Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2013, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2013, Blaðsíða 12
12 Erlent 6. febrúar 2013 Miðvikudagur Nýttu kennitölur látinna barna n Lundúnalögreglan notaði þær til að útbúa skilríki handa flugumönnum lögreglunnar S tærsta deildin innan bresku lögreglunnar, Lundúnalög­ reglan (e. Metropolitan Police) nýtti kennitölur um það bil áttatíu látinna barna til að útbúa persónuskilríki handa flugumönnum lögreglunnar. Gu­ ardian greinir frá þessu en blað­ ið hefur farið í ítarlega rannsókn á störfum lögreglunnar. Í umfjöllun blaðsins kemur fram að Lundúna­ lögreglan hafi leynilega samþykkt að þessi leið yrði farin til þess að flugumenn gætu komið sér fyrir inni í hópum mótmælenda. Þetta var allt gert án þess að foreldrar barnanna sálugu fengju nokkuð um það að vita. Þá kemur fram í umfjöllun blaðsins að Lundúnalögreglan hafi leitað uppi kennitölur á yfir þriggja áratuga tímabili allt eftir því hvað hentaði hverjum lögreglumanni. Keith Vaz, formaður innlendra mál­ efna á breska þinginu, sagðist vera í áfalli vegna þessara „sóðalegu vinnubragða“. Þá sagði hann ljóst að þetta ætti eftir að valda fjölskyld­ um þessara barna miklu sálartjóni: „Þetta er algjört áfall.“ Einn fyrr­ verandi flugumaður Lundúnalög­ reglunnar hefur líkt aðferðunum við þær sem Stasi, leynilögregla Aust­ ur­Þýskalands, stundaði. Eins og að traðka á gröf fjögurra ára barns, sagði annar fyrrverandi flugumaður í samtali við Guardian, en hann hafði notast við kennitölu drengs sem lét lífið fjögurra ára gamall. Þá sagði einn fyrrverandi flugumaður að þetta væri réttlætanlegt þar sem það væri í „þágu hins góða.“ n Skemmti- garður í bæ bin Laden Yfirvöld í bænum Abbottabad í Pakistan, sem er einna þekktastur fyrir að hafa hýst hryðjuverkaleið­ togann Osama bin Laden þegar hann var veginn, hafa lagt fram metnaðarfulla áætlun sem mið­ ar að því að fjölga ferðamönnum. Þannig eru á teikniborðinu hug­ myndir um risastóran skemmti­ garð sem mun kosta þrjá milljarða rúpía að búa til, eða sex milljarða króna. Mun garðurinn standa steinsnar frá húsinu sem Osama bin Laden var drepinn í. Yfirvöld þvertaka þó fyrir það að ætla að græða á hryðjuverkaleiðtoganum. „Þetta hefur ekkert með hann að gera. Við erum að reyna að fjölga ferðamönnum og afþreyingu fyr­ ir þá í héraðinu og þetta verk­ efni er liður í því,“ segir Syed Aqil Shah, ferða­ og íþróttamálaráð­ herra héraðsins, í viðtali við AFP­ fréttastofuna. Hrottalegt nauðgunarmál Sjö konum, þar af sex spænskum ferðamönnum, var nauðgað á hrottalegan hátt af hópi manna skammt frá borginni Acapulco í Mexíkó á mánudag. Konurnar voru sofandi í kofa sem tilheyrir íbúðahóteli á fjölförnum ferða­ mannastað þegar árásarmennirnir réðust til inngöngu. Að sögn Will Grant, fréttaritara BBC í Mexíkó, er árásin ein sú alvarlegasta sem beinst hefur að erlendum ferða­ mönnum í landinu. Konurnar komust af sjálfs­ dáðum á lögreglustöð þar sem glæpurinn var tilkynntur. Enginn hefur verið handtekinn í tengslum við málið. Engin hætta á árekstri Jarðarbúar þurfa ekki að hafa áhyggjur af smástirninu 2012 DA14 sem stefnir í átt að jörðinni á um 30 þúsund kílómetra hraða á klukkustund. Þetta er mat vís­ indamanna hjá bandarísku geim­ ferðastofnuninni, NASA, sem fylgst hafa náið með smástirninu undanfarna mánuði. Þyngdarafl jarðar mun beina smástirninu frá jörðinni en samkvæmt umfjöllun CNN mun stirnið verða í 27.600 kílómetra fjarlægð frá jörðu þegar það fer framhjá þann 15. febrúar næstkomandi. „Við þekkjum braut þess mjög vel og vitum nákvæm­ lega hvert það mun fara,“ segir dr. Don Yeomans hjá NASA. Stjörnu­ áhugamenn í Austur­Evrópu, Asíu og Ástralíu munu mögulega getað barið smástirnið augum en þó að­ eins með aðstoð öflugs stjörnu­ sjónauka enda er það eins og hálf­ ur fótboltavöllur að þvermáli. Njósnari bresku lögreglunnar á Íslandi Mark Kennedy var á meðal mótmælenda við Kárahnjúkavirkjun á sínum tíma, til að afla upplýsinga um starfsemi mótmælenda. Hann kallaði sig Mark Stone. S ádiarabískum predikara sem kvaldi fimm ára dóttur sína til dauða hefur verið sleppt eftir að hafa borgað sekt fyrir morðið, svokallaða blóðpen­ inga, og slapp þar af leiðandi við fang­ elsisvist. Fjölmargt baráttufólk fyrir mannréttindum hefur mótmælt því og vill að lögum í landinu verði breytt. Illa slösuð eftir föður sinn Lama al­Ghamdi var dóttir Fayhan al­ Ghamdi, múslimsks predikara sem reglulega kemur fram í sjónvarpi í Sádi­Arabíu. Lama, þá fimm ára, var lögð inn á spítala 25. desember 2011 með marg­ víslega áverka; meðal annars höfuð­ kúpubrot, rifbeinsbrot, handleggsbrot auk þess sem hún hafði verið brennd og marin víða um líkamann. Áverk­ arnir voru af völdum föður hennar og hann hefur viðurkennt að hafa veitt henni þá. Hún dó 22. október í fyrra. Samkvæmt lögum í landinu þarf al­ Ghamdi aðeins að borga sem sam­ svarar tæpum 6,3 milljónum króna, í blóðpeninga, eftir að hafa játað á sig glæpinn. Blóðpeningar í stað sekta Kvenréttindahópar víða um heim hafa mótmælt því að Fayhan þurfi ekki að afplána refsingu fyrir voðaverkið sem hann framdi. Segja hóparnir að faðir­ inn hafi framið þennan hroðalega glæp vegna þess að hann hafi efast um að dóttir sín væri enn hrein mey og hafi farið með hana til læknis til þess að fá úr því skorið. Starfsmaður á spítalanum sem Lama var lögð inn á segir að hún hafi verið hryggbrotin og það hafi verið búið að nauðga henni ítrekað. Sú upp­ hæð sem hægt er að borga aðstand­ endum fórnarlamba morðingja er nefnd blóðpeningar. Samþykki að­ standendur greiðsluna þá slepp­ ur morðinginn við dauðarefsingu en niðurstaðan er byggð á lögum um það að ekki megi dæma feður fyrir að myrða börn sín né eiginmenn fyrir að myrða eiginkonu sína. Baráttufólk fyrir mannréttindum hefur bent á það misrétti sem felist í því að karlar njóti mun meiri réttinda en konur þar í landi og vilja að því verði breytt. Heimta breytingar Mikil reiði er vegna dómsins þar sem faðirinn pyntaði og nauðg­ aði dóttur sinni illa áður en hann drap hana. Á samfélagsmiðlum hafa margir tjáð sig um dóminn og sýnt henni stuðning, meðal annars á Twitter undir efnisorðinu „Ana­ Lama“ sem þýðir sem „ég er Ana“ og vilja með því kalla eftir meiri réttindum fyrir börn og konur í landinu. Þrýst er á sádiarabísk yfir­ völd að vinna markvisst að lögum sem ná yfir ofbeldi gegn konum og börnum sem því miður er daglegt brauð í landinu. Reiði meðal al­ mennings í landinu vegna morðsins á Lömu er mikil og eru yfirvöld sögð íhuga að opna hjálparsíma þar sem er hægt að leita hjálpar, eða tilkynna um ofbeldi, allan sólarhringinn. n Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is n Mannréttindasamtök heimta lög við pyntingum á konum og börnum Sektaður fyrir að myrða dóttur Sína Misþyrmdi dóttur sinni Fayhan misþyrmdi dóttur sinni til dauða. Hann er þekktur sjónvarpspredikari í Sádi-Arabíu. Lama Lama var aðeins fimm ára þegar henni var misþyrmt til dauða af föður sínum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.