Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2013, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2013, Blaðsíða 45
Súrmeti, rauðvín og veðbanki 44 Fólk K atrín Jakobsdóttir fagnar 37 ára afmæli sínu í dag, föstu- daginn 1. febrúar og segist færast nær langþráðu fertugs- afmæli sínu. „Aldurinn leggst mjög vel í mig – minnir að ég sé að verða 37 ára þannig að ég færist nær lang- þráðu fertugsafmæli sem ég hlakka mjög til. Ég ætla að mæta í vinnuna í tilefni dagsins og vera þar eitthvað frameftir en síðan er ætlunin að eyða kvöldinu í faðmi fjölskyldunn- ar – þriggja sona og eins eiginmanns. Svo er ég að gera átak í að hitta vini mína og fjölskyldu dagana í kringum afmælisdaginn, aðallega af því að það er svo gefandi að hitta gott fólk og það hefur maður mikla þörf fyrir þegar aldurinn færist yfir! Katrín fæddist í Reykjavík 1.2. 1976 og ólst þar upp. Hún lauk stúdentsprófi frá MS 1996, BA-prófi í íslensku frá HÍ með frönsku sem aukagrein 1999 og MA-prófi í ís- lenskum bókmenntun 2004. Fjölskylda Katrínar Maður Katrínar er Gunnar Örn Sig- valdason, f. 13.3. 1978, framhalds- nemi í heimspeki. Hann er sonur Sigvalda Ingimundarsonar og konu hans Sigurrósar Gunnarsdóttur. Synir Katrínar og Gunnars eru Jakob Gunnarsson, f. 3.12. 2005; Illugi Gunnarsson, f. 31.12. 2007 og Ármann Áki Gunnarsson f. 10.6. 2011. É g ætla að vera með smá teiti í tilefni dagsins,“ segir Inga Birna Kristinsdóttir í Reykjanesbæ sem heldur upp á fertugsaf- mælið sitt í dag, föstudag. Inga Birna ætlar að vera með veislu handa vinum og fjölskyldu. Hún viðurkennir að hafa gaman af því að halda upp á tímamót eins og afmæli. „Ég er mikið afmælisbarn og held sérstaklega upp á daginn þegar um stórafmæli er að ræða,“ segir hún og bætir við að á gesta- listanum sé um 60 manns. Aðspurð segist hún ekki ætla út á lífið eftir partíið. „Nei, ætli við verðum ekki bara heima og höfum það gaman. Ég er frekar heimakær og kýs frekar að vera í heimahúsi.“ Inga Birna, sem er heimavinn- andi húsmóðir á þrjú börn og eig- inmann. Hún segist ekki hræðast hækkandi aldur enda fái ekki allir að upplifa fertugsafmælið sitt. „Mér finnst þetta bara frábært. Það eru forréttindi að komast á fimmtugs- aldurinn,“ segir hún og bætir að- spurð við að það sé ekkert sérstakt á óskagjafalistanum. „Bara að vera með vinum og hafa það gaman.“ Hlakkar til fer- tugsafmælisins Heimakært afmælisbarn Katrín Jakobsdóttir ráðherra 37 ára 1. febrúar Inga Birna er fertug föstudaginn 1. febrúar Fólk 45Helgarblað 1.–3. febrúar 2013 Tobba Marinósdóttir Gúmmelaði og gott rauðvín É g ætla að horfa á keppnina í góðum hópi. Er að vinna í partí-undirbún- ingi. Uppskriftin er einföld; bestu vinir, ostar og allskonar gúmmelaði og gott rauðvín.“ „Við höfum ekki verið með leiki hingað til,“ segir Tobba aðspurð. „en í ár ætla ég að leggja til að all- ir veðji rauðvínsflösku á það lag sem viðkomandi heldur að vinni. Sá sem veðjar rétt fær allar flösk- urnar. Ef enginn vinnur verðum við bara að drekka þær!“ Ég er fjarri góðu gamni þetta árið – verð í Köben og Herning að versla inn fyrir Púkó og Smart. En ætli ég reyni ekki að ná í hús áður en þetta byrjar og horfi á netinu í hópi danskra og íslenskra vina og þá er ekki spurning að það verður poppað og pressaður smá greipsafi í glas,“ segir söngfuglinn og kaupkon- an Hera Björk þegar hún var spurð hvort hún ætli sér að horfa á keppn- ina á laugardag. Grétar Örvarsson Súrmeti og skotsilfur Hera Björk Fjarri góðu gamni Einar Bárðarson Fylgist með í Hörpu Ég hef alltaf haft gaman af Eurovision bæði forkeppnunum, aðalkeppnum og öllu heila galleríinu. Þetta er náttúru-lega allt meira og minna einhverjir vinir manns og kunn- ingjar sem eru að semja og flytja þannig að þetta er margþætt hjá manni. Nú er svo komið að dóttir okkar, sem er á sjöunda aldursári, er komin með júró-æðið. Það er voðalega gaman að fylgjast með henni uppgötva Birgittu, Magna og Klöru og fullt af keppendum sem maður var að vinna með í gamla daga,“ segir Einar Bárðarson um áhuga sinn á söngvakeppni sjón- varpsstöðvanna, en hann er reynslubolti í heimi tónlistar og skemmtibransanum eins og flestum er kunnugt um. „Við fylgdumst af áhuga með forvalinu um síðustu helgi og svo ætlum við að vera í Hörpu á laugardagskvöldið og taka þetta bara alla leið. Ég myndi segja að það væri alveg hið full- komna Eurovision-kvöld. En auðvitað er líka gaman að fylgj- ast með heima í góðra vina hópi,“ segir Einar aðspurður um hið fullkomna Eurovision-kvöld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.