Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2013, Síða 23
Menning 23Miðvikudagur 17. júlí 2013
Dökk framtíð blaðamennsku
n Krafan er um vandaðri blaðamennsku en fáir vilja borga brúsann n Fékk sumarvinnu á Berliner Zeitung
Versta djobb í heimi?
„Sá sem segist vita hver framtíð blaða-
mennskunnar er – hann lýgur,“ bæt-
ir Carr við á fundinum, en einhverja
þræði má þó greina. Berliner Zeitung
er nú að reyna að endur-markaðssetja
sig sem héraðsblað fyrir Berlínarborg,
en ef til vill er heldur seint í rassinn
gripið. Íslensk blöð eru eðli máls-
ins samkvæmt smábæjar blöð og eru
því að veita þjónustu sem aðrir gera
ekki. Fólk mun vafalaust sækja frétt-
ir utan að til annarra miðla sem sinna
þeim betur, en íslenskir miðlar munu
í fyrirsjáanlegri framtíð að minnsta
kosti halda sérstöðu
sinni við að segja fréttir frá Íslandi á
íslensku.
Það er kannski ofsögum sagt,
eins og kom fram í Wall Street
Journal um daginn, að blaða-
mennska sé versta djobb í heimi.
Hún er þrátt fyrir allt gefandi þegar
best lætur og vonandi þjónar hún
einhverjum tilgangi líka. Þá stend-
ur bara eftir að finna leiðir til fjár-
mögnunar. Margir óska eftir vand-
aðri blaðamennsku, en einhver
verður að vilja borga fyrir hana
líka. n
Forsíða á Berliner Zeitung frá 1948 Blaðið var stofnað af sovéskum hernáms-yfirvöldum þann 7. júlí 1945.
„Margir óska
eftir vand-
aðri blaðamennsku,
en einhver verður að
vilja borga fyrir hana
líka.
Á
miðvikudagskvöld verður
haldið raftónlistarpartí á
skemmti- og tónleikastaðn-
um Harlem í Reykjavík. Fram
koma MRC Riddims ásamt
Ghostigital og fleirum. Tónleikarnir
verða haldnir í nýopnuðum innri sal
Harlem þar sem skemmtistaðurinn
Volta var áður til húsa.
„Ætli það megi ekki lýsa þessu sem
partí-tónlist fyrir fullorðna,“ segir raf-
tónlistarmaðurinn Birgir Thorodd-
sen eða Curver en hann og Einar Örn
Benediktsson skipa hljómsveitina
Ghostigital. Curver segir dagskrána
veglega og gaman sé að fá hina erlendu
gesti til landsins.
„MRC Riddims er skipuð pródúser-
unum Alap Momin og Merc Yes og
spila taktþunga partí-tónlist og flutn-
ingur þeirra er einskonar sambland af
lifandi tónlistarflutningi og DJ setti.
Alap var áður í hávaðarappsveitinni
Dälek sem hefur spilað tvisvar á Íslandi,
meðal annars á Airwaves og Merc
var aðal sprautan í skóglápssveitinni
IfWhen. Þeir hafa komið víða við og
spilað um allan heim,“ segir Curver.
Myndlistakonan Berglind Ágústsdótt-
ir kemur einnig fram á kvöldinu, auk
Ghostigital, AMFJ og Lord Pusswhip.
„Svo er gaman frá því að segja að
þeir Alap og Merc eru báðir frá Harlem
í New York. Það mætti því segja að þeir
fljúga frá Harlem til að spila á Harlem,“
segir Curver.
Tónleikarnir hefjast klukkan tíu á
miðvikudagskvöldið. n
T
ímaritið Krakkalakkar kom
út á dögunum. Tímaritið
er ætlað strákum og stelp-
um á aldrinum 6–12 ára
og segja aðstandendur
blaðsins þetta fyrsta barnatíma-
ritið sem lítur dagsins ljós hér á
landi síðan Æskan kom út fyrir 20
árum síðan. Tímaritið er prentað
á mattan bókapappír í umhverfis-
vænni prentsmiðju, efni blaðsins
miðar að því að börn fái hugmynd-
ir og innblástur, frekar en að vera
innantóm afþreying og ritstjóri
blaðsins er Guðbjörg Gissurar-
dóttir. n
Fljúga frá Harlem
til að spila á Harlem
Ghostigital
Einar Örn og Birgir
Thoroddsen koma
fram á Harlem.
Alap Momin og Merc Yes
Fljúga frá Harlem og koma fram á
Harlem á miðvikudagskvöld.
Fyrsta íslenska barna-
tímaritið í tuttugu ár
Aðstandendur nýja tímaritsins Michael Tran, Guðbjörg Gissurardóttir, Erla Björg
Gunnarsdóttur og Eva Rún Þorgeirsdóttur.