Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2012, Blaðsíða 4
4 Fréttir 15. febrúar 2012 Miðvikudagur
lau. 18. feb. kl. 19:30
sun. 19. feb. kl. 19:30
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
20
4
4
5
Næstu sýningar:
Sýningum lýkur fyrir páska
HEIMSLJÓS
eftir Halldór Laxness
í leikgerð Kjartans Ragnarssonar
Hilmir Snær Guðnason og Björn Thors
Sími í m
iðasölu
551 120
0
Leiðrétting
Í frétt í DV á föstudaginn kom
fram að Björgólfur Thor Björg-
ólfsson hefði verið einn af
eigendum eignarhaldsfélags-
ins Hansa og þar með óbeinn
eigandi eignarhaldsfélagsins
AB 89 sem skilur eftir sig 600
milljóna skuldir. Staðhæfing-
in byggði á því að Björgólfur
Thor ætti hlut í stærsta hlut-
hafa Hansa, aflandsfélaginu
Bell Global Investments, ásamt
föður sínum, Björgólfi Guð-
mundssyni. Þetta er hins vegar
rangt og leiðréttist hér með.
Björgólfur Thor átti ekki hlut í
aflandsfélaginu Bell Global og
var þar af leiðandi ekki hluthafi
í Hansa, móðurfélagi AB 89.
E
ignarhaldsfélagið Milestone
og tengdir aðilar lýstu yfir
mikilli trú á Glitni um miðj-
an febrúar 2008 þegar árs-
uppgjör félagsins fyrir 2007
var kynnt. Milestone hafði þá nýlok-
ið við endurfjármögnun hlutabréfa
eignarhaldsfélagsins Þáttar Inter-
national í Glitni í gegnum eignar-
haldsfélagið Vafning. Þetta kemur
fram í undirritaðri yfirlýsingu frá
Milestone til Glitnis sem DV hefur
undir höndum. Þáttur International
átti sjö prósenta hlut í Glitni og var
félagið í eigu Milestone og bræðr-
anna Einars og Benedikts Sveins-
sona.
Yfirlýsingin var undirrituð vegna
endurfjármögnunarinnar á hluta-
bréfum Þáttar International í Glitni
í Vafningsfléttunni svokölluðu sem
DV hefur fjallað ítarlega um síðast-
liðin ár, meðal annars um aðkomu
Bjarna Benediktssonar að þessum
viðskiptum. Orðrétt segir í yfirlýsing-
unni: „Yfirlýsing Milestone ehf. og
tengdra aðila vegna endurfjármögn-
unar á lánum félagsins hjá Morgan
Stanley. Milestone mun lýsa því yfir
í tengslum við kynningu á ársupp-
gjöri að það hyggist ekki selja Glitnis
hluti sína á árinu 2008 þar sem fyrir
liggi langtímafjármögnun bréfanna
og Milestone hafi trú á félaginu til
lengri tíma.“ Endurfjármögnunin á
hlutabréfum Þáttar International var
tilkomin vegna þess að bandaríski
fjárfestingarbankinn Morgan Stan-
ley gjaldfelldi lán félagsins hjá bank-
anum sökum þess að hlutabréfaverð
í Glitni var komið niður fyrir tiltekið
lágmark, 20,175.
Seldu hlutabréf sín
Í sama mánuði og þetta gerðist seldu
að minnsta kosti tveir af beinum og
óbeinum hluthöfum Þáttar Inter-
national hlutabréf í Glitni sem þeir áttu
persónulega. Þetta voru þeir Bjarni
Benediktsson og faðir hans Benedikt
Sveinsson. Þetta kemur fram á hlut-
hafalista Glitnis árið 2008 sem DV hef-
ur undir höndum. Bjarni ræddi þessi
hlutabréfaviðskipti sín í viðtali við DV
í fyrra og sagði þá að hlutabréfin hefðu
verið seld í nokkrum skömmtum í
febrúarmánuði.
Samtals seldu þeir nærri 57,5 millj-
ónir hluta í Glitni á þessum tíma en
söluverðmæti bréfanna hefur sam-
tals verið um 560 milljónir króna.
Bjarni seldi rúmlega 7 milljónir hluta
í bankanum fyrir rúmlega 120 milljón-
ir króna á meðan Benedikt seldi bæði
tæplega 35 milljónir hluta sem voru
skráðir á hann persónulega og eins
rúmlega 15 milljónir hluta sem eignar-
haldsfélag hans Hafsilfur átti.
Eftir þessi viðskipti keyptu feðg-
arnir ekki aftur bréf í Glitni fram að
bankahruninu 2008 ef marka má hlut-
hafalistann. Á sama tíma og Mile-
stone, meðeigandi Einars og Bene-
dikts Sveinssona að hlutabréfunum í
Glitni, skrifaði upp á heilbrigði Glitnis
seldu þeir Benedikt og Bjarni þau bréf
sem þeir áttu í bankanum. Félag þeim
tengt hélt samt eftir 7 prósenta hlut í
bankanum sem Milestone lýsti yfir trú
á. Í viðtalinu við DV í fyrra sagði Bjarni
að hann hefði ekki séð fall Glitnis fyr-
ir á þessum tíma þó svo að hann hefði
selt bréfin sín í bankanum en að þegar
litið væri til baka væri líklega ljóst að
ekki hefði verið hægt að bjarga Glitni
frá falli í febrúar 2008. „Því miður hélt
ástandið áfram að versna og síðar kom
í ljós að líklega var þá þegar orðið of
seint að grípa til ráðstafana sem hefðu
getað komið í veg fyrir fall bankanna,“
sagði Bjarni
Blekkingunni haldið að
markaðnum
Þegar ársreikningur Milestone árið
2007 var kynntur þann 15. febrúar
kom fram í auglýsingu frá félaginu
að dregið hefði verulega úr áhættu í
rekstri Milestone – sem var af og frá í
reynd – og að félagið hefði mikla trú
á fjárfestingu sinni í Glitni. Nokkr-
um dögum áður hafði hlutabréfum
Þáttar International hins vegar ver-
ið bjargað með naumindum frá veð-
kalli bandaríska fjárfestingarbank-
ans Morgan Stanley vegna lækkandi
hlutabréfaverðs í bankanum.
Orðrétt sagði í tilkynningu Mile-
stone, sem var kynnt opinberlega
um miðjan febrúar 2008: „Á árinu
dró verulega úr áhættu í rekstri Mile-
stone og félagið er vel í stakk búið
til að mæta mögulegum óróa á fjár-
málamarkaði. Þrátt fyrir krefjandi að-
stæður á hlutabréfamarkaði þá hefur
Milestone mikla trú á fjárfestingum
félagsins í skráðu félögunum Glitni
og Carnegie og til marks um það hef-
ur Milestone ekki í hyggju að minnka
við hlut sinn í félögunum á árinu.“ Í
yfirlýsingu Milestone til Glitnis kom
reyndar fram að félagið myndi ekki
selja hluti sína í Glitni í kjölfar end-
urfjármögnunar Morgan Stanley, að
minnsta kosti út árið 2008. Miðað við
þessa yfirlýsingu var félagið Þáttur
International búið að skuldbinda sig
til að selja ekki bréfin enda var nokk-
uð ljóst að enginn hefði haft áhuga á
að kaupa þau á þessum tíma.
Þeirri blekkingu að staða Glitn-
is væri góð var því haldið að mark-
aðnum og almenningi á Íslandi á
opinberum vettvangi eftir að lok-
ið hafði verið við Vafningsfléttuna
með naumindum nokkrum dögum
áður.
Lýstu yfir
Seldu bréfin Benedikt Sveinsson og Bjarni Benediktsson seldu bréf sín í Glitni í febrúar
2008. Meðhluthafar þeirra í Þætti International gáfu það út opinberlega að þeir tryðu á Glitni.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Hagstofan fær 100 milljónir:
ESB greiðir
fyrir talningu
„Taka manntalsins og húsnæðis-
talsins er ekki liður í umsókn Ís-
lands að Evrópusambandinu
heldur eitt af meginverkefnum
Hagstofunnar og skyldum hennar
samkvæmt EES-samningum,“ seg-
ir í svari Steingríms J. Sigfússonar,
efnahags- og viðskiptaráðherra,
við fyrirspurn Vigdísar Hauks-
dóttur um mann- og húsnæðistal
Hagstofu Íslands sem miðast við
árslok 2011.
Í svari Steingríms kom fram að
kostnaðurinn vegna úttektarinnar
nemi 180 miljónum króna en að
Evrópusambandið (ESB) greiði
102 milljónir með svokölluðum
IPA-styrk sem veittur er ríkjum í
umsóknarferli að ESB. Það sem
upp á vantar er greitt með fram-
lagi Hagstofunnar af ónýttum af-
gangsheimildum frá fyrri árum og
beinu framlagi úr ríkissjóði.
Steingrímur segir að árið 2008
hafi ESB sett reglur sem skuld-
binda aðildarríkin til að taka
manntal og húsnæðistal á tíu ára
fresti, frá og með 2011. Ísland falli
undir þessa samþykkt vegna EES.
Gagnrýnir umfjöllun
n Bjarni Benediktsson segir dómgreind sína ekki hafa brugðist
N
ei, á engum tímapunkti stóð
ég frammi fyrir siðferðislegri
spurningu þar sem dómgreind
mín brást,“ sagði Bjarni Bene-
diktsson, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, í Kastljósi á þriðjudagskvöld þar
sem hann var spurður út í aðkomu
sína að Vafningsmálinu svokallaða.
Hann sagði umfjöllun um mál-
ið vera til þess fallna að koma höggi á
hann sem formann Sjálfstæðisflokks-
ins og flokkinn sjálfan. Hann sagði
ekkert nýtt vera komið upp í þessu
máli sem gæfi ástæðu til að fjalla um
það á ný.
Bjarni sagðist heldur ekki telja að
hann hefði verið blekktur þegar hann
sagðist ekki hafa vitað að lánið sem
Glitnir veitti Vafningi hefði í raun
runnið til Milestone ehf. „Mér er ekki
kunnugt um að Milestone hafi verið
veitt þetta lán,“ sagði Bjarni í Kastljós-
inu.
Þegar hann var spurður út í hluta-
bréfasölu sína í Glitni á svipuðum tíma
upp á 126 milljónir króna sagðist hann
hafa selt sinn hlut í bankanum frá byrj-
un febrúarmánaðar 2008 og fram und-
ir lok hans. „Það var ekkert óeðlilegt
að selja bréf á þeim tíma,“ sagði Bjarni
sem tók fram að bréfin hefðu lækkað
mikið á þeim tíma og hann hefði haft
áhyggjur af því. Hann svaraði því neit-
andi þegar hann var spurður hvort
hann hefði staðið að sölu hlutabréfa
föður síns í Glitni á sama tíma.
Hann neitaði að hafa haft innherja-
upplýsingar frá fundi í Seðlabankan-
um 7. febrúar árið 2008 þegar Davíð
Oddsson, þáverandi seðlabankastjóri,
greindi Geir H. Haarde, þáverandi for-
sætisráðherra, og Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur, þáverandi utanríkisráð-
herra, frá slæmri stöðu Glitnis.
n Milestone sagðist trúa á Glitni n Hluthafar í Vafningi seldu Glitnisbréfin sín
Blekkingu viðhaldið Þeirri blekk-
ingu að staða Glitnis væri góð var við-
haldið eftir Vafningsviðskiptin þegar
Milestone gaf það út í febrúar 2008 að
félagið hefði trú á fjárfestingu Þáttar
International í bankanum. Nokkrum
dögum áður hafði bréfum félagsins
verið bjargað með naumindum frá
veðkalli fyrir tilstuðlan Glitnis.
mikiLLi trú
á GLitni
Ekkert óeðlilegt Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins, segir dóm-
greind sína ekki hafa brugðist í aðkomu sinni
að Vafningsmálinu.