Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.2012, Qupperneq 26
26 Fólk 30. júlí 2012 Mánudagur
Jón Gnarr glæsilegur
n Jón Gnarr og Hinsegin kórinn á Gay Pride í Færeyjum
Þ
etta gekk alveg rosalega
vel,“ segir Helga Margrét
Marzellíusardóttir, kór-
stjóri Hinsegin kórsins
við blaðamann DV. Kór-
inn kom fram í tilefni af Gay
Pride-göngunni í Færeyjum
fyrir helgi auk þess sem þau
sungu í færeysku sjónvarpi og
á Ólafsvöku.
„Lögreglan segir að þarna
hafi verið fimm til sex þúsund
manns, sem er rosalega mik-
ið,“ segir Sigurður Júlíus Guð-
mundsson, sem syngur með
kórnum, en bæði segja þau
Helga að viðtökurnar hjá Fær-
eyingum hafi verið frábærar.
„Hér eru allir rosalega opnir,
dagurinn í dag var bara algjör
draumur,“ segir Helga. „Bara
gleði og hamingja í dag,“ stað-
festir Sigurður. Réttindabar-
átta samkynhneigðra er komin
mun skemur á veg í Færeyj-
um en á Íslandi og því er mik-
ilvægur áfangi að halda slíka
gleðigöngu. Jón Gnarr tók sem
kunnugt er þátt í göngunni og
segja þau borgarstjórann hafa
verið landi til sóma, bæði í at-
ferli og klæðaburði: „Hann var
glæsilegur,“ segja þau en Jón
hélt ræðu sem þótti vera mjög
hvetjandi.
Markmið
Gillz
Egill Einarsson eða Gillz
eins og hann er alltaf kall-
aður hefur verið erlendis
upp á síðkastið með góðvini
sínum, Auðunni Blöndal,
en þeir skelltu sér saman til
Benidorm í smá frí.
Egill er einkaþjálfari og
vinnur sem slíkur og sjálfur
er hann í frekar góðu formi.
Í seinustu viku setti hann
á Facebook, mynd af olíu-
bornu vöðvatrölli og skrif-
aði við myndina: „Ég er með
EITT markmið í lífinu og það
er að koma mynd af mér inn
á Male Fitness Model síð-
una!“
Fyrir neðan skrifar svo
Sigmar Guðmundsson úr
Kastljósinu: „Magnað mað-
ur, svo stefna aðrir að því
að koma á friði á jörð og út-
rýma fátækt í heiminum.“
15 tímar á
öðrum fæti
Tónlistarmaðurinn Davíð
Berndsen er þessa dagana
að vinna nýju plötunni sinni
Planet Earth auk þess sem
nýlega kom út plata Þórunn-
ar Antoníu en hún og Davíð
sömdu öll lögin á henni
saman.
Hann setti þessa mynd á
netið fyrir nokkrum dögum
og skrifaði við hana: „Vissuð
þið að fyrir 3 árum stóð ég á
einum fæti í 15 klukkustund-
ir fyrir framan grænan skjá í
Svíþjóð. Myndbandið inni-
hélt 3500 myndir sem voru
settar saman. Góðir tímar
og frábær vinnubrögð hjá
Farzad Farzaneh og Viktor
Gardsater“ en myndbandið
sem Davíð á við er við lag
Berndsen, Lover In The Dark.
Sölvi far-
inn úr landi
Fjölmiðlamaðurinn Sölvi
Tryggvason, sem er að skrifa
ævisögu Jóns Páls Sigmars-
sonar heitins, er farinn frá
Íslandi til Valencia sem að
hans mati er ein besta borg
Spánar. Að hans sögn er
ævisöguverkefnið hrikalega
skemmtilegt og Jón Páll eitt
mesta goð sem Ísland hafi
alið. Hann segist samt ekki
alfarinn frá Íslandi heldur
ætlar hann að dvelja ytra í
nokkrar vikur og skrifa „eins
og vindurinn.“
„Glæsilegur“ Jón Gnarr hélt ræðu sem þótti vera mjög hvetjandi.
Myndir SiGurður JúlíuS GuðMundSSon
Sungu víða Kórinn kom fram á Ólafsvöku, á Gay Pride og í sjónvarpi.
Mikilvæg barátta
Réttindabarátta
samkynhneigðra er mun
skemur á veg komin í
Færeyjum en á Íslandi.
Þ
að var bandarísk sjón-
varpsstöð sem bauð
mér að koma fram í
einhverjum nýjum
þætti, Off Beat,“ seg-
ir söngkonan Leoncie en þar
er á ferðinni þáttur frá sömu
framleiðendum og gera Amer-
icas Funniest Home Videos.
Vin Di Bona er einn af aðal-
framleiðendum þáttarins en
hann er einmitt hugmynda-
smiðurinn á bakvið Americas
Funniest Home Videos. Það
er grínistinn Mike E. Winfield
sem stýrir þættinum en í lýs-
ingu þáttarins segir að í hon-
um séu sýnd öll fyndnustu og
mest „outrageous“ tónlistar-
myndbönd sem netið hefur
upp á að bjóða. „Þeir ætluðu að
frumsýna nýja tónlistarmynd-
bandið mitt, Gay World,“ bæt-
ir Leoncie við en hún var að
senda frá sér nýja plötu með
sama nafni. Leoncie er búsett
í Bretlandi en hún flutti þang-
að fyrir nokkrum árum frá Ís-
landi ásamt Viktori eiginmanni
sínum,
„En ég hafnaði tilboði
þeirra þegar ég las yfir samn-
inginn,“ bætir hún ákveðin við.
„Þar sem þau ætluðu að hirða
allan höfundarréttinn. Af öll-
um myndböndunum mínum
og líka því sem ég sem í fram-
tíðinni,“ en Leoncie leist ekki
alls kostar á gylliboð banda-
ríkjamannanna að hennar
sögn. „Ég er enginn fangi fyr-
ir bandaríska fávita! Þeir vildu
líka fá að vita hvaða skoðanir
ég hefði á Íslandi þar sem ég er
íslenskur ríkisborgari.“
Það sem meira er; þá seg-
ir Leoncie að aðilarnir sem
settu sig í samband við hana
og vildu fá hana í þáttinn hafi
sett sem skilyrði að Viktor eig-
inmaður hennar yrði ekki með
í för. „Enginn getur tælt mig.
Ég sagði þeim að lauslæti væri
ekki fyrir mig. Ég vil ekki skilja
við karlinn minn til að verða
fræg í Ameríku.“
Leoncie segir að forsvars-
menn þáttarins sem höfðu
samband við hana hafi ekki
verið sáttir þegar hún hafnaði
tilboðinu. „Þeir sögðu að hing-
að til hafi enginn hafnað þeim
en ég svaraði: „Ég, Icy Spicy
Leoncie, er ekki örvæntingar-
full. Ég kem frá risastóru landi,
Indlandi, þar sem möguleik-
arnir eru margfalt meiri.“
Leoncie segist skilja vel að
framleiðendur Off Beat hafi
viljað fá lög sín í þáttinn. „Auð-
vitað veit ég að ég sem frábær
gamanlög. Eins
og til dæmis Litli
sjóarinn sem þeir
vildu líka spila.
Ég elska að fá fólk
til þess að hlæja,“
segir Leoncie
en aðdáend-
ur hennar geta
séð myndbandið við titillag-
ið á nýju plötunni á YouTube-
síðu söngkonunnar. Slóðin er
youtube.com/icyspicyleoncie.
Þar er að finna fjöldann allan
af myndböndum eftir Leoncie
og þar á meðal við áðurnefnt
lag; Litli sjóarinn.
asgeir@dv.is
n Boðið í þáttinn „Off Beato“ n „Vil ekki skilja til að verða fræg í Ameríku.“
Fórnar
Viktori
ekki fyrir
frægðina
leoncie „Ég er
enginn fangi fyrir
bandaríska fávita!“
Gay World Nýtt lag og ný plata frá
Leoncie.