Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2013, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2013, Page 27
Fólk 27Mánudagur 10. júní 2013 „Hún bara hvarf“ n Töframaðurinn Einar Mikael týndi dúfunni sinni, Maríu É g er búinn að leita alls stað­ ar. Hún er ekki uppi í erminni minni. Hún bara hvarf,“ segir töframaðurinn Einar Mikael um dularfullt hvarf einnar dúfu sinnar, Maríu. „Hún María hefur verið týnd síðan á fimmtudaginn, ég var með vinafólk í heimsókn hjá mér og eflaust hefur hún flogið út um opnar dyr án þess að við höfum tekið eftir því,“ seg­ ir hann og segist hafa auglýst eftir Maríu með öllum tiltækum ráðum.“ Einar Mikael á tvær dúfur sem hann notar í atriðum sínum, þau Prins og Maríu, og hefur eytt dágóð­ um tíma í að þjálfa þær. Hann var í meistaranámi í töfra­ fræðum við við Hogwarts School of Witchcraft and Wizard sem hann lauk síðasta sumar og þar æfði hann sig í dúfutöfrabrögðum og sjón­ hverf ingum. Hann keppti síðan með þeim Maríu og Prins á sérstöku töframóti sem haldið var af alþjóð­ legum samtökum töframanna eða FISM, sem stendur fyrir The Féd­ ération Internationale des Sociétés Magiques, á þriggja ára fresti. Það er því ljóst að hvarf Maríu er mikið óhapp fyrir töframanninn. „María er konan hans Prins og þau eru uppistaðan í töfraveldi mínu svo ég legg allt kapp á að finna hana,“ segir Einar Mikael að vonum frem­ ur hvekktur yfir hvarfinu. „Hún er mjög gæf, svo ef einhver kemur auga á hana þá ætti að vera fremur auðvelt að ná henni,“ segir hann vongóður. n kristjana@dv.is Barnalán hjá Rósu og Kristjáni Rósa Björk Brynjólfsdóttir hjá Vinstri Grænum og Kristján Guy Burgess sem starfar sem sér­ fræðingur í utanríkisráðuneytinu eiga von á sínu öðru barni. Fyrir á Rósa dóttur á barnsaldri svo að fjölskyldan sem búsett er í Vest­ urbænum blómstrar. Rósa Björk og Kristján tóku saman fyrir nokkrum árum síðan en þekkt­ ust vel áður enda samtíða í MR. V ið erum ekki að flytja heim af því það gekk illa í Noregi, segir Davíð Sigurgeirsson unnusti Jóhönnu Guðrún­ ar Jónsdóttur um flutning þeirra heim frá Noregi. „Þvert á móti gekk mjög vel að byggja upp feril­ inn. Hún mun halda áfram að fljúga út og byggja á því sem við komum af stað úti. Við erum einfaldlega að flytja heim af því við söknuðum fjöl­ skyldu og vina og viljum vera hér nálægt þeim.“ Prufukeyrsla Jóhanna Guðrún er með norskan umboðsmann sem hún hefur þekkt í fjölda ára, og taldi viturlegt að færa sig nær honum um tíma og það var ein aðalástæðan fyrir því að parið ákvað að freista gæfunnar í Noregi. „Það eru tækifæri hér sem við ætl­ um að prófa og sjá hvort það gangi vel. Þetta er svona prufukeyrsla hjá okkur,“ útskýrði hún í viðtali um flutningana við DV: „Við erum ung og það eru fullt af möguleikum hér. Ef maður nýtir sér þá rétt þá getur ýmislegt gerst,“ bætir hún við. Vesen að flytja á milli landa Davíð segir þau hafa nýtt möguleik­ ana vel það ár sem þau bjuggu í Nor­ egi og það hafi verið góð hugmynd að flytja þangað. Nú kemur parið sér hins vegar fyrir í heimabæ Jóhönnu Guðrúnar í Hafnarfirði. Gámurinn frá Noregi kom fyrir helgi og þegar blaðamaður ræðir við Davíð er hann að bera kassa inn á heimili þeirra. „Við komum heim á sunnudaginn síðasta, það er nú dálítið vesen að flytja svona á milli landa,“ segir Dav­ íð og hlær en sagði þau fá góða hjálp. Hundarnir í einangrun Jóhanna Guðrún og Davíð eru barn­ laus og Davíð segir ekkert planað hvað það varðar. Þau eiga hins vegar tvo hunda sem þeim þykir afskap­ lega vænt um. „Já, þau Bjartur og Díva eru í fjögurra vikna einangrun eftir flutninginn frá Noregi. „Þetta er dálítið langt, en það er ekkert við þessu að gera,“ segir hann og segir þau sakna hundanna.“ Þau söknuðu Íslands á með­ an dvöl inni stóð. „Það var æðislegt að vera úti,“ segir Davíð. „Í raun­ inni vorum við búin að leggja mjög hart að okkur úti og vinna í málun­ um hennar Jóhönnu en þegar leið á árið var þetta komið á það stig að það skipti ekki lengur máli hvort Jó­ hanna væri í Noregi eða á Íslandi.“ n kristjana@dv.is Ekkert flopp í Noregi n Söknuðu fjölskyldu og vina n Jóhönnu gengur vel í Noregi n Flutt í Hafnarfjörðinn Ástfangin Davíð og Jóhanna Guðrún eru innilega ástfangin og samheldið par. Engar barneignir eru fyrirhug- aðar á næstunni en þau hafa unnið ötullega að ferli Jóhönnu Guðrúnar úti í Noregi. „ Í rauninni vorum við búin að leggja mjög hart að okkur úti. Uppistaðan í töfra- veldinu „María er konan hans Prins og þau eru uppistaðan í töfraveldi mínu svo ég legg allt kapp á að finna hana,“ segir Einar Mikael töframaður. María Ef einhver sér töfradúfuna Maríu er ráð að hafa samband við Einar Mikael. Kona Mikaels í Þjóðleikhúsið Listaháskóli Íslands brautskráði nemendur frá skólanum á há­ tíðarsamkomu sem haldin var í Borgarleikhúsinu síðastliðinn laugardag. Að þessu sinni útskrifuðust rúmlega 140 nemendur en það er fjölmennasti útskriftarhópur frá upphafi. Meðal þeirra sem útskrif­ uðust var Elma Stefanía Ágústs­ dóttir sem er nú útskrifuð leik­ kona. Elma er eiginkona Mikaels Torfasonar, ritstjóra á 365 miðlum, og var hann að vonum ákaflega stoltur af sinni frú sem er nú þegar búin að landa föstu starfi hjá Þjóð­ leikhúsinu. Hvött til að fara lúshægt Eva María Jónsdóttir fjölmiðla­ kona er öflugur hlaupari en lét sig vanta í Kvennahlaupið í ár. Ástæðan: Höfuðlús. „Á mað­ ur að deila lífi sínu á feisbúkk? Hvernig finnst fólki að heyra sann­ leikann? Kemst ekki í kvenna­ hlaupið. Ástæða: Höfuðlús,“ til­ kynnti Eva María á Facebook. Hennar ektamaður, Sigurpáll Scheving, vildi þó hvetja hana áfram þrátt fyrir allt: „Þú get­ ur farið á lúsarferð eða lúshægt eða lúskrað á einhverjum.“ Benti hann á.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.