Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2012, Qupperneq 25
Sport 25Mánudagur 30. júlí 2012
Sannfærandi sex marka sigur
n Handboltalandsliðið byrjar vel á ÓL
Þ
að var ekki ýkja margt
athugavert við fyrsta
leik íslenska hand
knatt leiks landsliðs ins á
Ólympíu leikunum í London.
Sann fær andi sex marka sig
ur á landsliði Argentínu varð
niðurstaðan þrátt fyrir að þeir
suðrænu væru aðeins einu
marki undir í hálfleik.
Argentínumenn voru
sýnd veiði en ekki gefin eins
og leikmenn Íslands vissu
eftir tvo æfingaleiki við liðið
í aðdraganda Ólympíuleik
anna. Sýndu þeir argent
ínsku fínan leik lengi vel
og voru aðeins marki und
ir, 15–14, í hálfleik. Þeir hins
vegar kláruðu sig of snemma
því síðustu tíu mínútur leiks
ins átti Ísland skuldlaust og
það var þá sem liðið seig
hægt og bítandi framúr.
Reynslan, sem íslenska liðið
hefur nóg af, hafði þá sitt að
segja.
Guðjón Valur Sigurðsson
var frábær í íslenska liðinu
og jafnframt markahæstur
með 9 mörk. Ólafur Stefáns
son setti sex mörk og Róbert
Gunnarsson skoraði fjög
ur. Þeir Arnór Atlason, Aron
Pálmarsson og Ingimund
ur Ingimundarson skoruðu
þrjú, Ásgeir Örn Hallgríms
son tvö og Alexander Peters
son eitt.
Markverðir Íslands stóðu
vaktina með prýði líka.
Björgvin Páll Gústavsson
varði 8 skot og Hreiðar Levý
Guðmundsson varði alls níu
skot.
Ísland mætir liði Tún
is á þriðjudaginn kemur og
hefst sá leikur klukkan 8:30
um morguninn. Túnis tap
aði sínum fyrsta leik gegn
Svíþjóð með sjö marka mun
21–28.
Þ
að fara ekki allir í skóna
hans Andriy Shevchen
ko. Það fara reyndar
alls engir í skóna hans
enda komnir end
anlega upp á hillu á heimili
kappans í Kænugarði en þessi
stórkostlegi knattspyrnumað
ur sem skemmt hefur áhuga
mönnum um heim allan síðan
1992 er hættur og ætlar að hasla
sér völl í pólitík.
Hvað er hægt að segja um
knattspyrnumann sem allan
sinn feril skoraði því sem næst
mark í öðrum hverjum leik
sem hann spilaði. Það gerði
Sheva, eins og hann er kall
aður af löndum sínum, í bún
ingi Dynamo Kiev, AC Milan og
Chelsea jafnvel þó ferill hans í
bláum búningi Lundúnaliðsins
undir stjórn Jose Mourinho hafi
þótt vera hans lakasti. Var hann
gagnrýndur mjög harkalega
fyrir frammistöðu sína þar jafn
vel þó hann næði að setja 22
mörk í 77 leikjum.
Fann sig aldrei með Chelsea
Með Chelsea stóð hann
kannski aldrei undir þeim
verðmiða sem var á honum
þegar hann var keyptur frá
AC Milan en hægt er að færa
rök fyrir að hann hafi aldrei
fengið ýkja mikinn tíma og
var reglulega skipt út af enda
tómar risastjörnur á bekknum
þá eins og nú. Frank Lampard,
leikmaður Chelsea, lét hafa
eftir sér þegar Sheva lauk ferli
sínum með Chelsea til að fara
aftur til Milan að þar færi ein
af stórstjörnum fótboltans frá
upphafi. „Sheva er þarna uppi
með þeim allra allra bestu síð
ustu öldina. Hann er goðsögn
og sannarlega súperstjarna.“
Lampard er sjálfur enginn
auk visi og hefur spilað með
stórstjörnum nánast allan
sinn feril hjá Chelsea. Hann
veit hvað hann syngur.
Mark í öðrum hverjum leik
En enginn efast um að Andriy
var besti sóknarmaður heims
þegar hann var upp á sitt
besta með AC Milan og þó
mörkin séu mörg í búningi
liðsins var ekki síður merki
legt að hann átti ótrúlega
oft lokaorðið í mikilvægustu
leikjum liðsins. Þannig var
það Shevchenko sem skoraði
til að tryggja Rossineri sinn
fyrsta Meistaradeildartitil í
níu ár 2003 þegar AC sigraði
Juventus í vítaspyrnukeppni.
Þá var það líka hann, stuðn
ingsmönnum AC til mikillar
gleði, sem tryggði AC sigur á
erkifjendunum Inter, oftar en
einu sinni og oftar en tvisvar
en slíkt er kjörið til að komast
í guðatölu meðal áhangenda
liðsins.
Herra forseti
Lítill vafi leikur á að Sheva mun
láta að sér kveða sem pólitíkus
í Úkraínu. Hann er einn allra
vinsælasti maðurinn í landinu
og hefur verið það lengi. Hann
hefur notað töluvert af mikl
um fjármunum sínum til að
bæta kjör þeirra er lítið hafa og
eiga í landinu og lítur á sig sem
mann fólksins. Hann á þess
vegna eftir að gera það gott
í kosningum og spurningin
kannski aðeins hvaða embætti
hann hefur áhuga að landa.
Sennilegast gæti hann tiltölu
lega einfaldlega látið kjósa sig
forseta landsins, kærði hann
sig um það.
n Andriy Shevchenko leggur skóna á hilluna eftir glæsilegan feril
Enn í fullu fjöri
Ólafur Stefánsson á
helling eftir, miðað við fína
spilamennsku með lands-
liðinu í fyrsta leik liðsins á
Ólympíuleikunum í London.
Kaká aftur
til Milan
Berlusconi, eigandi AC
Milan, vill ólmur fá Bras
ilíumanninn Kaká aftur til
liðsins en talið er víst að
Mourinho þjálfari Real Ma
drid hafi ekki ýkja mikinn
áhuga að halda kappanum
í Madríd. Þykir hann ekki
hafa sýnt neina snilldartakta
í búningi Hvíta hússins eins
og Real Madrid kallast með
al stuðningsmanna. Kaká
blómstraði hins vegar með
AC Milan á sínum tíma og
hann er aðeins þrítugur að
aldri. Hann ætti að eiga tvö
til þrjú góð ár eftir enn.
Vill Neymar
til Barca
Hægt væri að færa rök fyrir
að Barcelona hafi ekki sigr
að deildarkeppnina á Spáni
síðastliðinn vetur vegna
meiðsla hins eiturskæða
David Villa snemma leiktíð
ar. Jafnvel þó Messi sé snill
ingur og velflestir leikmenn
liðsins geti skorað, munar
um minna þegar menn eins
og Villa eru frá. Þess vegna
vill stjórnarformaður liðsins
fá hinn brasilíska Neymar til
Barcelona fyrir næstu leik
tíð. Neymar sem leikur með
Santos í heimalandinu þykir
einn allra skæðasti framherji
vorra tíma og það aðeins
tuttugu ára gamall. Þykir í
öllu falli afar hæpið að hann
leiki mikið lengur í Brasilíu
en fleiri félög en Barcelona
íhuga að freista kappans
sem kosta mun fúlgur fjár.
Erfiður
markaður
Stjóri Manchester City,
Roberto Mancini, segir að
aðdáendur liðsins megi bú
ast við nýju blóði næstu
tvær vikur. Viðræður eigi sér
stað við nokkra leikmenn
en markaðurinn sé almennt
erfiður og því taki viðræð
ur lengri tíma en ella. Sé
markaðurinn erfiður fyrir
félagslið með nánast ótak
markaðan aðgang að fjár
magni er ljóst að hann er
raunverulega erfiður. Nema
vellauðugir eigendur City
séu allt í einu farnir að spara
skildinginn?
Shevchenko
hættur
og farinn
í Stjórnmálin
Vonbrigði
Hvort sem menn héldu
með liði Úkraínu eður ei á
Evrópumeistaramótinu
í sumar var afskaplega
sorglegt að Shevchenko
og félagar kæmust ekki
lengra en raunin varð.
Shevchenko gerði þó sitt
allra besta.
Flottur hjá AC Milan
Á toppi ferilsins með AC Milan
skoraði Shevchenko hvorki fleiri né
færri en 177 mörk í 296 leikjum alls.
Þar af komu fjórtán þeirra gegn
höfuðandstæðingnum, Inter Milan.
Albert Eyþórsson
blaðamaður skrifar albert@dv.is