Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2013, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2013, Blaðsíða 10
10 Fréttir 21. janúar 2013 Mánudagur S kiptastjóri þrotabús Ice­ Capital ehf., áður Sunds, hefur höfðað fimmtán riftunarmál gegn fyrrver­ andi eigendum félagsins, stjórnendum þess og eignarhalds­ félögum þeim tengdum. Riftunar­ málin voru þingfest í Héraðs­ dómi Reykjaness og Reykjavíkur þann 9. janúar síðastliðinn. Kraf­ ist er riftunar á viðskiptagjörning­ um sem áttu sér stað innan félags­ ins og við eigendur og stjórnendur IceCapital ehf. frá haustinu 2008 og til ársins 2012 þegar félagið var tekið til gjaldþrotaskipta. Svo virð­ ist, út frá stefnunum, sem eigendur IceCapital hafi tekið eignir og fjár­ muni út úr félaginu sem samtals nema nærri 1.600 milljónum ís­ lenskra króna. Sund var tekið til gjaldþrota­ skipta í mars á þessu ári og nema lýstar kröfur í bú félagsins um 51 milljarði króna. Félagið er því sem næst eignalaust í dag. Eigendur fé­ lagsins voru Gunnþórunn Jóns­ dóttir, eftirlifandi eiginkona Óla Kr. Sigurðssonar í Olís, og börn hennar tvö, Jón Kristjánsson, og Gabríela Kristjánsdóttir. Framkvæmdastjóri Sunds var Páll Þór Magnússon, eig­ inmaður Gabríelu Kristjánsdóttur, og beinast nokkur riftunarmálanna að honum. Félagið, og önnur félög tengd því, voru stórtæk í hlutabréfakaup­ um á árunum fyrir hrun og fjárfesti meðal annars í Glitni og Kaupþingi auk þess sem sömu aðilar keyptu bifreiðaumboðin Ingvar Helgason og Bifreiðar og landbúnaðarvélar. Heildarskuldir Sunds og tengdra fé­ laga námu 64 milljörðum króna við bankahrunið samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. 1.600 milljóna viðskipti í kjölfar hruns Megininntakið í stefnunum er að Jón, Gunnþórunn, Páll og félög í þeirra eigu endurgreiði þrota­ bú IceCapital fjármuni sem nema í heildina tæpum 1.600 milljónum króna og að eignarhlutir í tilgreind­ um félögum sem áður voru í eigu IceCapital ehf. renni aftur inn í þrotabúið. Þá er fyrrverandi starfs­ manni Sunds, Ágústi Magnússyni, einnig stefnt í nokkrum málum. Stefnurnar eru mjög umfangsmikl­ ar og lýsa viðskiptagerningum, eða gjafagerningum eins og það heit­ ir á lögfræðimáli, sem fela í sér það sem yfirleitt er kallað eignaundan­ skot á hversdagsmáli. Svo virðist sem eigendur Ice­ Capital hafi á tæplega þriggja og hálfs árs tímabili frá hruninu 2008 og fram til upphafs síðasta árs tekið umrætt magn eigna út úr félaginu á forsendum sem skiptastjórinn tel­ ur að hafi ekki verið réttmætar þar sem félagið hafi verið orðið ógjald­ fært á tímabilinu og að gjaldþrot þess hafi verið óhjákvæmilegt. Um þetta segir skiptastjórinn, Ómar Örn Bjarnþórsson, í öllum stefnun­ um: „Stefnandi átti hlut í íslensku viðskiptabönkunum. Við fall þeirra varð félagið að mestu eignalaust en sat eftir með gríðarlega háar skuldir. Félagið var því ógjaldfært og ógreiðslufært í september 2008. Við athugun á málefnum þrotabús­ ins hefur komið í ljós að ýmsar ráð­ stafanir hafa verið gerðar þrátt fyrir að félagið hafi verið ógjaldfært.“ Í samtali við DV vill Ómar Örn ekki ræða málefni IceCapital við blaðið. Hann segir að riftunarmál­ in munu hafa sinn gang fyrir dómi. Jón seldi Byrsbréfin sín Ein af áhugaverðari stefnunum fimmtán er gegn Jóni Kristjánssyni og snýst um sölu hans á stofn­ fjárbréfum í sparisjóðnum Byr til IceCapital í byrjun nóvember 2008 fyrir rúmlega 90 milljónir. Ice­ Capital var einn af stærstu stofn­ fjárhöfum sparisjóðsins og átti Jón líka stofnfé í sjóðnum persónulega. Jón sat sömuleiðis í stjórn Byrs. Í stefnunni segir að bréfin hafi á þessum tíma verið „verðlítil eða verðlaus“ og að kaupverðið hafi því verið „óeðlilegt“. Þrotabúið vill endurgreiðslu á þessari upphæð frá Jóni. Stefnan er áhugaverð í ljósi þess að í október 2008 seldu Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnarfor­ maður Byrs, Ragnar Z. Guðjóns­ son, sparisjóðsstjóri Byrs, og fleiri aðilar stofnfjárbréf sín í Byr inn í eignarhaldsfélagið Exeter Holdings með 1.100 milljóna króna láni frá Byr. Lánið var notað til endur­ greiða MP Banka lán sem þessir lykilstjórnendur Byrs höfðu tekið fyrir bréfunum. Stjórn Byrs sam­ þykkti lánveitinguna. Jón Þorsteinn og Ragnar Z. voru í fyrra dæmdir í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir umboðssvik út af þessum viðskipt­ um. Í desember sama ár fékk Birgir Ómar Haraldsson, sem er við­ skiptafélagi Jóns og eiginmaður frænku hans, að selja hlutabréf sín í Byr með láni frá sparisjóðnum upp á 200 milljónir króna. Birgir Ómar var þá varamaður í stjórn Byrs. Kaupin á bréfum Birgis Ómars voru keyrð í gegn af því eigendum Sunds fannst að þeir ættu líka að geta fengið að losa sig við stofnfjárbréf sín á yfirverði inn í Exeter Holdings, líkt og Ragnar Z., Jón Þorsteinn og fleiri höfðu gert í október. Í héraðsdómnum í Exeter Holdings málinu kemur fram að Jón og Birgir Ómar hafi komið að máli við Jón Þorstein og beðið um að stofnfjárbréfin yrðu keypt af Birgi Ómari. Jón Þorsteinn bar því við fyrir dómi að með beiðni sinni hefðu þeir Jón og Birgir Ómar verið að „rukka inn greiða“ sem átti rætur sínar að rekja til sameiningar Spari­ sjóðsins í Kópavogi og Byrs. Stjórn Byrs varð við þessari beiðni þeirra og Birgir Ómar fékk að selja bréfin sín líka. Nú liggur fyrir að sjálfur seldi Jón stofnfjárbréf sem hann átti inni í IceCapital og náði þannig að losa sig við bréf sín á yfirverði. Öllum stefnt út af arðsúthlutun Meðal stefnanna eru þrjú riftunar­ mál gegn þeim Jóni Kristjánssyni, móður hans Gunnþórunni Jóns­ dóttur og Páli Magnússyni vegna arðsúthlutana rétt fyrir eða eftir bankahrunið 2008. Jóni er stefnt vegna greiðslu skulda IceCapital við hann út af arð­ greiðslum upp á rúmlega 45 milljón­ ir króna þann 15. september 2008 og 6. október sama ár. Þá er Páli stefnt út af greiðslu á arði upp á nærri 52 milljónir króna þann 15. september og 9. október 2008. Gunnþórunni er stefnt út af arðgreiðslum upp á 43,5 milljónir króna sem greiddar voru til hennar á tímabilinu 2. október 2008 til 5. mars 2009. Þá er Gunnþórunni einnig stefnt út af launagreiðslum sem hún þáði frá félaginu upp á rúm­ lega 5,6 milljónir króna á tímabilinu frá mars 2009 til október 2010. eru Krafin um 1.600 milljónir í 15 málum n Stefnum rignir yfir Sundarana n 50 milljarða kröfur en engar eignir Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Félag niðja Óla í Olís Gunnþórunn Jónsdóttir átti Sund ásamt börnum sínum tveimur. Skiptastjóri félagsins hefur höfðað 15 riftunarmál á hendur fyrrverandi eigendum félagsins. Mynd: FréttaBlaðið Þyrluþjónusta til Páls IceCapital stefnir eignarhaldfsfélagi í eigu Páls Þórs Magnússonar vegna viðskipta með þyrluleiguna Norðurflug sem seld var út úr félaginu í desember 2008 með tíu ára kúluláni. „Lán með engum tryggingum, engum afborg- unum og engum vaxtagreiðslum eru óvenjuleg

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.