Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2013, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2013, Side 15
Því miður vann ég þetta ekki Ég hlakka til að vinna með ykkur Sigmar Vilhjálmsson vann ekki 126 milljóna lottóvinning. – DVBjarni Benediktsson var endurkjörinn formaður. - Landsfundur Sjálfstæðisfl. Ís fyrir alla – mamma borgar! Spurningin „Ég ætla bara að slappa af og vinna.“ Jóhann Birkir Bjarnarson 22 ára vinnur á frístundaheimili „Ég er að fara til Svíþjóðar að heimsækja pabba.“ Elísa Birta Ingólfsdóttir 17 ára vinnur á Hamborgarabúllunni „Ég er að fara að hitta fjarskylda ættingja í Afríku.“ Kristófer Acox 19 ára atvinnulaus „Ég er að klára BA-ritgerðina mína.“ Þór Ólafsson 29 ára stjórnmálafræðinemi „Ég er að fara í sjálfboðaliðastarf til Kenía.“ Stefán Freyr Gunnlaugsson 19 ára þjónn Hvað á að gera um páskana? 1 SVONA LÍTUR NAKIN KONA ÚT – Myndband af verkefni þeirra Matt og Katy Blum sem tóku nektarmyndir af venjulegum konum og kölluðu verkefnið Nu project. 2 Leyndarmálabók afhjúpaði ofbeldi – Hanna Símonardóttir fóstrar börn í neyð. 3 „Ég hleyp ekkert um allt öskrandi og hoppandi uppi á búri eða neitt þannig.“ – Gunnar Nelson um viðbrögð sín í kjölfar sigra. 4 „Lykilorðið í því sem þú spurðir mig um er „meint.“ – Luis Arreaga sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi um réttmæti staðhæfinga þess efnis að CIA hafi notað íslenska flugvelli í fangaflugi. 5 Bróðir Pistorius ákærður fyrir manndráp af gáleysi – Carl Pistorius er sagður hafa orðið konu að bana í bílslysi árið 2010. 6 Sögð hafa skipulagt skelfi-lega sýruárás á sjálfa sig – Naomi Oni er sögð hafa leitað að mynd- um af konu sem varð fyrir svipaðri árás áður en hún varð fyrir árásinni. 7 Þetta eru bestu íslensku kynlífslýsingarnar. – Rauða hrafnsfjöðrin var veitt fyrir forvitnileg- ustu kynlífslýsingu ársins. Mest lesið á DV.is B jarni Benediktsson hélt dýr- ustu ræðu Íslandssögunnar við setningu landsfundarins síðast liðinn fimmtudag. Í ræðunni sáldraði hann rándýrum kosningalof- orðum í allar áttir – einsog enginn væri morgundagurinn. Líkt og afgreiðslu- maður í sælgætisbúð lofaði hann öll- um nammi – og enginn þarf að borga. Bjarni er nefnilega töframaður sem getur búið til gull úr loftinu. Það er eina leiðin til að standa við loforðin sem hann gaf um að hækka lífeyri gamla fólksins, láta ríkið borga hús- næðisskuldir, hækka laun opinberra starfsmanna – en lækka um leið skatta og ofan í kaupið að draga úr útgjöld- um ríkisins! Hagfræði Sjálfstæðisflokksins er greinilega sótt í efnahagslögmálin sem allir muna eftir úr sunnudagsbíltúrum bernskunnar: Ís fyrir alla – mamma borgar! Nammibúðin Loforðaflaumurinn í kosningastefnu Sjálfstæðisflokksins, einsog hann birt- ist í ræðu Bjarna, var ansi litríkur. Heilbrigðiskerfið er öllum mikil- vægt. Bjarni vill auka framlög til þess, og fjallaði sérstaklega um nauðsyn þess að gera Ísland samkeppnishæft í launum lækna. Það þýðir varla ann- að en drjúga launahækkun til þeirra góðu manna, sem halda okkur gang- andi þegar á bjátar. En læknar eru ekki einu starfsmenn heilbrigðiskerfisins. Þar bjarga lífum dag hvern sjúkralið- ar, lífeindafræðingar, hjúkrunarfólk, geislafræðingar, rafvirkjar og ræsti- tæknar. Margt fleira gott fólk á líka hlut í að gera okkar ómetanlega heilbrigð- iskerfi að einni römmustu burðarstoð samfélagsins. Bjarni hlýtur því að ætla launa- hækkun til læknanna að ná yfir alla starfsmenn heilbrigðiskerfisins. Það mun að lokum, eðlilega, ná yfir alla opinbera starfsmenn, eða hverja ætlar Bjarni að skilja útundan? – Kosninga- stefnan í ræðu Bjarna felur því í sér fyr- irheit um launahækkun til allra opin- berra starfsmanna. Eldri borgarar hafa lengi búið við skarðan hlut og í kreppunni sem Sjálf- stæðisflokkurinn leiddi yfir þjóðina, var ekki hægt að bæta hann nóg. Því ætlar Bjarni að kippa í liðinn. Flokk- urinn ætlar að afnema skerðingar í líf- eyriskerfinu, og hækka lífeyrinn. Flokkurinn ætlar líka að láta rík- ið hjálpa þeim, sem eiga um sárt að binda vegna skuldafjötra húsnæðis- lána. Bjarni lofar þeim hluta af tekjum ríkisins í gegnum skattaafslátt. Það er líklega dónaskapur að spyrja: Hvað með þá sem eru verst staddir, og borga enga skatta? Þversögn Bjarna Allt eru þetta góðar hugmyndir. Allar byggja þær á einhvers konar réttlæti. Það er líka póetískt réttlæti fólgið í því að Sjálfstæðisflokkurinn vilji hjálpa þeim, sem guldu fyrir hrunið sem hann stýrði samfélaginu inn í á átján ára valdatíð, einsog glöggt kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Þversögnin í ræðu Bjarna er hins- vegar sú, að á sama tíma og hann ætlar að deila út miklum fjármunum í gegn- um áveitukerfi ríkisins til sjúklinga, op- inberra starfsmanna, skuldara og eldri borgara, þá ætlar hann líka að lækka skatta og draga úr útgjöldum ríkisins. Í ræðunni hét hann þannig að afnema hátekjuskatt, lækka almenna skatta og lækka skatta fyrirtækja. Nán- ast í sama orðinu sagði hann að Sjálf- stæðisflokkurinn myndi líka sjá til þess að útgjöld ríkisins minnkuðu. Í þessu felast óleysanlegar andstæður. Það er ekki hægt að auka út- gjöld til velferðarmála á sama tíma og skatttekjur ríkisins eru minnk- aðar og lofa um leið að draga úr útgjöldum ríkisins! Ætli formaður Sjálfstæðisflokksins að standa við fyrirheitin um hvorutveggja skatta- lækkanir og aukin útgjöld til velferð- ar þýðir það eitt, og aðeins eitt: Stór- aukin ríkisútgjöld á versta tíma. Það er efnahagslegt ábyrgðarleysi sem gæti leitt okkur í nýjar ógöngur. Tekið fyrir aftur Sjálfstæðismenn felldu á sunnudag úr gildi ákvæði um að öll lagasetning skyldi taka mið af kristilegum gildum og hefðum, eins og áður hafði verið samþykkt á fundinum. Óhætt er að segja að ályktunin hafi verið umdeild. MyNd SigTryggur ariMyndin Umræða 15Mánudagur 25. febrúar 2013 Ég er kallaður fjár- dráttarmaður Heimir Hannesson fer í hart. – DV „Það er ekki hægt að auka útgjöld til vel- ferðarmála á sama tíma og skatttekjur ríkisins eru lækkaðar og lofa um leið að draga úr útgjöldum ríkisins! Aðsent Össur Skarphéðinsson Fagnað Frá nýyfirstöðnum landsfundi Sjálf- stæðisflokksins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.