Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2013, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2013, Blaðsíða 8
8 Fréttir 6. febrúar 2013 Miðvikudagur S kattrannsóknarstjóri hefur enn ekki lokið rannsókn á meintum skattalagabrotum Jens Kjartanssonar lýta- læknis. Málið hefur verið til rannsóknar í tólf mánuði en fyrst var greint frá rannsókninni í febrúar í fyrra. Skattrannsóknarstjóri rann- sakar hvort Jens hafi þegið greiðslur undir borðið vegna brjóstaaðgerða sem hann framkvæmdi á einkastofu sinni um nokkurt skeið. Ekki liggur fyrir hversu háar upphæðir grunur leikur á að hafi verið vantaldar. Sjálf- ur hefur Jens ávallt neitað sök í mál- inu og þvertekið fyrir að hafa svikið undan skatti. Angi af PIP-málinu Málið er einn angi PIP-brjóstapúða- málsins svokallaða sem kom upp árið 2011 þegar í ljós kom að gall- aðir brjóstapúðar sem innhéldu iðnaðarsilíkon höfðu verið grædd- ir í fjölda kvenna. Jens var sá lækn- ir sem framkvæmt hafði flestar aðgerðanna en hann var einnig sá sem flutti inn þessa gölluðu brjóstapúða. Um fjögur hundruð konur fengu púðana grædda í sig en margar þeirra reyndust vera með ónýta brjóstapúða þegar það var kannað í kjölfar þess að upp komst um vörusvikin. DV greindi frá því 13. janúar árið 2012 að grunur léki á að Jens hefði fengið viðskiptavini sína til að greiða fyrir brjóstaaðgerðir í reiðufé gegn því að fá afslátt. Í við- tali við Kastljós síðar í mánuðinum þvertók hann hins vegar fyrir að hafa þegið greiðslur undir borðið. Í viðtalinu sagðist hann hafa fengið greitt með ýmsum hætti fyr- ir aðgerðirnar, líka í reiðufé. „En allar þessar konur fengu kvittun og ég veitti aldrei neinn afslátt,“ sagði hann. Í skoðun hjá ráðuneytinu Velferðarráðuneytið hafði PIP- málið til umfjöllunar þegar grun- ur kom upp um að ekki hefðu all- ar greiðslur fyrir ígræðslur verið gefnar upp til skatts. Rannsókn skattrannsóknarstjóra á meint- um brotum Jens eiga sér því í raun rætur að rekja til skoðunar ráðu- neytisins. Vegna orðrómsins um greiðslur undir borðið og frétta af málinu ákvað ráðuneytið að senda fjármálaráðuneytinu erindi til að meta hvort málið yrði rannsakað sérstaklega. Það fór svo áfram til embættis skattrannsóknarstjóra. Rannsóknin langt komin Þrátt fyrir langan rannsóknartíma virðist málið þokast eitthvað áfram þó að DV hafi ekki upplýsingar um hvenær gert er ráð fyrir að því ljúki. Í svari sem Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri sendi við skriflegri fyrirspurn DV um mál- ið sagði hún að málið væri enn til rannsóknar. „Hún er langt komin,“ sagði hún svo aðspurð um hvernig rannsóknin stæði. Eftir að brjóstapúðamálið sjálft komst í hámæli tók Jens sér veik- indaleyfi frá störfum, eða í jan- úar árið 2012. Hann er þó löngu snúinn aftur til starfa en greint var frá því í fréttum Stöðvar 2 í nóvem- ber síðastliðnum. Jens gegnir stöðu yfirlæknis lýtalækninga á skurðlækningasviði Landspítalans og meðfram þeim störfum er hann með í einkarekna stofu á Domus Medica. Ekki náðist í Jens við vinnslu fréttarinnar. n Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is n Varðar meint skattalagabrot n Rannsóknin er sögð langt komin Árslangri rannsókn Á Jens ekki enn lokið Löng rannsókn Rannsókn skattrann- sóknarstjóra hefur tekið um tólf mánuði. Hún er langt komin, samkvæmt svari við fyrirspurn DV. Mynd MoRgunbLAðIð/ÞÖK Olli árekstri en stakk af Lögreglunni á Suðurnesjum barst á sunnudag tilkynning frá manni sem kvaðst hafa lent í árekstri. Maðurinn sagði að ök- umaður hinnar bifreiðarinnar hefði stungið af frá vettvangi. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að grunur hafi beinst að rúmlega tvítugum manni. Þegar lögreglan hafði samband við hann neitaði hann að hafa ekið bifreiðinni og í kjölfarið gaf far- þegi í bifreið hans sig fram við lögreglu. Kvaðst hann hafa ekið bílnum og misst stjórn á hon- um þegar óhappið varð. Við það hefði hann reiðst mjög, kýlt í tvær hliðarrúður bifreiðarinnar og brotið þær. Kvartaði ökumað- urinn undan miklum verkjum í handlegg og var hann fluttur til skoðunar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Fleiri rúður brotnar Það voru ekki bara reiðir öku- menn sem brutu bílrúður á Suðurnesjum um helgina. Í til- kynningu frá lögreglu kemur fram að bjórflösku hafi verið kastað í gegnum hliðarrúðu bifreiðar í Reykjanesbæ um helgina. Þá voru tvær rúður brotnar í annarri bifreið, einnig í Reykjanesbæ. Lögregla hefur ekki upplýsingar um hver eða hverjir voru þar að verki en bæði málin voru tilkynnt til lög- reglu. Loks bakkaði ökumaður á bifreið sem stóð við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Ökumaðurinn lét sig síðan hverfa af vettvangi. Málin eru í rannsókn hjá lög- reglu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.