verðs
á nauðsynjavörum og þjónustu, og
afnáms ýmissa afsláttarkjara. Jafn-
framt kom fram að staða öryrkja
hefur versnað í kreppunni með
auknum skerðingum auk þess sem
greiðsluþátttaka þeirra í heilbrigð-
iskerfinu hafur aukist mikið síðustu
ár, svo sem með greiðslu á lyfjum.
Elín Ingimundardóttir
blaðamaður skrifar elin@dv.is
Lilja Þorgeirsdóttir
Þyrlan á ferð
með lögreglu
Þyrla Landhelgisgæslunnar,
TF-GNA, fór í eftirlitsflug um
Suðurland á föstudagskvöld.
Síðdegis þann dag áttu rúm tólf
þúsund ökutæki leið um Suður-
landsveg við Ingólfsfjall og gekk
umferðin snurðulaust fyrir sig.
Í tilkynningu frá lögreglunni á
Selfossi kemur fram að áhöfn
TF-GNA hafi flogið með lögreglu-
menn í uppsveitir Árnessýslu
austur eftir þjóðvegi 1 inn á Mýr-
dalssand og þaðan inn á Syðra
Fjallabak. Afskipti voru höfð af sex
ökumönnum sem óku of hratt. Á
Fjallabaki sást til tveggja ökutækja
en ekki þurfti að hafa afskipti af
þeim. Engin nýleg ummerki voru
um utanvegaakstur á svæðinu.
Í tilkynningunni kemur fram
að embætti lögreglustjórans á
Selfossi sé afar þakklátt Land-
helgisgæslunni og starfsmönnum
hennar sem að þessu komu fyrir
frábært samstarf sem hefur þróast
með þessu verkefni. „Lögreglu-
menn eru vissir um að eftirlitið
hafi, ásamt öðru, dregið úr utan-
vegaakstri og vonandi hraðakstri
á fáfarnari vegaköflum þar sem
ökumenn eiga síður von á að lög-
reglumenn séu á ferð. Áhafnir
þyrlanna og lögreglumenn nota
hvert tækifæri til að stilla saman
strengi og ná upp og viðhalda
færni við þyrlueftirlitið.“
Gengisdómur
til Hæstaréttar
Ólafur Hvanndal Ólafsson, lög-
maður Lýsingar, segist búast við
því að nýjum dómi héraðsdóms
um útreikninga á myntkörfuláni
til bílakaupa verði líklega skotið
til Hæstaréttar. Þetta sagði Ólafur
í hádegisfréttum RÚV á sunnu-
dag. Niðurstaða héraðsdóms var
á þá leið að Lýsing ætti að endur-
greiða verðbætur sem fyrirtækinu
var óheimilt að innheimta. Í frétt
RÚV kom fram að sá sem tók lánið
keypti bíl á kaupleigu hjá Lýsingu
árið 2006. Fjórum árum síðar voru
eftirstöðvar lánsins reiknaðar aftur
í kjölfar tveggja dóma Hæstaréttar
um gengislán. Taldi sá sem lánið
tók að útreikningurinn væri rang-
ur og höfðaði mál til að fá til baka
það sem hann taldi ofgreitt. Ólaf-
ur sagði í fréttum RÚV að hann
teldi líklegt að Hæstiréttur fengi
málið til meðferðar þó endanleg
ákvörðun hafi ekki verið tekin.