Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2013, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2013, Qupperneq 4
4 Fréttir 10. júní 2013 Mánudagur Málið til skoðunar innan HÍ n Aðstoðarrektor Bifrastar ósáttur við ummæli sviðsstjóra HÍ Í umfjöllun DV á föstudag um að nám við Háskólagáttina á Bifröst uppfylli ekki inntökuskilyrði í Há- skóla Íslands var haft eftir Þórði Kristinssyni, sviðsstjóra kennslumála HÍ, að ekki væri verið að vinna að samantekt upplýsinga um inntöku- skilyrði í HÍ fyrir Bifröst. Jón Ólafsson, aðstoðarrektor á Bifröst, sagði hins vegar að verið væri að vinna í mál- inu. Í greininni kom fram að greinilegt ósamræmi væri á milli upplýsinga frá skólunum tveimur um málið. Jón vill að það komi fram að hann er búinn að vera í sambandi við forseta hug- og félagsvísindasviða við HÍ um að tekn- ar verði saman upplýsingar um hvaða viðbótarkröfur nemendur af Háskóla- gátt Bifrastar þurfa að uppfylla til að komast inn í HÍ. DV hefur undir hönd- um staðfestingu á þeim samskiptum. Jón gerði athugasemd við um- mæli Þórðar í tölvupósti. Fékk DV afrit af póstinum sem Þórður svar- aði. Í svarinu segir meðal annars: „Þessi bréf eru til skoðunar á viðkom- andi fræðasviðum, en ekki hefur ver- ið fjallað um þau í kennslunefndum fræðasviðanna, né heldur í miðlægri stjórnsýslu háskólans eða kennslu- málanefnd háskólaráðs. Ef viðkom- andi fræðasvið telja rök til þess að gera breytingar á reglum um form- leg inntökuskilyrði í einstakar deildir, þá eru slík erindi send til umfjöllun- ar í stjórn fræðasviðs og síðan til há- skólaráðs, ef ákveðið er að leggja til breytingar.“ Málið er því skammt á vegið komið innan stjórnsýslu háskólans, en það er í skoðun. Er það hér með áréttað. n Fjölskyldudeilur um framtíð hvalaveldis B irna Björk Árnadóttir, hlut- hafi í Hval hf. og barnabarn eins af stofnendum félags- ins, skrifaði harðorða grein í Fréttablaðið í síðustu viku þar sem hún leggst eindregið gegn hvalveiðum. Færir hún rök fyrir því að hvalveiðar séu tímaskekkja og sverti orðspor Íslands á alþjóðavett- vangi. Þá bendir hún á að allt kjötið sé flutt út og ekki fullunnið á Íslandi. Birna er dóttir Árna Vilhjálms- sonar heitins sem gegndi stjórnar- formennsku í Hval hf. um árabil og var aðaleigandi félagsins ásamt Kristjáni Loftssyni, einum stórtæk- asta útgerðarmanni landsins. Birna og systur hennar, þær Auður Kristín og Ásdís, erfðu stóran hlut í félaginu af föður sínum. Vildu skipta upp félaginu Á aðalfundi Hvals hf. í síðustu viku lagði hluthafi, sem ekki tilheyrir fjöl- skyldunni, fram tillögu þess efn- is að félaginu yrði slitið. Hann hélt því fram að hvalveiðarnar stæðu ekki undir sér og að afurðir seldust illa vegna hamla á heimsmörkuðum með hvalkjöt. Samkvæmt Viðskipta- blaðinu komu tveir þriðju hluti tekna Hvals til vegna annars reksturs en sölu hvalkjöts árið 2011. Á fyrrnefndum fundi lagði Auður Kristín Árnadóttir fram breytingar- tillögu um að félaginu yrði ekki slitið heldur skipt í tvo hluta: annars vegar hvalveiðihluta og hins vegar fjár- festingarhluta. Var tillagan felld. Hvorki Birna né Auður vildu tjá sig neitt um málið við DV en Birna stað- festi þó að enginn einhugur væri um það meðal hluthafa hvernig haga ætti framtíð Hvals hf. Ljóst er að Kristján Loftsson, fram- kvæmdastjóri og aðaleigandi félags- ins ræður þar langmestu og fylgja honum flestir að málum. Ekki náðist í hann við vinnslu fréttarinnar. „Hvalveiðiþrjóska“ Kristjáns Árni Vilhjálmsson, faðir Auðar og Birnu, starfaði með Kristjáni Lofts- syni í fjölda ára og áttu saman bæði Hval hf. og HB Granda. Fór Árni með stjórnarformennsku í báðum félög- um en eftir að hann lést í mars tók Kristján við af honum. Birna beinir spjótum að viðskipta- félaga föður síns í grein sinni og skrif- ar: „Eins og staðan er í dag er aðeins einn maður sem hefur það í hendi sér hvort þessar langreyðar verða veidd- ar eða ekki. Mikið vildi ég óska að hann léti af þessari hvalveiðiþrjósku og fyndi kröftum sínum og fjármun- um annan farveg. Braggabyggðin í Hvalfirði og gömlu hvalveiðiskipin bjóða nefnilega upp á ótal tækifæri.“ Klofið útgerðarveldi Hvalur hf. er að stærstum hluta í eigu Fiskveiðahlutafélagsins Venusar, en það er í meirihlutaeigu tveggja fjöl- skyldna, annars vegar systkinanna Kristjáns Loftssonar og Birnu Lofts- dóttur og hins vegar afkomenda Vilhjálms Árnasonar, skipstjóra og stofnanda fyrirtækisins. Venus er um- svifamikið félag og á meðal annars hlut í Sundt-Air Iceland, Hampiðj- unni og HB Granda. Dótturfélag Hvals hf er Vogun sem fer með um 40 prósenta eignarhlut í HB Granda. Greint var frá því í apríl að fjölskyldurnar tvær fengju greidd- ar samtals um 300 milljónir króna í arðgreiðslur frá HB Granda. Sam- kvæmt heimildum DV er hart deilt um framtíð fiskveiðiveldisins þessa dagana og hver höndin uppi á móti annarri. n Umdeild iðja Víða í heiminum þykja hvalveiðar andstyggi- legar og óréttlætanlegar. n Kristján Loftsson með tögl og hagldir n Erfingjar vildu skipta upp félaginu Jóhann Páll Jóhannsson blaðamaður skrifar johannp@dv.is Mótfallin hvalveiðum Erfinginn Birna Björk Árnadóttir leggst eindregið gegn hvalveiðum. Hvalveiðikóngur Kristján Loftsson er einn stórtækasti útgerðarmaður landsins. „Mikið vildi ég óska að hann léti af þessari hvalveiðiþrjósku Unnið að lausn? Jón Ólafsson er að skoða hvað gera þurfi til að nemendur Háskólagátt- ar Bifrastar verði gjaldgengir í HÍ. Þjófur í Frostaskjóli Karlmaður fór stelandi um bún- ingsklefa 3. flokks karla í KR- heimilinu á miðvikudaginn síð- astliðinn. Maðurinn nýtti sér tækifærið á meðan strákarnir öttu kappi við KA úti á vellinum og stal ýmsum verðmætum. Meðal þeirra var áletrað úr sem einn KR-ingur- inn hafði fengið í fermingargjöf frá ömmu sinni og afa, og hélt mik- ið upp á að sögn föður hans, Jóns Þórs Víglundssonar. Auk úrsins stal þjófurinn símum, fatnaði og tónlistarspilurum. Jón segir fjár- hagslegt tap ungu strákana mikið. Tjónið er þó ekki einungis fjár- hagslegt. „Tilfinningalegt tjón af því að missa fermingarúrið (er) mest,“ segir Jón Þór á Facebook- síðu sinni og bætir við í samtali við DV: „Nafn sonar míns er áletr- að á úrið, og er það því verðlaust fyrir þjófinn. Það hefur hins vegar ómetanlegt tilfinningalegt gildi fyrir son minn.“ Eftirlitsmyndavélar KR-heim- ilisins náðu þjófnum á mynd, er hann gekk út úr búningsklefan- um með ránsfenginn. Hann var klæddur í ljósar buxur, ljósa peysu og dökkt vesti yfir. Jón Þór skorar á þjófinn að skila úrinu verðmæta. Geri hann það, verði engir eftir- málar af hans hálfu. „Það er ömurlegt að ungir og saklausir drengir lendi í einhverju svona,“ segir Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR, um málið. Að sögn Kristins hafa þjófnaðir af þessum toga verið að færast í aukana. „Maður hefur heyrt af nokkrum svona tilfellum núna á stuttum tíma,“ segir hann og bætir við að þjófnaðurinn verði kærður til lögreglu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.