Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2012, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2012, Side 9
Fréttir 9Miðvikudagur 15. febrúar 2012 Saka lýtalækni um afglöp n Astrid brenndist á andliti og höndum árið 2005 n Foreldar hennar telja að hún hafi fengið ranga meðferð Stöðva sölu á tóbakslíki V ið byrjuðum að selja þetta fyrir rúmri viku og þetta var komið inn á einhverja sölu- staði. Við erum búnir að láta þá aðila vita og erum búnir að stöðva sölu á þessu tímabundið,“ segir Árni Ingvarsson, framkvæmda- stjóri hjá innflutningsfyrirtækinu Ís- lensk Ameríska. Fyrirtækið hóf fyrir skemmstu innflutning á Onico, sem svipar til munntóbaks en inniheldur ekkert tóbak eða nikótín. Þrátt fyrir það er varan flokkuð sem tóbakslíki hjá Tollinum og ber hún tóbaksgjald sem er 13,08 krónur á hvert gramm. Vegna þessa þarf varan að fara í gegn- um Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins sem annast sölu og dreifingu á tóbaki og vörum sem flokkaðar eru sem tób- akslíki líkt og Onico. Bera einkenni tóbaks DV fjallaði um aðra sambærilega vöru á dögunum, Kickup, sem Guð- mundur Már Ketilsson og Heiðar Hallgrímsson hugðust flytja inn frá Svíþjóð. Varan var hins vegar stöðv- uð í Tollinum fyrir skemmstu og fengu Guðmundur og Heiðar þau skilaboð að greiða þyrfti tóbaksgjald af vörunni þrátt fyrir að hún inni- héldi ekkert tóbak eða nikótín. Báðar eiga vörurnar það sameig- inlegt að vera hugsaðar fyrir munn- tóbaksfíkla sem vilja draga úr eða hætta tóbaksneyslu. Innihald Kickup er að mestu byggt upp á vítamínum og steinefnum en Onico inniheldur að mestu hafra og kakó. Ástæðan fyr- ir því að vörurnar fara í umræddan tollaflokk er sú að þær bera öll ein- kenni tóbaks þrátt fyrir að innhald þeirra sé annað. Í samtali við DV síðasta föstudag sagði Guðmundur að líklega myndi aldrei borga sig að flytja inn Kickup miðað við núgildandi tollalög. Gjaldið sem myndi leggjast ofan á hverja dós yrði 314 krónur miðað við að hver dós er 24 grömm og 13,08 krónur leggjast á hvert gramm. „Dollan myndi kosta vel yfir þúsund krónur en samt erum við að reyna að flytja vöruna inn með það að leiðarljósi að hjálpa fólki að hætta að taka í vörina,“ sagði Guðmundur í helgarblaði DV. Hærri skattur en á tóbak Þó svo að Íslensk Ameríska hafi stöðvað sölu á Onico eftir að Tollur- inn setti sig í samband við fyrirtækið segir Árni að verið sé að vinna í því þessa dagana að ÁTVR taki vöruna í sölu og dreifingu. „Að sama skapi ætlum við í framhaldinu að skoða réttarstöðu okkar með þessa vöru,“ segir Árni en þeir Guðmundur og Heiðar sögðust einmitt í helgarblaði DV vera að skoða réttarstöðu sína. Árni segir að álagning tóbaks- gjalds, líkt og lagt er á Onico, skjóti svolítið skökku við. Bendir hann á að skattlagning á tóbakslausa vöruna sé jafnvel hærri en á tóbak. „Ef mað- ur skoðar til dæmis skattlagningu á neftóbak þá er hún, ef ég man rétt, á milli sjö og átta krónur á gramm. En þessi vara ber yfir þrettán króna gjald á hvert gramm. Maður á svolítið erfitt með að átta sig á samhenginu. Þetta er tóbaks- og nikótínlaus valkostur sem okkur finnst að ætti ekki að bera þessi háu gjöld.“ n Hugsað fyrir þá sem vilja draga úr tóbaksnotkun „Að sama skapi ætlum við í framhaldinu að skoða rétt- arstöðu okkar með þessa vöru Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Tóbaksgjald Kickup er af svipuðum toga og Onico. Uppistaðan í Kickup er vítamín og steinefni en í Onico er það kakó og trefjar. Ekki tóbak Þó að Onico líti út eins og munn- tóbak inniheldur það ekkert tóbak. Varan er hugsuð fyrir þá sem vilja draga úr eða hætta neyslu á munn- tóbaki. gegnum frá því hún var lítil. Hún er búin að ganga í gegnum svo marg- ar aðgerðir og svo verður hún floga- veik og hún hefur slasast áður. Svo þegar þetta kemur fyrir er maður svo vængbrotinn og við látum hana til fólks sem ætlar að bera ábyrgð á henni og lækningin má aldrei vera verri en sjúkdómurinn. Þetta verð- ur til að hún skaddast svona hrylli- lega. Fyrir okkur sem aðstandend- ur var þetta svo erfitt. Við gátum ekkert gert,“ segir Lilja með tár á hvörmum. Það er ljóst að það fær mjög á hana að rifja upp þennan erfiða tíma. En hún heldur áfram. „Við erum búin að hugsa mikið um þetta. Þurfti þetta að koma fyr- ir? Gátum við gert eitthvað? Hvað áttum við að gera? Við hugsuðum um að taka hana bara í burtu en þá hefði verið hægt að kæra okkur.“ Guðfinnur lítur á konu sína og held- ur áfram á meðan hún jafnar sig. „Þetta er auðvitað búið að hafa afgerandi áhrif á allt líf okkar síðan þetta gerðist. Lilja þurfti að hætta að vinna og vera heima við í um- önnun. Skipta á sárum og fleira. Svo höfum við þurft að helga okk- ur öllu þessu. Þetta er bara búið að snúast um þetta mál alfarið og þar af leiðandi hefur þetta rosa- leg áhrif á fjölskyldulífið í heild. Miklu meiri en almenningur gerir sér grein fyrir. Þetta er svo slítandi, andvökunætur, það er svo margt.“ Lilja grípur fram í fyrir manni sín- um: „Það fylgir þessu svo ofboðs- legur kvíði. Þú sérð það, ég svaf hjá henni fyrstu tvö árin eftir þetta.“ „Við þóttum óþægileg“ Guðfinnur segir að viðmót starfs- fólksins á lýtalækningadeildinni hafi fljótlega orðið mjög leiðinlegt í þeirra garð. Sérstaklega eftir að þau fóru að spyrja erfiðra spurninga og krefjast breyttrar meðferðar á dótt- ur sinni. „Við þóttum óþægileg. Við fengum að heyra að við værum óþolandi og það væri ekki vinnu- friður fyrir okkur. Að við vantreyst- um öllum á deildinni.“ Þau segjast vera búin að upp- lifa svo margt neikvætt í tengslum við læknastéttina og eftir allt sem á undan er gengið eiga þau mjög erf- itt með að treysta læknum. Þrautaganga Lilju og Guðfinns til að berjast fyrir rétti dóttur sinn- ar hefur nú staðið í rúm sex ár. Þau geta þó ekki hætt fyrr en það verð- ur viðurkennt að mistök hafi átt sér stað og bíða nú á milli vonar og ótta eftir úrskurði velferðarráðuneytis- ins, hvort málið verði tekið upp og rannsakað eða ekki. Gerðu illt verra Foreldrar Astridar segja grisjur sem settar voru á andlit hennar, eftir að hún lagðist inn á lýta- lækningadeildina, hafa gert illt verra. Brann meira Astrid var höfð undir hitatjaldi í næstum þrjár vikur. Lilja og Guðfinnur vilja meina að hún hafi brunnið meira fyrir vikið. Húðin rifnaði af Grisjur voru settar yfir og undir augu Astridar en þegar þær voru fjarlægðar rifnaði húðin af og opin sár mynduðust.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.