Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2013, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2013, Page 15
Hann kom heim með slæm sár Ég tengist ekkert majónesfyrirtækinu Þú rassskellir ekki hálf- fullorðinn einstakling Aldís Sigurðardóttir um son sinn eftir hvíldarinnlögn. – DVHannes hótar að hætta að kaupa majónes. – DVLóa Pind Aldísardóttir um son sinn. – DV ,,Takk fyrir að greiða fyrir mig atkvæði!“ Spurningin „Ég er ekki ástfangin af neinum.“ Brynja Sigurðardóttir 15 ára Nemi „Já, ég er yfir mig ástfanginn, en það er flókið mál.“ Kiljan Vincent Paoli 18 ára Nemi „Nei, ég er ekki ástfanginn.“ Þorvaldur Sigurbjörn Helgason 21 ára Listnemi „Nei, nema í sjálfri mér!“ Berglind Björg Guðmundsdóttir 17 ára Vinnur í bakaríi „Nei, ég er ekki ástfangin af neinum.“ Guðlaug Hróbjartsdóttir 17 ára Aðstoðarklippari Ertu ástfangin/n? 1 „Farið til fjandans. Ykkur skortir sómakennd“ Haukur Már Helgason játaði á sig kyn- ferðisofbeldi og segist hafa upplifað félagslega útskúfun. 2 Lóa Pind: Satt best að segja vildi ég heldur að hann færi að vinna Sjónvarpskonan Lóa Pind Aldísardóttir ræddi um son sinn í helgarblaði DV. 3 Fjögurra ára skaut föður sinn til bana Lögregluyfirvöld í Arizona í Bandaríkj- unum segja að fjögurra ára drengur hafi skotið pabba sinn. 4 Ólöf fékk skammarbréf frá nágrönnum Ólöf Nordal býr nú í Genf og bloggar um þá upplifun sína. 5 Unnur Birna trúlofuð Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, lög- fræðingur og fegurðardrottning hefur trúlofast sínum heittelskaða, Pétri Rúnari Heimissyni. 6 Grýtti eggjum í Simon Cowell í beinni útsendingu Víóluleikarinn Natalie Holt stal senunni í lokaþætti hæfileikakeppninnar Britain’s Got Talent. 7 Háskólagáttin dugar ekki í HÍ Nám við Háskólagátt á Bifröst uppfyllir ekki inntökuskilyrði HÍ. Mest lesið á DV.is Þ að er mikil formfesta og hefð- ir sem tengjast þingsetningu og gerir hana mjög hátíðlega og eftirminnilega. Alþingis- mönnum var fyrirlagt að mæta stundvíslega klukkan 13:10 í and- dyrið fyrir framan gömlu þingdyrn- ar. Dyrnar eru ekki lengur notað- ar og er yfir þeim slagbrandur sem tekinn er frá við sérstök tækifæri eins og þingsetningu og opinber- ar heimsóknir. Skömmu áður hafði sprengjuleitarhundur lögreglunnar farið um anddyrið. Þetta var svartur fallegur og vinalegur Labrador hundur. Hið ofurnæma þefskyn hundsins hefur þannig verið þjálfað til að tryggja öryggi okkar mann- fólksins. Búið var að koma upp óeirða- girðingu á Austurvelli, en fátt fólk var þar samankomið, enda allt í beinni útsendingu í Sjónvarp- inu. Að baki girðingunni stóðu þó nokkrir ESB andstæðingar með kröfuspjöld. Sem betur fer rík- ir sátt meðal þjóðarinnar sem bíð- ur með eftirvæntingu eftir að nýja ríkisstjórnin okkar hefjist handa. Athygli mína vakti könnun daginn áður sem sýndi að bæði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráð- herra og Bjarni Benediktsson fjár- mála- og efnahagsráðherra njóta víðtæks traust á meðal kjósenda. Það finnst mér þeir verðskulda. Forsetinn leggur línurnar Það var ys og þys í gamla þing- anddyrinu og mikil hátíðarstemn- ing í lofti. Nú var að para menn saman eftir réttu prótókolli. Fyrst komu forseti Íslands ásamt bisk- upi Íslands, þá dómkirkjuprestur og svo formenn stjórnarflokk- anna, ráðherrar og þingmenn. Á slaginu 13:30 voru dyrnar opn- aðar og hópurinn gekk fylktu liði til kirkju. Einhverjir höfðu á orði að vonandi yrðu engin egg í þetta skiptið og það stóðst sem betur fer. Allir voru prúðbúnir og veðrið svo yndislegt að það var hægt að ganga án yfirhafnar út í Dómkirkju. Ég fékk þann heiður að ganga við hlið hins reynda þingmanns Péturs H. Blöndal sem ég hef lengi dáðst að fyrir rökfestu og hvað honum er lag- ið að hugsa út fyrir boxið. Athöfnin í Dómkirkjunni var stutt en afar hátíðleg. Dómkirkju- prestur þjónaði fyrir altari og biskup predikaði. Fyrsti sálmur- inn sem sunginn var reyndist vera uppáhaldssálmurinn minn „Heyr himnasmiður“ eftir Kolbein Tuma- son, ortur rétt fyrir Víðinesbardaga haustið 1208. Aftur var snúið til þinghússins og forseti Íslands las upp forseta- bréf og setti formlega 142. löggjafar- þing. Í kjölfarið flutti hann ræðu um ESB sem mér fannst ekki vera í hans verkahring, heldur utanríkisráð- herra eða forsætisráðherra, þótt ég væri sammála inntakinu. Svo talaði forsetinn um hvernig best væri að fara að í stjórnarskrármálum; það er að halda núverandi stjórnar- skrá en gera á henni nauðsynlegar breytingar. Á ný var ég sammála, en mér fannst forsetinn ganga full langt í að leggja hinu háa Alþingi pólitískar línur. Rangur atkvæðahnappur og vatni hellt Þá var komið að annarri mjög mik- ilvægri stund í lífi nýs þingmanns, en það var að undirrita drengskap- arheiti að stjórnarskránni. Það heiti gaf ég fúslega ákveðin í að standa við það, sama á hverju dyndi. Þegar kom að fyrstu atkvæðagreiðslunni, kosningu forseta Alþingis, gerðist hins vegar nokkuð óvænt. Þannig var að vinstra megin við mig sat félagi minn og flokksbróðir Brynjar Níelsson. Atkvæðahnappar eru á hverju borði, hægra megin, en ein- hvern veginn var ég búin að horfa fast á hnappana vinstra megin við mig og einsetja mér að ýta á þá takka, þegar gefið yrði merki um að greiða ætti atkvæði. Það gerði ég samviskusamlega og var nokkuð snör í snúningum. Ég var ekki fyrr búin að ýta á hnappinn, en Brynjar segir við mig í góðlátlegum stríðn- istóni: „Takk fyrir að greiða fyrir mig atkvæði!“ Þetta kom þó ekki að sök því síðan greiddi ég atkvæði með því að ýta á minn eigin atkvæðahnapp. Á undirbúningsfundinum fyr- ir nýja þingmenn nokkrum dögum áður, hafði mér orðið á að reka mig í vatnsglasið mitt þannig að vatn- ið flaut um þinggólfið, og nú var það þessi uppákoma. Klaufaskap- ur minn í þingsalnum reið því ekki við einteyming. Við vatnsuppákom- unni var hins vegar brugðist hratt og örugglega, sem mér sýnist vera aðalsmerki starfsmanna þingsins. Við þingmenn mættum svo sannar- lega hafa þau sem fyrirmyndir í okk- ar störfum. Ekki leið nema andar- tak þangað til Guðlaugur Ágústsson yfir þingvörður var kominn til mín og rétt mér klút svo lítið bar á þannig að ég gæti þurrkað upp vatnspoll- inn af fögru viðargólfi þingsalarins. Eigum við ekki að segja að fall sé fararheill. Bæjarferð Börnin á Laugarborg áttu notalega bæjarferð í þokkalegasta sumarveðri á miðvikudag. Veðrið hefur leikið við fólk fyrir norðan og austan en verið heldur breytilegra sunnanlands. Í dag verður þó einmuna blíða, víðast hvar, ef fer sem horfir. Mynd SigtRygguR aRiMyndin Umræða 15Mánudagur 10. júní 2013 Kjallari Elín Hirst

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.