Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2013, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2013, Blaðsíða 15
Helgarblað 1.–3. febrúar 2013 Fréttir 15 n Þögnin braut niður sjálfstraust og sjálfsvirðingu n Upplifði sigurtilfinningu E inar Gunnar Guðmundsson var einn af pikkoló-strákunum á Hótel Sögu þegar Karl Vignir Þorsteinsson var að vinna þar og vissi vel hvernig hann var, enda lenti hann líka í honum. Einar Gunnar var þá tólf ára gamall. Altalað í vinahópnum „Þetta með Kalla og strákana var vel þekkt á Hótel Sögu. Eldri starfsmenn sögðu okkur það undir rós en óharðn- aðir einstaklingar þurfa bein skila- boð. Við strákarnir töluðum opin- skátt um þetta káf hans, blótuðum því og hristum hausinn yfir þessu rugli. Ég get nafngreint upp undir fimmtán einstaklinga sem unnu með mér og lentu í honum.“ Einar Gunnar var á þessum árum hluti af stærri vinahópi. Innan hópsins voru tveir sem störfuðu sem pikkoló- strákar á Hótel Sögu á þessum tíma. Þeir þögðu aldrei yfir því sem var í gangi þar þannig að það vissu það all- ir í hópnum. „Mjög stór hópur í hverf- inu vissi hvernig Karl Vignir var. Ég var aldrei viðkvæmur fyrir því, ég var bara starfsmaður þarna og það var perri á staðnum. Það hjálpaði mér að takast á við þetta. Ef þetta hefði verið eitthvað „höss höss“ þá hefði ég mögulega bor- ið þetta meira inni í mér og liðið illa. En ég var hluti af stórum og sterkum vinahópi sem stóð saman. Ég deildi öllu með vinunum og þar voru málin leyst að mörgu leyti.“ Treysti á þögnina Foreldrar Einars Gunnars fengu þó aldrei að heyra af þessu; ekki fyrr en nú. „Ég sagði aldrei frá þessu heima. Kannski af því að ég hef aldrei borið sár á sálinni vegna þess sem hann gerði. Ég valdi auðvitað úr því sem ég ræddi við foreldra mína, ég ræddi margt við þá, en ekki allt. Sumt kaus ég að takast á við með vinum mínum og það var ómetanlegt að geta gert það. Ég vissi samt að ég gæti alltaf leitað til foreldra minna og hugsa að ég hefði sagt þeim frá því ef þetta hefði verið alvarlegra. Mér fannst þetta ekki snerta þá af því að ég tók þetta ekki inn á mig, þannig séð. Þetta var óþægilegt en lagðist ekki á sálina á mér. Ég vissi alltaf að þetta hafði ekkert með mig að gera. En það er merkilegt að hugsa til þess að Karl Vignir reyndi aldrei að beita okkur brögðum til þess að þagga nið- ur í okkur eða tryggja það að við segð- um ekki frá. Ætli hann hafi ekki treyst á skömmina og þögnina, að við mynd- um þagga þetta í hel.“ Kunnáttan var engin Þegar hann lítur til baka útilokar Einar Gunnar ekki að með því að þegja um þetta gagnvart foreldrum sínum hafi hann verið að verja þau fyrir áhyggj- um. „Mögulega var það ástæðan. Þessi mál voru heldur aldrei rædd í samfé- laginu. Það hvernig Karl Vignir sigldi í gegnum kerfið einkennir þetta úr- ræðaleysi. Mögulega fylgdi því skömm að viður- kenna að einstaklingurinn hafi starfað inni í umhverfinu í svo og svo mörg ár án þess að nokkur hafi aðhafst í mál- inu. Þá þótti kannski skárra að sópa vandamálinu undir teppið og þá var málið frá, fluttist á milli staða, því mið- ur. Þetta var bara svona. Umræðan var ekki til staðar, kunnáttan var engin og úrræðin ekki heldur. Það er ekki fyrr en núna nýlega sem það var fyrst farið að tala um kynferð- isofbeldi gagnvart strákum. Fram til þessa hefur umræðan verið að opnast varðandi kynferðisofbeldi gegn stelp- um en strákarnir hafa orðið eftir. Það er hins vegar sláandi að sjá hvað þetta er algengt og þess vegna verðum við að tala um þetta.“ „Skömmin er ekki okkar“ „Því fleiri sem koma fram og segja sína sögu gerir það að verkum að fólk verður meðvitaðra um umhverfi sitt. Þess vegna er ég að þessu.“ Þegar Kastljósið greindi frá kyn- ferðisbrotum Karl Vignis nú í byrjun árs kom félagi Einars Gunnars fram og sagði frá reynslu sinni af Karli Vigni. Í kjölfarið hafði Einar Gunnar samband við Kastljósið til þess að staðfesta allt sem félagi hans hafði sagt og segja frá vaktinni þar sem Karl Vignir var gó- maður. En það var ekki eina ástæð- an fyrir því að Einar Gunnar ákvað að stíga fram. Hann vildi líka leggja lóð sitt á vogarskálarnar og hjálpa öðrum sem enn þjást í þögninni. „Mér finnst mjög mikilvægt að menn stígi fram því skömmin er ekki okkar, þolendanna, engan veginn. Ég hef aldrei litið á mig sem fórnarlamb. Ef það að fleiri koma fram og ræða málin opinskátt verður til þess að bjarga þó ekki nema einni sál þá er tilganginum náð. Við höfum séð hvílík ormagryfja þetta er og hvernig umfjöllunin hefur opnað á umræðuna í samfélaginu. En það er mikilvægt að umræðan eigi sér stað með yfirveguðum hætti, dómstóll götunnar fari ekki af stað og umræðan sé heiðarleg í alla staði.“ Umræða án upphrópana Einar Gunnar bendir á að barnaníð- ingar séu veikir menn sem þurfi hjálp. „Þetta er veikleiki, ákveðið stjórnleysi. Það þarf enginn að segja mér að þess- um mönnum líði vel með sjálfa sig. Einhverjir eru kannski meðvitaðir um eigin veikleika en ná ekki að gera neitt í því. Úrræðaleysið er líka algjört þar. Ef við ætlum að takast á við þetta þá þurf- um við að hafa úrræðin til þess.“ Hann segir að þöggun hjálpi eng- um og hatursfull umræða ekki held- ur. „Því þá er umhverfið farið að segja börnum að pabbi þeirra, stjúppabbi, afi þeirra eða frændi verði brenni- merktur fyrir lífstíð og það er ekki hægt að setja þessa ábyrgð á börn. Umræð- an þarf að vera yfirveguð, án upp- hrópana og niðurrifs. Ég held að það verði alltaf jafn erfitt fyrir börn að segja frá svona hlutum, og því nær sem þetta stendur fjöl- skyldunni því erfiðara verður það, en foreldrar eru í það minnsta upplýst- ari í dag en áður og úrræðin eru fleiri. Vonandi verður umræða síðustu vikna til þess að fleiri börn treysti sér betur til þess að segja frá atburðum sem þau kunna að hafa lent í.“ n Vinirnir tókust á við ofbeldið n „Þetta var okkar veruleiki“ n Yfirveguð umræða hjálpar þeim sem þjást Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is „Mér finnst mjög mikilvægt að menn stígi fram því skömmin er ekki okkar, þolendanna, engan veginn. Ég hef aldrei litið á mig sem fórnarlamb. Kynferðisofbeldi gegn drengjum n Árið 2002 sendi Hrefna Ólafsdóttir félagsráðgjafi spurningalista til 1.500 manna úrtaks á aldrinum 18–60 ára. Helmingurinn svaraði og niðurstaðan samsvaraði því að fimmta hver stúlka á Íslandi hefði orðið fyrir kynferðisofbeldi fyrir 18 ára aldur og tíundi hver drengur. n Samkvæmt nýjustu rannsóknum eiga tæplega 2,8 prósent drengja undir átján ára aldri hættu á að verða fyrir kynferðisofbeldi. Einar Gunnar Vissi alltaf að ofbeldið væri ekki honum að kenna. Hann var bara óheppinn að kynnast manni með þessar kenndir. mynd Eyþór Bílaverkstæði Varahlutaverslun Smurstöð Dekkjaverkstæði Bremsur, spindilkúlur, stýrisendar, o.fl., o.fl. Allar gerðir bætiefna fyrir vél, drif og gírkassa www.bilaattan.is Allt á einum stað

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.