Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2013, Qupperneq 14
Sandkorn
É
g hef aðrar heimildir,“ sagði Dav
íð Oddsson þegar hann réttlætti
að hafa stungið frétt um rannsókn
sérstaks saksóknara á innherja
viðskiptum vinar síns, Baldurs
Guðlaugssonar, undir stól þegar hann
var nýtekinn við sem ritstjóri Morgun
blaðsins. Þetta var um haustið 2009.
Nokkrum mánuðum áður hafði ríkis
stjórn Samfylkingarinnar og Vinstri
grænna rekið Davíð úr Seðlabankan
um eftir hrun íslensku bankanna 2008.
Á árunum fyrir hrunið hafði Davíð
leitt ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins sem með frjáls
hyggjuvæðingu lagði grunn að því efna
hagskerfi sem hrundi haustið 2008.
Fyrir vikið hefur stundum verið talað
um Davíð sem „arkitekt“ eða „höfund
hrunsins“.
Nú var hann kominn í stól ritstjóra
Moggans til að láta skrifa sína útgáfu af
sögu þessa tímabils sem á undan hafði
gengið og til að hafa bein áhrif á þróun
ina á stjórnmála og efnahagssviðinu
á Íslandi fyrir hönd þeirra stóreigna
manna sem réðu hann til starfans. Eitt
fyrsta verk Davíðs var svo að hygla þess
um aldavini sínum með því að hlífa
honum við óhjákvæmilegri frétt um
augljóst lögbrot. Viku síðar birtist fréttin
um Baldur á RÚV og tveimur árum síðar
hann dæmdur fyrir brotið.
Um svipað leyti og Davíð stakk
fréttinni um Baldur undir stól reyndi Jón
Ásgeir Jóhannesson, eigandi fjölmiðla
fyrirtækisins 365 og einn af helstu ger
endunum í hruninu 2008, að láta reka
blaðamann á Fréttablaðinu sem hafði
skopast að honum í skrifum sínum.
„Hann verður ekki í mínum húsum,“
sagði Jón Ásgeir í tölvupósti til stjórn
enda 365. Ari Edwald, forstjóri 365,
svaraði því til að ekki væri taktískt að
reka blaðamanninn fyrr en en seinna.
„Hann fer tad er klart. Bara spurning
um adferd og tima.“ Blaðamaðurinn var
reyndar ekki rekinn þrátt fyrir vilja Jóns
Ásgeirs til þess. Nú hefur annar starfs
maður 365, Magnús Halldórsson, stigið
fram og lýst afskiptum Jóns Ásgeirs af
ritstjórnum 365. „Það versta er að Jón
Ásgeir hefur í nokkur skipti að undan
förnu, reynt með ósmekklegum hætti,
að því er mér finnst, að setja þrýsting á
blaðamenn með því að koma umkvört
unum, vegna sannra og löglegra frétta
um hann, félög sem hann tengist og
dómsmál er hann tengist persónulega,
til stjórnar fyrirtækisins og æðstu stjórn
enda.“
Þessi mál um óeðlileg afskipti Davíðs
Oddssonar og Jóns Ásgeirs af frétta
flutningi í þessum fjölmiðlum eru
afar óheppileg svo ekki sé meira sagt
í ljósi fortíðar þessara tveggja manna.
Um árabil, frá aldamótunum og fram
að hruninu 2008, börðust þessir tveir
menn, og bandamenn þeirra í stjórn
mála og viðskiptalífinu, um áhrif og
völd í íslensku samfélagi – Davíð í krafti
stjórnmálalegs valds síns og Jón Ás
geir með auðvald sitt að vopni. Þessi
valdabarátta á milli þeirra kristallaðist í
Baugsmálinu sem að mati Jóns Ásgeirs
var tilraun Davíðs til að misbeita póli
tísku valdi sínu í baráttunni við hann en
Hæstiréttur tók á endanum undir með
ákæruvaldinu. Segja má að orðið hafi
viss pólarísering í samfélaginu þar sem
menn annaðhvort studdu Davíð eða Jón
Ásgeir í atinu.
Hrunið 2008 breytti þessari sviðs
mynd umtalsvert enda endurspegl
uðust mistök, valdabrölt og stórlæti
þeirra beggja, Davíðs og Jóns Ásgeirs,
í íslenska efnahagshruninu. Samfélag
ið sem Davíð átti einna mestan þátt
í að leggja grunn að með frjálshyggj
una, einkavæðinguna og minnkandi
ríkis afskipti að vopni hafði runnið sitt
skeið. Seðlabankinn sem Davíð stýrði á
árunum þar á undan var að hruni kom
inn, meðal annars út af ákvörðunum
eins og veðsetningu Sparisjóðabank
ans á skuldabréfum íslenskra fjármála
fyrirtækja fyrir 160 milljarða króna hjá
Seðlabankanum í aðdraganda hruns
ins. Viðskiptaveldi Jóns Ásgeirs var
sömuleiðis hrunið en hann tapaði yfir
ráðum yfir Baugi, Glitni, FL Group og
erlendum verslanakeðjum og enginn
viðskiptablokk skuldaði eins mikið í
íslenska bankakerfinu og félög hans.
Sennilega ber enginn einn stjórnmála
maður eins mikla ábyrgð á íslenska
efnahagshruninu og Davíð Oddsson og
líklega ber enginn einn viðskiptamaður
eins mikla ábyrgð á hruninu og Jón Ás
geir Jóhannesson. Báðir voru þeir, undir
lokin, komnir í stöður sem þeir höfðu
ekki forsendur til að valda: Davíð Odds
son reyndi að stýra Seðlabanka Íslands,
með öllum sínum breyskleika og póli
tíska hatri, og Jón Ásgeir Jóhannesson
reyndi að stýra alþjóðlegu fjármála og
smásöluveldi sem byggði á óhóflegri
skuldsetningu.
Nú hafa þessir tveir skaðræðis
menn hrunsins gengið í endurnýjun
lífdaga í nýjum hlutverkum á fjölmiðl
um þar sem þeir báðir ráða miklu, jafn
vel öllu. Þeir reyna að stýra umfjöllun
þessara fjölmiðla eftir eigin höfði og
hagsmunum. Davíð reynir að verja
vini sína og ganga erinda þeirra pen
ingaafla sem borga honum laun fyrir að
reyna að halda krónunni og kvótakerf
inu og Íslandi utan Evrópusambands
ins með Sjálfstæðisflokkinn við stjórn
völinn á meðan Jón Ásgeir reynir að
minnka skaðann af fjölmiðlaumræðu
um sitt eigið fjármálabrask. Skaðræðis
mennirnir tveir eru orðnir að endur
skoðunarmönnum sem ritskoða um
fjöllun um sín eigin mistök og halda á
lofti hagsmunum vina sinna. Fjölmiðl
un er kannski ekki ein af grunnstoðum
samfélagsins en hún er mikilvæg sem
spegill á sögu okkar og samtíma; hún
er skoðanamótandi upplýsingamiðill
sem getur haft áhrif á valdajafnvægið
í stjórnmála og viðskiptalífinu. Það er
því hryggilegt í meira lagi að þeir, þess
ir tveir menn – þessir skaðræðisfjandar
hrunsins – skuli vera í þeirri stöðu að
stýra, beint eða óbeint, tveimur stærstu
fjölmiðlum landsins þar sem þeir halda
áfram að misbeita valdi sínu og eyði
leggja trúverðugleika viðkomandi miðla
ofan á allt annað. Voðalega verður nú
frelsandi þegar íslenska þjóðin mun
ekki lengur þurfa að umbera bröltið og
skaðann af þessum tveimur mönnum.
Róbert dáður
n Einn magnaðasti athafna
maður Íslands er Róbert Guð-
finnsson sem á árum áður
var einn aðaleigenda og
stjórnandi Þormóðs ramma
á Siglufirði. Róbert var
einstaklega framsýnn varð
andi kvótakerfið og fjárfesti
í kvóta. Langt er um liðið
síðan hann hætti afskiptum
af fyrirtækinu. En Róbert er
trúr sínu byggðarlagi, Siglu
firði, og hefur lagt stórfé í
uppbyggingu þar. Þessa dag
ana er í bígerð hótel sem
kostar milljarð. Hermt er að
Siglfirðingar dáist mjög að
Róberti.
Vandi sviðsstjóra
n Jón Ásgeir Jóhannesson,
athafnamaður og sviðsstjóri
365, er í miklum vandræðum
eftir að Magn-
ús Halldórsson
fréttamaður
steig fram og
lýsti tilraun
um hans til
þess að hafa
áhrif á frétta
flutning. Tugir starfsmanna
365 hafa lýst velþóknun
með grein Magnúsar sem
ber yfir skriftina Litli karl
inn. Þar munar mestu um
stuðning Ólafs Stephensen,
ritstjóra Fréttablaðsins, sem
stendur með Magnúsi. Ari
Edwald, forstjóri 365, stend
ur með húsbónda sínum
og lýsti hann greininni sem
árás. Sama afstaða kom fram
hjá Frey Einarssyni, ritstjóri
dægurmála hjá 365.
Kristinn ekki
vinsæll
n Innan Lýðræðisvaktarinn
ar er ekki almennur áhugi á
því að tefla Kristni H. Gunnars-
syni, fyrrverandi alþingis
manni, fram í komandi
kosningum. Kristinn og Lýður
Árnason, einn af stofnendum
Lýðræðisvaktarinnar, eru
miklir mátar og eiga gjarnan
pólitíska samleið. Það breytir
ekki afstöðu annarra þunga
vigtarmanna sem óttast að
innri ófriður muni fylgja hin
um vestfirska baráttujaxli.
Leiðrétting
n Sú villa slæddist inn í
Sandkorn að sagt var að
Stefán Ólafsson prófessor
hefði hælt Hannesi Hólm-
steini fyrir að
vera „litríkur
persónuleiki“
og svo fram
vegis. Hið
rétta er að
það var há
skólamaður
inn Stefán Snævarr sem gaf
Hannesi umrædda einkunn
og sagði til viðbótar að hann
væri „stórbrotinn í göllum“.
Beðist er velvirðingar á þess
um ruglingi.
Fyrst og fremst er þetta
árás á fyrirtækið
Enn einn fávita-
dómurinn
Ari Edwald, forstjóri 365. – DV Kristinn Hrafnsson um meiðyrðadóm Hæstaréttar. – Facebook
Fjandar fólksins„Hann
verður ekki
í mínum húsum
S
varthöfði er ekki óskeikull mað
ur. Hann er hvatvís og fljótfær
og refsiglaður með eindæm
um. Skemmst er að minnast
þess þegar hann myrti einn af undir
mönnum sínum með hugarorkunni
einni saman þegar þessi ósvífni undir
maður efaðist um leiðtogahæfileika
Svarthöfða. Svarthöfði sér eftir þessu í
dag enda sér hann að það er ekki gott
að hafa einvörðungu jáfólk í kringum
sig til að fá víðara samhengi á hlutina
og um leið betri yfirsýn.
Svarthöfði hefði betur farið þá leið
sem Ari Edwald, forstjóri 365 miðla,
fór þegar viðskiptafréttastjórinn Magn
ús Halldórsson hjólaði heldur betur
harkalega í samstarfsfélaga sinn Jón
Ásgeir Jóhannesson, sviðstjóra þró
unarmála 365 og eiginmanns stjórn
arformanns 365 miðla. Magnús sak
aði Jón Ásgeir um óeðlileg afskipti af
fréttaflutningi tengdum sér hjá 365
miðlum í greininni sem hann kallaði
Litli karlinn.
Ari Edwald gekk svo langt að kalla
þetta ódrengilega framgöngu Magnús
ar og árás á fyrirtækið. Svarthöfði man
þá tíð þegar hann myrti undirmenn
sína með hugarorkunni einni saman
fyrir að færa honum kalt kaffi og hefði
hann því varla hugsað sig tvisvar um
þegar kemur að framgöngu Magnús
ar sem er dyggilega studdur af ritstjóra
Fréttablaðsins Ólafi Stephensen.
En stjórnendur og eigendur 365
miðla eru þó miklu meiri menn en
Svarthöfði. Ari Edwald segir enga eftir
mála verða af þessari árás á fyrirtækið
og ódrengilegu framgöngu. Svarthöfði
telur að þarna geti menn lært ýmis
legt af Ara Edwald sem stjórnanda því
einhverjir gætu spurt sig hvernig hann
ætli sér að treysta þessum mönnum að
vinna fyrir sig eftir þessa ódrengilegu
árás á fyrirtækið.
Þá er Svarthöfða einnig spurn
hvernig í ósköpunum Magnús Hall
dórsson getur sætt sig við að starfa
áfram á 365 miðlum eftir að hafa lýst
svo hrikalegu starfsumhverfi. Það hlýt
ur að vera erfitt fyrir jafn hæfileikarík
an blaðamann og Magnús að búa við
þessar starfsaðstæður að eiginmaður
stjórnarformannsins sé að skipta sér af
hans verkum.
Það er greinilegt að menn eru ekki
langræknir í Skaftahlíðinni og ættu
menn svo sannarlega að læra af þess
um hreinskiptu samskiptum sem við
höfum orðið vitni að frá 365 miðlum
síðustu daga. Svarthöfði mun allavega
hugsa sig tvisvar um áður en hann
myrðir einhvern undirmanna sinna
með hugarorkunni einni saman fyr
ir smávægileg mistök á meðan menn
geta fyrirgefið svona harkalegar árásir
á fyrirtæki sitt og undirmennirnir sætt
sig við kæfandi starfsaðstæður. Þvílík
ir menn!
Þvílíkir menn!
Svarthöfði
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg
Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is)
Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is
F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéTTASkoT
512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AÐALnúmeR
RiTSTJÓRn
ÁSkRiFTARSími
AuGLýSinGAR
14 Umræða 25. febrúar 2013 Mánudagur
Leiðari
Ingi Freyr
Vilhjálmsson
ingi@dv.is