Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2012, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2012, Blaðsíða 2
2 Fréttir 15. febrúar 2012 Miðvikudagur Samkeppniseftirlitinu stefnt: Leynd yfir svínamáli Tvö mál gegn Samkeppniseftir­ litinu vegna yfirtöku Stjörnu gríss á nokkrum svínabúum eru nú til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykja­ víkur. Það var í júní í fyrra sem Samkeppniseftirlitið ógilti samruna sem fólst í yfirtöku Stjörnugríss á tilteknum eignum svínabúanna sem fóru með rekstur svínabú­ anna Brautarholts og Grísagarðs. Svínabúin höfðu komist í eigu Ar­ ion banka eftir að þau urðu gjald­ þrota. Úrskurðurinn var kærður til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem staðfesti niðurstöðu Sam­ keppniseftirlitsins um að ógilda yfirtökuna. Í fyrra málinu sem nú er til með­ ferðar hjá héraðsdómi er það Stjör­ nugrís hf. sem stefnir Samkeppnis­ eftirlitinu til ógildingar ákvörðunar eftirlitsins. Í síðara málinu er það hins vegar Arion banki sem stefnir Samkeppniseftirlitinu af sömu ástæðu. Athygli vakti að samkvæmt dagskrá héraðsdóms í síðustu viku var þinghald í síðara málinu lokað. Samkvæmt upplýsingum frá Ar­ ion banka var farið fram á að hafa þinghaldið lokað vegna þess að við meðferð málsins gætu komið fram upplýsingar sem varða bankaleynd. Ekki fengust nánari skýringar á því hvaða upplýsingar það gætu verið en fyrirtöku í málinu sem átti að fara fram í síðustu viku var frestað. Þinghald í fyrra málinu var hins vegar opið en fyrirhugaðri fyrir­ töku sem átti að fara fram í síðustu viku var frestað um óákveðinn tíma líkt og í hinu málinu. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, lögmaður Stjörnu­ gríss hf., segist í samtali við DV von­ ast til þess að aðalmeðferð í mál­ inu fari fram í mars. Gangi það eftir mun dómur í málinu falla skömmu síðar. Heiðrún segir að mikið sé undir í málinu og ágreiningurinn marg­ þættur. „Það er ágreiningur um það hvernig markaðir eru skilgreindir og markaðshlutdeild og fleira. Svo er þetta sjónarmið um fyrirtæki á fallandi fæti. Því var haldið fram í málinu og samþykkt af Samkeppn­ iseftirlitinu í upphafi að þessi fyrir­ tæki sem hefðu verið keypt hefðu verið á fallandi fæti og verið gjald­ þrota og enginn annar kaupandi. Áfrýjunarnefndin féllst ekki á að þessi skilyrði væru uppfyllt. Það er fyrirséð að það verði langur mál­ flutningur í þessu,“ segir Heiðrún. Málið vakti talsverða athygli á sínum tíma en DV greindi til að mynda frá því í fyrra að forsvars­ menn Stjörnugríss hefðu slátrað yfir 500 gyltum og með því þurrkað út stofninn í Brautarholti sem þeir höfðu yfirtekið frá Arion banka. Dæmdur fyrir kannabisræktun Héraðsdómur Reykjavíkur hef­ ur dæmt karlmann á fertugs­ aldri í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa í fórum sínum 59 kannabisplöntur. Plönturnar fundust á heimili mannsins á höfuðborgarsvæð­ inu þann 1. september 2010, en samkvæmt ákæru voru plönt­ urnar ætlaðar til dreifingar og sölu. Við húsleit á heimili mannsins lagði lögregla einnig hald á sex gróðurhúsalampa og tvær viftur sem notuð voru til framleiðslu plantnanna. Maðurinn játaði brot sín skýlaust en dómurinn yfir honum er bundinn skilorði til tveggja ára. Þá var honum gert að greiða 240 þúsund krónur í sakarkostnað. Vilja milljarða frá bönkunum „Hæstu kröfur fyrr- verandi starfs- manna eru gerðar í Landsbankann. n Fyrrverandi lykilstarfsmenn bankanna hafa samtals gert þriggja milljarða kröfur í þrotabú þeirra Vilja meira Bankamenn vilja margir hverjir fá meira greitt frá hinum föllnu bönkum, en þeir voru með talsvert betri kjör en annað fólk í landinu meðan bankarnir störfuðu. M argir af fyrrverandi stjórn­ endum og starfsmönn­ um hinna föllnu íslensku banka, Glitnis, Lands­ banka og Kaupþings, hafa gert tilraunir til að sækja þangað laun og aðrar greiðslur sem þeir telja sig eiga rétt á. Alls nema kröfur helstu lykilstarfsmanna bankanna tæplega þrjú þúsund milljónum króna. Mörg­ um kröfunum hefur verið hafnað af annaðhvort slitastjórnum bankanna eða dómstólum. Margir þeirra fyrr­ verandi stjórnenda bankanna sem gerðu á einhverjum tíma launakröfu í þrotabú þeirra eru einnig til athug­ unar hjá sérstökum saksóknara í tengslum við málefni tengd hruninu. Með langhæstu kröfuna Margar krafnanna hlaupa á tugum og jafnvel hundruðum milljóna króna. Kröfurnar eru byggðar á mismunandi grunni en allar eiga þær sameiginlegt að tengjast loforðum eða samningum sem gerðir voru í bankabólunni fyrir hrun. Steinþór Gunnarsson, fyrrverandi forstöðumaður verðbréfamiðlunar Landsbankans, er sá sem gerði lang­ stærstu kröfuna í einhvern hinna föllnu banka. Hann vildi fá 490 millj­ ónir króna vegna launa og annarra fríðinda sem hann taldi sig eiga inni hjá bankanum. Krafa hans nemur um 27 prósentum af heildarkröfum fyrr­ verandi lykilstarfsmanna bankans í þrotabúið. Athygli vekur að hæstu kröfur fyrrverandi starfsmanna eru gerðar í Landsbankann. Fimm kröfur af átta hljóða upp á meira en hundrað millj­ ónir króna samanborið við aðeins eina kröfu af sex í þrotabú Kaupþings banka. Aðeins Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður bank­ ans, gerir svo háa kröfu en krafa hans nemur um 244 milljónum króna. Kröfum framkvæmdastjóra hafnað Slitastjórn Glitnis tók skýra afstöðu til krafna fyrrverandi stjórnenda bank­ ans þegar hún hafnaði öllum launa­ kröfum frá fyrrverandi framkvæmda­ stjórum bankans. Sumum kröfum fyrrverandi starfsmanna hefur verið hafnað en aðrar hafa verið samþykkt­ ar. Ekki liggur ljóst fyrir hvernig málin fara á endanum því í mörgum tilfell­ um er kröfunum aðeins hafnað sem forgangskröfum en ekki almennum kröfum. Takist á einhverjum tíma­ punkti að afgreiða almennar kröfur munu því líklega einhverjir fyrrver­ andi starfsmanna bankanna fá kröfur sínar greiddar. Kröfurnar sem lýst hafði verið á Glitni af fyrrverandi lykilstarfsmönn­ um námu samtals 700 milljónum króna. Það eru lágar kröfur saman­ borið við kröfurnar sem gerðar voru í Landsbankann en talsvert háar sam­ Kaupþing Sigurður Einarsson fyrrverandi stjórnar- formaður Kaupþings n Gerir launakröfu upp á 244 milljónir króna í þrota- bú Kaupþings. Ingólfur Helgason fyrrverandi forstjóri Kaup- þings á Íslandi n Gerir 82 milljóna launa- kröfu í þrotabú Kaupþings. Steingrímur Kárason fyrrverandi framkvæmda- stjóri áhættustýringar Kaupþings n Heimtaði 25 milljónir krónur frá þrotabúi Kaupþings. Guðni Níels Aðalsteinsson fyrrverandi framkvæmdastjóri n Gerir kröfu upp á 29 milljónir króna í þrotabú Kaupþings. Ríkharður Daðason n Vildi laun og bónusgreiðslur upp á 31 milljón króna frá Kaup- þingi. Guðný Arna Sveinsdóttir fyrrverandi framkvæmda- stjóri fjármála- og rekstrarsviðs n Gerir 12 milljóna launa- körfu í þrotabú Kaupþings. Landsbankinn Guðmundur Guðmundsson framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Landsbankans n Gerði 75 milljóna króna launakröfu í þrotabú Landsbankans en féll svo frá kröfunni. Yngvi Örn Kristinsson fyrrverandi forstöðu- maður hagfræðisviðs Landsbankans n Dró til baka 229 milljóna króna launakröfu í þrotabú Landsbankans. Baldvin Valtýsson fyrrverandi útibússtjóri Landsbankans í Lundúnum n Féll frá 90 milljóna launakröfu í þrotabú Landsbankans. Ari Wendel n Féll frá 75 milljóna króna launakröfu í þrotabú Landsbankans. Steinþór Gunnarsson fyrrverandi forstöðumaður verðbréfamiðlunar Landsbankans n Gerir kröfu upp á 490 milljónir króna í þrotabú Landsbankans. Haukur Þór Haraldsson fyrrverandi forstöðumaður rekstrarsviðs Landsbankans n Gerir kröfu um 148 milljónir króna úr þrotabúi Landsbankans. Bjarni Þ. Bjarnason forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar n Krafa upp á 377 milljónir króna í þrotabú Landsbankans. Guðmundur P. Davíðsson forstöðumaður fyrirtækjasviðs n Gerir kröfu um 316 milljónir úr þrotabúi Landsbankans. Glitnir Sigurgeir Örn Jónsson fyrrverandi yfirráðgjafi í fjár- sýslu Glitnis n Gerði rúmlega 142 milljóna króna launakröfu í þrotabú Glitnis. Birna Einarsdóttir núverandi banka- stjóri Íslands- banka n Gerði kröfu upp á 12,5 milljónir í þrotabú Glitnis. Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.