Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2013, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2013, Blaðsíða 13
Helgarblað 1.–3. febrúar 2013 Fréttir 13 Ofbeldið sem aldrei er talað um „Nánast óbærileg þjáning“, er lýs­ ing sem notuð er um afleiðingar kynferðisofbeldis á karlmenn í rannsókn Sigrúnar Sigurðar­ dóttir, doktorsnema í Lýðheilsu­ vísindum við HÍ. Sigrún hefur rannsakað afleiðingar kynferðis­ ofbeldis á karlmenn en í samtali við RÚV hafði hún þetta að segja um málið: „Umræðan [um kyn­ ferðisbrot gegn körlum] er mörg­ um áratugum á eftir umræðunni um kynferðisbrot gegn stúlkum. Það er einhvern veginn einblínt á stelpur sem þolendur – það er eins og drengirnir hafi bara gleymst.“ Fordómar tryggðu þögn Samkvæmt nýjustu ársskýrslu Stígamóta, sem er fyrir árið 2011, voru einungis 11,5 prósent þeirra sem leituðu til samtakanna karl­ menn. Það þarf auðvitað ekki að endurspegla raunverulegan hluta brota og raunar eru vísbendingar um að karlmenn séu ekki eins gjarnir og konur á að leita til Stígamóta eða annarra hjálpar­ samtaka eftir að hafa orðið fyr­ ir kynferðisofbeldi. Sigrún nefn­ ir sérstaklega í rannsókn sinni að þrálát mýta eigi sinn þátt í þessari tölfræði. „Fordómar tryggðu þögn [fórnarlambanna] – mýtan um að drengir sem verða fyrir kyn­ ferðislegu ofbeldi til lengri tíma í æsku muni sjálfir misnota börn þegar þeir vaxa úr grasi lifir enn góðu lífi. Það er helsta ástæðan sem þeir nefndu fyrir þögn sinni og það síðasta sem þeir vilja er að verða brennimerktir á þann hátt,“ segir í skýrslu um rannsókn Sig­ ríðar, sem birt var í Scandinavian Journal of Caring Sciences. Ólíklegri til að kæra Einnig er sennilegt að drengir verði síður fyrir kynferðisof­ beldi, en víðfeðm rannsókn á 10.500 framhaldsskólanemum árið 2004 sýndi fram á að 2,4 pró­ sent drengja sögðust hafa verið neyddir til kynferðislegra athafna fyrir átján ára aldur, 2,8 prósent þeirra voru misnotaðir. Þetta að um 4.200 karlmenn hafa ver­ ið misnotaðir hér á landi, sé töl­ fræðin yfirfærð á nýjustu mann­ fjöldatölur. 32 karlmenn leituðu til Stígamóta árið 2011. Karlmenn eru einnig ólíklegir til þess að kæra nauðganir – önn­ ur erlend rannsókn sýndi fram á að einungis 10–33 prósent karla sem er nauðgað kæra brotið. Þá eru vísbendingar um að kynferð­ isofbeldi gegn drengjum sé enn kyrfilega falið í samfélaginu, í BA ritgerð Ásrúnar Evu Harðardótt­ ir við HR, frá árinu 2010, kemur þetta meðal annars fram: „Niður­ stöðurnar í heild sinni benda til þess að kynferðisofbeldi gegn drengjum sé falið. Það er því ljóst að þennan málaflokk þarf að taka til opinskárrar umræðu.“ Orsök þunglyndis Algengasta orsök þunglyndis hjá börnum er kynferðisleg mis­ notkun og það getur haft slæm­ ar afleiðingar að byrgja slíkt inni. Á meðal sálrænna afleiðinga slíks ofbeldis eru sjálfsvígshug­ leiðingar, reiði, gífurlega slæm sjálfsmynd – viðkomandi lítur á sjálfan sig sem verðlausan, tilf­ inningadoði og erfiðleikar við að mynda sambönd við fólk. simon@dv.is Lærði að þegja n Georg Viðar reyndi ítrekað að segja frá ofbeldinu n Viðurkenningin breytti öllu Leiðir til að lifa af Þegar málið kom upp árið 2007 þá var Breiðavíkurdrengjum boðið í tíu tíma sálfræðimeðferð sér að kostnaðarlausu. „Þetta var fimm­ tíu árum eftir skaðann. Ég veit ekki hvernig það á að vinna úr því. Bæði hugur manns og upplif­ un breytist á þessum tíma, mað­ ur mokar alltaf smávegis yfir för­ in. Eftir fimmtíu ár er ég farinn að geta talað um þetta án þess að fara að grenja en það komust ekki allir þangað. Fjöldinn allur af strákum sem hafa tekið sitt líf. Þegar maður lendir í þessu sem krakki og það á að fara að teyma þetta út úr manni þegar það er far­ ið að síga á seinni hálfleikinn þá reynir maður að komast sem auð­ veldast frá því. Maður þarf að lifa af og finnur allskonar leiðir til þess.“ Viðurkenningin breytti öllu Fyrir fjörutíu árum stofnaði Georg Viðar Samhjálp til þess að hjálpa öðrum sem áttu um sárt að binda. Hann hafði þá náð sér á strik en datt svo í það og hélt utan. Í Sví­ þjóð bjó hann í 25 ár áður en hann kom aftur heim. Hann starfar nú á áfangaheimilinu Krossgötum, hef­ ur verið án áfengis í 35 ár og segir að það sé „góð byrjun“. Það var honum mikils virði þegar samfélagið lagði loks við hlustir þegar Breiðavíkurdrengirn­ ir sögðu sögu sína og viðurkenndu raunir þeirra. „Það er svo týpískt fyrir þessa umræðu að það vissu allir að það væri eitthvað í gangi þarna en enginn sagði neitt. Ég er alveg hissa á að enginn skuli hafa gripið inn í því það hlýtur að vera til fólk sem er sæmilega greint og með samvisku. En það er eins og það sé alltaf erfitt að fara á móti straumnum og blanda sér í svona óþægindi. Þegar strákarnir lentu á Hraun­ inu í gamla daga þá jók það á virðingu þeirra á götunni en ef einhver sagði að hann hefði ver­ ið á Breiðavík þá mátti ekki að tala um það. Þessi staður var mjög illa rómaður og hafði það orðspor að vera pyntingarstaður sem barna­ verndarnefnd hefði til að taka svona hvolpa úr umferð. Ég lærði að þegja. Þegar enginn trúði mér þá lærði ég að halda kjafti og vinna úr þeim spilum sem mér voru gef­ in. Í gegnum tíðina hef ég sagt alls­ konar fólki frá þessu og það hefur nánast undantekningarlaust spurt hvort ég sé viss um að þetta hafi raunverulega verið svona slæmt. Það skipti öllu máli að fá þessa viðurkenningu. Það trúði mér enginn fram að því. Núna er viðhorfið að lagast. Börnum er trúað í dag og við erum ekki alveg jafn miklir sveitalúðar og við vor­ um. Engu að síður eru enn ein­ hvers staðar börn sem líður illa og kannski verst heima hjá sér. Það þarf meira en nokkrar blaða­ greinar til þess að breyta því, heilt þjóðfélag þarf að fá annan og heiðarlegri móral. Kærleikur sem sýndur er í verki dugar lengst og getur brætt hörðustu hjörtu. Það er ekki til neitt betra afl.“ n „Eftir fimmtíu ár er ég farinn að geta talað um þetta án þess að fara að grenja en það komust ekki allir þangað. Eiríkur Guðberg Þarf ekki vorkunn þar sem hann er á góðum stað í lífinu í dag. mynd siGtryGGur ari É g vildi verða frjáls. Ég var sak­ aður um morð og var búinn að sitja lengur í tilfinninga­ fangelsi heldur en morðingj­ ar sitja inni fyrir morð. Þetta segir Eiríkur Guðberg Guðmunds­ son um ástæðu þess að hann ákvað að stíga fram og segja sögu sína op­ inberlega. Óttaðist þennan stimpil Eiríkur er annar tveggja sem kærðu Gísla Hjartarson fyrir langvarandi og ítrekuð kynferðisbrot í desem­ ber 2005. Í janúar greindi DV frá ásökunum á hendur Gísla í forsíð­ ufrétt en hann svipti sig lífi sama dag. Samfélagið snerist gegn strák­ unum og þeir þurftu að sitja und­ ir svívirðingum og ásökunum um að vera morðingjar. Umræðan um kynferðisbrot Gísla þagnaði alveg en árið 2008 fengu strákarnir lang­ þráða viðurkenningu á ofbeldinu þegar þeim voru dæmdar hámarks­ bætur frá bótasjóði ríkisins. Engu að síður var það ekki fyrr en nú, sjö árum síðar, að þeir rufu þagnar­ múrinn og sögðu sögu sína í Kast­ ljósi. Ofbeldið hófst eftir fimmtán ára afmæli Eiríks. Þá hafði Gísli komið sér í mjúkinn hjá fjölskyldunni og byggt upp traust. Hann var líka far­ inn að gefa Eiríki gjafir. Það var ein aðferðin sem hann notaði, að gefa peninga og gjafir til að tryggja þögn. „Það gerði þetta vandræðalegra,“ segir Eiríkur. Hótanir voru önn­ ur aðferð. „Hann sagði að það gæti enginn snert hann því hann þekkti svo marga.“ Eiríkur er ekki viss um að þessar aðferðir hafi skipt sköpum varðandi þögnina. „Ég var svo heilaþveg­ inn þegar ég var að ganga í gegnum þetta. Að vera strákur sem lendir í þessu er tíu sinnum verra en að vera stelpa sem lendir í því sama. Af því að ég ber ekki hug til karla og óttað­ ist þennan stimpil. Ég held að það sé ein ástæðan fyrir því að strákar eru ekkert að ræða þetta.“ Fengið fjölda bréfa „Kynferðisofbeldi gegn strákum er mun algengara en fólk heldur,“ segir Eiríkur. „Eftir að ég kom fram í Kast­ ljósi hef ég fengið fjölda skilaboða frá fólki sem hefur lent í þessu, aðal­ lega strákum. Sumir hafa aldrei sagt frá þessu áður en treysta mér fyrir sögu sinni. Það er sjúklega mikið af fólki sem hefur lent í þessu.“ Foreldrum sínum hefði hann ekki getað sagt frá þessu. Ekki fyrr en hann gat ekki setið lengur á sér vegna ótta um afdrif bróður síns. „Ég var á viðkvæmum aldri og vissi ekki einu sinni hvar ég ætti að byrja, hvað ég ætti að segja. Þetta var svo alvarlegt af því að hann var ekki að brjóta á okkur í eitt skipti held­ ur hélt hann okkur í heljargreipum, jafnvel í áraraðir.“ Verst þótti honum þó að fá engan stuðning þegar hann sagði fyrst frá ofbeldinu. „Það var ekkert gert. Þessu fylgdi svo mikil skömm að það átti að þagga allt niður. Ég hefði orðið allt annar maður ef ég hefði komið fram núna en ekki fyrir sjö árum síðan. Viðhorfið hefur sem betur fer breyst.“ Forvarnir og fræðsla Núna er tíminn til að gera eitthvað. „Við þurfum að tala um þetta og taka kynferðisofbeldi alvarlega sem samfélagsmeini. Það þarf að halda umfjölluninni áfram. Það þarf líka að fara í skóla og fræða börn um of­ beldi og úrræði gegn því. Við erum alltaf með forvarnir gegn vímu­ efnaneyslu en það talar enginn um þetta. Það þarf að breyta því. Draumurinn er sá að það verði til einhvers konar úrræði fyrir stráka svo hverjum þeirra líði ekki eins og hann sé eini maðurinn sem hefur orðinn fyrir kynferðisofbeldi. Það þarf enginn að tala við mig eins og hann vorkenni mér, ég þarf enga vorkunn. Það eru sjö ár síðan ég sagði fyrst frá þessu og er búinn að vinna vel úr mínum málum. Ég er kominn á stað þar sem mér finnst þægilegt að lifa lífinu og í raun hef­ ur mér ekki liðið betur síðan ég var fimmtán ára. Enda ákvað ég að segja frá þessu núna til að sýna ég skammast mín ekkert.“ n n Sagði sögu sína til þess að öðlast frelsi Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is „Ég hefði orðið allt annar maður ef ég hefði komið fram núna en ekki fyrir sjö árum síð- an. Viðhorfið hefur sem betur fer breyst. Goðsagnir um kynferðisofbeldi n Karlmenn sem verða fyrir kyn- ferðisofbeldi í æsku eru gjarnari til þess að verða kynferðisbrotamenn sjálfir. Þessi þráláta mýta á sinn þátt í því að drengir eru tregari til að segja frá misnotk- uninni. Rannsóknir hafa sýnt fram á að þótt flestir kynferðisbrotamenn hafi verið misnotaðir í æsku, þá sé það ekki rétt að flestir þeirra sem hafi verið misnotaðir í æsku verði kynferðisbrotamenn. Lítill hluti fórnarlambanna verður að kynferðis- brotamönnum á fullorðinsárunum, og það er oftast ekki raunin fái viðkomandi hjálp í æsku. Meðal veigamikilla þátta í þessu samhengi er að barninu sé trúað af nánustu ástvinum og það stutt af þeim. n Fórnarlamb kynferðisbrota berst á móti eða segir skýrum orðum „nei“. Rannsóknir hafa sýnt fram á að fórnarlömb kynferðisbrota streitast ekki alltaf á móti glæpnum, og raunar sjaldan. Þórdís Elva Þorvaldsóttir fjallar um eina mýtu í bókinni Ofbeldi á Íslandi, en í henni kemur fram að 88 prósent barna streitist ekki á móti ofbeldismanninum samkvæmt tölfræði frá Samtökum um eflingu atferlismeðferðar. Þetta er fyrirbæri sem nefnist áfallastjarfi. Það er algengt í dýraríkinu og er einnig þekkt viðbragð við hættu hjá mannskepn- unni. Þegar það gerist frýs viðkomandi; verður stjarfur og kyrr, en streitist ekki á móti líkt og almennt er talið. Fórnarlambið fer oft ekki að streitast á móti fyrr en líkam- legt ofbeldi hefur átt sér stað. n Drengir sem eru misnotaðir verða samkynhneigðir. Þetta hljómar kannski líkt og helber vitleysa, en þetta er spurning sem drengir spyrja sig að: „Er ég nú samkynhneigður fyrst ég var misnotaður af karlmanni?“ Þetta getur haft áhrif á það hvort sagt sé frá misnotkuninni, sérstaklega í homma- fælnum samfélögum. „Börn, á aldrinum 8–10 ára, spyrja oft að þessu í sálfræðivið- tölum, og drengir á táningsaldri velja oft að þjást í þögn vegna þessa ótta: „Munu vinir mínir telja mig samkynhneigðan ef ég segi frá þessu?“ Skrifar sálfræðingurinn Karyl McBride um málið. Það sem getur sérstak- lega valdið þessum ranghugmyndum er sú staðreynd að karlmenn geta örvast kyn- ferðislega með líkamlegri snertingu einni saman – þótt viðkomandi sé nauðgað. „Snertingar geta valdið líkamlegri ánægju hjá bæði drengjum og stúlkum og það get- ur valdið miklum ruglingi: „Vildi ég þetta?“ spyrja þau sig,“ skrifar McBride. „Ég skammast mín ekkert“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.