Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2012, Qupperneq 15
Í
miðri Karakum-eyðimörkinni
í Túrkmenistan, einni stærstu
eyðimörk heims, er að finna
gríðarstóran gíg sem í hefur log-
að undanfarin 40 ár. Það er ekki
að ósekju að heimamenn kalla gíg-
inn „dyrnar til helvítis“ ef marka má
meðfylgjandi myndir sem birtust á
dögunum í breska blaðinu The Daily
Mail. Vítislogarnir voru kveiktir árið
1971 þegar hópur sovéskra vísinda-
manna vann við boranir á svæð-
inu. Svæðið sem gígurinn er á heitir
Darvaza og er afar ríkt af vinnanlegu
gasi og það var einmitt markmið vís-
indamannanna; að kanna hvort und-
ir yfirborðinu leyndist mikið magn af
vinnanlegu gasi.
Gasið brennur enn
Áætlanir vísindamannanna fóru þó
út um þúfur þegar jarðvegurinn und-
ir rannsóknarsvæðinu féll saman.
Þungur borturn sem vísindamenn
notuðust við og hellir, stútfullur af
gasi, gerðu það að verkum að jarðfall
varð og gígurinn myndaðist. Í kjölfar-
ið streymdi gas út í andrúmsloftið og
ákváðu vísindamennirnir að brenna
það til að það myndi ekki valda fólki
skaða. Það sem vísindamennirn-
ir áttuðu sig ekki á var hversu mikið
af gasi var á svæðinu. Töldu þeir að
gasið myndi brenna upp á nokkrum
dögum en raunin varð önnur. Nú,
rúmum 40 árum síðar, loga eldar enn
í gígnum sem er 70 metrar á breidd
og 20 metrar á dýpt.
Lofaði öllu fögru
Gígurinn er 260 kílómetra norður af
höfuðborg Túrkmenistans, Ashga-
bat. Árið 2010 heimsótti forseti lands-
ins, Gurbanguly Berdimuhamedow,
svæðið og lofaði hann að holunni
yrði lokað og eldarnir slökktir. Þrátt
fyrir fögur fyrirheit stendur holan
enn opin og mun líklega gera það
áfram.
Bankastarfsemi í Sómalílandi
n Sjálfstætt land en formlega ekki til n 20 ára bið eftir bankastarfsemi lokið
Y
firvöld í Sómalílandi, sjálf-
stjórnarsvæði Norður-Sómal-
íu, samþykktu í apríl formlega
stofnun seðlabanka. Seðla-
banki hefur starfað í landinu frá því
stuttu eftir að lýst var sjálfstæði frá
Sómalíu árið 1991 en formleg löggjöf
hefur ekki verið til staðar. Löggjöf-
in er hluti af röð laga um fjármála-
starfsemi sem þing landsins vinnur
nú að.
Sómalíland hefur allt frá ár-
inu 1991 sóst eftir viðurkenningu
á sjálfstæði en ekkert ríki heims
viðurkennir landið. Þingbund-
in ríkisstjórn starfar í þar sem rekur
sendiráð og gefur út eigin gjaldmið-
il. Íslendingar sem vilja ferðast til
landsins er bent á að sendiráð Sóma-
lílands í London fer með vegabréfs-
áritanir fyrir Íslendinga. Þrjár og hálf
milljón manna búa í landinu sam-
kvæmt áætlun yfirvalda.
Formleg bankastarfsemi er engin
en fjöldi millifærslufyrirtækja starfar
í landinu sem og Seðlabanki sem
starfað hefur án formlegs umboðs
frá því skömmu eftir að svæðið lýsti
sig sjálfstætt árið 1991. Sómalílenski
skildingurinn var fyrst gefinn út árið
1994. Þar sem Sómalíland er raunar
ekki formlega til þá telst skildingur-
inn ekki opinber gjaldmiðill og fjár-
málafyrirtæki utan landsins skrá ekki
gengi miðilsins. Samkvæmt tölum frá
yfirvöldum Sómalílands eru um 5.000
skildingar í einum bandaríkjadal.
Nú er útlit fyrir að íbúar verði að
ósk sinni á næstunni. Eitt stærsta
fjármálafyrirtæki Afríku á sviði pen-
ingafærslna á milli landa, Dahabs-
hiil, hefur þegar innréttað glænýtt
bankaútibú í Harageisha, höfuð-
borg landsins. Útibú sem býður þess
eins að löggjöf landsins um banka-
starfsemi fari í gegnum þing lands-
ins. „Stærsta breytingin er að við
verðum fullgildur banki sem get-
ur boðið tryggingar, greiðslumat og
millibankaviðskipti,“ hefur breska
blaðið Guardian eftir Abdirashid Du-
ale framkvæmdastjóra Dahabshiil.
Erlent 15Mánudagur 30. júlí 2012
n Töldu gasið skaðlegt og ákváðu að brenna það n 40 árum síðar logar enn
Vítislogar af
mannaVöldum
„Töldu að gasið myndi
brenna upp á nokkrum
dögum en raunin varð önnur
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Forsetinn Gurbanguly lofaði að gígnum
yrði lokað og eldarnir slökktir árið 2010.
Það er þó eflaust ekki eins auðvelt og það
hljómar.
Kveiktu í Vísindamennirnir ákváðu að brenna gasið til að það skaðaði ekki fólk.
Vinsæll staður Þó svo að gígurinn sé á afskekktu svæði laðar hann marga ferðamenn
að á hverju ári.
Logar enn Gígurinn
myndaðist árið 1971 þegar
sovéskir vísindamenn unnu
við boranir á svæðinu.
Barn slasaði
lögregluþjóna
Tveir franskir lögregluþjónar
þurftu á aðhlynningu að halda
eftir að átta ára drengur, vopnað-
ur hamri og piparúða, réðst á þá
í frönsku borginni Nantes. Lög-
regluþjónarnir voru kallaðir út
eftir að tilkynning barst um ná-
grannaerjur. Breska ríkisútvarpið,
BBC, greinir frá því að drengurinn
hafi slegið annan lögregluþjóninn
af miklu afli með þeim afleiðing-
um að sá síðarnefndi fingurbrotn-
aði. Þá sprautaði hann piparúða
í augu beggja lögregluþjónanna.
Talsmaður lögreglunnar í Nantes
segir að drengurinn hafi verið
„mjög árásargjarn og komið lög-
regluþjónunum í opna skjöldu.“
Málið var tilkynnt til barna-
verndaryfirvalda.
Bjórinn flæddi
Þúsundir lítra af bjór fóru til spillis
eftir að flutningabíll valt á hliðina
skammt frá þýska bænum Wern-
igerode í Saxlandi í Þýskalandi
á dögunum. Ökumaður sendi-
bifreiðar, sem var skammt fyrir
aftan flutningabílinn, tókst ekki
að stöðva í tæka tíð og ók aftan
á flutningabílinn með þeim af-
leiðingum að bjórflöskur köst-
uðust í allar áttir. Lögregla lokaði
veginum í nokkrar klukkustund-
ir meðan unnið var að hreinsun.
Það tók sinn tíma enda vó farmur
flutningabílsins 25 tonn. Öku-
menn beggja bifreiða sluppu án
meiðsla.
Ekki lengur
langlífastar
Japanskar konur geta ekki lengur
vænst þess að lifa lengst, sam-
kvæmt nýrri skýrslu sem heil-
brigðisráðuneyti Japans hefur
gefið út. Árið 2010 gátu japanskar
konur vænst þess að verða 86,3
ára en árið 2011 var sú tala komin
niður í 85,9 ár. Konur í Hong Kong,
sem voru í öðru sæti í fyrra, geta
nú vænst þess að lifa lengst allra
kvenna, eða í 86,7 ár.
Í skýrslu japanska heilbrigð-
isráðuneytisins kemur fram að
ástæðu þessara sætaskipta megi
rekja til hamfaranna í Japan á síð-
asta ári þar sem 16 manns létust.
Kosið til þings Konur bíða í röð fyrir utan kjörstað í Sómalílandi. Myndin er frá 2005.