Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1974, Blaðsíða 18
16*
Verzlunarskýrslur 1972
1972 heldur en 1935. Þetta virðist stríða hvað á móti öðru, en svo er þó
ekki í raun og veru, því að vörumagnsvísitalan tekur ekki aðeins til þyngd-
arinnar, heldur einnig til verðsins, Jiannig að viss þungi af dýrri vöru
(með háu verðlagi á kg), svo sem vefnaðarvöru, vegur meira í vörumagn-
inu heldur en sami þungi af þungavöru (með lágu meðalverði á kg), svo
sem eldsneyti og salti. Vörumagnið getur því aukizt, þótt þyngdin vaxi
ekki, ef magn dýru vörunnar vex, en þungavörunnar minnkar. Lítil aukn-
ing á þungavöru hieypir þyngdinni miklu meira fram heldur en stórmikil
aukning á dýruin vörum, svo sem vefnaðarvöru. Skýringin á þessu ósam-
ræmi er því sú, að þungavörunnar gætir miklu minna á móts við hinar
dýrari í innflutningnum nú heldur en áður. 1 útflutningnum er aftur á
móti minni munur á vörumagnsvisitölu og þyngdarvísitölu.
1. yfirlit sýnir innflutning og útflutning i hverjum mánuði 1969 -
1971 samkvæmt verzlunarskýslum, en síðar í innganginum er yfirlit um
mánaðarlega skiptingu innflutnings (3. ltafli) og útflutnings (4. kafli).
1. yíirlit. Verð innflutmngs og útflutnings eftir mánuðum.
Value of impoTls and exports, by months.
Innflutningur imports Útflutningur exports
Mánuðir months 1970 1971 1972 1970 1971 1972
Millj. kr. Millj. kr. Millj. kr. Millj. kr. Millj. kr. Millj. kr.
Janúar 681,4 999,1 998,1 776,7 821,2 887,5
Febrúar 637,9 1 129,7 1 331,9 752,7 775,5 1 051,9
Marz 975,8 1 394,9 1 407,7 818,0 819,2 1 461,1
Apríl 1 347,0 1 317,0 1 697,2 1 342,9 1 100,8 1 447,9
Maí 968,3 1 669,8 i 817,6 1 328.6 1 287,8 1 837,4
Júní 880,4 2 110,5 2 173,9 864,8 1 463,0 1 264,9
júií 1 235,1 1 371,5 1 539,7 1 385,4 1 622,0 1 636,7
Ágúst 981,2 1 421,9 1 662,0 1 127,5 1 173,1 1 734,2
September 1 138,9 1 390,1 1 496,9 1 211,2 1 019,0 1 215,8
Október 1 152,2 1 315,9 1 734,3 1 176,0 1 240,7 1 594,5
Nóvember 1 402,9 1 835,2 1 613,3 948,1 1 108,7 1 249.0
Desember 2 243,5 2 975,9 2 570,8 ] 183,1 746,9 1 320,1
Samtals 13 644,6 18 931,5 20 043,4 12 915,0 13 177,9 16 701,0
3. Innfluttar vörur.
ImpoTts.
Tafla IV (bls. 28—187) sýnir innflutning 1972 i hverju númeri toll-
skrárinnar og skiptingu hans á lönd. Sýnd er þyngd i tonnum (auk þess
stykkja- eða rúmmetratala nokkurra vörutegunda), fob-verð og cif-verð.
Taflan er i tollskrárnúmeraröð og vísast í því sambandi til skýringa í 1.
kafla þessa inngangs og við upphaf töflu IV á bls. 28.