Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2013, Qupperneq 2
2 Fréttir 21. janúar 2013 Mánudagur
„Var hrunið okkur að kenna?“
n Jón Ásgeir kveðst fórnarlamb nornaveiða
J
ón Ásgeir Jóhannesson segir
í viðtali við breska blaðið
Sunday Times að hann sé fórn-
arlamb nornaveiða. Hann seg-
ir jafnframt að það sé tilhneiging
á Íslandi til þess að kenna hon-
um um allt sem miður hafi farið. Í
grein Sunday Times er fjallað um
viðskiptaferil Jóns Ásgeirs og kem-
ur þar fram að hann hafi tapað
um það bil 200 milljörðum króna í
bankahruninu haustið 2008.
„Þetta eru nornaveiðar,“ segir
Jón Ásgeir í viðtalinu við Sunday
Times. „Ísland er lítið land. All-
ir þekkja alla. Þegar bankahrunið
varð var mjög auðvelt að benda
á mennina sem höfðu tekið stór
lán og ráðist í útrás. Það eru alltaf
tvær hliðar á peningnum en enginn
virðist hafa áhuga á að heyra okkar
hlið. Sá dagur mun koma.“
Þá segir Jón fjölmiðlaumfjöll-
un um sig hafa verið þungbæra.
Margoft hafi hann vaknað á morgn-
ana á lesið fyrirsagnir um að hann
eigi yfir höfði sér sex ára fangels-
isdóm. „Maður venst aldrei svona
fyrirsögnum, sama hve oft þær eru
birtar,“ segir Jón Ásgeir. „Enginn
maður í sögu Íslands hefur verið
eltur á sama hátt og ég. Aldrei hafa
yfirvöld varið jafnmiklum kröftum,
tíma og fjármunum til þess að eltast
við einstakling án nokkurs haldbærs
árangurs.“ […] „Var hrunið okkur að
kenna?“ spyr Jón og bætir við: „Hvað
gerðum við rangt? Við vorum mjög
metnaðarfullir en það getur ekki
talist glæpur. Við skuldsettum okkur
um of. Það var það sem við gerðum
vitlaust. Það er ekki eitthvað sem
gerðist bara á Íslandi – það gerðist á
Írlandi, það gerðist í Bretlandi, það
gerðist í Bandaríkjunum.“ n
Pólfarar fengu
kampavín
Vilborg Arna Gissurardóttir var
á laugardag sótt á suðurpólinn
og kom hún sér fyrir í Union
Glacier-tjaldbúðunum á Suður-
skautslandinu. Vilborg Arna vann
það mikla þrekvirki að komast á
suðurpólinn á fimmtudagskvöld,
fyrst Íslendinga til að afreka það
einn síns liðs. Veðrið á pólnum
var ansi slæmt þegar Vilborg var
sótt þangað á laugardag og var
hópur hennar heppinn að komast
þaðan. Sá möguleiki var til staðar
að hún yrði veðurteppt þar í ein-
hverja daga.
Flugið af pólnum tók um fimm
og hálfan tíma og var Vilborg sam-
ferða pólförum frá Suður-Afríku
sem höfðu nýlokið tíu daga leið-
angri. Þeirra beið beið hátíðar-
kvöldverður og kampavín í tjald-
búðunum. Vilborg bíður nú þess
að komast með næsta flugi til
Chile en búist er við henni til Ís-
lands eftir um viku.
Leitar réttar síns
eftir tertuslys
„Þetta var terta ársins. Svaka flott
terta en hún var augljóslega göll-
uð, því ég kveikti í henni og eftir
þrjár sekúndur sprakk hún í and-
litið á mér,“ segir Baldur Sigurðar-
son sem kveðst ósáttur með við-
brögð og það sem hann kallar
aðgerðaleysi slysavarnafélagsins
Landsbjargar í málinu. Baldur
höfuðkúpubrotnaði og missti stór-
an hluta sjónarinnar á öðru auga
í slysinu og kveðst hafa átt í vand-
ræðum með að ná í forsvarsmenn
Landsbjargar vegna málsins.
Hann kveðst hafa ráðið sér lög-
fræðing til að sjá um samskiptin
við félagið.
Jón Svanberg Hjartarson,
framkvæmdastjóri Landsbjargar,
kveðst hins vegar hafa rætt í
tvígang við Baldur og leiðbeint
honum um ferli mála sem þessara
og hvernig beri að tilkynna það.
Í samtali við DV sagði Jón að
tryggingafélag Landsbjargar hafi
tekið við málinu enda sé félagið
tryggt gagnvart tjóni þriðja aðila í
flugeldaslysum.
Kona hrækti á
lögreglumann
Ung kona var handtekin í
Hafnarfirði um um klukkan sjö
á sunnudagsmorgun eftir að
lögreglumenn höfðu stöðvað
hana vegna gruns um ölvun-
ar- og vímuefnaakstur. Konan
brást ókvæða við afskiptun-
um. Gaf hún upp rangt nafn og
hrækti síðan á lögreglumann
þegar hún var stöðvuð.
Telur sig saklausan Meðal þess sem
fjallað er um í grein Sunday Times er Aurum-
málið svokallaða sem verður tekið fyrir af
dómstólum á næstunni. Jón Ásgeir hefur
lýst sig saklausan í málinu.
Tryggingafélag vill
ekki bæTa TannbroT
n Tennurnar í Lenu brotnuðu þegar leið yfir hana n Mikill kostnaður
D
óttir mín lenti í því óskemmti-
lega atviki á gamlársdag
að það leið yfir hana, hún
datt og braut í sér tennurn-
ar. Þær gengu til og losnuðu.
Hún eyddi gamlársdegi upp á sjúkra-
húsi og fór til tannlæknis á nýársdag
og eyddi deginum þar. Kostnaðurinn
verður upp undir milljón þegar þessu
verður lokið, en það tekur einhver ár.
Og Sjóvá neitar að borga,“ segir Valdís
Lára Thorarensen, móðir Lenu Sóleyj-
ar Þorvaldsdóttur sem er 14 ára. Það
leið yfir Lenu þegar hún var að koma
úr sturtu, fannst hún liggjandi á bað-
herbergisgólfinu náföl og var flutt með
sjúkrabíl upp á spítala í snarhasti.
Flokkast sem veikindi
Í skilmálum tryggingapakka fjöl-
skyldunnar hjá Sjóvá, Fjölskyldu-
verndar 2, um slysatryggingu í frítíma
er slys skilgreint með þessum hætti:
„Með orðinu slys er hér átt við skyndi-
legan utanaðkomandi atburð sem
veldur meiðslum á líkama vátryggðs
og gerist án vilja hans.“ Tekið er fram
að félagið greiði bætur vegna slyss sem
vátryggðir verða fyrir í frístundum,
við heimilisstörf, nám eða almenna
íþróttaiðkun. Tekið er sérstaklega fram
að félagið greiði bætur vegna tann-
brots, gerist slysið við einhverjar þær
athafnir sem upp eru taldar.
Tryggingafélagið Sjóvá hafnar hins
vegar bótaskyldu í máli Lenu Sóleyj-
ar vegna þess að fallið hafi orsakast
af yfir liði, sem flokkast hjá þeim sem
veikindi en ekki slys.
Útskrifuð sem fullfrísk
Í bréfi Sjóvár til foreldra Lenu Sóleyj-
ar segir um höfnunina: „Samkvæmt
fyrir liggjandi gögnum var ástæða at-
viksins ekki utanaðkomandi og í ljósi
þess eru skilyrði skilmála tryggingar-
innar um slys í ljósi framangreindrar
skilgreiningar ekki uppfyllt.“
Lena var fullfrísk áður en það leið
yfir hana og fjölmargar læknisrann-
sóknir leiddu ekkert annað í ljós en
að hún væri heilbrigð 14 ára stúlka.
Var hún því útskrifuð af sjúkrahúsi og
skýringin á yfirliðinu talin vera blóð-
þrýstingsfall. „Hún hefur alla tíð verið
mjög hraust,“ fullyrðir Valdís. „Ég er að
borga 440 þúsund krónur í tryggingar
á ári, þannig að ég er brjáluð.“
„Tveggja milljóna króna bros“
Búið er að lagfæra tennur Lenu Sól-
eyjar til bráðabirgða en það er langur
vegur framundan. Kostnaður vegna
tannviðgerðanna er nú þegar kominn
í á annað hundrað þúsund krónur en
tannlæknaheimsóknirnar koma til
með að verða fjölmargar og kostnaðar-
samar á næstu árum.
„Þetta er svo langt frá því að vera
búið en nú tekur við smá bið. Tvær
tennur svara hvorki hita né kulda og
það er merki um að þær séu dauðar.
Þær eru samt ekki enn farnar að grána,
þannig að það er allt óvíst ennþá hvað
verður.“ Þá mun þurfa að setja krónu á
aðra framtönn Lenu Sóleyjar en það
verður ekki gert fyrr en eftir að hún
verðu orðin tvítug, að sögn Valdísar.
„Fyrir þetta slys þá voru tennurnar
óskemmdar og það hafði aldrei þurft
að gera við eitt eða neitt. Eins og tann-
læknirinn fyrrverandi sagði við hana:
„Þú ert með tveggja milljóna króna
bros“ þannig það er ennþá sárara
að lenda í þessu og að þurfa líka að
standa í ströggli við tryggingafélagið.“
Eitthvað innan frá olli
atburðinum
Valborg Sveinsdóttir, forstöðumaður
persónutjóna hjá Sjóvá, bendir á að
Fjölskylduvernd 2 innihaldi einungis
slysatryggingu í frítíma. „Það er skil-
greint þannig að það þurfi að vera
skyndilegur utanaðkomandi atburður
sem veldur líkamlegu tjóni. Þegar eitt-
hvað innan frá veldur atburðinum
þá fellur það ekki undir þessa skil-
greiningu, utanaðkomandi,“ útskýr-
ir hún. Sjóvá til stuðnings vísar Val-
borg á úrskurði úrskurðarnefndar í
vátryggingamálum í sambærilegum
málum. n
Fullfrísk með heilar tennur
Lena Sóley féll í yfirlið á gaml-
ársdag með þeim afleiðingum
að tennur hennar brotnuðu illa
og gengu til. Hún mun þurfa að
fara í margar og kostnaðarsam-
ar tannviðgerðir.
Brotnar tennur Sjóvá hafnar bótaskyldu
á þeim forsendum að um veikindi hafi verið
að ræða en ekki slys.
„Ég er að borga
440 þúsund
krónur í tryggingar á ári,
þannig að ég er brjáluð.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is