Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2012, Síða 24
Tíu besTu kaupin
í enska bolTanum
24 Sport 30. júlí 2012 Mánudagur
E
nn einu sinni í að
draganda Ólympíuleika
gera fjölmiðlar sérstak
lega mikið úr samkeppn
inni við hinn stórkostlega
sundmann Michael Phelps.
En miðað við fyrstu úrslit í
sundinu á leikunum í London
virðist stjörnuferill Phelps á
niðurleið.
Fjölmiðlar virðast hafa
mikla þörf fyrir að búa til
dramatík í kringum Phelps í
sundinu. Á leikunum í Aþenu
2004 var aðalatriðið keppni
hans við Ástralann Ian Thorpe.
Fjórum árum síðar í Kína var
Hollendingurinn Pieter van
den Hoogenband gerður að
hans helsta keppinaut og fyr
ir leikana nú í London birtust
greinar eftir greinar í blöðum
um æsilega keppni Phelps við
landa sinn Ryan Lochte.
Þó Ólympíuleikarnir séu
aðeins rétt að hefjast hafa þeir
Phelps og Lochte þegar mæst
í 400 metra fjórsundi þar sem
allir gerðu ráð fyrir að Phelps
næði verðlaunasæti. Svo varð
þó ekki því stjarnan endaði í
fjórða sætinu meðan keppi
nauturinn Lochte sigraði með
töluverðum yfirburðum.
Þjálfari Phelps var með svör
á reiðum höndum og sagði
undirbúning skjólstæðings
síns hafa verið lakari en þörf
var á og því hafi Phelps ekki
staðið undir væntingum í
þessu fyrsta keppnissundi
sínu. Sjálfur tók Phelps undir
það og viðurkenndi fúslega að
fyrstu þrír keppendurnir hefðu
einfaldlega synt betur en hann
sjálfur.
Phelps á eftir að keppa í all
nokkrum greinum næstu dag
ana og verið getur að hann
komi þar á óvart. Það hefur
hann gert áður og hann er stór
kostlegur íþróttamaður jafnvel
þó gjörningar hans utan vall
ar hafi farið fyrir ofan garð og
neðan hjá aðdáendum hans.
Fallinn Phelps
n Sigursælasti sundmaður heims ekki meðal þriggja efstu
n Hvaða þjálfarar í Englandi hafa verið séðastir með veskið?
Sol Campbell
Hann var lengi vel einn besti
varnarmaður Bretlandseyja og
það er ekkert minna en stór
kostlegt að á hátindi ferilsins
hafi Arsene Wenger tekist að
heilla Campbell nóg, ekki að
eins til að skipta yfir í Arsenal
frá erkifjendunum Tottenham
heldur að fá hann fyrir ekki
neitt. Þetta eru klárlega topp
kaup hvernig sem á það er
litið enda var Campbell frábær
með liðinu til ársins 2006.
Tim Cahill
Hann er nú á mála hjá New
York Red Bulls í Bandaríkj
unum en síðastliðin ár hef
ur hann verið lykilleikmaður
Everton og á köflum stórkost
legur. Stjóri Everton keypti
hann fyrir 280 milljónir króna
á sínum tíma. Þar lék Cahill vel
yfir tvö hundruð leiki.
Eric Cantona
Þarf eitthvað að segja um
þennan snilling sem óumdeil
anlega eru bestu kaup Alex
Ferguson nokkru sinni. Hann
fékkst frá Leeds á sínum tíma
fyrir 230 milljónir króna.
Ole Gunner
Solskjær
Önnur mögnuð kaup Fergu
son. Solskjær var einn lykil
manna United í heil tíu ár og
skoraði æði mörg geysimikil
væg mörk. Hann kom upphaf
lega til liðsins fyrir 240 milljón
ir króna.
Robin van Persie
Annar sem ekki þarf að kynna
mikið. Meiri líkur en minni
þykja á að hann verði seld
ur á næstunni fyrir dágóðan
skilding. Hann kostaði Arsenal
aðeins 520 milljónir þegar
hann kom frá Feyenoord árið
2004.
Joe Hart
Aðalmarkvörður ensku meist
aranna og enska landsliðsins.
Hver hefði trúað því að hann
hefði fengist árið 2006 fyrir að
eins 115 milljónir króna.
Shay Given
Annar stórfínn markvörð
ur sem kostaði klink á sínum
tíma. Hann lék í tíu ár fyrir
Newcastle og kostaði 280 millj
ónir króna.
Cesc Fabregas
Stórkostlegur fyrir Arsenal og
einn af þeim betri í boltanum
almennt. Wenger fékk hann
frítt árið 2003 og seldi hann
2010 fyrir tæpa sex milljarða
króna.
Nicolas Anelka
Enn einn snillingurinn sem
Arsene Wenger nældi í fyrir
smápeninga og seldi aftur fyr
ir fúlgur fjár. Anelka kostaði
Arsenal á sínum tíma heilar 98
milljónir króna.
Demba Ba
Sextán mörk á sínu fyrsta
tímabili í enska með Newcastle
United. Og prísinn fyrir kapp
ann: Núll krónur.
Ý
mislegt má segja um
þjálfara Arsenal, hinn
franska Arsene Wen
ger, en eitt má karlinn
eiga; enginn státar af
viðlíka árangri þegar kemur að
stórkostlegum kaupum á leik
mönnum. Á lista dagblaðsins
Telegraph um tíu bestu kaup
in í enska boltanum undanfar
in ár eru fjórir leikmenn sem
Wenger fékk frítt eða fyrir lítið
en mokaði inn seðlum þegar
þeir voru síðan seldir.
Deila má um hvernig bestu
kaupin eru skilgreind en heilt
yfir hljóta þau að vera kaup
á ódýrum leikmönnum sem
blómstra með liðum sínum
og félagið græðir síðan á tá og
fingri þegar þeir yfirgefa síðan
herbúðir þeirra. Arsene Wen
ger er snillingur í þessu og til
eru þeir sem segja að þrátt fyr
ir ýmsa háa herra og moldríka
í stjórn Arsenal hefði félag
ið aldrei ráðist í byggingu Em
irates leikvangsins hefði Wen
ger ekki verið svona séður í
leikmannakaupum.
Má muna sinn fífil fegurri
Gengi allra besta sundmanns síð-
ustu ára virðist á niðurleið ef marka
má fyrstu keppni hans í London.
Engin kaup
í deiglunni
Arsene Wenger, stjóri
Arsenal, fullyrðir að engin
frekari leikmannakaup séu
ákveðin af hálfu liðsins á
þessari stundu. Hafa um
mælin vakið athygli enda
stutt í að leiktíðin hefjist og
enn er alveg óráðið hvort
liðið heldur stjörnusóknar
manni sínum Robin van
Persie. Sterkur orðrómur
gengur um að Wenger vilji
fá þá Santi Cazorla og Nuri
Sahin til liðsins en því hafn
ar Wenger. Þá varð ljóst í
gær að hinn efnilegi Jack
Wilshire verður frá vegna
meiðsla fram í október.
Scholes á
mörg ár eftir
Hinn 37 ára gamli Paul
Scholes á nokkur góð ár eftir
að mati Alex Ferguson stjóra
Manchester United. Scho
les hefur skrifað undir eins
árs samning við liðið eftir
að hafa hætt við að hætta
knattspyrnuiðkun en Scho
les var kominn í þjálfara
teymi United í fyrra áður en
hann ákvað að spila á nýjan
leik. Ferguson hefur mikla
trú á sínum manni því hann
telur að Scholes eigi fleiri
en eitt ár eftir og það hjá
United.
Vilanova eins
og Guardiola
Leo Messi, stjarna Barce
lona, segir lítinn sem engan
mun á þjálfun og undir
búningi nýs þjálfara, Tito
Vilanova og hins sigursæla
Pep Guardiola. Í samtali við
Marca á Spáni segir Argent
ínumaðurinn að Tito sé
jafn agaður og skemmtileg
ur þjálfari og forverinn og
engin spurning sé að Börs
ungar muni, undir stjórn
nýs þjálfara, spila eins vel og
þeir hafa gert undanfarin ár.
Fyrsti æfingaleikur liðsins
fyrir næstu leiktíð gef
ur góð fyrirheit. Barcelona
lagði Raja Casablanca frá
Marokkó 0–8 og Messi skor
aði þrjú.