Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2013, Qupperneq 12
12 Fréttir 17. júlí 2013 Miðvikudagur
Aldrei hamingjusamari
n Varð yngsti lottóvinningshafi Bretlands n Eyddi öllu í dóp og vitleysu
C
allie Rogers varð yngsti
lottóvinningshafi Bretlands
þegar hún vann 1,9 milljónir
punda, um 350 milljónir
króna, árið 2003. Þá var Callie
ein ungis sextán ára gömul. Í dag
er fjárhagsstaða hennar þó önn
ur og verri enda eyddi hún nán
ast öllu vinningsfénu í fíkniefni,
áfengi, föt og lýtaaðgerðir. Óhætt
er að segja að lottóvinningurinn
hafi ekki reynst henni sérstaklega
vel enda reyndi hún sjálfsvíg í þrjú
skipti eftir að hafa orðið þunglynd.
Callie segir í viðtali við breska
blaðið Mirror að nú, tíu árum síð
ar, eigi hún einungis tvö þúsund
pund, um 370 þúsund krónur, eft
ir af vinningsfénu. Þrátt fyrir pen
ingaleysið hafi hún aldrei nokkurn
tímann verið hamingjusamari.
„Ég á í raun erfitt með að trúa
að það séu liðin tíu ár síðan ég
vann í lottóinu. Ég lít ekki á mig
sem lottóvinningshafa og mér líð
ur eins og ósköp venjulegri mann
eskju. Þetta voru of miklir pen
ingar fyrir unga manneskju eins
og mig. Jafnvel þó einhver haldi
því fram að líf hans breytist ekkert
við að vinna í lottóinu þá er það
ekki rétt. Stundum breytist lífið
til hins betra og stundum til hins
verra,“ segir Callie.
Fjölskylduaðstæður stúlkunnar
þegar hún vann í lottóinu voru
slæmar og hafði hún flutt að
heiman skömmu áður. Eftir að
hún vann þann stóra keypti hún
sér fjórar fasteignir, eyddi 15 millj
ónum króna í nýja bíla og gekkst
undir tvær brjóstastækkunarað
gerðir. Þá varð hún háð kókaíni og
eyddi hún fleiri milljónum í eitur
lyfið sem fór illa með hana.
Í dag, þegar peningarnir eru
nánast á þrotum, segist Callie
hafa fundið hamingjuna. Hún er
gift slökkviliðsmanni og eiga þau
eitt barn saman en Callie eign
aðist tvö börn í fyrra sambandi.
„Núna snýst líf mitt um börnin og
ef þau vilja eignast eitthvað dýrt
þurfa þau að bíða eftir jólunum.
Við erum bara venjuleg fjölskylda
í dag.“ n
Morales beðinn
afsökunar
Yfirvöld á Spáni hafa beðið yfir
völd í Bólivíu afsökunar á þeirri
ákvörðun sinni að loka lofthelgi
landsins þegar flugvél með for
seta Bólivíu, Evo Morales, ætl
aði að fara þar um. Ákvörðun
in var tekin eftir að grunsemdir
vöknuðu um að uppljóstrarinn
Edward Snowden væri um borð
í vélinni, en hann er eftirlýstur af
bandarískum yfirvöldum vegna
leka á trúnaðarupplýsingum. Af
sökunarbeiðnin barst á mánu
dag og undir hana skrifaði Miguel
Angel Vasquez, sendiherra Spánar
í Bólivíu. Bólivía er eitt þeirra ríkja
sem boðið hafa Snowden hæli en
hin löndin eru Venesúela og Ník
aragva. Vél Morales var gert að
lenda í Austurríki og tafðist vélin
af þeim sökum um fleiri klukku
stundir.
Bannað
að flauta
Óvenjulegt mál kom upp í borg
inni Leicester í Bretlandi fyrir
skömmu þegar nágrannar kvört
uðu undan mjólkurpósti í rólegu
íbúðahverfi í borginni. Mjólkur
pósturinn, hinn 52 ára gamli
Kevin Gifford, hafði lagt það í vana
sinn að flauta á morgungöngunni
með mjólkina til íbúa hverfisins.
Ekki voru allir á eitt sáttir við flaut
ið í Gifford og lögðu íbúar fram
kvörtun til yfirmanna hans. Þeir
brugðust skjótt við og skipuðu
Gifford að hætta að flauta, ella
eiga á hættu að missa vinnuna.
Sjálfur segist Gifford vera ósáttur
við kvartanirnar sem bárust.
„Ætla íbúar líka að kvarta und
an fuglasöngnum,“ sagði Gifford
í samtali við blaðamann breska
blaðsins The Sun.
Heimilið
var horfið
Íbúar einbýlishúss í Fort Worth í
Texas vöknuðu upp við vondan
draum þegar þeir komu heim úr
sumarfríi á dögunum. Búið var
að rífa húsið til grunna, eins og
sést á meðfylgjandi mynd, en síð
ar kom í ljós að skelfileg mistök
höfðu átt sér stað hjá borgaryfir
völdum. Atvikið átti sér stað síð
astliðinn föstudag en um var að
ræða tiltölulega gamalt hús sem
þó var í mjög góðu ásigkomulagi.
„Við litum upp og sáum að hús
ið var horfið,“ segir eigandinn,
David Underwood, þegar hann ók
að húsinu ásamt eiginkonu sinni.
Annað hús, sem stendur skammt
frá, átti að rífa til grunna en mistök
urðu til þess að hús hjónanna var
rifið. Hjónin munu fá tjónið bætt
að fullu.
Eyddi öllu Hamingjan verður ekki
keypt með peningum og það veit
Callie Rogers manna best.
Ofbeldið
gæti aukist
n Glæpaforingi handtekinn í Mexíkó n Fjárkúgun og mannrán
Y
firvöld í Mexíkó hafa haft
hendur í hári eins alræmd
asta glæpaforingja lands
ins, Miguel Angel Morales.
Morales, eða 40 eins og
hann var kallaður, var leiðtogi fíkni
efnasamtakanna Zetas sem ver
ið hafa fyrir ferðarmikil í Mexíkó á
undanförnum árum. Morales var
handtekinn í bænum Nuevo Laredo
við landamæri Bandaríkjanna.
Samtökin eru sögð bera ábyrgð á
fjölda morða sem framin hafa ver
ið í Mexíkó á undanförnum misser
um, landi þar sem þúsundir látast á
ári hverju vegna stríðandi fylkinga í
fíkniefnaheiminum.
Vildi ekki nást á lífi
Handtakan er álitin vera stór sigur
fyrir forseta Mexíkó, Enrique Pena
Nieto, í baráttunni gegn skipulagðri
glæpastarfsemi. Morales hafði ver
ið eftirlýstur um langt skeið og höfðu
tæpar 900 milljónir króna verið
boðnar hverjum þeim sem gæfi upp
lýsingar sem myndu leiða til hand
töku glæpaforingjans. „Hann hafði
sagt sínum nánustu bandamönn
um að hann myndi frekar vilja deyja
en vera handtekinn,“ segir Arturo
Fontes, fyrrverandi fulltrúi banda
rísku alríkislögreglunnar, FBI, sem
leitaði Morales í tæplega áratug.
Sjálfur hafði hann ekki trú á því að
hann myndi nást á lífi en Morales
veitti enga mótspyrnu þegar lög
reglumenn, bæði bandarískir og
mexíkóskir, handtóku hann. „Ég er
sérstaklega glaður fyrir hönd svo
margra fjölskyldna fórnarlamba,“
segir Fontes í viðtali við Dallas News.
„Nú munu þau fá að vita hvers vegna
ástvinir þeirra voru drepnir og hvað
varð um þá.“
Ofbeldið gæti aukist
Þó svo að mörgum sé létt vegna
handtöku Morales hefur Fontes ekki
mikla trú á því að ofbeldið sem fylgt
hefur glæpaklíkum á svæðinu muni
minnka. Nuevo Laredo er algeng
smyglleið fyrir fíkniefni inn til Banda
ríkjanna enda stendur bærinn nánast
á landamærunum. Telur Fontes að
glæpaklíkur, sem hafa verið í beinni
samkeppni við Zetas, muni á næstu
vikum og mánuðum berjast um yfir
ráð yfir þeim svæðum sem Zetas
stjórnaði. Það muni án nokkurs vafa
kosta mörg mannslíf. „Það er erfitt að
fullyrða hvað gerist en hlutirnir gætu
versnað áður en þeir batna. Erki
fjendur samtakanna munu nú berjast
um yfirráð á svæðinu,“ segir ónafn
greindur heimildarmaður innan lög
reglunnar í viðtali við Dallas News.
Í umfjöllun Dallas News um hand
tökuna kemur fram að glæpaklíka
Morales hafi einna helst lagt stund á
fíkniefnaviðskipti en á undanförnum
árum hafi umfang samtakanna auk
ist mikið. Þau hafi stundað fjárkúg
un, mannrán, neytt konur í vændi og
mansal svo fátt eitt sé nefnt. Þá eru
samtökin talin bera ábyrgð á morð
um á að minnsta kosti 270 farand
verkamönnum frá MiðAmeríku sem
voru myrtir á leið sinni til Bandaríkj
anna.
Morales fæddist í Nuevo Laredo
en flutti á unglingsárum sínum til
Dallas í Texas. Talið er að yngri bróðir
hans, Omar, sem einnig var alinn upp
í Dallas, muni taka við stjórn Zetas. n
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Léttir Þó svo að mörgum sé létt vegna hand-
töku Morales mun það ekki endilega þýða að
ofbeldi muni minnka, ekki strax að minnsta
kosti. Þúsundir hafa beðið bana í stríði fíkni-
efnagengja í Mexíkó á undanförnum árum.
Gómaður
Morales var
handtekinn
á mánudag.
Í bifreið hans
fundust tvær
milljónir dala í
peningum, eða
um 240 milljónir
króna, skotvopn
og skotfæri.