Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2013, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2013, Blaðsíða 11
eru Krafin um 1.600 milljónir í 15 málum n Stefnum rignir yfir Sundarana n 50 milljarða kröfur en engar eignir n Eignir teknar úr félaginu Fréttir 11Mánudagur 21. janúar 2013 1 Gegn NF Holding ehf. og Pluma ehf. Krafist er riftunar á ráðstöfun á 66,56 eignarhlut í Norðurflugi ehf. sem seldur var IceCapital ehf. til NF. Holding og þaðan til Pluma ehf. þann 12. desember. Jafnframt er þess krafist að eignarhaldsfélögin greiði þrotabúi IceCapital 120,6 milljónir króna. Þá er krafist málskostnaðar. 2 Gegn Brun Holding ehf. Krafist er riftunar á eignarhlut í lúxemborgska félaginu Brun Holding S.A. sem seldur var frá Icecapital til Brun Holding ehf. í október 2008. Til vara er þess að krafist að félagið greiði þrotabúi IceCapital 350 milljónir króna. 3 Gegn Trucson Properties ehf. Krafist er riftunar á ráðstöfun 252 hlutabréfa í Trucson Properties S.a.r.l. sem seld voru frá IceCapital ehf. þann 12. desember 2008. 4 Gegn Sundi ehf. Krafist er riftunar á sölu 68,93 prósenta eignarhlutar í Fasteignafélaginu Sæv- arhöfða ehf. sem seldur var frá IceCapital til Sunds ehf. þann 17. desember 2008. Jafnframt er krafist peningagreiðslu að upphæð 49,2 milljóna króna. 5 Gegn Símoni Sigurði Sigurpálssyni og Mið­ búðinni fjárfestingarfélagi ehf. Kröfuliður 1: Krafist er riftunar á gjöf IceCapital til Símonar Sigurðar að fjárhæð 200,1 milljónar króna frá því í október 2008 og að Símon verði dæmdur til að greiða búinu þessa fjármuni til baka. Til vara er þess krafist að Miðbúðin fjárfestingarfélag verði dæmt til þess að greiða IceCapital þessa fjárhæð. Kröfuliður 2: Krafist er riftunar á gjöf IceCapital að fjárhæð 421,1 milljónar króna til Miðbúðarinnar fjárfestingarfélags. 6 Gegn Sumri ehf. Krafist er riftunar á greiðslu 25 milljóna frá IceCapital til Sumra ehf. frá því 10. maí en þrotabúið lítur svo á að um gjafagerning hafi verið að ræða. Vill búið að Sumir ehf. greiði 25 milljónirnar til baka inn í búið. 7 Gegn Páli Þór Magnússyni Krafist er riftunar á tveimur greiðsl- um að upphæð 20 og 31,8 milljóna sem runnu frá IceCapital til Páls þann 15.sept- ember og 9. október 2008. Greiðslurnar voru skilgreindar sem uppgreiðsla á skuldum. 8 Gegn Norðurflugi ehf. Kraf-ist er riftunar á greiðslu IceCapital ehf. til Norðurflugs ehf. að fjárhæð 55 milljónir króna þann 24. október 2010. Í stefnunni er farið fram á að Norðurflug endurgreiði IceCapital þessa upphæð. 9 Gegn Norðurflugi ehf. Kraf-ist er riftunar á greiðslu 30 milljóna frá IceCapital til Norðurflugs þann 25. maí 2010. Í stefnunni er farið fram á að Norðurflug ehf. endurgreiði IceCapital þessa upphæð. 10 Gegn Jóni Kristjánssyni Krafist er riftunar á viðskiptum IceCapital og Jóns frá því 4. nóvember 2008 þegar Jón seldi stofnfjárbréf sín í Byr inn í félagið fyrir rúmlega 90 milljónir króna. Fer þrotabú IceCapital fram á að Jón endurgreiði búinu umræddar 90 milljónir. 11 Gegn Gunnþórunni Jónsdóttur Kröfuliður 1: Krafist er riftunar á arð- greiðslum að upphæð rúmlega 43,5 millj- ónum sem áttu stað á tímabilinu frá 2. október 2008, eftir fall Glitnis, og þar til 5. mars 2009. Kröfuliður 2: Krafist er riftunar á launagreiðslum til Gunnþórunnar upp á rúmlega 5,6 milljónir króna sem hún fékk út úr IceCapital á tímabilinu mars 2009 og fram í október 2010. 12 Gegn Jóni Kristjánssyni og G3 fasteignafélagi Dómkrafa 1: Krafist er riftunar á greiðslu IceCapital á 20 milljónum króna til Jóns Kristjánssonar þann 15. september 2008. Greiðslan var skilgreind sem arðgreiðsla sem félagið skuldaði Jóni. Dómkrafa 2: Krafist er riftunar á greiðslu IceCapital á ríflega 25,3 milljónum til G3 fasteignafé- lags ehf. Um var að ræða skilgreinda skuld vegna arðsúthlutunar. Samtals nema kröfurnar á hendur Jóni og G3 fasteigna- félagi því rúmlega 45,3 milljónum króna í þessari stefnu. 13 Gegn fjárfestingar­félaginu Pluma ehf. Krafist er riftunar greiðslum frá IceCapital til Pluma á tímabilinu 17. mars 2010 til 18. janúar 2012 sem samtals nema 20,8 milljónum króna. Búið vill að Pluma endurgreiði IceCapital þessa peninga. 14 Gegn IBEB ehf. Krafist er riftunar á færslu eignarhlutar í Fasteignafélaginu Kufurst ehf. sem seldur var frá IceCapital ehf. til IBEB þann 12. desember 2008. Farið er fram á að IBEB afsali sér hlutnum til þrotabúsins en til vara að það greiði IceCapital 500 þúsund evrur, eða rúmlega 85 milljónir króna. 15 Gegn Internis ehf. Krafist er riftunar á 3 milljóna króna greiðslu frá IceCapital til Internis sem fram fram fór þann 7. desember 2009. Fer búið fram að Internis endur- greiði IceCapital milljónirnar þrjár. Stefnurnar gegn eigendum og stjórnendum Sunds, IceCapital og félögum þeirra S igurður G. Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi stjórnarmaður í Glitni, sagði fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur árið 2011 að Glitnir hefði stundað markaðsmisnotkun fyrir bankahrunið 2008. Þetta kem­ ur fram í dómi Héraðsdóms Reykja­ víkur í máli Glitnis banka gegn einkahlutafélaginu Iceproperties, dótturfélagi IceCapital sem áður hét Sund, en Sigurður var lögmaður fé­ lagsins í málinu. Eigendur Iceproperties vildu ekki gefa félagið upp til gjaldþrota­ skipta þrátt fyrir himinháar skuldir þess og þurfti héraðsdómur, og síðar Hæstiréttur, að knýja félagið í þrot. Glitnir banki krafðist þess í október 2010 með bréfi til Héraðs dóms Reykjavíkur að bú Iceproperties yrði tekið til gjald­ þrotaskipta. Iceproperties hafði þá vanefnt skyldur sínar gagnvart lána­ samningi upp á 4,6 milljarða króna að höfuðstóli í íslenskum og er­ lendum myntum sem félagið hafði gert við Glitni í mars og júní árið 2008. Lánið var veitt til að kaupa hlutabréf í Glitni en líkt og DV hefur greint frá keypti Iceproperties 260 milljón hluti í Glitni á þessum tíma og var seljandinn deild eigin við­ skipta Glitnis. Uppreiknuð var skuld Iceproperties komin upp í rúmlega 7,8 milljarða króna. Árið 2010 taldi þrotabú Glitnis að ekkert benti til þess að Iceproperties gæti staðið í skilum með greiðslu á skuldinni og því ætti að úrskurða félagið gjaldþrota. Iceproperties hafnaði hins vegar kröfunni. Hér­ aðsdómur féllst á kröfu Glitnis og úrskurðaði Iceproperties gjaldþrota þann 28. janúar 2011. Dómur Héraðsdóms Reykja­ víkur þar sem Iceproperties var úrskurðað gjaldþrota er afar merkilegur fyrir ýmsar sakir. Helsta ástæðan fyrir því er sú að Sigurður G. Guðjónsson, sem sat meðal annars í stjórn Glitnis fyrir hönd hluthafa bankans þegar hann féll um haustið 2008, segir berum orð­ um í dómnum að Glitnir hafi stund­ að markaðsmisnotkun og blekkt eigendur Iceproperties til að kaupa hlutabréf í bankanum. Sigurður G. hefur um nokkurt skeið unnið talsvert fyrir Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi stjórn­ arformann FL Group sem var stærsti hluthafi Glitnis. Sigurður hefur einnig unnið fyrir viðskipta­ félaga Jóns Ásgeirs, Pálma Haralds­ son, og sat meðal annars í stjórn eignarhaldsfélags hans, Fons, fyrir hrun. Orðrétt segir um viðurkenn­ inguna á markaðsmisnotkuninni í dómi héraðsdóms, og er vísað í greinargerð Sigurðar G.: „Varnar­ aðili lýsir nákvæmlega framkvæmd kaupanna, sem hann telur sýna ótvírætt að bankanum hafi verið mikið í mun að ná samningum. Hafi tilboð verið sent skömmu fyr­ ir miðnætti og Verðbréfaþingi til­ kynnt um kaupin snemma næsta dag. Hafi þetta verið einn liður í þeirri viðleitni sóknaraðila að halda uppi verði hlutabréfa í bank­ anum. Tekur varnaraðili tvö dæmi úr skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis máli sínu til stuðnings. Kveðst hann telja að aðilar í bank­ anum hafi gerst sekir um markaðs­ misnotkun. Hafi yfirvöld enda haf­ ið rannsókn.“ Málsvörn Sigurðar G. er einstök í þeim skilningi að um er ræða fyrsta skipti sem fyrrverandi stjórnarmað­ ur í íslensku fjármálafyrirtæki viður­ kennir að bankinn sem hann átti þátt í að stýra hafi stundað mark­ aðsmisnotkun. n Sigurður viðurkenndi markaðsmisnotkun Einstakt Sigurður G. Guðjónsson varð fyrsti stjórnarmaðurinn í íslensku fjármálafyrir- tæki til að viðurkenna að banki sem hann átti þátt í að stýra stundaði markaðmisnotkun. Seldu þyrlufyrirtæki úr Sundi Ein af stefnunum fjallar um riftun á nærri 67 prósenta eignarhlut í þyrlufyrirtækinu Norðurflugi út úr IceCapital þann 12. desember 2008. Fyrirtækið var í eigu IceCapital ehf. en var selt í gegnum félagið NF Holding ehf. og til Pluma ehf. sem er alfarið í eigu Páls Þórs Magnús­ sonar. Norðurflug er fyrir tæki sem sérhæfir sig í leigu á þyrlum, með­ al annars til útsýnis flugs og annars slíks. Þá krefst skiptastjóri bús­ ins 120 milljóna króna peninga­ greiðslu í stefnunni. Í stefnunni kemur fram að kaupverðið á meirihluta hlutafjár í Norðurflugi hafi ekki verið greitt en að gefið hafi verið út skulda­ bréf til tíu ára þar sem skilmálar viðskiptanna koma fram. Byggir skiptastjórinn meðal annars á því að lánið var til tíu ára og án afborg­ ana eða vaxtagreiðslna allan láns­ tímann. Því var um að ræða kúlu­ lán til tíu ára með einum gjalddaga. Í stefnunni segir um lánið, og er vægt til orða tekið: „Lán með eng­ um tryggingum, engum afborgun­ um og engum vaxtagreiðslum eru óvenjuleg.“ Vill 350 milljónir í einni stefnu Hæsta upphæðin sem skiptastjór­ inn krefst í einstaka stefnum eru 350 milljónir króna vegna sölu á eignarhlut í lúxemborgska félaginu Brun Holding S.A. út úr IceCapital og inn í eignarhaldsfélagið Brun Holding ehf. þann 8. október 2008. Í þeirri stefnu krefst skiptastjórinn 350 millj­ óna króna auk riftunar á sölunni. Í því máli er fyrirsvarsmanni Brun Holding ehf., Ágústi Magnússyni, stefnt fyrir dóm. Gunnþórunn Jónsdóttir og Jón Kristjánsson eru stjórnarmenn fé­ lagsins og er það í meirihlutaeigu þeirra. Engar líkur eru á að þrotabú IceCapital fái neitt upp í kröfu sína á hendur félaginu ef dæmt verður því í vil þar sem skuldir þess nema tæpum hálfum milljarði króna og eignir eru metnar á sex hundruð krónur sam­ kvæmt ársreikningi félagsins fyrir árið 2011. Eigið fé Brun Holding er því nei­ kvætt um nærri hálfan milljarð króna. Lögmaður Sundaranna í gegnum tíðina hefur verið Sigurður G. Guð­ jónsson og er hann það einnig í þeim riftunarmálum sem hér um ræðir. Um málsvörn Sigurðar G. fyrir hönd Sundaranna í öðru máli má lesa hér á opnuninni. n Ummæli stjórnarmanns Glitnis í einstakri málsvörn Seldi Byrsbréfin sín Jón Kristjánsson seldi stofnfjárbréf sín í Byr inn í IceCapital fyrir rúmar 90 milljónir króna í nóvember 2008. Krafist er riftunar á viðskiptunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.