Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2013, Síða 20
20 Lífsstíll 17. júlí 2013 Miðvikudagur
Golfiðkun er ekki ellimerki
n Sport sem leynir á sér
G
olf er ekki eingöngu íþrótt
eldri borgara eins og sum
ir halda fram. Það er ekki
óalgengt að heyra frá nán
um vinum að þeir sem byrji að
stunda golf séu orðnir nánast elli
ærir. Það er eitthvað við ímynd
golfarans sem segir að þetta sé
auðvelt sport þar sem allir eru í
sínu fínasta pússi og mjaki sér í
gegnum völlinn á sólríkum sumar
degi. En svo er sannarlega ekki.
Golf er kannski ekki hröð
íþrótt en hún leynir á sér og geta
vegalengdirnar í gegnum 18
holurnar verið ansi langar og tek
ur það lúmskt á að munda kylf
una. 80 kílóa manneskja sem kýs
að ganga með golfsettið á milli 18
hola og spila að sjálfsögðu allan
hring inn, getur brennt allt að
1.400 kaloríum. Þetta er sport sem
öll fjölskyldan getur tekið þátt í og
notið sín á sínum hraða eftir sinni
kunnáttu.
Það er gaman að haldið skuli í
hefðir í klæðaburði golfara. Galla
buxur viðgangast ekki á golfvöll
um og er ekki óalgengt að sjá karl
menn skarta flottum sixpensurum
á vellinum í háum sokkum og
hnésíðum buxum. Þetta er smart
hefð sem gerir ímyndina kannski
gamal dags og sjarmerandi. Golf
arar eru oftast snyrtimennskan
uppmáluð. Margir sem byrja að
spila golf gera það að lífsstíl og
taka þessu mjög alvarlega og eru
fljótir að átta sig á að sjúskaður
hlýrabolur og gallabuxur eru ekki
málið á vellinum.
Þeir sem eru að byrja að stunda
þetta sport ættu að fara varlega í
að þeysast með golfsettið á bak
inu í gegnum heilan leik og draga
frekar settið á eftir sér, ýta því á
undan sér nú eða nota golfbíl á
milli hola. n
Leitar að hinni
fullkomnu súpu
n Selur mömmumat í hádeginu n Frægur fyrir humarsúpuna sína
E
iríkur Valdimar Friðriks
son er enginn nýgræðingur
þegar kemur að matargerð.
Hann hefur starfað á mörg
um af betri veitingastöðum
landsins og í dag rekur hann Fisk
búðina Höfðabakka ásamt Níelsi
Hafsteinssyni.
Eiríkur hefur unnið til nokkurra
verðlauna á starfsferli sínum sem
spannar yfir 35 ár.
Það var fjölmennt í búðinni
þegar blaðamann bar að garði, en
í hádeginu fyllist allt af fastakúnn
um í hinn rómaða heimilismat
sem Eiríkur lagar fyrir viðskiptavini
sína. Þarna hittast félagar og spjalla
saman um daginn og veginn yfir
heimalöguðum „mömmumat“.
Eiríkur er þekktur fyrir sína ljúf
fengu humarsúpu og hefur ver
ið haft á orði að hér sé um bestu
humarsúpu í heimi að ræða af þeim
sem segjast vita um hvað þeir eru
að tala. Eiríkur vill ekki taka svo stór
orð upp í sig en viðurkennir þó að
hann hafi fengið hól fyrir súpuna
góðu.
„Jú, það er rétt að einhverjir
hafa haft stór orð um humarsúp
una mína og það bara gleður mig
að hún er vinsæl. En besta súpa í
heimi veit ég ekki um, ég hef ekki
smakkað þær allar. Ég ætti kannski
að hafa það að markmiði og ferð
ast um heiminn í leit að hinni full
komnu súpu?“ segir Eiríkur og
brosir.
DV fékk Eirík til þess að deila
uppskriftinni af títt nefndri súpu. n
Humarsúpa
Hráefni:
2 kíló af humarskeljum
2 laukar
4 gulrætur
3 stangir sellerí
3 msk tómatpúrra
2 msk karrí
2 msk paprika
4 hvítlauksrif
Brúna allt ofan talið vel í potti, síðan
er einum bolla af koníaki bætt út í og
kveikt í. Því næst er einum bolla af
hvítvíni ásamt sex lítrum af vatni bætt
saman við og allt soðið í um klukku-
stund. Sigtið soðið og sjóðið á ný niður
um helming. Nú er grunnurinn klár og þá
þarf eftirfarandi til þess að klára verkið:
1 ltr rjómi
2–3 msk humarkraftur
2 teningar kjúklingakraftur
Allt soðið saman og smakkað til með
salti, pipar og koníaki. Að lokum er
humar settur að vild út í, rétt áður
en súpan er borin fram. Flott er að
setja rjómatopp á súpuna og saxaða
steinselju og fyrir þá sem vilja, er gott
að setja cayenne-pipar út í súpuna en
passið ykkur, því hann er sterkur.
Eiríkur Valdimar Friðriksson Deilir upp-
skrift að humarsúpu með lesendum DV.
Leður og
aftur leður
Haustvörurnar fara að streyma
inn í tískuvöruverslanir á komandi
vikum. Um miðjan ágústmánuð
verða verslanir fullar af falleg
um vörum og verður leðrið áber
andi ef marka má helstu tískuhús
heims. Alexander Wang, Pierre
Balmain og fleiri stór nöfn í tísku
heiminum, boða leður í vetur.
Fylgihlutir úr leðri, í sinni víðustu
mynd, verða sýnilegir í haust.
Konur sem vilja tolla í tísku ættu
að fjárfesta í hönskum, tösku, hatti
eða einhverju öðru fíneríi úr þessu
eðalefni sem fer aldrei úr tísku.
Loðnar
sokkabuxur
Sokkabuxur eru sívinsælar og
úrvalið gott. Þær koma í ótal
útfærslum, en þær furðulegustu
verða að teljast sokkabuxur sem
líkja eftir kafloðnum fótleggjum
og Daily Mail fjallar um á vef
sínum. Það er ekkert að því að
vera með náttúruleg hár á fót
leggjum við sumarkjólinn. Þessar
hárprúðu sokkabuxur, sem eru
framleiddar í Kína, hafa ekki náð
miklum vinsældum en þarna var
hönnuðurinn kannski að reyna
einum of í frumlegheitum sínum.
Reglan minna er meira á kannski
vel við hér?
Heimsins
minnsta
sónartæki
Amerískir vísindamenn hafa
fundið upp fyrsta sónarskanna
fyrir snjallsíma. Það er Mail
Online sem greinir frá þessu.
Uppfinningin gæti hjálpað þung
uðum konum í þriðja heiminum
þar sem tæknin er lítil sem engin.
Framleiðendur vonast til að sem
flestar þungaðar konur getir haft
aðgang að tækinu þar sem það er
lítið fyrir ferðar og verðið ekkert
í líkingu við stór sónartæki sem
tíðkast á spítölum. Tækið er tengt
við snjallsíma og birtist mynd af
fóstrinu á skjánum og er þannig
hægt að fylgjast náið með vexti
fóstursins og heilsu þess.
Íris Björk Jónsdóttir
blaðamaður skrifar iris@dv.is
Tiger Woods Sá flottasti í bransanum.