Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2013, Page 8
8 Fréttir 17. júlí 2013 Miðvikudagur
Lýsti áhyggjum
af makríldeilunni
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, forsætisráðherra, fundaði á
þriðjudag með José Manuel Bar-
roso, forseta framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins og Herman
van Rompuy, forseta leiðtogaráðs
Evrópusambandsins. Í tilkynningu
frá forsætisráðuneytinu kemur
fram að Sigmundur hafi á fundun-
um gert grein fyrir áherslum nýrrar
ríkisstjórnar varðandi hlé á við-
ræðum við Evrópusambandið og
lagt áherslu á mikilvægi góðs sam-
starfs Íslands og Evrópusambands-
ins og gildi EES-samningsins fyrir
Íslendinga. Fjallað var um stöðu
mála innan Evrópusambandsins
almennt, einkum um þróun efna-
hagsmála á evrusvæðinu og fram-
tíð þess.
Sigmundur gerði einnig grein
fyrir afstöðu Íslands í makríl-
deilunni, lýsti áhyggjum af þeirri
umræðu sem hefur verið á vett-
vangi Evrópusambandsins um
mögulegar viðskiptaþvinganir ESB
gagnvart Íslandi í andstöðu við
EES og Alþjóðaviðskiptastofnun-
ina (WTO) og benti á að slíkar að-
gerðir myndu ekki stuðla að lausn
deilunnar.
„Þetta voru mjög uppbyggileg-
ir og jákvæðir fundir. Möguleik-
ar á sterkara samstarfi Íslands og
ESB eru fjölbreyttir og við eigum
að vinna sameiginlega að því að
nýta þá óháð því hvernig sambandi
þessara aðila er háttað að öðru
leyti. Þar nefni ég til dæmis sér-
staklega Norðurslóðasamstarf, um-
hverfismál og orkunýtingu“ sagði
Sigmundur að loknum fundunum.
„Það var sérstaklega áhugavert
að heyra mat Barroso á framtíðar-
þróun Evrópusambandsins og
þeim áskorunum sem sambandið
stendur frammi fyrir. Við rædd-
um einnig þá stöðu sem komin er
upp í makríldeilunni og það var
mjög ánægjulegt að heyra að for-
seti framkvæmdastjórnarinnar tók
að loknum umræðum okkar skýrt
fram að höfuðmarkmið Evrópu-
sambandsins væri að leysa deiluna
með samningum og að mögulegar
refsiaðgerðir sambandsins vegna
deilunnar myndu alls ekki fara
út fyrir ramma EES samningsins
og WTO eða annarra alþjóðlegra
skuldbindinga Evrópusambands-
ins,“ var haft eftir Sigmundi.
Ásókn í skóla
Sjávarútvegsskóli Síldarvinnsl-
unnar verður settur mánu-
daginn 29. júlí næstkomandi.
Umsóknarfrestur um skólavist
rann út 15. júlí og er ljóst að
skólinn verður fullsetinn. Ráð-
gert var að nemendur yrðu 20
talsins en vegna mikils fjölda
umsókna hefur verið ákveðið að
taka inn 27 nemendur.„Margir
hafa sýnt fyrirhuguðu skólastarfi
áhuga og hafa Síldarvinnsl-
unni borist fyrirspurnir um
hvernig ráðgert sé að standa að
skólahaldinu. Almennt virðast
menn sammála því að full þörf
sé á að gefa ungmennum kost á
fræðslu um þessa undirstöðu-
atvinnugrein þjóðarinnar, sögu
hennar og eðli,“ segir í tilkynn-
ingu frá Síldarvinnslunni.
Skólinn mun starfa í tvær vik-
ur, 3–4 klukkustundir á dag og
munu starfsmenn Síldarvinnsl-
unnar annast kennslu. Litið er
á skólahaldið sem tilraunaver-
kefni og að þessu sinni höfðu
8. bekkingar Nesskóla forgang
þegar unnið var úr umsóknum.
Nemendur fá greidd námslaun
og verða launin sambærileg
þeim launum sem greidd eru í
Vinnuskóla Fjarðabyggðar.
Titringur vegna
nýrrar stjórnar RÚV
n Sigmundur Davíð sagði Láru Hönnu vanhæfa til að sitja í stjórn RÚV
L
ára Hanna Einarsdóttir, þýð-
andi og bloggari á Eyjunni, var
krafin af lögmanni mennta-
málaráðuneytisins um að
sanna hæfi sitt til stjórnarsetu í
varastjórn Ríkisútvarpsins daginn eft-
ir að hún var tilnefnd í stjórnina á Al-
þingi. Í samtali við DV staðfestir hún
að lögmaður ráðuneytisins hafi sent
sér bréf líkt og fram kom í grein um
málið í Fréttablaðinu á mánudaginn.
Að öðru leyti segist hún ekki mikið
vilja tjá sig um þetta mál. Enda finn-
ist henni það ekki vera á sínu borði þar
sem hún hafi ekki verið beinn þátttak-
andi í málinu að öðru leyti en því að
samþykkja að taka að sér stjórnarset-
una. Lára Hanna hefur starfað sem
verktaki fyrir 365 miðla við þýðingar
og hefur þýtt þættina Bold and the
Beautiful fyrir Stöð 2.
Átök á þingi
Eins og kunnugt er varð mikið fjaðra fok
á Alþingi þegar meirihluti Sjálfstæðis-
flokksins og Framsóknar ætlaði sér að
tilnefna sex stjórnarmenn í meirihluta
stjórnar RÚV á móti þremur frá minni-
hlutanum. Eftir atkvæðagreiðslu á
þingi þar sem einn stjórnarliði greiddi
atkvæði á móti tillögu meirihlutans
varð hins vegar úr að halda sig við að
stjórnarflokkarnir fengju fimm stjórn-
armenn á móti fjórum frá stjórnarand-
stöðunni. Ekki hefur enn verið upplýst
hver var umræddur stjórnarliði en um
var að ræða leynilega kosningu. Í stað
þess að tilnefna Láru Hönnu sem aðal-
mann og Pétur Gunnarsson sem vara-
mann Pírata í stjórn RÚV ákvað þing-
flokkurinn að tilnefna Pétur aðalmann.
„Tveir úr minnihlutanum vöruðu
okkur við. Orðið á göngunum væri
að það ætti að hjóla í Láru og mann-
orðsmyrða hana uppi í þingsal.
Málsvörn meirihlutans átti að vera sá
að fulltrúi okkar væri vanhæfur. Þess
vegna svissuðum við. Við vildum ekki
gefa þeim tækifæri til að réttlæta þenn-
an hryllilega gjörning svika," sagði
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata
í samtali við Fréttablaðið á mánu-
daginn.
Björg seldi hlut sinn í Smugunni
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem mögu-
legir hagsmunaárekstrar stjórnar-
manna RÚV koma til tals. Þannig seldi
Björg Eva Erlendsdóttir, núverandi full-
trúi Vinstri grænna í stjórn RÚV, fimm
prósenta hlut sinn í vefritinu Smug-
unni í upphafi árs 2012 þegar Vinstri
grænir tilnefndu hana sem stjórnar-
formann Ríkisútvarpsins. „Þeir [innsk.
stjórnarmenn] mega ekki, hvorki beint
né óbeint, inna af hendi nokkurt starf,
taka við greiðslu eða hafa nokkurra
hagsmuna að gæta í öðrum fjölmiðla-
fyrirtækjum eða fjölmiðlatengdum fyr-
irtækjum sem leitt geta til árekstra við
hagsmuni Ríkisútvarpsins,“ segir í ní-
undu grein laga um Ríkisútvarpið ohf.
Þó hafa sumir efast um lögmæti þess
að lögfræðingi menntamálaráðuneyt-
isins hafi verið heimilt að óska eftir því
að Lára Hanna sannaði sérstaklega
hæfi sitt til að setjast í varastjórn RÚV.
Furðar sig á viðbrögðum
Sigmundar Davíðs
„Það sem ég hafði áhyggjur af var að
Sigmundur Davíð var greinilega bú-
inn að kanna bakgrunn Láru Hönnu
mjög hratt og sagði vafamál hvort hún
væri hæf til stjórnarsetu. Ég reyndi þá
að útskýra fyrir honum að hún ynni
sem verktaki fyrir 365 miðla við þýð-
ingar,“ segir Birgitta Jónsdóttir, formað-
ur þingflokks Pírata í samtali við DV.
„Mér finnst margt mjög skringilegt
í þessu máli. Að gera þetta enn póli-
tískara og færa stjórn Ríkisútvarpsins í
sama farveginn og var áður, sem mikið
var gagnrýnt á sínum tíma, tel ég ekki
heppilegt. Ég hef almennt áhyggjur af
stöðu fjölmiðla á Íslandi og þá sérstak-
lega RÚV,“ segir Birgitta. Píratar muni
leggja fram fram þingsályktunartillögu
um að allir sem taka sæti í útvarpsráði
eiga að fara í hæfnis mat. Tillagan verði
lögð fram þegar þing kemur saman í
haust.
Segir Birgitta það mjög sérstakt að
Lára Hanna Einarsdóttir hafi verið sú
eina sem hafi verið krafin um að sanna
hæfi sitt til stjórnarsetu hjá RÚV. Það
myndi sýna fram á bætta stjórnsýslu ef
allir yrðu krafðir um slíkt, samkvæmt
formlegu ferli.
Hún segist hafa verið mjög ánægð
með þá þróun sem varð í tíð ríkis-
stjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri
grænna á síðustu árum um að skipa
fólk í stjórnir og embætti á vegum hins
opinbera af meiri fagmennsku en áður.
Þó hefði að mati Birgittu mátt ganga
enn lengra í þeim efnum.
Varamaður réð Illuga í vinnu
Líkt og áður kom fram var þrýst á Björg
Evu Erlendsdóttur að selja hlut sinn
í Smugunni árið 2012 þegar hún var
gerð að formanni stjórnar RÚV. Hún
var hins vegar ekki beðin um að sanna
hæfi sitt til að sitja í stjórn RÚV, líkt og
Lára Hanna nú.
Önnur mál hafa ekki komið upp svo
vitað sé. Hins vegar má nefna að Jón
Hákon Magnússon, sem Sjálfstæðis-
flokkurinn tilnefndi í varastjórn RÚV
er framkvæmdastjóri og annar eiganda
KOM almannatengsla. Það fyrirtæki
aðstoðar fólk vegna samskipta við fjöl-
miðla en ekki liggur ljóst fyrir hvort slík
fyrirtæki séu skilgreind sem fjölmiðla-
tengd, samanber lög um Ríkisútvarpið
eða ekki.
Illugi Gunnarsson, mennta- og
menn ingarmálaráðherra sem RÚV
heyrir undir, vann hjá KOM almanna-
tengslum um skeið á meðan hann
tók sér launalaust leyfi frá þingstörf-
um í kjölfar rannsóknar embættis sér-
staks saksóknara á málefnum Sjóðs 9
þar sem hann var stjórnarmaður. „Ég
er að hjálpa Jóni Hákoni og hef mikla
ánægju að starfa með honum,“ sagði
Illugi í samtali við Pressuna árið 2011
og var þar að vísa til Jóns Hákonar sem
nú hefur verið tilnefndur í varastjórn
RÚV. Þá má geta þess að Sigríður Hall-
grímsdóttir, sem nýlega var ráðin að-
stoðarmaður Illuga Gunnarssonar
starf aði hjá KOM almannatengslum
þar til að Illugi réð hana. Tengsl Illuga
við umrætt almannatengslafyrirtæki
eru því nokkur.
Sjálfstæðismenn vilja breytingar
Þá sagði einn viðmælanda DV áhuga-
vert að rifja upp að Illugi hefði ver-
ið aðstoðarmaður Davíðs Oddssonar,
núverandi ritstjóra Morgunblaðsins
þegar hann gegndi starfi forsætisráð-
herra. Gegndi Illugi því starfi frá árinu
2000 til 2005 en undir lokin var Davíð
sem kunnugt er utanríkisráðherra.
Páll Magnússon, útvarpsstjóri
Ríkis útvarpsins (RÚV) skrifar háðu-
lega grein um stöðugar árásir Davíðs
Oddssonar á RÚV sem birtist í Frétta-
blaðinu fyrir stuttu þar sem hann
greindi frá því að ritstjóri Morgun-
blaðsins hefði skrifað 224 sinnum um
RÚV í forystugreinum blaðsins á þeim
tæplega fjórum árum sem hann hefur
setið á stóli ritstjóra.
Þá var Ingvi Hrafn Óskarsson, lög-
maður, tilnefndur í aðalstjórn RÚV
sem fulltrúi Sjálfstæðisflokksins en
hann er fyrrum formaður Sambands
ungra sjálfstæðismanna og er ná-
inn vinur Illuga Gunnarssonar. Þá
var Ingvi Hrafn varaþingmaður Sjálf-
stæðisflokksins frá 2003 til 2007 og að-
stoðarmaður Sólveigar Pétursdóttur,
þáverandi dóms- og kirkjumálaráð-
herra þar til hún lét af embætti árið
2003.
Hvort Illugi deili sömu skoðun og
Davíð varðandi „vinstri-slagsíðu“ RÚV
skal ósagt látið. Þó hefur lengi ver-
ið vitað að sjálfstæðismenn vilja sjá
breytingar varðandi efnistök hjá RÚV
en hvort eða hvernig því verður kom-
ið í framkvæmd verður að koma í ljós
á næstu mánuðum. DV sendi Illuga
nokkrar spurningar vegna málsins en
engin svör bárust.n
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar annas@dv.is
Taldi Láru Hönnu vanhæfa
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
forsætisráðherra tjáði Birgittu
Jónsdóttur að efast væri um hæfi
Láru Hönnu Einarsdóttur til stjórn-
arsetu hjá Ríkisútvarpinu vegna
starfa hennar fyrir 365 miðla.
Olli titringi Samkvæmt frásögn Birgittu
Jónsdóttur voru fulltrúar meirihlutans ekki
sáttir við að Lára Hanna Einarsdóttir þýð-
andi, fengi sæti sem aðalmaður í stjórn RÚV.
Hefur áhyggjur af stöðu fjölmiðla
Birgitta Jónsdóttir, formaður þingflokks Pírata
segist almennt hafa áhyggjur af stöðu fjöl-
miðla á Íslandi, þá sérstaklega Ríkisútvarpsins.
Illugi var aðstoðarmaður Davíðs
Illugi Gunnarsson var aðstoðarmaður
Davíðs Oddssonar 2000–2005 en eins og
kunnugt er hefur Davíð verið mjög duglegur
að gagnrýna Ríkisútvarpið í ritstjóratíð sinni
á Morgunblaðinu. Margir sjálfstæðismenn
vilja sjá breytingar á efnistökum RÚV.
Tilnefndi fyrrum vinnuveitanda Einn
þeirra sem Sjálfstæðisflokkurinn tilnefndi í
stjórn RÚV er Jón Hákon Magnússon, fram-
kvæmdastjóri og eigandi KOM almanna-
tengsla en Illugi Gunnarsson, mennta- og
menningarmálaráðherra, starfaði um tíma
hjá almannatengslafyrirtækinu á meðan
hann var í leyfi frá störfum á Alþingi.