Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2013, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2013, Blaðsíða 18
18 Lífsstíll 21. janúar 2013 Mánudagur Lúsafaraldur geisar í skólum n Kemur í bylgjum á nokkurra ára fresti n Svona smitast börnin af lús Á yfirstandandi skólaári sem hófst í haust og er nú hálfn­ að hafa skólahjúkrunar­ fræðingar á höfuðborgar­ svæðinu skráð 106 lúsatilfelli meðal skólabarna en sambærileg tala fyrir skólaárið 2011–2012 var 70 tilfelli og skólaárið 2010–2011 voru skráð 66 tilfelli. Sölutölur yfir lúsa­ drepandi lyf fyrir allt landið sýna að það hefur orðið mikil aukning í sölu, allt að þriðjungi fleiri skammt­ ar seldust árið 2012 en árið á und­ an eða rúmlega 6.000 skammtar. Miðað við að hver og einn noti tvo skammta, því mælt er með að með­ ferð sé endurtekin, þá má ætla að rúmlega 3.000 einstaklingar hafi haft höfuðlús á síðastliðnu einu ári,“ segir Ása Steinunn Atladóttir, hjúkr­ unarfræðingur á sóttvarnarsviði Landlæknisembættisins, en sann­ kallaður lúsafaraldur er á höfuð­ borgarsvæðinu. Ása segir fjölda höfuðlúsasmits virðast koma í sveiflum. „Þetta er ekkert ólíkt því sem gerist með rjúpnastofninn. Þar eru talað um sveiflur á sjö ára fresti. Lúsafaraldur kemur í bylgjum á sirka fjögurra eða fimm ára fresti. Í Danmörku er ver­ ið að gera rannsóknir í sambandi við fylgni við veðurfar, til dæmis hvort mikil rigningartíð geti leitt til fleiri höfuðlúsartilfella því þá eru börn­ in frekar inni við að grúfa sig saman yfir leikjum en það er ýmislegt við lúsina sem erfitt er að skýra.“ Ása segir vísindamenn sammála um að lúsin smitist aðallega við beina snertingu. „Kollur við koll er smitleiðin. En svo er alltaf einn og einn vísindamaður sem segir að það sé ekki hægt að útloka að lús geti krækst í húfu og komist þannig á milli kolla. Lús sem dettur úr hári verður hins vegar fljótt löskuð því höfuðlúsin þarf að sjúga blóð fjór­ um, fimm sinnum á dag. Án blóðs­ ins verður hún fljótt lerkuð og ekki til neinna átaka,“ segir Ása og bætir við að miðað við líkamslús og flat­ lús þurfi höfuðlúsin að nærast mun oftar. Ása segir ríka ástæðu til að minna foreldra á að það þurfi að bregðast við af samviskusemi þegar lús kem­ ur upp í skólum. „Ef til vill þyrfti gera átak til að hjálpa fólki með þetta og ég sé fyrir mér einhvers konar mið­ stöð þar sem hægt væri að bjóða al­ menningi upp á kennslu í kemb­ ingu og aðstoð við meðhöndlun lúsasmits. Slíkt kostar náttúrulega peninga og þar sem ekki er hægt að sýna fram á alvarlegar heilsufars­ afleiðingar af lúsinni hefur ekki verið lagt í slíka fjárfestingu. Við höf­ um heyrt skólahjúkrunarfræðinga tala um að þeir foreldrar sem hafa dvalið í löndum þar sem lúsin er viðvarandi vandamál, líkt og í Dan­ mörku og Þýskalandi, séu margir orðnir frjálslegri í sambandi við lús­ ina og kippi sér oft ekki upp við þó lúsa verði vart. Það er hins vegar ekki skemmtilegt að hafa eytt pen­ ingum og tíma í að losna við lús til þess eins að láta barnið smitast aft­ ur í leikskólanum eða skólanum af því að einhver annar var kærulaus. Þessi keðja verður aldrei sterkari en veikasti hlekkurinn.“ n indiana@dv.is Smitleiðir n Lúsin getur farið á milli höfða ef bein snerting verður frá hári til hárs en hún getur hvorki stokkið, flogið né synt. n Höfuðlús sem fallið hefur út í um- hverfi verður strax löskuð og veikburða. Þess vegna er talið að smit með fatnaði og innanstokksmunum sé afar ólíklegt. Einkenni smits n Tveir af hverjum þremur sem smitaðir eru af höfuðlús hafa engin einkenni. n Einn af hverjum þremur fær kláða. Kláðinn stafar af ofnæmi. Greining n Leita þarf lúsa í höfuðhárinu með ná- kvæmri skoðun, en það er best gert með kembingu með lúsakambi yfir hvítum fleti eða spegli og við góða birtu. n Mörgum finnst þægilegra að kemba blautt hár sem í er hárnæring. n Finnist lús, jafnvel bara ein, er það merki um að viðkomandi sé með höfuð- lús og þurfi meðferð með lúsadrepandi efni. n Nit lítur í fljótu bragði út eins og flasa, en ólíkt flösu er hún föst við hárið og er helst að finna ofan við eyrun og við hárlínu aftan á hálsi. Heimild: landlaeknir.is „Margir orðnir frjálslegri í sambandi við lúsina Sníkjudýr Höfuðlúsin er sníkjudýr sem lifir í hársverði manna. Fjögur heilsu- ráð að vetri Sjónvarpslæknirinn dr. Oz segir okkur geta haft mikil áhrif á heils­ una með örfáum varúðarráðstöf­ unum. Hjartaáfall Samkvæmt rannsóknum er 53% líklegra að þú fáir hjartaáfall um vetur en sumar. Líkurnar eru mestar í janúar. Settu trefil um vitin áður en þú ferð út í kuldann. Stirð liðamót Margir sem þjást af stirðleika í lið­ um kvarta undan verri verkjum þegar kalt er í veðri. Sumir vís­ indamenn útskýra það með því að vökvinn í kringum liðina verði þykkari í kulda. Regluleg hreyfing er besta leiðin til bóta. Brjóstsviði Örfá aukakíló eru ekki eina af­ leiðing alls átsins yfir hátíðarnar. Fitan hægir á meltingunni sem getur leitt til brjóstsviða. Ef þú finnur fyrir síendurteknum brjóst­ sviða skaltu leita læknis. Þurr húð Kuldi, minni raki og heitir ofn­ ar geta þurrkað húðina svo hún flagnar og skorpnar. Ysta lag húðarinnar hjálpar okkur að halda bakteríum í burtu en ef húðin spr­ ingur ertu viðkvæmari fyrir sýk­ ingum. Notaðu góð rakakrem.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.