Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2013, Blaðsíða 3
Fréttir 3Miðvikudagur 17. júlí 2013
Samkvæmt starfandi sund
laugaverði í Laugar dals lauginni
er aðsókn Íslendinga mun minni
en í fyrra en túristar koma ennþá
í hrönnum. „Túristarnir eru nátt
úrulega svo rosalega stór partur
af sumartraffíkinni og þeir bóka
sig yfirleitt með hálfsársfyrirvara;
vita ekki hvernig þetta virkar,“
segir sundlaugavörðurinn, sem
vill síður láta nafns síns getið, og
heldur áfram. „En það er vafa
laust minni aðsókn en í fyrra,
enda var þetta bara algjört rugl
þá. Einn daginn komu 6 þúsund
manns í sund. Ég held að það sé
hægt að fullyrða að það eru tölu
vert færri gestir þetta sumarið,“
segir vörðurinn sem kennir fáum
sólardögum um. n
Kaffihús tapa á
leiðinlegu veðri
n Lægstu hitatölur frá árinu 1993 n Meiri úrkoma og minni sól n Blíða á Austurlandi
Trausti Jónsson Íslenskir veðurfræðingar
eru sjaldan boðberar gleðilegra tíðinda. Sú
er að minnsta kosti raunin í sumar.
n Bæjarstjóri og styrktaraðili standa við bakið á Þjóðhátíðarnefnd
Styðja Gillz
og nefndina
Þ
jóðhátíðarnefnd hefur feng
ið Egil „Gillz“ Einarsson til að
stýra hinu sögufræga Húkk
araballi á næstu Þjóðhátíð. Í
kjölfar ákvörðunarinnar var
nafnlaust bréf sent á Þjóðhátíðar
nefnd, samstarfsaðila Þjóðhátíðar og
Elliða Vignisson, bæjarstjóra. Bæði
Elliði og talsmaður Ölgerðarinn
ar, sem er stærsti styrktaraðili Þjóð
hátíðar, segjast styðja ákvarðanir
Þjóðhátíðarnefndar og treysta henni
fullkomlega til að skipuleggja hátíð
ina og velja þá listamenn sem þar
koma fram.
Í bréfinu er því mótmælt að mað
ur sem „ítrekað hefur gerst sekur um
kynþáttafordóma, kvenfyrirlitningu
og niðrandi viðhorf í garð karla sem
samræmast ekki þeirri ímynd sem
hann stendur fyrir“ sé látinn stýra
ballinu. Bréfið gengur núna manna
á milli, og eru viðtakendur hvattir
til rita nafn sitt undir og áframsenda
það á nefnda aðila.
Harðort, nafnlaust bréf
Óvíst er hver eða hverjir rituðu bréf
ið eða hversu margir hafa áframsent
það. Ljóst er hins vegar að bréfið er
ansi harðort í garð Egils, en það má
sjá það í heild sinni hér með frétt.
Þar eru skrif Egils um kvenfólk og
blökkumenn meðal annars gerð að
umtalsefni, og sú staðreynd að hann
hafi verið kærður fyrir nauðgun
dregin fram í dagsljósið en ríkissak
sóknari tók ákvörðun um að ákæra
ekki í málinu. Einnig eru léttúðug
skrif hans um nauðganir í Herjólfsdal
rifjuð upp. „Í bók sinni „Mannasiðir
Gillz ritar hann: „Veistu hvað gerist
ef þú deyrð áfengisdauða niðri í Dal?
Þú færð undantekningarlaust eitt
og annað í rassinn á þér: Tjaldsúlu,
tjaldhæl, kókflösku eða slökkvitæki,“
segir í bréfinu.
Ósáttir geta setið heima
„Þeim sem mislíkar ákvörðunin, þeir
koma bara væntanlega ekki á ball
ið,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri
í Vestmannaeyjum, en tekur þó fram
að skipulagning Þjóðhátíðar sé ekki á
vegum bæjarins. „Vestmannaeyjabær
heldur hvorki Þjóðhátíð né Húkkara
ball. Ég treysti hins vegar Þjóðhá
tíðarnefnd fullkomlega til þess að
taka réttar ákvarðanir. Þjóðhátíð er
bænum gríðarlega mikilvæg og það
hefur tekist vel til með þróunina í
þessi á annað hundrað ár sem há
tíðin hefur verið haldin. Þetta breyt
ir engu þar um.“ Aðspurður hversu
marga tölvupósta hann hafi fengið,
með bréfinu í viðhengi, segir Elliði:
„Ég hef fengið fjóra tölvupósta. Í þeim
tölvupóstum sem ég hef lesið í gegn
um, þá er vitnað í bók sem þessi til
tekni skemmtikraftur skrifaði og lýst
yfir áhyggjum yfir þeim viðhorfum
sem þar eru sett fram; bæði til mis
munandi kynþátta og kynjanna. Þó
ég skilji alveg áhyggjurnar þá finnst
mér eins og verið sé að blanda saman
tvennu mjög ólíku; þegar blandað er
saman bók, sem að skrifuð er með
gamansömum tóni og diskóteki sem
haldið er. Sjálfum finnst mér þetta
tvennt ótengt.“ Elliði ítrekar skilning
sinn á viðhorfunum og segist virða
skoðanir þessa fólks.
Þögn Þjóðhátíðarnefndar
Hörður Orri Grettisson situr í Þjóð
hátíðarnefnd. „Við ætlum ekki að
tjá okkur neitt um þetta mál. Við
munum senda út yfirlýsingu vegna
málsins síðar,“ segir hann. Hann
vill ekki greina frá því hversu mörg
bréf nefndin hefur fengið, hver tók
ákvörðun um að fá Gillz til að sjá
um ballið, hvort nefndin hyggist fá
einhvern annan til að sjá um ballið
í ljósi óánægjunnar né um nokkuð
annað er málinu tengist.
Ölgerð Egils Skallagrímssonar
er stærsti styrktaraðili Þjóðhátíðar.
Gestur Jónsson, vörumerkjastjóri
hjá Ölgerð inni, sér um markaðssetn
ingu hátíðarinnar fyrir hönd fyrir
tækisins. Gestur segir að forstjóri
Ölgerðarinnar hafi fengið umrædd
bréf. Ráða má af orðum hans að Öl
gerðin styðji ákvörðun Þjóðhátíðar
nefndar. „Við berum fullt traust til
Þjóðhátíðarnefndar í vali þeirra á
listamönnum, stöndum bara þétt að
baki þeim. Auðvitað hefur Egill verið
mikið á milli tannanna á fólki,“ seg
ir Gestur og bætir við að það breyti
engu um afstöðu Ölgerðarinnar,
sem muni ekki beita sér í málinu.
Þjóðhátíðarkurr
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem orð og
aðgerðir Þjóðhátíðarnefndar valda
ólgu. Skemmst er frá því að segja
þegar Páll Scheving, fyrrum formað
ur Þjóðhátíðarnefndar, lýsti því yfir
að nærvera Stígamóta magnaði upp
þann vanda sem nauðganir eru á úti
hátíðinni. „Það er þannig að þar sem
þær hafa birst er eins og vandamál
ið hafi stækkað. Það er ljótt að segja
það, en ég segi það samt, það er eins
og samtökin nærist á því að vanda
málið sé til staðar og reyni frekar að
ýta undir það heldur en hitt. Vanda
málin eru alltaf fleiri og stærri þegar
Stígamót eru á staðnum,“ sagði Páll
á borgarafundi í Vestmannaeyjum
árið 2011 og vöktu ummælin upp
hörð viðbrögð fólks úr öllum áttum,
sérstaklega Stígamóta sem bentu
á, að því auðveldara sem það er að
tilkynna um nauðgun og leita sér
hjálpar, því líklegar sé að fórnarlömb
geri það. Það, að færa ofbeldið fram
í dagsljósið, sé gott, en ekki slæmt.
Venja er að halda Húkkaraballið
inni, en að þessu sinni verður það
undir berum himni í sundinu milli
austur og vesturhúss Fiskiðjunnar.
Ekki náðist í Egil þrátt fyrir ítrek
aðar tilraunir. n
Baldur Eiríksson
blaðamaður skrifar baldure@dv.is
Þykki Mikill kurr er í sumum vegna
ákvörðunar Þjóðhátíðarnefndar að fá
Gillzenegger til að stýra Húkkaraballinu.
Ástæðan er meðal annars meint kvenfyrir-
litning og léttúðug ummæli um nauðganir í
Herjólfsdal.
Skilur óánægjuraddir Þrátt fyrir djúpan
skilning á ólíkum sjónarmiðum ber Elliði
Vignisson fullt traust til Þjóðhátíðarnefndar
og þeirra ákvarðana sem hún tekur. Hann
bendir úrtölumönnum á, að hægt sé að sitja
heima.
Mótmælabréfið Þar er farið hörðum orðum
um Egil Einarsson en bréfið er nafnlaust.
15. júlí 2013
Kæra Dóra, framkvæmdastjóri Þjóðhátíðarnefndar í Vestmannaeyjum
Við undirrituð komum hér með á framfæri þeim tilmælum til Þjóðhátíðarnefndar og helstu
samstarfsaðila hátíðarinnar að annar einstaklingur en Egill Einarsson verði fenginn til að stý
ra árlegu
Húkkaraballi. Ástæðan er eftirfarandi:
Egill Einarsson, eða alter-egó á hans vegum, hefur ítrekað gerst sekur um kynþáttafordóma
,
kvenfyrirlitningu og niðrandi viðhorf í garð karla sem samræmast ekki þeirri ímynd sem han
n stendur
fyrir.
Egill hefur gengið svo langt að bendla nafn Þjóðhátíðar við hugmyndir sínar um að ofbeldi s
é eðlilegur
fylgifiskur hátíðarinnar og eitthvað sem þolendur eigi að gera ráð fyrir að hendi sig. Í bók si
nni
„Mannasiðir Gillz ritar hann: „Veistu hvað gerist ef þú deyrð áfengisdauða niðri í Dal? Þú fæ
rð
undantekningarlaust eitt og annað í rassinn á þér: Tjaldsúlu, tjaldhæl, kókflösku eða
slökkvitæki“.Kynþáttafordómarnir kristallast á bls. 27, þar sem segir: „Í menningu blökkum
annsins
skiptir miklu máli að koma fram við konuna sína eins og drasl ... þeim er skítsama um nám
og þeir
nenna ekki að vinna en eru mjög duglegir í kellingunum. Hinsvegar er Asíubúinn mjög dugle
gur að
mennta sig og vinna en lélegur að stunda kynmök.“Á bls. 68 lýsir hann körlum sem aðhylla
st ekki
líkamsrækt á eftirfarandi hátt: „Þetta lið, sem ég kalla nú yfirleitt bara drasl, reynir að skera
sig úr
með því að vera í 1500 króna úlpu, með húfu og vettlinga og órökuð æxlunarfæri.“Egill hef
ur einnig
ýtt undir andúð í garð jafnréttissinna og femínista. Hann skrifaði til dæmis bloggfærslu um
að það
ætti að senda „tvo harða“ á þingkonuna Steinunni Valdísi Óskarsdóttur og „gefa þessum le
iðinda
rauðsokkum einn granítharðan í háruga bílskúrinn til þess að þagga niður í þeim.“ Þetta va
r að áliti
margra illa dulbúin hótun um nauðgun.
Á Íslandi ríkir skoðana- og málfrelsi. Hins vegar er ólöglegt að boða hatur í garð ákveðinna
þjóðfélagshópa. Kven- og mannfyrirlitning Egils mætti heimfæra undir skv. almennum
hegningalögum, grein 233. a. þar sem segir: „Hver sem með háði, rógi, smánun, ógnun eða
á annan
hátt ræðst opinberlega á [mann eða hóp manna]1) vegna þjóðernis þeirra, litarháttar, [kyn
þáttar,
trúarbragða eða kynhneigðar] 1) sæti sektum …2) eða fangelsi allt að 2 árum.]3)2“.
Einnig ber að nefna þá staðreynd að Egill Einarsson hefur tvívegis verið kærður fyrir að nau
ðga
unglingsstúlkum, þótt málin hafi ekki farið fyrir dómstóla fremur en 70% kærðra nauðgana
hérlendis.Íslenskt samfélag býr yfir mörgu hæfileikaríku fólki – sem hefur aldrei verið sakað
um að
hóta þingkonum nauðgun né um að nauðga unglingsstúlkum. Því miður hefur orðspor Þjóð
hátíðar
verið litað af kynferðisofbeldi undanfarin ár. Okkur þykir vænt um ímynd Þjóðhátíðar í Eyju
m, stærstu
útihátíðar Íslendinga, og viljum færa hana fjær – en ekki nær – þeim viðurstyggilega ofbeld
isglæp sem
nauðgun er.Í ljósi fordómafullra og niðrandi ummæla Egils Einarssonar í gegnum tíðina, og
þeirrar
stefnu Þjóðhátíðarnefndar að halda úti forvörnum gegn kynferðisofbeldi, þá förum við þes
s hér með
vinsamlegast á leit að horfið verði frá þeim áformum að hann stýri Húkkaraballinu 2013.
Við kynnum að meta að fá viðbrögð Þjóðhátíðarnefndar gagnvart vinsamlegum tilmælum o
kkar.
Með óskum um gleðilega Þjóðhátíð 2013!
Virðingarfyllst,
(Nöfn undirritaðra)
Stuð í Herjólfsdal Þjóðhátíð
í Eyjum er langþekktasta úti-
hátíð á Íslandi. Hún fer fram um
verslunarmannahelgina.