Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2013, Side 20
20 Lífsstíll 10. júní 2013 Mánudagur
Kaffisopinn lengir lífið
n Minnkar líkur á krabbameini og elliglöpum
N
ew York Times gerir kaffi-
drykkju ítarleg skil í blaði
sínu þann 9. júní og grein-
ir frá rannsóknum sem leiða
í ljós heilsufarslegan ávinning þess
að drekka kaffi. Vísað er í rannsókn
sem gerð er af Krabbameinsstofn-
un Bandaríkjanna, þar voru kannað-
ar heilsufarsupplýsingar 400 þúsund
einstaklinga á aldrinum 50–71 árs
sem eiga það sameiginlegt að vera
tiltölulega hraustir.
Rannsóknin hófst árið 1995 og
árið 2008 höfðu 50 þúsund látist. Í
gögnum rannsóknarinnar mátti sjá
að þeir karlmenn sem drukku 2–3
bolla af kaffi á dag voru 10 prósent
líklegri til að vera á lífi en þeir sem
drukku ekki kaffi. Konur voru 13 pró-
sent líklegri til að vera á lífi.
Í úttekt NY Times var einnig vísað
í aðrar rannsóknir. Til að mynda þær
sem gefa til kynna að kaffidrykkja
minnki líkur á sykursýki, húðkrabba-
meini, krabbameini í blöðruháls-
kirtli og að konur veikist aftur af
brjóstakrabbameini.
Síðast en ekki síst má leiða lík-
ur að því að kaffidrykkja minnki all-
verulega líkur á því að fólk þjáist
af gleymsku og elliglöpum. Í úttekt
NY Times kemur fram að vísinda-
menn telja að það sé ekki eingöngu
virka efnið koffín sem sé ráðandi
hvað þetta varðar. Þetta kom í ljós
þegar gerð var rannsókn á músum
sem voru ræktaðar til þess að þróa
með sér Alzheimer-sjúkdóminn í há-
skólanum í Suður-Flórída. Þær mýs
sem fengu eingöngu kaffi gekk verr
á minnisprófum en þeim sem fengu
kaffi ásamt öðru. n
V
ið höfum aldrei verið
hræddar inni á Litla-Hrauni
og lítum á þetta sem upp-
byggilegt verkefni,“ segja
þær Dagný Bjarnadóttir,
lands lags arkitekt og Hildur Gunnars-
dóttir, arkti tekt, sem eru í forsvari
fyrir hönnunar verkefnið FANG sem
eru úti hús gögn smíðuð af föngum á
Litla-Hrauni.
Þær hanna hvor sína vöru undir
sama vörumerki. Bera saman bæk-
ur sínar og stefna að vörulínu með
ákveðnum samhljóm.
Fyrsta verkefnið var garðbekkur
sem nefnist Drumbur og er kominn
í framleiðslu. Þann hannaði Dagný
úr stórri Alaskaösp og nýtir þar einn
trjábol í tvo bekki. Auk þess sem hún
er að leggja lokahönd á bekk sem
nefnist Sveifla sem er hægt að nota
stakan eða raða tveimur eða fleiri
saman í slöngulaga línu. Hildur hef-
ur þróað legubekk sem nefnist Folda
sem er hægt að stilla á mismunandi
hátt og er á leið í framleiðslu.
Uppbyggileg verkefni fyrir
fanga í afplánun
Vörumerkið hefur að sögn þeirra
Dagnýjar og Hildar breiða merkingu
sem þær útskýra nánar: „Þarna er ver-
ið að vísa í bæði fangelsi, faðm, fóstur
og afurðir úr nytjaskóg í grennd.“
Hugmyndin að nýta verkstæði
Litla-Hrauns er upphaflega frá Hildi
komin. Lokaverkefnið hennar frá arki-
tektaskólanum í Kaupmanna höfn
var hönnun fangelsis og í kjölfarið sat
hún í dómnefnd vegna samkeppni
um fangelsið á Hólmsheiði. Hún
þekkir því vel til innviða fangelsa og
hve mikilvægt það er að hafa upp-
byggileg verkefni fyrir fanga í afplán-
un. Hana fannst vanta skapandi ver-
kefni í fangelsin á Íslandi og þegar
hún bar hugmyndina undir Dagnýju
kom hún strax með hugmynd um
nýtingu grisjunar viðar. „Markmið-
ið er að skapa verðmæti úr íslenska
skógarviðnum og byggja upp þekk-
ingu á verkstæðum Litla-Hrauns,“ út-
skýrir Dagný sem hefur sjálf lengi haft
áhuga á að nýta íslenskan grisjunar-
við í sinni hönnun. En hún sótti nám-
skeið hjá Skógræktarfélagi Árnesinga,
um húsgagnasmíði úr skógarvið og
hafði þannig kynni af efniviðnum.
Innlent ferli
Hugmyndafræðin á bak við hönnun-
ina er mikilvægur þáttur að sögn
þeirra Dagnýjar og Hildar og vistvæn
nálgun spilar stórt hlutverk. „Ferlið
er allt ein hringrás sem byrjar á inn-
lendum efnivið úr næsta nágrenni.
Þetta þýðir að flutningsleiðir stytt-
ast sem dregur úr útblæstri og verð-
mætasköpunin er úr íslensku hrá-
efni, efniviðurinn getur einnig gengið
aftur í sína náttúrulegu hringrás, þar
sem viðurinn er einungis sveppa-
varinn en ómeðhöndlaður að öðru
leyti,“ segja þær. Stálið sé hinsvegar
innflutt, eins og allur annar unninn
málmur, sem mun á endanum skila
áframhaldandi verðmætum í endur-
vinnsluferli.
Mannskemmandi að hafa
ekkert að gera
Þær segja reynsluna hafa verið já-
kvæða að öllu leyti og allir hafi tekið
hugmyndinni fagnandi. Skógræktar-
félag Árnesinga útvegaði efniviðinn
og verkstæði Litla-Hrauns lauk við
smíðina.
„Við höfum langmest verið í sam-
bandi við verkstjórana og finnum að
það er reynt að halda vel utan um
fangana. Þeir eru aðstoðaðir við að
sækja nám og/eða annað uppbyggi-
legt,“ segir Dagný og bætir við að
hennar upplifun sé að stefnt sé að
betrunarvist, ekki refsivist.
„Sama hvar fólk er statt í lífinu, það
er mannskemmandi að hafa ekkert
við að vera. Okkar von er að þetta ver-
kefni geti stytt stundir í afplánun og
vonandi falið í sér einhvern lærdóm
á sama tíma,“ útskýrir hún og segir
nánar frá reynslu sinni. „Ég tek hatt-
inn ofan fyrir þeim sem eru að reyna
að vinna uppbyggingarstarf í fang-
elsunum við erfiðar aðstæður,“ segir
Dagný og heldur áfram: „Margrét Frí-
mannsdóttir hefur unnið mjög gott
starf sem forstöðumaður fangelsisins
og þarna eru sem dæmi – margir að
taka próf og standast þau í fyrsta sinn
á ævinni.“
Eitt af markmiðum verkefnis-
ins er að hluti hagnaðar renni í upp-
byggingarsjóð fanga eftir afplán-
un. Í kjölfar samtals við Sr. Hrein S.
Hákonarson fangelsisprest, var svo
ákveðið að stofnaður yrði sjóður fyr-
ir börn fanga í afplánun og láta einnig
hluta af hagnaðnum renna þangað.
Sóma sér vel í náttúru Íslands
Húsgögnin myndu öll sóma sér vel í
náttúru Íslands á sinn látlausa hátt.
Auk þess sem þær stöllur gætu vel
hugsað sér húsgögnin jafnt á opin-
berum svæðum sem og í einkagörð-
um og við sumarbústaði. „Við bind-
um vonir við að ríki og sveitarfélög
vilji styðja verkefnið með vali sínu á
útihúsgögnum. Auk þess væri hægt
að nýta grisjunarvið frá þeim í smíð-
ina,“ leggja þær til og benda á fleiri
kosti: „Varan er innlend framleiðsla
þar sem leitast er við að auka verð-
gildi viðarframleiðslu. Auk þess sem
hún er vistvæn að öllu leyti sem skipt-
ir miklu máli til framtíðar.“ Framund-
an er hönnun á heilli vörulínu sem
mun smám saman líta dagsins ljós.
Bekkurinn Drumbur er hins vegar nú
þegar kominn í sölu í Garðheimum
og einnig má leita til Jóhanns Helga
og co. sem er með umboðssölu. Dag-
ný tekur einnig við fyrirspurnum
beint í síma 820 5355 eða á netfangið
dagny@dld.is.
Bekkinn er hægt að sjá og prófa í
Norræna húsinu í dag þar sem ráð-
stefna um ferðamannastaði er að
hefjast. n
Rut Hermannsdóttir
Tveir til þrír bollar á dag
Kaffidrykkjan virðist vera
þjóðráð í ljósi rannsókna á
heilsufarsáhrifum kaffis.
n Skapandi verkefni í fangelsum n Verðmæti úr íslenskum skógarvið
Útihúsgögn smíðuð
af föngum á Hrauninu
Á „Drumbi“ Dagný Bjarnadóttir, landslagsarkitekt
og Hildur Gunnarsdóttir, arktitekt, eru í forsvari fyrir
hönnunarverkefnið FANG. Fyrsta verkefnið var garð-
bekkur er nefnist Drumbur og er kominn í framleiðslu.
Cronut æði
í New York
Fyrirbærið cronut, er nýjasta æðið
í sætu bakarísfæði. Cronot er sam-
bræðingur úr croissant og donut,
eða franskra smjörhorna og venju-
legra kleinuhringja.
Það er bakarinn, Dominique
Ansel, sem hefur fengið einkaleyfi
á sætabrauðinu og eru biðraðirn-
ar úr bakaríinu hennar í New York
og fjöldi blaðagreina um sæta-
brauðið til marks um að hreint
æði sé runnið á borgarbúa. Cronut
hringirnir eru fylltir með sultu eða
eggjakremi og með sykurbráð og
skrauti og minna helst á hringlaga
vínarbrauð.
Hannar skó
og töskur
Sarah Jessica Parker hefur ásamt
George Malkemus, hjá tískuhúsi
Manolo Blahnik, hannað sína eig-
in skó- og töskulínu.
Vörurnar eru nú í framleiðslu
og munu fást í verslunum Nord-
strom á næsta ári. Sarah vill að
vörurnar verði á góðu verði og
að vinnuafl sem vinni að fram-
leiðslunni njóti góðs aðbúnaðar
og kjara.
Poppkorn er
heitasta snarlið
Poppkorn er klassískt snarl en
hefur þó gengið í gegnum endur-
nýjun lífdaga síðustu misseri. Á
börum í Soho í London þykir ekki
lengur móðins að stilla fram hnet-
um í skál. Þess í stað fá bjórþyrst-
ir gestir popp með skemmtilegum
bragðtegundum, popp með hvítu
súkkulaði og berjum, papriku og
pipar-popp eru meðal nýstárlegra
útgáfa af poppi í Soho.
Það er tiltölulega einfalt að
bragðbæta poppkorn. Best er að
velta poppinu heitu úr krydd-
blöndu. Sumir setja heitt popp-
ið í poka með bragðefnunum og
hrista.