Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1974, Blaðsíða 260
Hagstofa Islands
gefur út eftirtaliu rit:
1. Hagskýrslur íslauds koma út öðru liverju í sjálfstæðum, tölusettum heftum. Þar
eru birtar ýtarlegar skýrslur um efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar (Verzlun-
arskýrslur, Búnaðarskýrslur, Iðnaðarskýrslur, Manntal, Mannfjöldaskýrslur,
Alþingiskosningar, Sveitarsjóðareikningar, o. fl.). í I. útgáfuflokki Hagskýrslna,
sem hófst 1914, voru 132 rit, í II. útgáfuflokki, sem hófst 1951, hafa kornið
út 55 rit. — Áskrifendum Hagskýrslna er tilkynnt útkoma rita jafnóðum og þau
koma út, og þeir eru beðnir að senda greiðslu. Að henni móttekinni eru rit
send þeim í pósti.
2. Hagskýrslur íslauds, aukaflokk. í honum eru sarns konar rit og í aðalflokki Hag-
skýrslna, nema hvað þau eru í öðru hroti (kvartbroti) og „off-set“-fjölrituð.
3. Hagtíðindi, mánaðarrit. Þar eru birtar mánaðarlegar skýrslur um utanríkisverzlun,
fískafla, þróun peningamála, framfærsluvísitölu o. fl., og árlegar skýrslur um
ýmisleg efni, sem ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af Hagskýrslum. — Ár-
legt áskriftargjald Hagtíðinda er 250 kr.
4. Statistical Bulletiu er sameiginlegt rit Hagstofunnar og Seðlabanka íslands. Það
er á ensku — enda ætlað útlendingum — og kemur út ársfjórðungslega (frá og
með 1963, þar áður var það mánaðarrit). — í Statistical Bulletin eru birtar
ýmsar töflur úr Hagtíðindum, og úr Fjármálatíðindum, riti Seðlabanka íslands.
— Erlendir áskrifendur þessa rits fá það ókeypis, en innanlands er árlegt áskrift-
argjald þess 150 kr.
5. íkúaskrá Reykjavíkur kemur út á hverju vori. í henni eru allir íbúar Reykjavíkur
næstliðinn 1. desember samkvæmt þjóðskrá, með þeim upplýsingum, sem hún
hefur að geyma um hvern mann. íbúaskrá Reykjavíkur 1. desember 1972 var
1410 bls., og verð 3900 kr. í bandi. Upplag þessarar bókar er mjög takmarkað,
enda við það miðað, að hún seljist upp.
6. Skrár yfir fyrirtæki á íslandi 1969. Hér er birtur frumstofn hinnar nýju
heildarskrár Hagstofunnar yfir fyrirtæki á íslandi (þar eru með bændur,
útgerðarmenn, iðnmeistarar o. s. frv.). í þessu riti eru þríþættar uppsláttar-
skrár, þar á meðal skrár, þar sem atvinnufyrirtækjum, stofnunum og félags-
samtökum er skipt í 165 starfsgreinar. — Rit þetta kostar 1600 kr. í bandi.
Viðaukar við rit þetta hafa verið gefnir út, síðast í apríl 1973.
7. Skrár yfir dána, með fæðingardegi, dánardegi, heimili og fleiri upplýsingum
um dána, koma út árlega í fjölrituðu hefti. Fyrsta heftið, með dánum 1965
—67, kostar 130 kr., skrár yfir dána 1969 og 1970 kosta 80 kr. hvorar um
sig, skrár yfir dána 1971 100 kr., og skrár yfir dána 1972 130 kr.
Afgreiðsla ofan greiudra rita er í Hagstofunni, Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu 8—10
(3. hæð), Reykjavik. Sínú 26699. — Rit eru send gegn póstkröfu, ef þess er óskað,
þó ekki rit í liðum 5 og 6.