Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2012, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2012, Blaðsíða 6
6 Fréttir 15. febrúar 2012 Miðvikudagur Uppgjör vegna misnotkunarmáls n Karlmaður á áttræðisaldri varð fyrir hrottalegri árás á Þórshöfn M aður á áttræðisaldri sem varð fyrir hrottalegri árás á heimili sínu á Þórshöfn, að- faranótt sunnudags, liggur undir þeim grun að hafa misnotað nokkrar konur sem bjuggu í bænum þegar þær voru börn og unglingar, samkvæmt heimildum DV. Árásar- maðurinn er á þrítugsaldri og mun vera tengdur tveimur kvennanna fjölskylduböndum, samkvæmt heimildum. Hin meintu brot eiga að hafa ver- ið framin fyrir einhverjum áratugum en málið komst ekki upp fyrr en ein kvennanna steig fram fyrir nokkrum árum. Þá voru málin öll löngu fyrnd og samkvæmt heimildum var mað- urinn aldrei kærður. Hann hefur ekki verið áberandi í bænum síðan málið komst upp og foreldrar hafa brýnt fyrir börnum sínum að að koma ekki nálægt heim- ili hans. Heimildirnar herma að árásar- maðurinn hafi vitað af málinu í lang- an tíma, en hann hefur ekki verið bú- settur á Þórshöfn síðustu árin. Þorrablót var haldið á Þórshöfn á laugardagskvöldið og mun frændfólk mannsins hafa komið saman í bæn- um í tilefni þess. Má leiða að því lík- ur að umrætt misnotkunarmál hafi komið til tals og það ýft upp reiði árás- armannsins í garð fórnarlambsins. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Húsavík braust maðurinn inn á heimili mannsins og misþyrmdi honum, meðal annars með hníf. Árásarmaðurinn var ölvaður og enn á vettvangi þegar lögreglu bar að garði. Fórnarlambið var mjög lemstrað eftir árásina, mikið skorið og með höfuð- áverka. Hann liggur nú á gjörgæslu- deild sjúkrahússins á Akureyri en er þó ekki í lífshættu. Lögregla tók fram að ástæða árás- arinnar hafi verið einhvers konar uppgjör vegna persónulegra mála og rennir það styrkum stoðum undir heimildir DV um málið. Að sögn lögreglu telst málið upp- lýst og er ársármaðurinn laus úr haldi. solrun@dv.is Á rmann Kr. Ólafsson, nýr bæjarstjóri í Kópavogi, var einn þeirra þingmanna sem nefndir voru í rannsóknar- skýrslu Alþingis á banka- hruninu yfir skuldsettustu þing- mennina. Skuldir Ármanns námu mest 248 milljónum króna haustið 2007. Ármann var sjöundi skuldsettasti þingmaðurinn hjá íslensku bönk- unum en hann var einn fárra þing- manna sem voru í hópi þeirra sem höfðu heildarlánastöðu sína yfir 100 milljónum króna einhvern tímann frá ársbyrjun 2005 og fram að falli bankanna í október 2008. Ármann Kr. sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokk- inn í Suðvesturkjördæmi fyrir hrun. Fékk ekki afskrifað Í yfirlýsingu sem Ármann Kr. sendi frá sér í kjölfar útgáfu skýrslunnar sagði hann að allar skuldirnar hefðu verið á hans eigin nafni og að ekk- ert hefði verið afskrifað hjá hon- um. „Engin lán til mín hafa verið af- skrifuð, verða afskrifuð, né hafa lán til mín nokkurn tíma lent í vanskil- um,“ sagði Ármann í yfirlýsingunni og jafnframt að krafan hefði staðið í rúmlega 33 milljónum króna þegar bankarnir féllu haustið 2008. Ármann segir í samtali við DV að þetta hafi gangið eftir, að nú séu skuldamálin að fullu uppgerð. „Það hefur allt saman verið upp- gert og ekkert afskrifað,“ segir Ár- mann Kr. aðspurður um hvernig málið stæði í dag. Hann segir skuld- ina sem hafi verið tilgreind í rann- sóknarskýrslunni hafi staðið aðeins í nokkra daga. „Ég skuldaði þetta bara í nokkra daga,“ segir Ármann og bendir á að í skýrslunni hafi ver- ið skoðað tímabilið frá 2005 til falls bankanna 2008 og aðeins hæsti punkturinn í skuldasögu hvers þing- manns tilgreindur. Skuldaði vegna fjárfestinga Skuldsetningin var tilkomin vegna fjárfestinga sem Ármann lagði út í fyr- ir árið 2007, þegar hann tók sæti á Al- þingi. Samkvæmt yfirlýsingunni dró hann verulega úr umsvifum sínum í viðskiptalífinu strax og hann settist á þing. Í yfirlýsingunni sagðist Ármann hafa lagt fram veð fyrir lánunum sem hann tók. Þetta ítrekaði hann í samtali við blaðamann og sagðist ekki hafa lent röngu megin við núllið. Ármann segir að eftir að hann féll af þingi hafi hann aftur farið út í fyrir- tækjarekstur. Hann segist þó vera að draga sig út úr þeim rekstri núna þar sem hann sé að taka við nýju og viða- miklu starfi. „Ég er að losa mig út úr því núna,“ segir Ármann sem tók við bæjarstjórastólnum af Guðrúnu Páls- dóttur. Ármann mun hafa í nógu að snúast á næstunni í embættinu en mikil ólga hefur verið í bæjarstjór- ninni og stjórnsýslu bæjarins sam- kvæmt heimildum DV, eða frá því að fyrra meirihlutasamstarf flokka á vinstri væng stjórnmálanna í bæn- um sprakk með látum fyrir þremur vikum. „EkkErt afskrifað“ n Ármann Kr. fékk gífurlega há lán hjá íslensku bönkunum fyrir hrun Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Segir stöðuna sterka Ármann segist ekki hafa fengið afskriftir vegna hundruð milljóna króna lána sinna hjá íslensku bönkunum. Mynd Sigtryggur Ari JóhAnnSSon „Ég skuldaði þetta bara í nokkra daga uppgjör Árásarmaðurinn er tengdur konum fjölskylduböndum sem fórnarlambið á að hafa misnotað sem börn, samkvæmt heimildum DV. Leki hjá 71 konu: Létu vita um háa lekatíðni Lyfjastofnun hefur sent fram- kvæmdastjórn Evrópusambands- ins upplýsingar um háa lekatíðni PIP-brjóstapúða hér á landi. Búið er að ómskoða 105 konur hér á landi með slíka púða og hefur leki greinst hjá 71 konu, eða um 68 prósentum þeirra sem hafa verið skoðaðar. Eftir því sem best er vitað hefur hvergi annars staðar verið ráðist í skipulega ómskoðun kvenna með PIP-brjóstapúða. Samanburðarhæf- ar upplýsingar um lekatíðni þeirra frá öðrum þjóðum eru því ekki fyrir hendi. Þetta kemur fram í tilkynn- ingu frá velferðarráðuneytinu. Samkvæmt ákvörðun heil- brigðisyfirvalda stendur konum til boða að láta fjarlægja PIP-púðana í aðgerð á vegum Landspítala en ekki verða settar inn nýjar fyllingar í þeirra stað. Í tilkynningunni segir að staðfest hafi verið að bólgusvör- un er meiri við leka frá PIP-brjósta- púðum en öðrum brjóstapúðum og brottnám þeirra því erfiðara vegna þess. Vegna bólgunnar sem mynd- ast og áhrifa hennar á nærliggjandi svæði séu minni líkindi til þess að mögulegt sé að setja inn nýja púða um leið og PIP-púðarnir eru fjar- lægðir. Í tengslum við PIP-brjóstapúða- málið hefur framkvæmdastjóri heilbrigðis- og neytendamála hjá Evrópusambandinu sent frá sér yfir- lýsingu þar sem óskað er eftir tafar- lausum aðgerðum af hálfu aðildar- ríkjanna til að styrkja framkvæmd og eftirlit með lögum Evrópusam- bandsins varðandi lækningatæki. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að íslensk heilbrigðisyfirvöld séu í beinum samskiptum við hlut- aðeigandi yfirvöld og eftirlitsstofn- anir í Evrópu og fylgist grannt með þróun mála varðandi PIP-púðana hjá öðrum þjóðum. Stal ilmvatni og notaði stolið kort Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á þriðjudag 22 ára konu í átta mánaða fangelsi fyrir margvísleg brot. Konan var meðal annars ákærð, ásamt öðr- um, fyrir að hafa í átta skipti greitt fyrir vörur og eldsneyti að verðmæti rúmlega 120 þúsund krónur í versl- unum N1 með stolnu viðskiptakorti. Þá var konan ákærð fyrir að hafa stolið ilmvatni úr verslun Lyfju. Konan var einnig ákærð fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot. Hún var gómuð með lítilræði af mari- júana í fórum sínum þann 26. maí í fyrra og með tæpt gramm af tóbaks- blönduðu kannabisefni í september. Konan var einnig stöðvuð þann 30. september í fyrra fyrir að aka svipt ökuréttindum og undir áhrifum fíkniefna. Konan játaði öll brot sín skýlaust en hún hefur tvisvar áður gengist undir sátt vegna brota gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Þá var hún dæmd í fjögurra mánaða skilorðs- bundið fangelsi árið 2008, fimm mánaða fangelsi árið 2010 og fimm mánaða fangelsi í júní 2011 fyrir margvísleg brot. Með brotum sínum rauf hún skilorð og þótti ekki vera tilefni til að skilorðsbinda fangelsis- dóminn. Auk þess að sæta fangelsi í átta mánuði var hún svipt ökurétt- indum í tvö ár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.