Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2012, Side 3
Fréttir 3Miðvikudagur 15. febrúar 2012
J
ósefína Þorbjörnsdóttir, íbúi
á Reykjanesi sem bjó með 24
hundum og 4 köttum í 60 fer-
metra kjallararaíbúð, hefur
verið ákærð fyrir hegningar-
lagabrot og brot gegn samþykkt um
hundahald. Málið var tekið fyrir í
Héraðsdómi Reykjaness á þriðjudag.
Illa bitin
Í ákæru kemur fram að Jósefína hafi
með stórskostlegu gáleysi orðið þess
valdandi að 17 hundar sem hún var
að viðra og hafði ekki í taumi gerðu
aðsúg að Guðrúnu Sigríði Guð-
mundsdóttur á útivistarsvæði við
Rockville í Sandgerði í lok maí á síð-
asta ári. Hundarnir flöðruðu upp um
Guðrúnu, kröfsuðu í hana og bitu
með þeim afleiðingum að hún hlaut
sex bitsár aftan á hægra læri, hið
stærsta um 2 sentímetrar að lengd
og fjöldamörg fleiður. Á vinstra læri
hlaut hún tvö stór fleiður auk nokk-
urra minni, en henni var gefin stíf-
krampasprauta vegna mögulegrar
sýkingarhættu.
Urruðu og geltu
„Ég er alltaf á varðbergi og hrekk í
kút í hvert einasta sinn sem ég heyri
hund gelta,“ segir Guðrún Sigríður,
nú tæpu ári eftir árás hundanna.
Hún upplifir sig óörugga og hræðist
að ganga ein á stöðum þar sem hún
áður fór gjarnan í göngutúr.
Guðrún var einmitt í heilsubót-
argöngu á Rockville-svæðinu þeg-
ar hún sá Jósefínu á gangi með
hundana. „Ég var búin að sjá hana
með alla strolluna og beið góða
stund þangað til hún var komin
lengra inn heiðina til þess að lenda
ekki í þeim. En þá tók einn hundur-
inn á rás í áttina að mér og öll stroll-
an á eftir.“ Guðrún stóð kyrr á með-
an hún horfði á hundana nálgast,
því hún vissi að það myndi bara espa
hundana frekar upp ef hún reyndi að
forða sér. „Eigandi hundanna kom
hlaupandi á eftir þeim en það ræður
enginn við 17 hunda sem eru komn-
ir í ham. Ég er alvön hundum og hélt
í fyrstu að þeir væru bara að flaðra
upp um mig og var því ekkert mjög
hrædd. En svo fann ég að þeir voru
farnir að bíta í mig. Þeir voru farnir
að urra og gelta og slást í kringum
mig. Konan sem átti þá var enn það
langt í burtu að þeir heyrðu ekki í
henni eða að minnsta kosti hlýddu
henni ekki.“
Fékk að fara heim með hundana
Guðrún segir Jósefínu hafa að lokum
náð haldi á hundi sem virtist vera for-
ystuhundurinn og farið með hann í
burtu og fylgdu þá hinir hundarnir á
eftir. Hún hafi þá ætlað að forða sér í
bílinn sinn sem hún hafði lagt stutt frá
og var rétt ókomin þegar hundarnir
skyndilega hlupu aftur af stað og hóp-
uðust í kringum hana. Jósefína náði
þó taki á nokkrum hundanna og Guð-
rún komst inn í bílinn. „Ég hringdi þá
í lögregluna sem kom stuttu seinna og
þá var Jósefína að tína þessa 17 hunda
sína inn í Subaru Station-bifreið. Ég
sagði lögreglunni að hundarnir hefðu
bitið mig en Jósefína vildi meina að
þeir hefðu bara klórað í mig. Ég bretti
upp buxurnar og þá sáust húðflyks-
urnar og sárin eftir bitin.“ Lögregl-
an tók skýrslu af báðum konunum
en leyfði Jósefínu að fara með alla
hundana heim.
Heiðin hennar griðarstaður
Guðrún fór á heilsugæsluna til að
láta gera að sárum sínum, en dýpsta
sárið var um fögurra sentímetra
djúpt. Hún fékk einnig stífkrampa-
sprautu en þegar hún óskaði eftir að
fá áverkavottorð sagði læknirinn að
það borgaði sig ekki því það væri svo
dýrt. Þegar heim var komið tóku syst-
ir hennar og dóttir myndir af áverk-
unum og fór Guðrún með myndirnar
á lögreglustöðina og lagði fram kæru.
„Ég heyrði síðan ekki neitt þar til ég
fékk bréf frá lögreglunni þar sem
stóð að þeir myndu falla frá kærunni
en mér væri frjálst að fara í einka-
mál.“ Það kom því flatt upp á Guð-
rúnu þegar blaðamaður tjáði henni
að málið væri komið fyrir dóm.
Guðrún hefur ekki farið aftur á
útvistarsvæðið við Rockville eftir
árásina og veit ekki hvort hún muni
treysta sér til þess á komandi vori.
„Ég veit ekki hvernig þetta verður í
vor þegar ég fer upp í heiðina mína
aftur. Ég hef farið þarna á hverju ári
að tína egg og þetta hefur svona ver-
ið minn griðastaður, en það kemur í
ljós hvort ég muni treysta mér til þess
að fara þangað aftur.“
Vill ekki tjá sig
Þegar eftir því var leitað vildi Jósefína
Þorbjörnsdóttir ekki tjá sig um mál-
ið, en hún hefur verið afar ósátt við
meðferð þess og framvindu. Mátti
skilja á henni að henni fyndist ómak-
lega að sér vegið. Nágrannar Jósefínu
telja að aðeins tveir hundar séu nú í
vörslu hennar og segja ekkert ónæði
hafa verið af þeim. Hinum hundun-
um var lógað.
„En svo fann ég að
þeir voru farnir að
bíta í mig. Þeir voru farnir
að urra og gelta og slást í
kringum mig.
Hrekkur í kút
við hundsgelt
n Var bitin af hundum n Hundaeigandi fyrir dómi
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Ákærð Jósefína Þorbjörnsdóttir í Héraðsdómi Reykjaness á þriðjudag.
Áverkarnir Guðrún Sigríður, sem varð
fyrir árás hunda Jósefínu, hlaut áberandi
áverka.
Vilja milljarða
frá bönkunum
n Fyrrverandi lykilstarfsmenn bankanna hafa samtals gert þriggja milljarða kröfur í þrotabú þeirra
Enn að ná sér Guðrún Sigríður Guðmundsdóttir hefur enn ekki náð sér að fullu eftir 17
hundar réðust á hana.
anborið við Kaupþing.
Lykilstarfsmenn Kaupþings
banka vildu fá samtals 423 milljóna
króna greiðslur vegna vangoldinna
launa og annarra réttinda. Flestar
kröfurnar eru á bilinu 12 til 29 millj-
ónir króna og eru aðeins tvær kröfur,
frá Sigurði og Ingólfi Helgasyni, fyrr-
verandi forstjóra Kaupþings á Ís-
landi, hærri.
Verðmætir kaupréttar
samningar
Stór hluti krafnanna er vegna
kaupréttarsamninga sem bank-
arnir gerðu við marga starfsmenn
sína. Fyrir hrun tíðkaðist að banka-
menn fengju kaupréttasamninga
sem hluta af starfskjörum sínum
eða bónusgreiðslum. Samning-
arnir voru margir hverjir gífurlega
verðmætir og útskýrir það að ein-
hverju leyti hversu háar sumar kröf-
urnar eru. Voru gildandi ákvæði í
ráðningar samningum um að við
starfslok myndi skapast réttur til að
fá ígildi samninganna gerða upp
með peningagreiðslu.
Það tíðkaðist líka að lykilstarfs-
menn í bönkunum fengju sérlega
háar launagreiðslur. Samkvæmt
tekjulistum sem DV hefur meðal
annars tekið saman úr álagningar-
skrám ríkisskattstjóra voru banka-
menn í hópi þeirra launahæstu á
árunum fram að hruni. Samningar
við bankamenn voru oft og tíðum úr
öllu samhengi við kjör annars fólks
í landinu og eru gríðarlegar háar
kröfur sumra þeirra um laun, bón-
usa, kaupréttarsamninga og fleira til
marks um það.
Eggert Þór Kristófersson
fyrrverandi framkvæmda
stjóri eignastýringar
n Gerði 113 milljóna króna
kröfu í þrotabú Glitnis.
Vilhelm Már Þorsteinsson
fyrrverandi framkvæmda
stjóri fjárstýringar og
viðskiptaþróunar
n Hefur gert ríflega 32
milljóna kröfu í þrotabú
Glitnis
Rósant Már Torfason
fyrrverandi
fjármálastjóri
n Hefur gert tæplega 37
milljóna krónu í þrotabú
Glitnis.
Einar Örn Ólafsson
fyrrverandi fram
kvæmdastjóri fjár
festingabankasviðs
n Hefur gert rúmlega 32 milljóna kröfu í
þrotabú Glitnis.
Magnús Arngrímsson
fyrrverandi fram
kvæmdastjóri fyrir
tækjasviðs
n Gerði 4,7 milljóna
króna kröfu í þrotabú
Glitnis.
Magnús Bjarnason
fyrrverandi fram
kvæmdastjóri
Alþjóðasviðs Glitnis
n Gerði 130 milljóna
króna kröfu í þrotabú
Glitnis.
Jóhannes Baldursson
fyrrverandi fram
kvæmdastjóri
markaðsviðskipta
Glitnis
n Gerði 113 milljóna
króna launakröfu í
þrotabú Glitnis.
Ingi Rafnar Júlíusson
n Gerði 85 milljóna launakröfu í þrotabú
Glitnis.