Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2013, Blaðsíða 13
Regnbogabrúin Á síðustu
20 árum hefur Tókýó 14
sinnum mælst dýrust.
Erlent 13Mánudagur 25. febrúar 2013
Hátt í þúsund dáið í fjöldamorðum
n 934 hafa fallið í 146 skotárásum í Bandaríkjunum frá árinu 2006
H
átt í þúsund manns hafa
látist í fjöldamorðum í
Bandaríkjunum frá árinu
2006. Þetta kemur fram í
umfjöllun USA Today sem
krufði til mergjar skotárásir í Banda-
ríkjunum á undanförnum árum þar
sem fjórir eða fleiri hafa látist. Alls
er um að ræða 934 fórnarlömb sem
samsvarar þó ekki nema einu pró-
senti þeirra sem látist hafa af völd-
um skotvopna á undanförnum sjö
árum. Þessi 934 fórnarlömb létust í
146 skotárásum.
Blaðamenn USA Today fóru í
gegnum gögn frá bandarísku al-
ríkislögreglunni, FBI, við grein-
ingarvinnu sína. Í ljós kom að í
mörgum tilfellum þekktu árásar-
mennirnir fórnarlömb sín eða voru
þeim bundnir fjölskylduböndum.
Þetta átti við í 71 skotárás þar sem
samtals 376 féllu.
Samtökin Mayors Agains Illegal
Guns, sem samanstanda af 850
bæjar- eða borgarstjórum í Banda-
ríkjunum, hafa lengi barist gegn
skotvopnavæðingunni í Bandaríkj-
unum. Þau létu gera sambærilega
úttekt fyrir skemmstu sem náði aft-
ur til ársins 2009. Niðurstöðurnar
voru sambærilegar og hjá USA
Today og leiddu í ljós að í um helm-
ingi tilvika þekktu árásarmennirnir
fórnarlömb sín.
„Fjöldamorð er harmleikur sem
fangar athygli almennings,“ segir
Mark Glaze,“ framkvæmdastjóri
samtakanna, í viðtali við USA Today.
„En á hverjum degi eru að meðaltali
33 Bandaríkjamenn drepnir,“ segir
hann.
Umræðan um skotvopnaeign í
Bandaríkjunum hefur verið fyrir-
ferðarmikil eftir árásina í Newtown
í Connecticut þar sem tuttugu
grunnskólabörn og sex kennarar
féllu í skotárás.
Missti sjón
í golfslysi
Breskur karlmaður hefur stefnt at-
vinnukylfingi vegna slyss sem varð
á áhugamannamóti í Skotlandi
árið 2009. Maðurinn, David
McMahon, var á meðal áhorf-
enda þegar teighögg Gavid Dear
endaði í auga hans með þeim af-
leiðingum að hann missti sjónina.
Krefst David þess að fá greidd 50
þúsund pund, 9,8 milljónir króna,
í bætur vegna slyssins. „Ég féll í
jörðina þegar kúlan lenti á mér og
setti höndina fyrir augað. Þegar ég
tók hana frá var hún þakin blóði,“
sagði David fyrir dómi í síðustu
viku. Segir hann að engin varnað-
arorð hefðu verið hrópuð þegar
ljóst var að boltinn var á leiðinni
í hann.
Ætla að fara til
Mars árið 2018
Samtökin Mars Foundation hafa
boðað til blaðamannafundar í
vikunni þar sem metnaðarfullar
áætlanir um mannaðan leiðang-
ur til plánetunnar Mars verða
kynntar. Samtökin sem um ræðir
eru í eigu bandaríska auðjöfursins
Dennis Tito en hann er líklega
einna þekktastur fyrir það að hafa
verið fyrsti túristinn sem fór út í
geim. Það gerði hann árið 2001
þegar hann dvaldi í átta daga í Al-
þjóða geimstöðinni.
Bandaríska fréttastofan CNN
greinir frá því að markmiðið sé að
ferðin til Mars og aftur heim muni
taka nákvæmlega 501 dag. Kostn-
aður við verkefnið verður vænt-
anlega stjarnfræðilegur í orðsins
fyllstu merkingu en búist er við að
á fundinum verði fjármögnun fyrir
verkefnið einnig kynnt.
Var tifandi
tímasprengja
Aðgerðaleysi heilbrigðisyfirvalda
varð til þess að tuttugu og níu ára
Búlgari, Deyan Valentinov Deya-
nov, framdi hrottafengið morð á
ferðamannaeyjunni Tenerife árið
2010. Deyanov, sem glímt hefur
við geðræn vandamál um langt
skeið, stakk sextuga konu, Jennifer
Mills-Westley, til bana í verslun á
eyjunni áður en hann afhöfðaði
hana og bar höfuðið út úr versl-
uninni. Málið er nú fyrir dómi og
segir verjandi Deyanovs að hann
hafi í raun verið tifandi tíma-
sprengja. Röð mistaka spænskra
heilbrigðisyfirvalda hafi valdið því
að hann hafi fengið að ganga laus
með fyrrgreindum afleiðingum.
Saksóknarar fara fram á lífstíðar-
fangelsi en verjandi Deyanovs
segir að hann eigi frekar heima
á stofnun fyrir geðsjúka afbrota-
menn.
Barist gegn skotvopnaeign Bandaríkjamenn virðast skiptast í tvær fylkingar í afstöðu
til skotvopnaeignar. Sumir eru með en aðrir á móti eins og þessi maður. MYND REUTERS
Tókýó dýrust
n Yfirleitt alltaf á toppi listans n Brauðhleifur kostar yfir þúsund krónur
T
ókýó, höfuðborg Japans,
er enn á ný orðin dýrasta
borg í heimi. Þetta er stað-
reynd þrátt fyrir verð-
hjöðnun í landinu, veikari
gjaldmiðil og hækkandi heims-
markaðsverð á vörum. Economist
Intelligence Unit birtir tvisvar á ári
tölur yfir verðlag í dýrustu borgum
heims.
Þetta er raunar kunnugleg
staða fyrir Japani enda hafa þeir
frá árinu 1992, alltaf verið á toppi
listans ef sex ár eru frátalin. Zürich
í Sviss var dýrasta borgin í fyrra en
hafnar nú í sjöunda sæti. Eins og
sjá má á listanum er borgin Osaka
í öðru sæti, Sidney í Ástralíu í
þriðja og svo Ósló. Asía á 11 af 20
dýrustu borgum í heiminum.
Brauðhleifur á meira en
þúsund krónur
Í Sidney, Melbourne og Singa-
pore kostar léttvínsflaska um
3.200 krónur að jafnaði, eða um
25 dollara. Fyrir tíu árum kostuðu
flöskurnar um 10 dollara. Brauð-
hleifur er einna dýrastur í Tókýó.
Þar kostar hann um 9 dollara eða
1.150 íslenskar krónur.
Reykjavík er í 47. sæti listans og
mælist nú með stuðulinn 90, fyr-
ir fyrir fimm árum síðan var stuð-
ullinn liðlega 130, og var borgin
þá ein sú dýrasta í heimi. Fram-
færslustuðullinn er fundinn út
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is Tókýó enn og aftur dýrasta borgin
Tokyo hefur að nýju skipað sér á topp lista yfir dýrustu borgir heims. Zürich í Sviss var dýrasta borgin í fyrra
en síðastliðin 20 ár hefur Tokyo nær alltaf verið á toppi listans, ef nokkur ár eru frátalin, samkvæmt skýrslu
Economist Intelligence Unit. Framfærslustuðullinn tekur mið af verðlagi í New York, sem hefur gildið 100.
HEIMILD: THE ECONOMIST INTELLIGENCE UNIT
1kg brauðhleifur
1 lítri af blýlausu bensíni
20132003
Verðlag
Tokyo, Japan
Osaka, Japan
Sydney, Ástralía
Oslo, Noregur
Melbourne, Ástralía
Singapore, Singapore
Zurich, Sviss
París, Frakkland
Caracas, Venesúela
Genf, Sviss
152
146
137
136
136
135
131
128
126
124
2.
3.
7.
5.
8.
9.
1.
6.
–
3.
1.
2.
3.
4.
4.
6.
7.
8.
9.
10.
Sæti árið 2013
Sæti árið 2012
Borg, land
Fram
færslu
stuðull
05 10 15 20 25
Meðalverð í dollurum
með því að finna meðalverð 160
vörutegunda og þjónustu í borg-
unum. Allar borgir eru bornar
saman við verðlag í New York, sem
hefur alltaf stuðulinn 100. Þar, í
borginni sem aldrei sefur, hefur
verðlag reyndar hækkað umtals-
vert á liðnum misserum. Þannig
hefur borgin hækkað sig um 19
sæti á listanum á einu ári.
Fall krónunnar hækkar
Reykjavík á listanum
Það sem vitaskuld hefur mest áhrif
á þessa breytingu er hrun íslensku
krónunnar sem er ekki svipur hjá
sjón miðað við hvað hún var fyr-
ir hrun. Það gerir það að verkum
að miklu ódýrara er nú fyrir ferða-
menn annarra landa að versla ís-
lenskar krónur.
Í Sviss hefur verið unnið að
því að lækka gengi gjaldmiðilsins
með það að markmiði að laða að
blása lífi í ferðamannaiðnaðinn.
Ekki síst þess vegna falla borgirnar
Zürich og Genf niður um allnokk-
ur sæti.
Það er hins vegar í Detroit í
Bandaríkjunum og Panamaborg
sem framfærslukostnaðurinn hef-
ur dregist saman mest þegar horft
er til síðasta áratugar. Í Caracas í
Venesúela og Sao Paulo í Brasilíu
hefur verðlagið hækkað mest.
Ódýrustu borgirnar
1. Karachi Pakistan
2. Mumbai Indland
3. Kathmandu Nepal
4. Algiers Alsír
5. Búkarest Rúmenía
6. Colombo Sri Lanka
7. Panamaborg Panama
8. Jeddah Sádi Arabía
9. Tehran Íran