Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2013, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2013, Blaðsíða 22
22 Menning 21. janúar 2013 Mánudagur Vekur lukku með La Bohème n Leðurblakan storkaði þýsku leikhúspúristunum L eikstjórinn ungi Þorleifur Örn Arnarsson frumsýndi La Bohème í Augsborgar-leik- húsinu í gær og vakti uppsetn- ingin gríðarlega lukku með- al áhorfenda. Þorleifur hefur starfað sem leikstjóri á Íslandi, í Finnlandi, Ástralíu, Sviss og Þýskalandi. Þess má geta að uppsetning hans á Ibsen-leik- ritinu Peer Gynt í Lucerne í Sviss var kosin besta uppsetning leikhúsársins 2010–2011 af vefsíðunni nachtkritik. de. Á vefsíðu Augsborgar-leikhússins er Þorleifur sagður vera „einn eft- irsóttasti ungi leikstjórinn“. Að eig- in sögn er þessi túlkun hans á La Bohème afar litrík og mystísk en hann sneri verkinu frá 19. aldar real- isma og gaf því bakland í fantasíu og draumaheimi listamannanna, sem eru aðalpersónur í verkinu. „Verkið gerist í París á 19. öld og ég færði þetta í raun yfir í svona fantasíuheim sem byggir að mörgu leyti á samblandi af þýskum og íslenskum ævintýraminn- um,“ segir hann. Uppsetningin er heljarinnar verk en þar er allt ansi stórt og skemmti- legt í sniðum. Tæplega 140 manns eru á sviðinu og 100 manna hljóm- sveit; 85 manna kór, 30 barna barna- kór og 25 manna lúðrasveit. Síðan eru 12 statistar sem leika dauðaenglana, að ógleymdum hópi loftfimleika- manna. Leiksviðið er hannað af Jósef Halldórssyni og búningagerðina sér Filippía Elísdóttir um. Frumraunin í Augsborg „leikskandall ársins“ Þorleifur segir að af frumsýningunni að dæma hafi gengið gríðarlega vel en hann undirstrikar þó að leik- stjórinn sé alltaf hlutdrægur. „Í lok- in voru bara tár á hvörmum og síðan ætlaði allt um koll að keyra í upp- þotinu. Þannig að maður getur ekki beðið um mikið meira,“ segir hann. „Söngvararnir vissu að ég væri leik- stjóri sem krefðist mikils af leiknum frá þeim og að ég færi mínar eigin leiðir með þetta. Þannig að við upp- setninguna myndaðist rosalega mik- il stemning og eftirvænting. Söng- konan sem syngur aðalhlutverkið, Sophia Christine Brommer, er í raun að syngja sína stærstu rullu hingað til. Það vita allir að allt stefnir í að hún verði mjög stór stjarna. Það var mjög gaman að geta gefið henni algjörlega nýja túlkun á þessu hlutverki til að ýta henni af stað.“ Þorleifur þreytti frumraun sína í Augsborgar-leikhúsinu í fyrra með uppsetningu sinni á Leðurblökunni (þ. Die Fledermaus) sem hann lýsti sjálfur sem „leikskandal ársins“ en frjálsleg túlkun Þorleifs storkaði svo sannarlega þýsku leikhúspúristun- um. Þorleifur kallar Leðurblökuna „hina heilögu belju þýskra óperetta“. „Það héldu allir að ég ætlaði að koma og gera skandal úr La Bohème eins og ég væri bara svona maður sem hefði ekki áhuga á neinu nema að sjokkera fólk,“ segir hann. „Leðurblakan er í rauninni mjög krítískt verk en á nasistatímanum þurfti að upphefja þýskan kúltúr og í gegnum þessa hreinsun hinnar þýsku menningar er öll krítík fjarlægð úr túlkun á verkinu. Þetta er gert að svona heldri borgara brandaraverki þar sem feitir miðaldra karlmenn geta gripið í brjóstið á konum og það á að vera rosalega fyndið. Þannig vilja þeir sjá verkið, sem eru vanir hefð- bundinni túlkun á því. En fyrir mér var þetta verk í rauninni gríðarleg samfélagsádeila, bæði ádeila á karla- samfélagið og á ofbeldis- og lyga- samfélagið. Þannig setti ég það upp; ég setti hljómsveitina upp á svið, var með 16 metra háa leikmynd sem allt í einu flaug upp í loftið. Við tókum tón- list úr Batman-myndinni og settum inn í Leðurblökuna. Í fyrstu aríunni þá gengu tveir leikarar á sviðið og stoppuðu aríuna til að útskýra leik- reglur kvöldsins fyrir áhorfendum. Við æfðum „pú!“ og „bravó!“ með áhorfendum og við buðum að hljóm- sveitin gæti virkað sem karókíma- skína í hléum. En á frumsýningunni var aftur á móti publikum sem vildi sjá „sína“ Leðurblöku, það stóð upp og púaði í miðri sýningu. Þá stóðu aðrir upp og öskruðu „bravó!“ og það varð bara hörkurifrildi meðan á sýningunni stóð. Ég sat bara hvítur í framan í sjokki yfir því hvað væri að gerast!“ Heiðarlegur gagnvart verkinu Þorleifur segist hafa séð framan í suma þeirra sem mislíkaði Leður- blakan á frumsýningu La Bohème. „Þeir voru ógeðslega fúlir því þeir höfðu í raun ekkert á mig. Ég hafði farið í viðtal eftir viðtal og það voru allir að spyrja mig hvort ég ætlaði að gera annan skandal. Og ég var alltaf að útskýra að ég hafi verið alveg jafn heiðarlegur gagnvart þessu verki og ég var gagnvart síðasta verki. Það er alveg jafn heiðarlegt fyrir La Bohème að fá alla til að gráta í lokin eins og þú átt að gera alla brjálaða með Leður- blökunni. Og ég held að það hafi tek- ist,“ segir hann. „Þegar ég fór upp á svið eftir Leð- urblökuna þá stóð hálfur salurinn upp og öskraði „pú!“ og hinn helm- ingurinn stóð upp og öskraði „bravó!“. Þá var þetta bara eins og borgarastyrj- öld. Í gær var hins vegar bara hrópað „bravó!“ Ég var meira að segja spurð- ur af blaðamönnum eftir á hvort ég hafi verið að reyna að sættast við Augsborgar-publikumið með þessari nálgun!“ segir Þorleifur og hlær. n Þórður Ingi Jónsson thordur@dv.is Viðtal „Þegar ég fór upp á svið eftir Leðurblök- una þá stóð hálf- ur salurinn upp og öskraði „pú!“ Mikið sjónarspil Túlkun Þorleifs á La Bohème er afar litrík og mystísk. La Bohème vakti lukku Að sögn Þorleifs er Sophia Christine Brommer rísandi stjarna. Disney-stúlkur í slagtogi við eiturlyfjasala Fyrsta stiklan úr kvikmyndinni Spring Breakers hefur nú verið gefin út á netinu. Myndin hefur vakið mikla eftirvæntingu með- al kvikmyndaáhugamanna enda er þetta nýjasta mynd leikstjór- ans fjölhæfa Harmony Korine. Korine er þekktur fyrir frumlegar og einkar undarlegar myndir s.s. Gummo, Julien Donkey-Boy og seinast Trash Humpers. Tvær af aðalleikonunum, Sel- ena Gomez og Vanessa Hudg- ens, eru helst þekktar fyrir að hafa starfað með Disney og hefur því leikaravalið vakið mikla athygli, enda er Korine ekki beint þekktur fyrir mjög barnvænar kvikmynd- ir. Aðrir leikarar eru m.a. James Franco, Ashley Benson, Rachel Korine og rapparinn Gucci Mane. Myndin fjallar um fjórar menntaskólastúlkur sem lenda í fangelsi eftir að hafa rænt veitingastað til að fjármagna fjörugt vorfrí. Eiturlyfja- og byssu- sali, sem leikinn er af Franco, fær þær lausar úr varðhaldi gegn tryggingu og vill síðan að þær starfi fyrir sig. Af stiklunni að dæma verður Spring Breakers vafalaust með athyglisverðari myndum ársins. Tobba og Linda P báð- ar með bók Jólabókaflóðið verður fjörlegt næstu jól. Linda Pétursdóttir hefur sagt frá því að hún leggi nú drög að bók um heilsu, ham- ingju og fegurð og spyr vini sína á Facebook hvað þeir vilji helst sjá í slíkri bók. Þá er Tobba Marin- ósdóttir sest við bókarskrif. Síð- asta bók Tobbu vakti mikla athygli og þótti fréttnæmur dómur Páls Baldvins Baldvinssonar, fyrrver- andi gagnrýnanda. Í honum var að finna nokkuð berorða lýsingu á Tobbu sem konur myndu nú margar hverjar verða hvekktar vegna. „Tobba er ekki einföld þótt hún láti mynda sig á hlið svo hún sýnist þunn, reki fram barminn og standi á pumpum,“ segir Páll í dómnum og einnig segir hann hana vera gróf- yrta og dregur þá ályktun að líkast til komi það til vegna þess að hún sé á „fengi- aldri“.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.