Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2013, Page 18
18 Sport 17. júlí 2013 Miðvikudagur
Strákarnir til Kína á æfingamót
n Körfuboltalandsliðið undirbýr sig fyrir undankeppni Evrópumótsins
Í
slenska karlalandsliðið í körfu
knattleik hélt til Kína á þriðjudag
þar sem liðið mun taka þátt í æf
ingamóti. Fjögur lið taka þátt í
mótinu en auk Íslands og Kína verða
lið Makedóníu og Svartfjallaland mót
herjar Íslands. Ljóst er að við ramman
reip verður að draga enda öll þrjú
liðin gríðarlega sterk. Kínverjar eru til
að mynda í 11. sæti á styrkleikalista
Alþjóðakörfuknattleikssambandsins,
FIBA. Makedóníumenn og Svartfell
ingar eru þessa dagana að undirbúa
sig fyrir lokakeppni Evrópukeppninn
ar sem fram fer í Slóveníu í september.
Íslenska liðið er hins vegar að undir
búa sig fyrir undankeppni Evrópu
keppn innar sem hefst í byrjun ágúst
en þar verður leikið um eitt laust sæti
á Eurobasket í Úkraínu 2015. Ísland er
þar í riðli með Rúmeníu og Búlgaríu.
Íslenska liðið mun koma heim frá Kína
þann 22. júlí og þá mun frekari undir
búningur fara fram. Liðið mun leika
tvo æfingaleiki við Dani dagana 25.
og 26. júlí. U22 ára landslið þjóðanna
munu einnig mætast tvisvar þessa
sömu daga en allir leikirnir munu fara
fram í Ásgarði í Garðabæ.
Rétt áður en haldið var til Kína
kom í ljós að Jón Arnór Stefánsson,
lykilmaður íslenska liðsins, þarf að
hvíla í tíu daga en hann á við smá
vægileg meiðsli að stríða. Hann ætti
þó að verða klár í slaginn fyrir leikina
gegn Dönum og í Evrópuleikina. Ekki
reyndist unnt að fá vegabréfsáritun
til Kína fyrir annan leikmann í hans
stað með svo stuttum fyrirvara og því
fara einungis ellefu leikmenn til Kína
á mótið. n
V
ið höfum ekki náð svona
langt áður og þetta er úr
slitaleikur upp á að komast
í 8liða úrslit,“ segir Sigurð
ur Ragnar Eyjólfsson, þjálf
ari kvennalandsliðsins í knattspyrnu.
Óhætt er að segja að liðið leiki einn
sinn mikilvægasta leik í sögunni
þegar það mætir því hollenska í
Evrópukeppninni í knattspyrnu í
dag, miðvikudag. Ísland verður að
vinna leikinn til að eiga möguleika á
að komast áfram.
Meiðsli í hópnum
Sigurður segir að leikurinn gegn Hol
lendingum leggist vel í íslenska liðið.
Meiðsli hafa þó plagað miðjumenn
liðsins og fóru þrír miðjumenn þess;
Sara Björk Gunnarsdóttir, Katrín
Ómarsdóttir og Dagný Brynjars
dóttir út af í leiknum gegn Þjóðverj
um. Á mánudag bættist Guðný Óð
insdóttir á meiðslalistann. „Þetta er
áfall fyrir hópinn en við vonum það
besta,“ segir Sigurður í viðtali við DV.
Katrín Ómarsdóttir tognaði aftan í
læri og verður ekki með gegn Þjóð
verjum. Sara Björk fékk magakrampa
á sunnudag en Sigurður heldur þó
í vonina um að hún verði leikfær.
Dagný og Guðný eru báðar tæpar og
óvíst með þátttöku þeirra.
Enn fínn möguleiki
Eftir 3–0 tap gegn Þjóðverjum á
sunnu dag situr Ísland á botni B
riðils með eitt stig. Hollendingar eru
einnig með eitt stig en töluvert betri
markatölu en íslenska liðið. Norð
menn og Þjóðverjar eru bæði með
fjögur stig en mætast innbyrðis í dag.
Reglur mótsins eru þannig að tvö
efstu lið hvors riðils komast áfram í
átta liða úrslit. Þá komast einnig tvö
lið áfram sem enda í 3. sæti síns rið
ils og þar liggja möguleikar Íslands
á áframhaldandi þátttöku í keppn
inni. Nái íslenska liðið að vinna það
hollenska verður liðið að minnsta
kosti í 3. sæti Briðils. Ísland á þó
enn möguleika á 2. sætinu en til að
það geti gerst verður liðið að treysta á
að Þjóðverjar vinni stórsigur á Norð
mönnum og að sjálfsögðu að vinna
leik sinn gegn Hollandi.
Æfa saman tvisvar í viku
Hollendingar eru með sterkt lið
og til marks um það náði liðið að
halda margföldum Evrópumeistur
um Þjóðverja í skefjum í opnunar
leik riðilsins, en sá leikur endaði með
markalausu jafntefli. Hollendingar
töpuðu svo fyrir Norðmönnum, 1–0,
á sunnudag en hollenska liðið átti
mun fleiri færi en það norska í leikn
um. Íslenska liðið og það hollenska
eru þó svipuð að styrkleika ef marka
má styrkleikalista FIFA. Holland
situr í fjórtánda sæti en Ísland í því
fimmtánda.
„Þær hafa spilað mikið á sama
liðinu og eru með mjög gott byrj
unarlið. Þær eru sennilega fljótasta
liðið fram á við í mótinu og það má
ekki gefa þeim mikið pláss. Þær
halda boltanum vel innan liðsins
og spila mjög skipulega,“ segir Sig
urður Ragnar þegar hann er spurð
ur um styrkleika hollenska liðsins.
Þá bendir hann á að hollenska liðið
æfi saman tvisvar í viku, allan ársins
hring, og hópurinn sé því mjög sam
heldinn.
Sáttur heilt yfir
Sigurður segist vera nokkuð sáttur
með spilamennsku íslenska liðsins
á mótinu til þessa. „Ég var mjög
ánægður með að við náðum stigi eft
ir að hafa lent undir. Það er erfitt að
lenda undir því þetta eru allt mjög
sterk lið. Við náðum að skapa okk
ur fullt af flottum færum, náðum
að skora og sýndum flottan karakt
er. Það var erfitt að gera miklar kröf
ur á móti Þýskalandi enda er gæða
munurinn það mikill. Auðvitað var
samt svekkjandi að tapa 3–0. Það er
jákvætt að hafa stigið það skref að ná
í stig í lokakeppni og við erum ennþá
inni í mótinu. Við eigum möguleika
á að fara lengra og það er jákvætt.“ n
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
„Við eigum mögu–
leika á að fara
lengra og það er jákvætt.
Mikilvægasti leikur
í sögu landsliðsins
n Leikur gegn Hollandi í dag n Óvissa vegna meiðsla n Verðum að vinna
B-riðill
Staðan
Lið Leikir Markatala Stig
Þýskaland 2 3 0 4
Noregur 2 2 1 4
Holland 2 0 1 1
Island 2 1 4 1
Enn möguleiki Íslenska liðið hefur sýnt það og sann-
að að það á erindi á stórmót. Ætli liðið sér í 8-liða úrslit
verður það að vinna Holland. Mynd FacEbooK-Síða KSí
Thiago fór til bayern Munchen:
Miðjumenn
sem United
gæti notað
Englandsmeistarar Manchester
United misstu af Thiago Alcant
ara, leikmanni Barcelona, til
Bayern München um helgina.
Miðjumaðurinn öflugi hafði verið
orðaður við United um langa hríð
en nú verður ekkert af því að hann
leiki fyrir Rauðu djöflana. United
þarf að styrkja miðsvæðið veru
lega. Vefritið Here is the City tók
af því tilefni saman nöfn nokkurra
miðjumanna sem United gæti
klárlega notað en spurningin er
sú hvort einhver af þeim endi hjá
félaginu.
1 Marouane Fellaini Það myndi kosta United 24 millj
ónir punda að kaupa Belgann
stóra og stæðilega. David Moyes,
stjóri United, þekkir hann vel og
kann að ná því besta úr honum.
2 Christian Eriksen Einn efnilegasti miðjumaður
heims og virðist vera tilbúinn að
yfirgefa Ajax. United gæti klárlega
notað hann þó hann sé ef til vill
sóknarsinnaðri en Thiago.
3 Antonio Candreva Þessi 26 ára Ítali er leikstjórnandi
Lazio og hefur verið orðaður við
United. Hann skoraði sjö mörk
og lagði upp átta mörk á síðasta
tímabili. Kosturinn við Candreva
er sá að verðmiðinn er ekki
gígantískur.
4 Geoffrey Kondogbia Stór og stæðilegur franskur
miðjumaður sem blómstraði
hjá Sevilla síðasta vetur. Sevilla
er skuldum vafið og mun selja
Kondogbia komi tilboð upp á 10
milljónir punda. Gæti gert fína
hluti við hlið Michael Carrick.
5 Luka Modric United hefur lengi haft augastað á Modric
enda frábær leikmaður. Koma
Asier Illarramendi til Real Madrid
gæti fækkað tækifærum Modric í
byrjunarliðinu. Spurningin er bara
sú hvort Real vilji selja og hvort
Modric hafi áhuga á að yfirgefa
Madrid strax.
6 Sven Bender Geysilega sterkur leikmaður hjá
Borussia Dortmund. Meiðsli hafa
sett strik í reikninginn og spurning
hvort United þori að taka áhætt
una á að bjóða í hann. Hann mun
þó væntanlega ekki kosta undir 20
milljónum punda.
7 Marco Verratti Einn efnilegasti miðjumaður Ítala
sem hefur verið líkt við Andrea
Pirlo. Stuðningsmenn United yrðu
fljótir að gleyma Thiago ef Verratti
myndi koma.
8 Nemanja Madic Serbinn Matic sem leikur með Ben
fica hefur verið orðaður við United
áður. Matic er 194 sentímetrar
og spilaði frábærlega í Evrópu
deildinni með Benfica síðasta vet
ur. Verðmiðinn er þó frekar hár,
eða 30 milljónir evra.
9 Kevin Strootman Hollendingurinn hefur mikið
verið orðaður við United í sumar.
Hann virðist vera tilbúinn að yfir
gefa PSV og United gæti eflaust
nýtt þennan sterka leikmann.
United þarf þó að hafa hrað
ar hendur enda fjölmörg lið sem
hafa áhuga á leikmanninum.
Hópurinn
4 Brynjar Þór Björnsson KR
5 Haukur Helgi Pálsson La Bruixa d‘Or
6 Jakob Örn Sigurðarson Sundsvall Dragons
7 Jóhann Árni Ólafsson Grindavík
8 Hlynur Bæringsson Sundsvall Dragons
10 Martin Hermannsson KR
11 Axel Kárason Værlose
12 Ragnar Nathanaelsson Hamar
13 Hörður Axel Vilhjálmsson Án félags
14 Logi Gunnarsson Án félags
15 Pavel Ermolinskij Án félags
Hörkuleikir Ísland gæti varla fengið
betri undirbúning fyrir undankeppnina.
Baráttujaxlinn Hlynur Bæringsson er að
sjálfsögðu í hópnum.