Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2013, Síða 27
Fólk 27Miðvikudagur 17. júlí 2013
Heimsmeistari á Café Haítí
Þ
að er búið að vera draum
ur lengi að fá Chic til landsins
þannig að þetta leggst rosa
lega vel í mig,“ segir Þorsteinn
Stephensen, en hann er einn þeirra
sem flytja hljómsveitina til landsins.
Chic, með gítarleikarann Nile Rodgers
í fararbroddi, verður með tónleika í
Silfurbergssalnum í Hörpu í kvöld og
hefur miðasala gengið vel. Þorsteinn
er mikill aðdáandi gítarleikarans Nile
Rodgers, en hann hefur átt stóran þátt
í velgengni heimsþekktra listamanna
á borð við David Bowie, Madonnu,
Bryan Ferry og Duran Duran.
„Það er mjög skemmtilegt að hann
skuli akkúrat koma til Íslands núna
þegar hann er aftur byrjaður að spila
með bandinu. Hann er náttúrlega
þekktur sem súper lagahöfundur og
pródúsent og á fullt af smellum. Let‘s
Dance er til dæmis langmest selda
plata David Bowie og Like a Virgin
er stærsti „hittari“ Madonnu og Nile
Rodgers á þetta allt saman.“
Chic hefur verið á tónleikaferða
lagi um allan heim undanfarna
mánuði og segir Þorsteinn hljóm
sveitina hafa fengið góðar viðtökur.
„Þeir hafa gjörsamlega sleg
ið í gegn og fengið fimm stjörnu
dóma alls staðar. Voru núna síðast á
Glastonbury og pökkuðu því alveg
saman svo bandið er í toppstandi.“
En við hverju mega áheyrendur
búast í kvöld?
„Áheyrendur mega búast við mjög
þéttu bandi og öllum stærstu smell
um Nile Rodgers í einni bunu. 30
„hittarar“ í röð og mjög flott „show“
þannig að það verður mikið um dans
og fjör í Hörpunni.“ n
Diskóbomba í Hörpu
n Nile Rodgers treður upp í kvöld
n Afgreiðir kaffi með bros á vör
H
laupakonan Aníta Hinriks
dóttir hefur verið að vinna
á kaffihúsinu Café Haítí í
sumar. Þar afgreiðir hún
kaffi með bros á vör. Aníta varð,
sem kunnugt er, heimsmeistari í
800 metra hlaupi kvenna 17 ára og
yngri á sunnudaginn og hefur vak
ið athygli fyrir framkomu sína jafnt
inn á íþróttavellinum sem og utan.
DV heyrði í Anítu sem hefur
skiljanlega ekki getað unnið fulla
vinnu á kaffihúsinu í sumar. ,,Nei,
ég hef bara getað tekið nokkr
ar vaktir enda nóg að gera,“ sagði
hlaupakonan brosmilda sem heill
aði þjóðina upp úr skónum þegar
hún stakk andstæðinga sína hrein
lega af í úrslitunum í 800 metra
hlaupinu.
Elda ThorissonFaurelien, eig
andi Café Haíti, sagði þetta frábær
an árangur hjá Anítu – hlaupakon
unni ungu sem afgreiðir kaffi milli
þess sem hún hleypur fyrst í mark. n
L
eikarinn Friðrik Friðriksson
vann persónulegt afrek þegar
hann hljóp Laugavegshlaup
ið á laugardaginn. Hlaupið
var haldið í 17. sinn en þar er
hlaupið á milli Landmannalauga og
Þórsmerkur – um 55 kílómetra leið.
Að þessu sinni voru þátttakendur
hátt í 300 talsins og kláraði Friðrik
hlaupið á um sjö klukkutímum.
Skráði sig í hlaupahóp
„Í mars skráði ég mig í hlaupahóp
hjá Sigurði P. Sigmundssyni á hlaup.
is þar sem ég tók þátt í prógrammi
sem lagt var upp með. Ég var bú
inn að vera í einhverri æfingu þar
á undan, en ekki nógu mikilli. Svo
hljóp ég maraþon í fyrra og það
tókst nokkuð vel,“ segir Friðrik.
Erfitt en skemmtilegt
Friðrik segist setja sér stórt mark
mið á hverju ári og að þessu sinni
hafi Laugavegshlaupið orðið fyrir
valinu.
„Eftir að ég byrjaði að hlaupa af
einhverju viti fyrir nokkrum árum
þá hefur mér fundist gott að hafa
eitt markmið á hverju ári, eitthvað
sem gott er að stefna á. Friðrik hljóp
þessa 55 kílómetra á 7 klukkustund
um og 13 mínútum og var númer
144 í mark.
„Ég var bara hálfmeyr og klökk
ur þegar ég kom í mark. . Svo var
maður að mæta fólki síðustu kíló
metrana og það voru allir að segja:
Þetta er alveg að nálgast, það
eru bara tveir til þrír kílómetrar eft
ir,“ en mér fannst þessir tveir til þrír
kílómetrar alveg óheyrilega langir.
Þannig að ég var mjög feginn að
komast í mark og var eiginlega bara
hálfklökkur. Löngunin að komast
í mark eftir þennan langa dag var
mikil.“ n
n Hljóp 55 kílómetra á hálendi Íslands í hinu árlega Laugvegshlaupi
Kom klökkur í mark
Hörn Heiðarsdóttir
blaðamaður skrifar horn@dv.is
Frægir í Laugavegs-
hlaupinu Elísabet Mar-
geirsdóttir, veðurfrétta-
kona, Bjarni Ármannsson
og Róbert Marshall stóðu
sig öll vel.
Klökkur Friðrik kom í
mark eftir 7 klukkutíma og
13 mínútur, en hópurinn
hans var ræstur af stað 5
mínútum eftir að klukkan
fór í gang.
Hleypur í vinnuna Aníta Hinriks-
dóttir hefur unnið á Café Haítí í sumar.
Gítarveisla í
Bíó Paradís
Það verður sannkölluð gítar
veisla í Bíó Paradís næstkomandi
fimmtudag en þá stíga á stokk
hljómsveitirnar Stroff, Skelkur í
Bringu, Bárujárn og Oddur+Solla.
Bárujárn voru að gefa út sína
fyrstu breiðskífu og er þekkt sem
helsta brimbrettarokksveit lands
ins, Stroff er ný indísúpergrúppa
skipuð meðlimum úr goðsagna
kenndum hljómsveitum á borð
við Skáta, Náttfara og BoB. Skelk
í Bringu þarf varla að kynna en
hún er nú að semja efni fyrir nýja
plötu og verður því spennandi að
sjá upp á hverju hún tekur næst.
Nýtt verkefni Odds Bárusonar og
Sólveigar Pálsdóttur mun sjá um
að kynda í liðinu en bandið sam
anstendur af klassískum gítarleik
og ljóðaslammi. Tónleikarnir hefj
ast kl. 22 og er frítt inn!
Giftir sig í
Þórsmörk
Leikstjórinn Þorleifur Örn Arnars
son er maður ævintýra. Um versl
unarmannahelgina ganga hann og
unnusta hans Anna Rún Tryggva
dóttir í það heilaga. Brúðkaupið
mun fara fram í Þórsmörk og hef
ur Þorleifur tekið á leigu skálann í
Básum af því tilefni. Þorleifur hef
ur getið sér gott orð sem leikstjóri í
Þýskalandi og víðar og mun fjöldi
gesta vera væntanlegur til lands
ins frá útlöndum. Þeir munu svo
sannarlega fá að kynnast íslenskri
náttúrufegurð því brúðkaups
gestirnir munu ganga alla leið
frá Landmannalaugum og nið
ur í Þórsmörk – hinn svokallaða
Laugaveg – þar sem brúðkaupið
mun svo fara fram.
Neglir erlenda
ferðamenn
„Leifur Eiríksson fór í útrás en ég
er að fara í innrás,“ segir Jóhannes
Valgeir Reynisson sem fór í gær
með þriggja metra háan frauð
nagla að Hallgrímskirkju til að
vekja athygli á Bláa naglanum –
samtökum sem berjast fyrir vit
undarvakningu þegar kemur að
blöðruhálskrabbameini hjá körl
um. „Við erum að herja á erlenda
ferðamenn. Ég lét útbúa brjóst
nælur sem heita Pin of Hope og
þær fóru í sölu í morgun í Fríhöfn
inni á Keflavíkurflugvelli. Hug
myndin er að negla erlenda ferða
menn og „pinna“ þá niður,“ segir
Jóhannes en söfnunin hófst 19.
apríl 2012 og nú hafa safnast um
300 milljónir króna upp í nýtt tæki
sem kostar um 500 milljónir og
vantar því enn talsvert upp á.