Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2012, Blaðsíða 18
18 Umræða 30. júlí 2012 Mánudagur
Vinsæl
ummæli
við fréttir DV.is í vikunni
„Við erum ekki sjúk,
við erum brennd af
gjörðum ræningja,
og við þurfum ekki fleiri ræn-
ingja til Íslands, við eigum jú
nóg af þeim. Og þeir ganga
allir lausir þökk sé aumingja-
skap okkar allra. Nupo getur
bara verið heima hjá sér og
látið okkur í friði, við þurfum
ekki á svona hrói að halda.“
Skarphéðinn Haraldsson
við frétt þar sem ummæli
Huang Nubo í ræðu fyrir
nemendur í CEIBS viðskiptaháskól-
anum í Shanghai um áramótin eru
rifjuð upp. Þar sagði Nubo að Ís-
lendingar væru „sjúkir og veikgeðja“.
„Ef enginn situr í
stjórn Gistivers ehf.,
þá er það brot á lög-
um um fyrirtæki og stjórnir
þeirra. Það virðist vera að
sumir komist upp með lög-
brot bara af því að þeir eru
þeir sem þeir eru.“
Héðinn Ó. Skjaldarson við frétt
DV um kaup einkahlutafélagsins
Gistiver ehf. á Egilsen-húsinu í
Stykkishólmi. Hreiðar Már Sigurðsson er
eini prókúruhafi félagsins og stjórnar í
raun öllum gerningum þess – en enginn
situr í stjórn félagsins.
„Finnst virkilega ein-
hverjum 225 kr. mikið
fyrir klukkutímann á
dýrasta svæðinu? Í miðbæn-
um eru líka 7 bílastæðahús
þar sem klukkutíminn kostar
80 kr. Ótrúleg þessi árátta
að þurfa alltaf að leggja
bílnum sínum í anddyrinu á
þeim stað sem fólk ætlar að
heimsækja. Langflest okkar
eru með tvær lappir sem eiga
að geta borið okkur einhverja
metra og mörg okkar hefðu
auk þess bara gott af því að
hreyfa aðeins á sér rassgatið.“
Lovísa Sigurjónsdótt-
ir við frétt um hækkun
stöðugjalda í miðborginni.
Breytingarnar hafa mælst misvel fyrir.
„Sé einn af milljón
bilaður, þá þarf auð-
vitað að banna allt.
Þetta er allt að verða vitfirrt.
Fyrir nokkrum áratugum
hefði einhver bilaður í afdal
bara verið bilaður þar, en
nú er hann bilaður á heims-
vísu. Þið eruð öll að bilast
líka, bara vegna þess að þið
fréttið af því á netinu.“
Hallgrímur P. Helgason í
athugasemd við frétt um
mynd sem bandarísk móðir
birti á Facebook. Á myndinni sjást
tvær dætur konunnar og önnur þeirra
þykist gefa hinni brjóst. Myndbirtingin
olli miklu fjaðrafoki og var móðir-
in bönnuð á Facebook í kjölfarið.
„Nú fer þetta allt að
lagast því alþingis-
menn fá frí gleraugu
og heyrnartæki ásamt mörgum
öðrum fríðindum sér að kostn-
aðarlausu. Já þetta er að batna.“
Magnús Þórðarson um pistil Herdísar
Þorgeirsdóttur fyrrverandi for-
setaframbjóðanda sem birtist
í Morgunblaðinu um helgina. Í
pistlinum sagði Herdís völdin vera hjá
fámennum fjármálaklíkum og sagði
Ísland vera „sprungið af spillingu“.
5
11
34
5
Gudjon Sigurdsson: Sæl, við
höfum ekki alltaf verið
sammála um lækningamátt
detox-aðferðarinnar. En ertu eitthvað
að mýkjast í þeim málum? Varðandi
framsókn þá vil ég vita um framavonir
þínar þar? Gangi þér allt í haginn!
Jónína Benediktsdóttir: Sæll
Guðjón og takk fyrir þetta. Já það
hefur hljóðnað verulega í þeim
röddum sem gagnrýnt hafa með-
ferðina mína. Sögurnar tala sínu
máli og það er eins með Detoxið og
Eróbikkið – þetta tekur tíma. Varð-
andi Framsókn þá tel ég það mjög
mikilvægt að fólk sem gagnrýnir
kerfið taki þátt í því að byggja nýtt
kerfi. Þetta er einfaldlega ekki að
virka. Skuldasöfnun Steingríms um
700 milljarðar !
Helgi Eyjólfsson: Sæl vertu,
Jónína. Ef það yrði gerð
Hollywood-mynd um þig og
þitt lífshlaup, hver myndi leika þig?
Jónína Benediktsdóttir: Ef
líf mitt væri bíómynd myndi ég
nenna að horfa á hana aftur ? Nei
þannig að vonandi losnar fólk við
að leika mig. En Edda Björgvins er
góð leikkona og lífið þarf að vera
skemmtilegt.
Jóhann Jóhannsson: Sæl, er
það rétt að Ingibjörg fv. kona
Gunnars hafi farið upp fyrir
framan alla á samkomu síðasta
sunnudag og beðið alla afsökunar ef
hún hafi gert eitthvað á þeirra hlut?
Hvernig tókst þú í þetta?
Jónína Benediktsdóttir: Já hún
gerði það af stakri karlmennsku.
Við þurfum öll iðulega að biðja fólk
um að fyrirgefa okkur. Gott mál.
Þar sem ég sit hér býð ég eftir smá
karlmennsku frá sumum blaða-
mönnum hér.
Sigríður Jónsdóttir: Sæl
Jónína. Af hverju telur þú að
það sé ekki pláss fyrir þig
lengur innan Krossins, fyrst að
fyrr ver andi kona Gunnars er mætt þar
aftur?
Jónína Benediktsdóttir: Eftir
skilnað þarf tilfinningalegt svigrúm.
Ég mæti í Krossinn og við Ingibjörg
höfum iðulega hist í veislum og ég
ber engan kala til hennar. Hún er að
hjálpa dóttur sinni í mjög erfiðum
aðstæðum.
Ástasigrún Magnúsdóttir:
Hver eru þín helstu baráttumál
innan Framsóknarflokksins?
Jónína Benediktsdóttir: Hér
er ég á heimavelli :-) Ég sé
fyrir mér sjálfbært samfélag,
matvælaöryggi, lífræna ræktun
til útflutnings þar sem áhersla er
á gjaldeyrisöflun. Í stað þess að
leysa skuldavanda heimilanna
hefur þessi ríkisstjórn skuldsett
þjóðina langt umfram það sem
var nauðsynlegt. Hún hefur staðið
í vegi fyrir atvinnuuppbyggingu
þannig að tekjuöflun og nýsköpun
er iðulega blásin af. Stjórn-
sýslan fitnar eins og púkinn á
fjósbitanum og það virðast nægir
peningar fyrir tilraunastarfsemi
sem ESB umsókn er, nefndarfúsk,
listamannasnobbgjafir (laun) og
annað sem ekki sér fyrir endann á.
Skelfileg stjórn.
Hallur Guðmundsson: Hver er
afstaða þín til annarra
trúarbragða en kristninnar?
Jónína Benediktsdóttir: Elska allt
fólk. Líka Reyni Trausta, þó svo að
það sé oft erfitt. Við berum ábyrgð
á öllum heiminum, ekki bara okkar
heimili og garðinum heima.
Egill Óskarsson: Sæl, Jónína.
Ég tek eftir því að þú gafst
Guðjóni hér fyrir ofan ekki mjög
nákvæmt svar. Ertu ennþá þeirrar
skoðunar að Detox-meðferðirnar sem
þú býður upp á geti læknað sjúkdóma?
Jónína Benediktsdóttir: Ég er
nú gangandi dæmi um það sjálf.
Við höfum skrifað í genamenginu
okkar sjúkdóma. Þar liggja þeir.
En með því að fasta eins og ég
kenni með ávöxtum og grænmeti í
tvær vikur náum við að vinna gegn
þessum undirliggjandi sjúkdómum.
Ég hef mikla reynslu af sykursýki
2, háþrýstingi, offitu, húðsjúk-
dómum og fleiri sjúkdómum sem
tilheyra lífsstíl. Lífsstílsbreyting er
nauðsynleg til þess að lækna sig. Já
við getum læknað okkur sjálf Egill
og þú ert velkominn með næst.
Valgeir Sigurðsson: Sæl
Jónína, þegar þú segir
„listamannasnobbgjafir“ ertu
að gefa það í skyn að þú sért á móti
listamannalaunum?
Jónína Benediktsdóttir: Já, ég er
á móti listamannalaunum þegar
engir peningar eru til. Af hverju
listamenn? Skil þetta ekki. Ef fólk
getur ekki selt verkin sín ætti það að
finna sér aðra vinnu. En flokkurinn
sér um sína. Ég er samt mjög hrifin
af listum og líka lystum :-)
Jóhann Páll Jóhannsson:
Ætti ekki Framsóknarflokk-
urinn að beita sér í auknum
mæli fyrir réttindum þeirra sem standa
að framsæknum og óhefðbundnum
lækningaaðferðum? Munt þú beita þér í
þeirra þágu?
Jónína Benediktsdóttir: Já,
óhefðbundið er í raun hefðbundið.
Lyfjavæðingin er ný, hitt er gamalt.
Við bruddum lyf, Íslendingar, fyrir
30 milljarða í fyrra og ég hitti rosa-
lega veikt fólk vegna ofnotkunar
lyfja. Þessi þróun er glæpur og sér
í lagi konur eru á lyfjum í áskrift.
Konur eru stærstu tilraunadýr lyfja-
framleiðenda og sér ekki fyrir enda
á þessari þróun. Ég er að kortleggja
lyfin og niðurstaðan er sorg!
Aðalsteinn Kjartansson:
Hefurðu alltaf verið mjög trúuð
eða gerðist það á einhverjum
ákveðnum tíma? Ef svo, hvað gerðist?
Jónína Benediktsdóttir: Það er
nægilega erfitt að lifa þessu lífi
trúuð. Ég byði ekki í mig ef ég hefði
ekki Guð með í ráðum. Flest erum
við trúuð en kunnum bara ekki að
tjá okkur um trúna nema þegar
sorglegir atburðir gerast. Þá er oft
erfitt að réttlæta sinnuleysið hvað
trúna varðar. Ef við lítum á orð Geirs
Haarde „Guð blessi Ísland „ hefði nú
ekki verið betra að biðja Drottinn
oftar meðan við flugum svo nærri
sólinni að við brunnum til agna. Guð
hefur alltaf verið til staðar fyrir mig
en ekki ég fyrir hann. Ég tók pásu frá
trúnni og fór fjandans til! Í orðsins
fyllstu merkingu.
Isak Hinriksson: Ætlarðu þér
að verða ráðherra með fram -
sóknar flokknum næsta kjör-
tímabil?
Jónína Benediktsdóttir: Já ef fólk
treystir mér í það. Kjósendur ráða
ekki ég.
Fundarstjóri: Áttu þér eitt-
hvað óskaráðuneyti ef svo má
segja? Hvar, að þínu mati,
myndu kraftar þínir nýtast best?
Jónína Benediktsdóttir:
Atvinnumálaráðuneytið. Hér setti
ég fyrirtækjarekstur í öndvegi,
nýsköpun og orkunýtingu. Við erum
rík þjóð með lamað kerfi. Set súrefni
í atvinnulífið með því að virkja þá
sem enn nenna og vilja vinna. Hér
er fólk lamað vegna hárra skatta,
fjármagnseigendur flýja land og
við missum frá okkur vel menntað
fólk. Hugmyndir skapa peninga en
700 milljarða lán Steingríms fer í
vitleysu og við erum að greiða bara í
vexti af lánum yfir 60 milljarða á ári.
Það er engin glóra í þessu.
Vigdís Grímsdóttir: Blessuð
Jónína og þakka þér fyrir síðast
þótt langt sé um liðið. Segðu
mér hversu mikilvægt telur þú að
D-vítamín sé fyrir fullorðna?
Jónína Benediktsdóttir: Vigdís
mín gott að heyra í þér. D-vítamín er
í dag talið virka eins og hormón og
þjónar mikilvægu hlutverki. Ég hvet
þig til þess að eignast nýju bókina
mína „Í Form á 40 Dögum“ ,við
gætum skipts á bókum :-)
Anna Sverrisdóttir: Í ljósi
þess að þú ert búin að fara
gegnum ofboðlega langt og
erfitt tímabil. Hvarflar aldrei að þér að
fara að einfalda líf þitt og fá ró í beinin?
Gangi þér allt í haginn, Jónína mín.
Jónína Benediktsdóttir: Anna,
jú það hvarflar að mér og satt best
að segja þá heillar Svíþjóð mín líka.
En ég hef sterkar rætur hér. Annars
lifi ég rosalega einföldu lífi. Það
lítur bara öðruvísi út. Ég fer nú að
komast á prósentur hér á DV. Þeir
þreytast ekki. Við Gunnar minn
förum í gegnum þetta af æðruleysi
og það er verið að kenna okkur um
mikilvægi þess að í þrengingum
þurfum við að standa saman en
í velgengni skiptir það síður máli.
Fjölmiðlar lyfta manni upp en þeir
geta líka brennt mann til ösku. Ég
ætla ekki að leyfa því að gerast.
Jóhann Sigurðsson: Sæl
Jónína, hver er þín afstaða til
réttinda samkynhneigðra til
hjónabands?
Jónína Benediktsdóttir: Hvað þeir
gera sín í milli kemur öðrum ekki við.
Þeir hafa lifað við frelsi á Íslandi og
almennt bera menn virðingu fyrir
tilfinningum þeirra og vilja og það
geri ég einnig.
Egill Óskarsson: Ef
Detox-meðferðir geta læknað
erfða(gena)sjúkdóma þá
hljóta að vera til rannsóknir þar að
lútandi. Ekki reynslusögur, rannsóknir.
Getur þú vísað á slíkar?
Jónína Benediktsdóttir: Egill, ef
lífsstílsjúkdómar eru ekki lækn-
anlegir með breyttum lífsstíl hvað
þá? Ef hinsvegar fólk fer aftur í fyrri
lífsstíl þá veikist það aftur þar sem
genin eru til staðar. Sjálf hef ég ekki
veikst aftur eftir 8 ár. En það tæki
mig nokkra mánuði að þróa með
mér einkennin. En ekki misskilja
mig, please.
Jóhann Páll Jóhannsson:
Getur þú hugsað þér að bjóða
upp á nokkurs konar hóp ristil-
skolun fyrir Framsóknarmenn?
Jónína Benediktsdóttir: Bla bla
bla
Sveinn Hansson: Af hverju
telur þú Framsóknarflokkinn
betri en þinn fyrri flokk
Sjálfstæðisflokkinn?
Jónína Benediktsdóttir: Góð
spurning ! Sjálfstæðisflokkurinn
er svo lokaður að þú þarft kúbein
til þess að komast áfram þar. Æi
hann er ekki nægilega sexí þessi
flokkur. Gömlu jaxlarnir svældir út
og þeir eru enn með fólk sem þarf
pásu. Fara út í heim og sjá heiminn
í víðara ljósi. En það er gott fólk í
öllum flokkum en Framsókn hefur
lagað mest til. Þar eigum við heima,
fólk sem krefst breytinga. Auðvitað
hefði verið gott eftir hrun að mynda
þjóðstjórn en það mátti auðvitað
ekki breyta neinu. Íhaldssemin er
með ólíkindum hér á landi. Við erum
þjóð óttans, þorum ekki að standa
með okkur sjálfum oft á tíðum.
Ég er ekki gift neinum flokki og
það er eins og flokkar á Íslandi séu
fastir í hugmyndafræði kerfa sem
augljóst er að virkuðu ekki. Lítum
á önnur hagkerfi og fylgjum þeim
sem ganga best. Eða?
Sveinn Hansson: Hvað hefur
Framsóknarflokkurinn með
Sigmund Davíð í broddi
fylkingar lagað til?
Jónína Benediktsdóttir: Hann var
ekki áhrifavaldur í hruninu í fyrsta
lagi. Hann daðrar ekki við fyrrum
forkólfa flokksins sem hafa mulið
undir sig sjálfir eigur almennings
og við getum varla þverfótað
fyrir fyrirtækjum þeirra. Hann er
skarpgreindur og fylginn sér og þarf
ekki að fá styrki frá auðmönnum til
þess að starfa á þingi. Það er mesti
plúsinn. Hann á sjálfur peninga.
Hugsjónamaður er hann líka og læt-
ur ekki kaupa sig. Við höfum rætt
það. Ég tæki aldrei á móti krónu frá
viðskiptalífinu. Aldrei !
Jón Garðarsson: Hvernig líst
þér á að Jóhannes sé að opna
Iceland-verslun hér á landi?
Jónína Benediktsdóttir:
Samkeppni er af því góða. Dáist að
karlinum.
Hildur Knútsdóttir: Ertu
femínisti?
Jónína Benediktsdóttir:
Hvað er það ? Ég er manneskja
og þoli illa kynjakvóta, jafn-
réttisumræðu sem gerir lítið úr okkur
sjálfum. Ég hef séð hvernig sumar
konur breytast í nornir allt í einu og
kalla sig femínista. Stelpur við get-
um betur en þetta. Ég hef alltaf séð
til þess að rödd mín fái hljómgrunn
þó á brattann sé að sækja. Svo
finnst mér rosalega gaman og gott
að vera jafnréttissinni.
Hallur Guðmundsson: Þú
rakst um tíma lúxus-líkams-
ræktarstöð við Austurstræti.
Ég stundaði hana um tíma, góð stöð. Af
hverju var henni lokað?
Jónína Benediktsdóttir: Hallur
minn, hefði ég vitað þá sem ég veit í
dag væri þarna flottasta heilsurækt
á Íslandi. Bankinn eignaðist mig
einfaldlega og ég kann ekki að
skipta um kennitölu eða biðja
um afskriftir. Ég fór einfaldlega í
gjaldþrot með þessa frábæru stöð.
Skuldaði Landsbankanum 40
milljónir en bankinn átti 50 prósent
í félaginu. Þeir tóku allar mínar eigur
og gáfu glæfragæjum fyrirtækið. En
þetta var góður skóli.
Arnar Ingason: Hvers vegna
ætti fólk að kjósa þig umfram
einhvern annan?
Jónína Benediktsdóttir: Góð
spurning, ég hef ekkert hugleitt
það. Ég stóð fyrir ákveðnum gildum
fyrir hrun, ég kynnti mér hluti sem
fáir nenntu að gera. Í því ferli eign-
aðist ég marga óvini, eins friðsæl
og ég nú er. Ég er hugmyndarík,
dugleg, áræðin, ákveðin og með
mikinn húmor. Ég er auk þess mjög
vel gift og ekki femínisti, ekki lygari,
ekki þjófur, ekki spillt. Ég er að átta
mig á því að stjórnmál eru eins og
fegurðarsamkeppni. Maður þarf að
monta sig :-)
Helga Hartmannsdóttir:
Sæl, Ertu hætt með Detox?
Jónína Benediktsdóttir:
Ég er með Detox-meðferðir í Pól-
landi og fyrirtækið Nordichealth.
is. Ég vinn mikið með fyrirlestra
út um allt land og víða um heim.
Nordichealth er fyrirtæki sem á eftir
að þróa meira. Ég fer næst með
30 manna hóp til Póllands 24. og
25. ágúst.
Helga Eiríksdóttir: Hvarflar
aldrei að þér að Gunnar geti
mögulega verið sekur um þær
misgjörðir sem nokkur fjöldi kvenna
hefur sakað hann um?
Jónína Benediktsdóttir: Helga
mín, auðvitað kom þessi spurning
frá þér. Gangi þér vel. Ummæli þín
um mig og Gunnar á holræsakerfi
fjölmiðla segir mér aðeins eitt. Þú
þarft mikla hjálp. Eitt er á hreinu.
Gunnar áreitti þig ekki. Saksóknari
vísaði málinu frá. Ég sá hvernig
þetta byrjaði og ég læt Gunnar um
að segja þá sögu.
Helgi Eyjólfsson: Þú ert lögst
í freyðibað með rauðvínsglas á
baðbrúninni og ilmkerti á
borðinu. Hvaða tónlist myndirðu setja á
fóninn, hvaða bók myndirðu grípa í og
hvernig ilmur væri af kertunum?
Jónína Benediktsdóttir:
Helgi minn fer alltaf í sund, alla
daga, kalda sturtu og hlusta á
fuglasönginn. Ég er ekki þessi
rómótýpa hahahaa. Lavender og
Bach ?
Lovísa Halldórsdóttir: Hvað
heillaði þig mest við Gunnar?
Jónína Benediktsdóttir:
Ég hafði þekkt Gunnar í 7 ár í
Detox-meðferðunum áður en
Amor hitti okkur fyrir. Hann er
rosalega greindur, veit allt milli
himins og jarðar, hann er hress
og skemmtilegur, elskar börnin
sín meira en lífið sjálft og það eru
alltaf meðmæli með karlmönn-
um. Svo er maðurinn ótrúlega
flottur og karlmannlegur, nema
hvað! Þegar ég heyri hann predika
þá lyftist ég upp eins og aðrir.
Falleg rödd :-)
Karl Indriðason Er það
eitthvað sem þú hefur sagt
eða skrifað í látunum sem hafa
verið í kringum þig sem þú sérð eftir?
Jónína Benediktsdóttir: Karl,
já, ég hef skrifað tveimur konum
í reiði minni trúnaðarbréf. Þær
fóru með þau í fjölmiðla. Ég hélt
ég gæti svarað fyrir mig en svo
var ekki. Ég er hætt að reyna það.
15 mínútur af frægð heillar. Ég
er mjög hvöss þegar ráðist er á
manninn minn og börnin okkar.
Eins og brjáluð ljónynja. Guð
hjálpi þeim sem lenda í mér í þeim
ham. Ég gefst aldrei upp þegar
velferð þeirra er í húfi. Aldrei! Ég
skrifa samt alltaf undir nafni. Það
mætti fólk venja sig á.
Jónína Benediktsdóttir: Ég
þakka fyrir góðar spurningar og
óska fólkinu hér góðs gengis.
Hér á DV eru allir á fullu og við
ákváðum að koma hingað og
biðja fyrir þessum fjölmiðli sem
hefur hamingju svo margra
í hendi sér. Guð blessi DV og
alla sem hér vinna. Við þurfum
samstöðu um að byggja hér
samfélag en ekki stríðsvettvang.
Ég vil leggja mitt að mörkum og
Reynir Traustason ég mun reyna
að elska þig líka :-)
Athafnakonan Jónína Benediktsdóttir sat fyrir svörum á Beinni línu DV á föstudag.
„Eins og brjáluð ljónynja“
Nafn: Jónína Benediktsdóttir
Aldur: 55
Starf: Athafnakona
4