Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2012, Blaðsíða 15
Neytendur 15Miðvikudagur 15. febrúar 2012
Hraðari eignamyndun
en mun meiri sveiflur
Þ
að er hagstæðara að taka
óverðtryggt húsnæðislán
þar sem þú eignast fasteign-
ina mun fyrr. Það er þó ekki
ráðlagt að taka slík lán nema
viðkomandi hafi svigrúm til að geta
staðið af sér sveiflur í afborgunum.
Þeir sem eru í þröngri stöðu ættu að
skoða vel og vandlega hvort sú staða
leyfi óvissuna sem getur fylgt óverð-
tryggðum lánum. Það getur verið
erfitt að henda reiður á hvor tegund
lána sé hagstæðari en DV skoðar hér
muninn á þeim.
Bera saman kosti og kjör
Bankarnir bjóða nú upp á óverð-
tryggð lán til húsnæðiskaupa en það
er viðbót við þau verðtryggðu sem
voru einu lánin sem landsmönnum
buðust. Bankarnir bjóða mjög svip-
uð kjör á lánunum en þó er einhver
munur á binditíma lánanna og örlít-
ill munur á vöxtum. Það er þó vert að
skoða hvað hver banki býður og bera
saman kosti og kjör. Íbúðalánsjóður
er ekki farinn að bjóða slík lán en lík-
legt þykir að svo verði í framtíðinni.
Óverðtryggð lán henta þeim sem
vilja hraðari eignamyndum og forð-
ast uppsöfnun verðbóta á höfuð-
stól. Þau hækka ekki með verðbólgu
en greiðslubyrði er að jafnaði hærri
til að byrja með en á verðtryggðum
lánum. Þau eru því hagstæðari að
þessu leyti. Verðtryggð íbúðalán eru
með breytilegum vöxtum til lengri
tíma og henta þeim sem kjósa lægri
greiðslubyrði og hægari eignamynd-
un í flestum tilfellum.
Binditími og vextir breytanlegir
Helsti munurinn á verðtryggðum og
óverðtryggðum lána er að þú getur
valið um fasta vexti þegar þú tekur
óverðtryggt lán.
Hjá Landsbankanum getur lán-
taki valið um 36 eða 60 mánuði á
föstum vöxtum. Áður en kemur að
lokagjalddaga fastvaxtatímabilsins
hefur viðskiptavinur mánuð til að
ákveða sig um framhaldið í ljósi að-
stæðna, það er að segja hvort festa
eigi vexti aftur á þeim kjörum sem í
boði eru á þeim tíma eða hvort hann
vilji breyta. Þetta þýðir að þegar fast-
vaxtatímabili lýkur, til dæmis eftir
fimm ár, getur viðskiptavinur skoð-
að stöðu sína og ákveðið hvað hann
gerir. Hann getur til dæmis hafa orð-
ið fyrir tekjumissi eða þurft að lækka
starfshlutfall og þá er möguleiki á
að minnka greiðslubyrðina með því
að breyta láninu í verðtryggt lán en
við það lækkar greiðslubyrðina sjálf-
krafa. Heildarupphæðin hækkar þó
á endanum og viðkomandi hættir
að eignast eins mikið í fasteigninni
og áður. Viðskiptavinur getur einnig
ákveðið að breyta binditíma vaxt-
anna í eitt ár. Við það hækka vextirn-
ir en það getur verið kostur að taka
stöðuna aftur eftir einungis eitt ár.
Þar að auki getur hann ákveðið að
halda þeim kjörum sem upphaflegt
lán hljóðaði upp á. Sú staða getur þó
komið upp að vextir muni hækka en
það fer eftir verðlaginu hverju sinni.
Ef verðbólgan er til að mynda 1 pró-
sent þegar þú þarft að ákveða fram-
haldið þá verða vextirnir lægri. Sé
hún hins vegar 20 prósent hækka
þeir. Þetta er ókosturinn við slík lán
en þau sveiflast gríðarlega í takt við
hagkerfið.
Íslandsbanki býður upp á 3 ára
binditíma vaxta sem veitir stöðuga
greiðslubyrði fyrstu þrjú ár lánstím-
ans. Að þeim tíma liðnum ber að
greiða breytilega vexti húsnæðis-
lána samkvæmt vaxtatöflu á hverjum
tíma.
Hjá Arion banka eru föstu vext-
irnir til 5 ára í senn. Á fimm ára fresti
eru vextirnir endurskoðaðir og taka
mið af markaðsvöxtum, sem í gildi
eru við endurskoðun. Viðskiptavin-
ir geta einnig valið aðra kosti ef þau
óverðtryggðu kjör sem þá bjóðast
eru óhagstæð.
Strangara greiðslumat
Annað sem skilur óverðtryggðu lánin
frá þeim verðtryggðu er meðal ann-
ars að greiðslumat er strangara að
því leytinu að lántaki verður að sýna
fram á að geta staðið af sér sveiflur.
Greiðslubyrðin af þeim getur verið
mjög sveiflukennd til lengri tíma lit-
ið. Það er því ýmislegt sem þarf að
taka inn í reikningsdæmið, svo sem
hvað viðkomandi skuldar í námslán,
hve mörg börn hann er með á fram-
færi og hve marga bíla hann rekur.
Allt þetta skiptir máli þegar kemur
að greiðslumati og segir til um hve
hátt lán hann getur fengið. Það er því
munur á manni sem skuldar ekkert
og er með háar tekjur og þeim sem
er með sömu tekjur en mikla fram-
færslubyrði. Það er margt sem þarf
að skoða og allir eiga sína viðskipta-
sögu sem kemur til álita.
Breyta verðtryggðu
í óverðtryggt
Áður fyrr þurftu lántakendur að festa
lán sín til 25 eða 40 ára á vissum vöxt-
um og þannig hélst það út lánstím-
ann. Nú er hægt breyta verðtryggða
láninu sínu í óverðtryggt en þá þarf
að hafa í huga hvort viðkomandi geti
tekist á við sveiflur í afborgunum.
Kerfið sem nú er í boði er því mun
sveigjanlegra svo lengi sem þú gerir
breytingar innan lánastofnunarinn-
ar. Það er þó enn kostnaður við að
flytja lán á milli lánastofnana en það
er ríkisins að afnema þau gjöld.
Heildargreiðsla hærri á
verðtryggðum lánum
Það er því erfitt að mæla með öðru
láninu frekar en hinu en það sem
fólk þarf að gera er að fara í greiðslu-
mat, átta sig á hvaða tekjur það hefur
og hve mikið svigrúm það hefur fyrir
sveiflur. Síðan þarf að vega og meta
stöðuna því fyrir suma hentar betur
að hafa lága greiðslubyrði og dreifa
greiðslum yfir langan tíma þó það
þýði að heildargreiðsla verði hærri.
Öðrum hentar betur að borga meira
til að byrja með og þar með auka
hraða eignarmyndunar og ættu þeir
því að skoða hvort óverðtryggðu
lánin geti hentað þeim.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
n Óverðtryggð lán henta þeim sem þola sveiflur n Verðtryggð lán fyrir aðra
Landsbanki
Óverðtryggð íbúðalán
með breytilegum vöxtum:
Lánshlutfall Vextir
Allt að 70% 5,90%
70 til 85% 6,90%
Óverðtryggð íbúðalán
með föstum vöxtum:
Lánshlutfall Binding vaxta
36 mán 60 mán
Allt að 70% 6,40% 6,60%
70 til 85% 7,40% 7,60%
Íslandsbanki
Óverðtryggð íbúðalán
með breytilegum vöxtum:
Lánshlutfall Vextir
Allt að 70% 5,40%
70 til 80%
5,90% breytilegir óverðtryggðir vextir
7,10% óverðtryggðir fastir vextir fyrstu
3 árin
6,5% verðtryggðir vextir með vaxta-
endurskoðun eftir 5 ár.
Óverðtryggð íbúðalán
með föstum vöxtum:
Lánshlutfall Vextir
Allt að 70 % 6,20%
Að þremur árum liðnum ber að greiða
breytilega vexti húsnæðislána sam-
kvæmt vaxtatöflu á hverjum tíma.
Arion banki
Óverðtryggð íbúðalán
með föstum vöxtum:
Lánshlutfall Binding vaxta í 5 ár
Allt að 60% 6,45%
70 til 80% 7,55%
Blönduð lán:
Leið 1
75% óverðtryggt á 6,45% vöxtum
25% verðtryggt á 5,40 % vöxtum
Leið 2
50% óverðtryggt á 6,45 % vöxtum
50% verðtryggt á 4,85 % vöxtum
Leið 3
25% óverðtryggt á 6,45% vöxtum
75% verðtryggt á 4,67% vöxtum
Verðtryggð og óverðtryggð lán
Dæmi um verðtryggt og óverðtryggt lán hjá Landsbankanum. Hér er stuðst við
reiknivél á heimasíðu bankans en svipaðar reiknivélar má finna á heimasíðum Íslands-
banka og Arion banka. Það skal tekið fram að útreikningur þessi miðast við hvernig
staðan er í dag og vert er að hafa í huga að allt er breytingum háð. Eins er fjárhagsstaða
lántaka ekki tekin hér inn, hvorki laun né skuldir og því er þetta ætlað sem viðmið til að
sýna hvernig lánin þróast en ekki sem raunverulegt dæmi um lán.
Lánsfjárhæð: 17.000.000 kr.
Markaðsvirði eignar: 25.000.000 kr.
Lánstími: 40 ár
Óverðtryggt með 6,60% föstum vöxtum í 60 mánuði
Gjalddagi Eftirstöðvar Afborgun Vextir Kostnaður Alls
14.3.2012 17.000.000 kr. 7.241 kr. 93.500 kr. 120 kr. 100.861 kr.
14.4.2012 16.992.759 kr. 7.281 kr. 93.460 kr. 120 kr. 100.861 kr.
14.5.2012 16.985.478 kr. 7.321 kr. 93.420 kr. 120 kr. 100.861 kr.
14.12.2051 298.930 kr. 99.097 kr. 1.644 kr. 120 kr. 100.861 kr.
14.1.2052 199.833 kr. 99.643 kr. 1.099 kr. 120 kr. 100.862 kr.
14.2.2052 100.190 kr. 100.190 kr. 511 kr. 120 kr. 100.861 kr.
Óverðtryggt með 6,40% föstum vöxtum í 36 mánuði
14.3.2012 17.000.000 kr. 7.652 kr. 90.667 kr. 120 kr. 98.439 kr.
14.4.2012 16.992.348 kr. 7.693 kr. 90.626 kr. 120 kr. 98.439 kr.
14.5.2012 16.984.655 kr. 7.734 kr. 90.585 kr. 120 kr. 98.439 kr.
14.12.2051 291.840 kr. 96.763 kr. 1.556 kr. 120 kr. 98.439 kr.
14.1.2052 195.077 kr. 97.279 kr. 1.040 kr. 120 kr. 98.439 kr.
14.2.2052 97.798 kr. 97.798 kr. 522 kr. 120 kr. 98.440 kr.
Óverðtryggt með 5,90% breytilegum vöxtum
14.3.2012 17.000.000 kr. 8.771 kr. 83.583 kr. 120 kr. 92.477 kr.
14.4.2012 16.991.229 kr. 8.814 kr. 83.540 kr. 120 kr. 92.474 kr.
14.5.2012 16.982.415 kr. 8.857 kr. 83.497 kr. 120 kr. 92.474 kr.
14.12.2051 274.361 kr. 91.005 kr. 1.349 kr. 120 kr. 92.474 kr.
14.1.2052 183.356 kr. 91.453 kr. 902 kr. 120 kr. 92.475 kr.
14.2.2052 91.903 kr. 91.903 kr. 452 kr. 120 kr. 92.475 kr.
Verðtryggt með 3,75% breytilegum vöxtum
14.3.2012 17.035.017 kr. 15.336 kr. 53.234 kr. 120 kr. 68.690 kr.
14.4.2012 17.054.739 kr. 15.416 kr. 53.296 kr. 120 kr. 68.832 kr.
14.5.2012 17.074.421 kr. 15.495 kr. 53.358 kr. 120 kr. 68.973 kr.
14.12.2051 545.535 kr. 181.278 kr. 1.705 kr. 120 kr. 183.103 kr.
14.1.2052 365.007 kr. 182.218 kr. 1.141 kr. 120 kr. 183.479 kr.
14.2.2052 183.166 kr. 183.166 kr. 572 kr. 120 kr. 183.858 kr.
„Verðtryggð íbúða
lán eru með breyti
legum vöxtum til lengri
tíma og henta þeim sem
kjósa lægri greiðslubyrði
og hægari eignamyndun í
flestum tilfellum.
Fasteignalán Lántökum
bjóðast nú fleir kostir en áður
þegar kemur að lántöku. MynD DV