Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2013, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2013, Blaðsíða 6
6 Fréttir 6. febrúar 2013 Miðvikudagur É g er ekki með vinnu og ég fæ ekki borgaðan neinn upp­ sagnarfrest. Auðvitað er þetta áfall,“ segir einn af þeim ell­ efu skipverjum sem sagt var upp störfum hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum um helgina. Lyfja­ próf voru tekin af áhöfnum þriggja skuttogara fyrirtækisins og þeim sem stóðust ekki prófin var sagt upp störfum fyrirvaralaust. Maðurinn var einn þeirra. Tveir smókar á gamlárskvöld „Ég er búinn að vera starfsmaður Vinnslustöðvarinnar í tvö ár og var á togara þar. Prófið var tekið um borð með engum fyrirvara en við vorum búnir að skrifa undir ákveðið plagg um að við værum tilbúnir að heim­ ila þessi próf,“ segir maðurinn. Hans próf reyndist jákvætt en lítið magn kannabiss mældist í þvagi hans. Það segir hann vera vegna þess að hann hafi tekið tvo smóka af kanna­ bis á gamlárskvöld. Hann sé ekki í neyslu og sé miður sín vegna máls­ ins. Hann er faðir og fyrirvinna fjöl­ skyldunnar og segir hann þessa tvo smóka, utan vinnutíma, því hafa verið honum ansi dýrkeyptir. Nú standi hann uppi atvinnulaus, fái engan uppsagnarfrest borgaðan og viti ekki hvernig það muni ganga að fá vinnu aftur með þessa uppsögn á bakinu. Vísað í burtu Aðdragandanum lýsir hann á þenn­ an hátt: „Þetta fór þannig fram að við erum kallaðir saman í borðsal og okk­ ur greint frá því að það eigi að fara að gera próf á eiturlyfjum sem er í sex liðum. Það er þvagprufa sem á að taka og þegar við erum búnir að láta þvag frá okkur þá koma niðurstöður úr því prófi sem við erum beðnir um að skrifa undir, hvort sem það mælist jákvætt eða neikvætt. Í mínu tilviki þá mælist ég mjög lágt á skalanum í kannabisliðnum. Í framhaldi af því erum við kallaðir á fund uppi á skrif­ stofu um kvöldið hjá útgerðarstjóra og skipstjóra og þar erum við látnir skrifa undir plagg þar sem við göngumst við broti okkar,“ segir maðurinn. Í kjölfar­ ið var þeim vísað í burtu. Hafði í engin hús að venda „Okkur var vísað frá skipinu klukk­ an 10 um kvöldið. Ég er ekki úr Vest­ mannaeyjum þannig að ég var bara grandalaus þarna á bryggjunni þang­ að til klukkan hálf átta um morgun­ inn þegar ég gat tekið Herjólf. Ég hef í engin hús að venda í Vestmannaeyj­ um. Ég er ekki þaðan og Vinnslustöð­ in bauð mér ekki upp á eitt né neitt þar sem ég gæti hallað mínu höfði þangað til ég færi,“ segir maðurinn sem er miður sín vegna uppsagnar­ innar. „Ég er ekki í neyslu. Mér varð á þarna um áramótin og viðurkenndi það bæði fyrir útgerðinni og mín­ um skipstjóra að ég hafi reykt undir áhrifum áfengis á gamlárskvöld. Ég reyki tvisvar af einhverri jónu og það mælist í mér fimm vikum seinna.“ Ekki orðið vitni að neyslu Maðurinn segist aldrei hafa orðið vitni að því að menn séu undir áhrif­ um um borð. „Í þessu litla samfélagi, eins og er um borð í togurum, þá hef ég aldrei séð neina neyslu um borð eða annað slíkt. Menn hafa eins og ég hef gert alla tíð, alltaf mætt allsgáð­ ir um borð. Ég er búinn að vera sjó­ maður í 20 ár,“ segir maðurinn sem hafði verið á þessum togara í tvö ár. Veit ekki hvað tekur við Hann segist óviss um það hvað taki við. Hann hefur því skráð sig á at­ vinnuleysisbætur en veit ekki hvað gerist ef hann sækir um aðra vinnu. „Það er farið með málið sem trúnaðarmál innan fyrirtækisins. Ég veit ekki hvort þetta muni hamla mér þegar ég fer að sækja um vinnu annars staðar en þeir segja að þetta sé innan fyrirtækisins en ég get ekki reiknað mér það til tekna því það er ekki hægt að gefa nánari útskýringar á því hvers vegna þú varst rekinn. Al­ veg sama hversu góður þú ert í þínu starfi. Ég veit heldur ekki hvort skip­ stjórinn minn geti gefið mér með­ mæli eða ekki.“ n Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is „Ég reyki tvisvar af einhverri jónu og það mælist í mér fimm vikum seinna. Þ að er ekkert sem bendir til þess að það sé nokkuð athugavert við þessa fram­ kvæmd. Mönnum var kynnt þetta og þeir skrifuðu undir við­ auka við ráðningarsamning þar sem kynnt var hvernig þessi próf yrðu framkvæmd og hvaða afleiðingar það hefði ef þeir mældust jákvæðir,“ segir Valmundur Valmundsson, for­ maður Sjómannafélagsins Jötuns, um félagsmenn hans sem misstu vinnuna eftir fíkniefnaprófin um helgina. Hann segir útgerðarfélagið hafa verið í fullum rétti til að framkvæma prófin meðal annars með heimild Persónuverndar. Aðspurður hvort einhverjir sjómannanna ætli ekki að sætta sig við niðurstöðuna og fara með málið lengra segir Valmundur: „Ég veit nú bara um einn sem neitaði að skrifa undir að hann hefði neytt þessara efna. Allir hinir viður­ kenndu að hafa neytt þessa.“ Aðspurður hvernig staðan sé í Vestmannaeyjum hvað varðar at­ vinnulausa sjómenn til að fylla plássin sem losnuðu á þremur skip­ um Vinnslustöðvarinnar segir Val­ mundur að ekki sé mikið af þeim. „Það er ekki mikið um atvinnu­ lausa sjómenn í Vestmannaeyjum en að vísu einhverjir, það eru margir sem eru lausráðnir og vertíðar­ stemming hjá öðrum, þannig að það eru einhverjir lausir þar, bæði hjá Vinnslustöðinni og öðrum.“ En eiga sjómenn sem missa skipspláss sín með þessum hætti aftur kvæmt á sjó? „Já, ég myndi nú halda það ef þeir taka sig á. Allavega myndi mað­ ur ætla það að menn eigi von á því að vera ráðnir til baka. En menn náttúrulega missa sitt fasta pláss og verða þá að byrja aftur sem lausa­ menn eftir einhvern X tíma sem ég geri mér ekki grein fyrir hver er.“ Þess ber að geta að útgerðar­ félagið hefur einnig heimild til að láta menn blása í áfengismæli ef ástæða er til, að sögn Valmundar, sem sé inn­ ifalið í þessu samkomulagi. „Það er ekkert gamanmál að fara með menn fulla eða undir áhrifum annarra efna á sjó.“ DV bar málið einnig undir Jónas Garðarsson, framkvæmdastjóra Sjó­ mannafélags Íslands, sem segir að einhverjir sem misstu vinnuna hjá Vinnslustöðinni hafi leitað álits hjá félaginu á mánudag. „Þeir voru nú ekki félagsmenn hjá okkur en þeir leituðu álits okkar,“ segir Jónas í samtali við DV. Hann vildi ekki tjá sig frekar um málið að öðru leyti en því að segja: „Gagnvart persónuvernd mannanna þá finnst mér það nú ganga dálítið langt.“ n mikael@dv.is n Ekkert athugavert við framkvæmdina segir formaður Sjómannafélagsins Jötuns Einn neitar að hafa neytt fíkniefna n Ellefu fengu fyrirvaralausa uppsögn í kjölfar jákvæðs fíkniefnaprófs „AuðvitAð er þettA áfAll“ Vestmannaeyjar Sjómenn Vinnslu- stöðvarinnar voru teknir í fíkniefnapróf og þeir sem féllu misstu vinnuna í kjölfarið. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Bréfið Hér er uppsagnarbréfið sem manninum, ásamt hinum tíu skipverjunum, var afhent. Samningi þeirra við Vinnslustöðina var rift fyrirvaralaust. Píratar fara í hart: Krefja SMÁÍS um afsök- unarbeiðni „Með þessu ýjar SMÁÍS að því að stjórnmálaflokkurinn Píratar þiggi fjárhagslegan stuðning frá internetrisanum Google,“ segir Birgitta Jónsdóttir, alþingiskona og einn forsvarsmanna Pírataflokks­ ins. Tilefnið er orðaskipti pírata og SMÁÍS, Samtaka myndréttahafa á Íslandi, á Facebook­síðu síðar­ nefndu samtakanna. Snarpar og líflegar umræður höfðu orðið á Facebook­síðu SMÁÍS á sunnudag en samtökin opnuðu síðuna á föstudaginn. Á mánudag, aðeins fjórum dög­ um síðar, neyddust forsvarsmenn samtakanna til að loka henni. Ummælin í umræðunni sem fóru hins vegar fyrir brjóstið á pírötum voru þau að gefið var í skyn, að þeirra mati, að þau væru að brjóta gegn lögum um fjármál stjórnmálasamtaka. Í tilkynningu frá Pírötum er vitnað í SMÁÍS: „Google er einn helsti bakhjarl flokka sem vilja vera „sjóræningjar“ (sem mætti kannski bara stytta í bara ræningj­ ar). Er það ekki pínu kaldhæðni?“ „Lögum samkvæmt er stjórn­ málasamtökum óheimilt að þiggja fjárstuðning frá erlendum aðilum. Við teljum þetta vera ærumeið­ andi þar sem þetta á ekki við nein rök að styðjast og við bíðum eftir formlegri afsökunarbeiðni frá SMÁÍS,“ segir Birgitta í tilkynningu frá stjórnmálasamtökunum. Píratar telja að vegið sé að heiðarleika flokksins með því að tengja hann ranglega við ólöglegt athæfi. „Grunnstefna Pírata leggur áherslu á heiðarleika og gagnsæi. Eitt aðalbaráttumál Pírata er auk­ ið aðgengi að upplýsingum, þar með talið upplýsingum varðandi fjármál stjórnmálaflokka. Þessa stefnu vona Píratar að allir stjórn­ málaflokkar á Íslandi tileinki sér.“ Píratar vilja vilja einnig nota tækifærið og taka fram að þeir tengjast ekki á nokkurn hátt „sjó­ ránum né Landssambandi ís­ lenskra útvegsmanna“ enda kenni Píratar sig við gríska orðið „peiran“ sem þýðir víst að ráðast gegn eða leggja til atlögu. „Pírat­ ar ráðast gegn rotnu kerfi og úr­ eldum gildum í baráttu sinni fyrir betra samfélagi.“ Þjófur réðst á húsráðanda Brotist var inn í íbúðarhúsnæði í Kópavogi laust fyrir klukkan fjögur aðfaranótt þriðjudags. Ráðist var á húsráðanda og tölvu og sjónvarpi stolið af heimili hans. Tveir menn voru handteknir skömmu síðar og vistaðir í fanga­ geymslu vegna rannsóknar máls­ ins. Seinnipartinn á mánudag var einnig tilkynnt um annað innbrot, í miðbæ Reykjavíkur, þar sem farið var inn um glugga og stolið tölvu auk annarra verðmæta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.