Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2013, Blaðsíða 21
Sport 21Mánudagur 21. janúar 2013
Þ
að þykja stórtíðindi í
knattspyrnuheiminum þegar
stórliðið Barcelona tapar leik
og það gerðist þessa helgina
þegar Real Sociedad hafði
óvænt 3–2 sigur á heimavelli þrátt
fyrir að gestirnir hafi náð þægilegri
0–2 forystu. Þrátt fyrir tapið stend-
ur Leo Messi fyrir sínu. Hann jafn-
aði fimmtán ára gamalt spænskt met
með því að skora í leiknum en það var
tíundi leikurinn í röð sem Argentínu-
maðurinn setur knött í net.
Áhyggjuleysi
Tapið breytir þó afskaplega litlu
því helstu andstæðingar Börsunga
í spænsku deildinni eru víðs fjarri
á töflunni og Barcelona má tapa
nokkrum leikjum til áður en Real
Madrid eða Atlético Madrid fara að
narta í hæla Katalónanna. Miðað
við fregnir úr herbúðum beggja
þeirra félagsliða gæti vel verið að
breytingar hjá báðum geti sett leik-
tíðina í uppnám.
Þannig er mikil óánægja inn-
an herbúða Spánarmeistara Real
Mad rid. Gengi liðsins langt fyrir
neðan væntingar bæði stjórnar og
að dáenda og tilfæringar Jose Mour-
inho þjálfara á leikmönnum liðsins
hafa komið illa niður á móralnum
innan liðsins.
Hangir Mourinho í starfi?
Bæði Casillas markvörður og Crist-
iano Ronaldo hafa sagt gagnrýni
Mourinho á þá báða heldur grófa
og óverðskuldaða en sá fyrrnefndi
missti óvænt fast sæti sitt í marki
liðsins og hefur ekki verið sáttur. Þá
er fullyrt að staða Mourinho sjálfs sé
til skoðunar hjá stjórninni en Portú-
galinn fer sem fyrr sínar eigin leið-
ir og hefur oft lent upp á kant við
stjórnarformann liðsins.
Góðu fréttirnar eru að Mourin-
ho hefur peninga til að kaupa leik-
menn áður en leikmannaglugginn
lokast aftur en hann hefur ítrekað
lýst yfir óánægju með leikmanna-
hóp sinn í vetur. Þá hefur miðju-
maðurinn Mesut Özil sagt svo gott
að vera hjá Real að þar vilji hann
enda sinn feril.
Að vera eða ekki að vera
Atlético Madrid gengur mun betur
en spár gerðu ráð fyrir í haust en það
má þakka að töluverðu leyti hinum
eitraða framherja liðsins Radamel
Falcao. Hann gæti hins vegar farið
frá liðinu í þessum mánuði enda
allmörg félagslið að bera víurnar í
hann og miðað við yfirlýsingar for-
ráðamanna þess efnis að gott væri
að fá gömlu stjörnuna Fernando
Torres aftur til liðsins geta menn sér
til að Falcao sé á útleið. Gengi liðsins
veltur á að það sé áfram baneitraður
markaskorari í framlínunni. n
Þar kom
n Barcelona tapar loks leik á Spáni n Messi jafnar spænskt met n Hitnar undir Mourinho
að Því!
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar albert@dv.is
Biðin á enda
n NHL-deildin af stað eftir verkfall leikmanna
Þ
að gladdi mörg hjörtu um
helgina þegar bandaríska
NHL-deildin í íshokkí hófst að
nýju en lengi vel var útlit fyrir
að sú deild yrði sett á ís fram á næsta
keppnistímabil í haust. Þurfti reynd-
ar fimm mánaða samningalotu til en
á endanum fengu leikmenn flestar
sínar kröfur samþykktar og létu til
leiðast að hefja leik.
Deilan snérist um launamál sem
endranær og ekki í fyrsta skiptið sem
leikmenn neita að spila nema fyrir
hærri laun. Í þetta skiptið vildu leik-
menn fá stærri hluta af hagnaði fé-
laga í NHL-deildinni en sá hagnaður
hefur hingað til farið að mestu
óskiptur í vasa eigenda félaganna
sem oftar en ekki eru vellauðugir
einstaklingar.
Ekki er endanlega búið að ákveða
hversu margir leikir verða spilaðir
þessa hálf-leiktíð sem framundan
er. Þó ert gert ráð fyrir að það náist
að spila milli 30 og 40 umferðir en
hvert lið spilar alla jafna yfir 70 leiki
á hverju tímabili fyrir utan alla leiki í
úrslitakeppninni ár hvert.
Núverandi meistari NHL er Los
Angeles Kings sem hafði ellismellina
í New Jersey Devils í úrslitakeppn-
inni síðasta sumarið. Þeir eru tald-
ir sigurstranglegir en hætt er við að
ekki sé mikið að marka fyrstu vikur
deildarinnar nú því upp og ofan er
hversu margir leikmenn liðanna hafa
stundað æfingar síðan í júní þegar
síðasta tímabili lauk. Einhverjir leik-
menn þurfa því væntanlega nokkra
leiki eða svo til að koma sér í form. n
Börsungar ekki
óvinnandi Snilli
Leo Messi dugði
liði hans ekki þessa
helgina á Spáni.
Svellkaldir
NHL-deildin
loks af stað eftir
lausn á deilu
leikmanna og
eigenda.
F
orvitnilegt gæti orðið að
fylgjast með viðureign South-
ampton og Everton í ensku
úrvalsdeildinni í kvöld. Ekki
bara vegna þess að þar eigast við
tvö frambærileg félagslið heldur
ekki síður vegna þess að aðdáend-
ur heimaliðsins hyggjast mótmæla
hástöfum fyrir, meðan og eftir að
leik lýkur. Ástæðan er sú að ein-
um allra farsælasta þjálfara liðsins
var sagt fyrirvaralaust upp störfum
fyrir helgi.
Þjálfarar missa störf sín reglu-
lega og líklega vandfundin störf
með jafn litið starfsöryggi. En
störfin missa þeir oftast þar sem
árangur lætur á sér standa.
Það vilja aðdáendur South-
ampton ekki meina að hafi verið
raunin varðandi Nigel Adkins sem
rekinn var á föstudaginn var og
hafa ýmislegt fyrir sér í því. Þvert
á móti hafa ýmsir merkismenn
í boltanum lofað mjög hversu
merkilegur árangur þess þjálfara
hefur verið og tölfræðin sýnir að
hann er farsælasti þjálfarinn í sögu
liðsins.
Adkins tók við Southampton
á botninum í ensku annarri deild
og tók liðið á skemmsta mögulega
tíma þaðan og upp í ensku úrvals-
deildina. Þar átti Southampton
erfitt uppdráttar lengi vel en hefur
verið að ná sér nokkuð á strik og
gerði sér lítið fyrir í síðustu viku og
náði stigi á útivelli gegn Chelsea
svo dæmi sé tekið.
En Adkins fékk sparkið og í
hans stað kemur ungur Argentínu-
maður sem vart kann staf í ensku.
Mauricio Pocchettino er mörgum
kunnur sem knattspyrnumaður
lengi vel og um tíma landsliðs-
maður Argentínu. Hans kynni af
þjálfun einskorðast við að þjálfa
Espanyol á Spáni um hríð með
sæmilegum árangri en fékk hann
engu að síður sparkið þar á bæ.
Matt Le Tissier, mesta
knattspyrnugoðsögn South ampton,
sagði það hreint viðbjóðslegt að
koma svona fram við Adkins og ekki
síst þar sem nýi þjálfarinn sagð-
ist hafa kynnt sér leikmenn Sout-
hampton um nokkurra vikna skeið.
Þar með varð ljóst að þetta hefur
staðið til lengi þrátt fyrir almenna
ánægju með árangur liðsins.
Stuðningsmenn hafa lofað
að mótmæla á leiknum í kvöld
og sömuleiðis hyggjast margir
að dáendur ekki sækja leikinn.
Pressan er því töluverð á nýjan
þjálfara. n
Allt brjálað í Southampton
n Farsælasti þjálfari liðsins fékk sparkið
Leikmenn Southampton fagna marki Þrátt fyrir allbærilegan árangur var vinsæll
þjálfari liðsins látinn taka poka sinn.