Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2012, Page 16
Sandkorn
S
jaldan hafa stjórnmálamenn
á Íslandi verið lægra metn-
ir en nú á tímum. Almenn-
ingi er ljóst að ástæðu hruns-
ins má að miklu leyti rekja til
siðleysis þeirra sem fremstir stóðu á
stjórnmálasviðinu. Og hluta skýr-
ingarinnar má rekja til þess að nú-
verandi stjórnarflokkum hefur ekki
tekist að sannfæra fólk um heilindi
við að bjarga fólki úr þrælaböndum
bankanna sem afskrifa hjá sótröftum
og lána þeim aftur en pína almenn-
ing í landinu. Leyndarhjúpurinn sem
umlykur bankana og gjörðir þeirra er
á ábyrgð núverandi stjórnvalda. Fólk
ætlaðist til þess af Jóhönnu Sigurðar-
dóttur, leiðtoga Samfylkingar, að hún
tæki til hendinni þarna og yrði sjálfri
sér samkvæm. Svo fór ekki og henni
féllust hendur. Þarna liggur trúnað-
arbresturinn milli almennings og nú-
verandi stjórnvalda.
Syndir fortíðarinnar eru auðvit-
að stærsti þátturinn þegar litið er til
ímyndarbrests Alþingis. Flokkur sem
kennir sig við frelsi og einstaklings-
hyggju og annar sem kenndi sig við
samvinnu sérhæfðu sig í því að setja
sitt fólk á ríkisspenann og gaukaði
eignum ríkisins að gæðingum sínum.
Landsbankinn og Búnaðarbankinn
eru átakanleg dæmi um þá svívirðu
sem viðgekkst. Stærsta einkavæð-
ingin af öllum var þó þegar fiski-
stofnar á Íslandsmiðum voru færðir í
einkaeigu án þess að ein króna kæmi
fyrir. Það var í framhaldi af þessum
ósköpum sem efnahagur landsins
hrundi.
Ástæðan fyrir óbeit Íslendinga á
stjórnmálamönnum er sú að skúrk-
arnir sem stýrðu okkur í hrun sitja
margir hverjir enn á Alþingi og færa
yfir þingheim blæ ömurleika. Alltof
stór hluti þingheims eru menn sem
hefðu átt að víkja af stjórnmála-
sviðinu ef lýðræðið virkaði. En svo
fór ekki. Á þinginu sitja menn sem
ofboðið hafa siðferðiskennd almenn-
ings. Og þar sitja menn sem voru í
ábyrgðarstöðum við hrunið. Auðvit-
að eru dæmi um að endurnýjun hafi
átt sér stað innan einhverra flokka.
Þannig má segja Framsóknarflokkn-
um til hróss að þar hafa menn hreins-
að út. Og nýjir flokkar eru að mestu
skipaðir nýju fólki sem ekki burðast
með siðblindu og afbrot fortíðar.
Ef menn ætla að endurreisa
virðingu Alþingis verður að hreinsa
út óværuna. Þar þurfa sjálfstæðis-
menn sérstaklega að taka til hendinni
og tryggja heilbrigt hægra afl. Í kosn-
ingunum í vor verða flokkar og fram-
boð að bjóða fram fólk sem þjóðin
treystir til að standa fyrir heiðarleg-
um stjórnmálum. Menn ættu að hafa
það hugfast að í síðustu sveitarstjórn-
arkosningum kaus yfir þriðjungur
Reykvíkinga grínframboð og hoppaði
þannig á eigin atkvæðisrétti. Og Ak-
ureyringar gengu enn lengra þegar
meirihluti þeirra kaus framboð af
svipuðum toga. Allir flokkar á Íslandi
þurfa að líta í eigin barm og grand-
skoða hvað fór úrskeiðis. Og flestir
þeirra þurfa líklega að skipta út for-
ystumönnum sínum til að öðlast á ný
trú kjósenda. Annars vex fyrirlitning
þjóðar á þinginu áfram.
Bænastund
deilenda
n Grimm valdabarátta hef-
ur staðið í Krossinum milli
annarsvegar Gunnars Þor-
steinssonar og Jónínu Bene-
diktsdóttur og hinsvegar
Ingibjargar Guðnadóttur,
fyrrverandi eiginkonu
Gunnars sem hefur yfir-
höndina. Valdataflið leggst
illa í suma fjölskyldumeð-
limi. Þannig steig eitt barna-
barn Gunnars og Ingibjargar
fram á samkomu og las yfir
fjölskyldunni og lýsti harmi
sínum. Yfirlesturinn hreyfði
við fólki og tóku deilendur
saman höndum og samein-
uðust í bæn og sáttagjörð.
Það mun þó ekki hafa enst.
Magnús í stuði
n Íþróttaálfurinn Magn-
ús Scheving er meðal þeirra
fremstu í íslensku viðskipta-
lífi. Það er til dæmis um
færni Magn-
úsar að hann
hefur náð að
stýra fyrir-
tækinu út úr
vanda sem
hefði reynst
mörgum öðr-
um ofviða. Latibær er fyrir
löngu orðinn heimsþekkt-
ur og stendur styrkum fót-
um. Og nú er íþróttaálfur-
inn kominn inn í sjálft Hvíta
húsið þaðan sem hann
stendur fyrir átaki með for-
setafrúnni, Michelle Obama, í
því skyni að grenna banda-
rísk börn og efla heilbrigði
þeirra.
Dýrir ritstjórar
n Davíð Oddsson, ritstjóri
Moggans, er ekki á flæð-
iskeri staddur þótt útgáfu-
fyrirtæki hans, Árvakur,
hafi þurft
neyðarað-
stoð Íslands-
banka upp
á milljarð
króna í formi
niðurfellinga
skulda. Dav-
íð hefur fengið sinn skerf
af þessu en hann er með
yfir tvær milljónir króna í
mánaðarlaun. Hinn ritstjór-
inn, Haraldur Johannessen,
er síðan með 1,5 milljón
krónur á mánuði. Saman-
lagt kosta ritstjórarnir tveir
útgáfuna yfir 50 milljónir
króna á ári.
Fátækramörk
n Metsöluhöfundurinn Hallur
Hallsson kemst illa af ef marka
má álagningarseðla. Hallur,
sem hefur skrifað og gefið út
metsölubækur, er með launa-
tekjur sem eru neðan við fá-
tækramörk eða 77 þúsund
krónur á mánuði. Félagi hans,
varaþingmaðurinn Óli Björn
Kárason, er með 126 þúsund á
mánuði. Þarna ber þó að líta
til þess að þeir kunna að hafa
tekjur af fjármagni. Þá er hugs-
anlegt að skatturinn misreikni.
Stelpur, við getum
betur en þetta
Fleiri geðveikir
en alkar
Jónína Benediktsdóttir um það hvort hún sé femínisti – DV Bein Lína Óttar Guðmundsson, geðlæknir heldur fyrirlestur á SÁÁ hátíðinni – visir.is.
Ömurleiki Alþingis„Syndir for-
tíðarinn-
ar eru auðvitað
stærsti þátturinn
Á
gætu lesendur, mig langar bara
til að gauka að ykkur þeim
fróðleiksmola að framleiðend-
ur í Hollywood greiða sumum
leikurum tugi milljóna dala fyrir að
leika í kvikmyndum. Þetta eru sjálf-
sagt ekki nýjar fréttir í ykkar augum,
en mig langar til að útskýra fyrir hvað
svonefndar stjörnur eru að fá greiddar
svona svimandi háar upphæðir. Ekki
stafar þetta örlæti, eins og margir virð-
ast halda, af því að tilteknir leikarar
trekki vel í bíó og eigi herfylki af aðdá-
endum sem gagnrýnislaust kaupi sig
inn á allar myndir sem þeir leika í og
tryggi aðsókn. Myndir með frægum
leikurum floppa ekkert síður en aðrar
myndir.
Milljarða umtal
Enginn, hvorki leikari né leikstjóri,
getur tryggt aðsókn að einu né neinu.
Það eina sem tryggir aðsókn er að
myndin sjálf sé skemmtileg eða eftir-
sóknarverð að mati áhorfenda. Hins
vegar þarf markaðurinn augljóslega
að vita að tiltekin mynd hafi verið gerð
og sé í boði – og þar koma stjörnurnar
inn. Hver einasti fjölmiðill í veröldinni
segir frá því þegar Tom Cruise tekur
að sér nýtt hlutverk og fylgist síðan
með hverju fótmáli hans og vakir yfir
börnum hans og hjónabandi. Tom fær
svo kannski 30 milljónir dollara fyrir
hverja mynd og hlutdeild í hagnaði ef
einhver verður.
Með öðrum orðum þá kostar það
30 milljónir dollara að fá Tom Cruise
til að skapa umtal, vekja athygli og fá
umfjöllun í öllum fjölmiðlum heims-
ins. (Ég er nú ekki í hópi trúnaðarvina
Toms svo að þessi upphæð gæti verið
miklu hærri, kannski nær 50 milljón-
um dollara, en notum töluna 30.)
Góð fjárfesting
Framleiðendur myndarinnar Oblivion
litu á þetta sem góða fjárfestingu og
réðu Tom til starfa. Auglýsingin hef-
ur farið fram úr glæstustu vonum því
að fyrir utan að þetta er spennandi
verkefni sem margir hafa gaman af
að lesa um, stendur Tom undir fjöl-
miðlaumfjöllum með því að eiga
fimmtugs afmæli, með því að standa
í hjónaskilnaði og með því að lenda
í forræðisdeilu, allt á sama sumrinu.
Allur heimurinn fylgist með þessu og
veit þar að auki upp á hár hvar Tom
er staddur. Á Íslandi. (Þangað verður
maður endilega að ferðast).
Milljarða landkynning
Það er því nærri lagi að sú landkynn-
ing sem Tom Cruise færir Íslandi
þessa dagana sé um 30 milljón dala
virði. Sá virðisaukaskattur sem kvik-
myndaframleiðendur fá endurgreidd-
an fyrir að gera kvikmyndir á Íslandi
er auðvitað einungis óinnheimtur eða
endurgreiddur skattur af veltu sem
að sjálfsögðu hefur áhrif út frá sér, og
ekki er um „styrk“ að ræða eins og
einhverjir virðast halda.
Landkynningin sem við erum að
fá núna er sem sé lauslega ágiskað
nokkurra milljóna dala virði:
Tom Cruise $30 milljónir
Ben Stiller $30 milljónir
Russel Crowe $30 milljónir
Þetta gera 90 milljónir dollara og
með mikilli varkárni má áætla að aðrar
stjörnur í myndunum sem verið er að
taka upp á Íslandi skili auglýsingu upp
á samtals $30 milljónir – stjörnur eins
og Anthony Hopkins, Paul Bettany eða
leikstjórar eins og Ridley Scott og Dar-
ren Aronofsky. Samtals, mjög varlega
áætlað, landkynningarátak í boði kvik-
myndaiðnaðarins á einu ári fyrir 120
milljónir dollara. Og hér er ekki verið
að tala um það fjármagn og gjaldeyri
sem þessi atvinnugrein er að koma
með inn í landið.
Og hér er ekki heldur verið að tala
um að þessar milljónir renni í vasa
íslenskra kvikmyndagerðarmanna.
Öðru nær. Hluti af peningunum fer
vissulega til að greiða laun þeirra
Íslendinga sem fá vinnu við þess-
ar erlendu kvikmyndir, en megnið af
peningunum streymir út í hagkerfið
gegnum ferðamannaiðnað, verslun og
þjónustu og skapar vinnu fyrir fjölda
fólks sem vinnur störf sem dagsdag-
lega tengjast kvikmyndagerð á engan
sjáanlegan máta.
Mikilvæg atvinnugrein
Á meðan á þessu stendur er verið að
pæla í því hvort forsvaranlegt sé að
reka hér einn af bestu kvikmynda-
skólum í Evrópu eða hvort starfs-
lið í menntamálaráðuneytinu sé ekki
best til þess fallið að ákveða hvernig
slíku námi verði háttað í framtíðinni
og hvort ekki sé skást að gera það að
þægilegri og þægri einingu í listahá-
skóla!
Og framlög til kvikmyndagerðar
sem voru skorin svo rosalega niður
í upphafi stjórnartímabils að brans-
inn var í dauðateygjunum eru kölluð
„styrkir“ sem er næsti bær við orðið
„ölmusa“.
Eigum við ekki að rumska og fagna
þessari nýju grænu atvinnugrein sem
skapar svo mikla atvinnu, landkynn-
ingu og færir milljónir dollara inn í
hagkerfið okkar? Er ekki kominn tími
til að fara að líta á kvikmyndagerð á
Íslandi sem mikilvæga atvinnugrein
sem eigi að njóta fyrirgreiðslu til jafns
við sjávarútveg, iðnað og landbún-
að í staðinn fyrir að burðast með það
snæfellska sjónarmið að listin eða
skapandi greinar séu ríkisstyrkt hobbí
handa aumingjum sem ekki nenna að
vinna?!
Er ekki kominn tími til að hætta
að líta á fólk sem hefur valið sér erf-
ið störf í miskunnarlausri samkeppni
innan menningargeirans sem
aumingja og afætur og fara að skilja
að hér er um að ræða menntað og
hæft fólk sem dregur stórar fjárhæðir í
þjóðarbúið og list sú og menning sem
þetta fólk skapar með vinnu sinni er
bónusvinningur fyrir okkar litlu þjóð.
Milljarða landkynning
Leiðari
Reynir Traustason
rt@dv.is
Kjallari
Þráinn Bertelsson
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjórar: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) og Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is)
Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri: Stefán T. Sigurðsson (sts@dv.is)
Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Hönnunarstjóri: Jón Ingi Stefánsson (joningi@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: DV.is
F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéTTASkoT
512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AÐALnúmeR
RiTSTJÓRn
ÁSkRiFTARSími
AuGLýSinGAR
16 30. júlí 2012 Mánudagur
„Allur heimurinn
fylgist með þessu
og veit þar að auki upp á
hár hvar Tom er staddur.
xxxxxxxxxxx
xxxxxxxxx?